Fara í efni

Handbók verklag og sniðmát málefni fatlaðs fólks

Málsnúmer 2601275

Vakta málsnúmer

Félagsmála- og tómstundanefnd - 46. fundur - 20.08.2026

Lagt fram minnisblað frá Grétu Sjöfn Guðmundsdóttur, leiðtoga fatlaðs fólks og eldra fólks, og Ölmu Dögg Guðmundsdóttur, ráðgjafa í málefnum fatlaðs fólks, dags. 6. júlí sl. Í minnisblaðinu er gerð grein fyrir helstu verkefnum sem unnin hafa verið á undanförnu ári með stuðningi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga í þjónustu við fatlað fólk í búsetuþjónustu Skagafjarðar.

Styrkur var veittur til verkefnis sem felur í sér innra eftirlit með þjónustu við fatlað fólk og úrbótavinnu sem ætlað er að styðja við nýsköpun, gæðaþróun og áframhaldandi uppbyggingu málaflokksins. Heildarframlag nam allt að 13,2 m.kr.

Verkefnin hafa það sameiginlegt að efla faglega og lagalega umgjörð þjónustunnar, undirbúa sveitarfélagið fyrir innleiðingu væntanlegrar reglugerðar um innra eftirlit og bæta aðgengi notenda að upplýsingum um réttindi sín og þjónustu.