Fara í efni

Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 01_Þjónusta við fatlað fólk

Málsnúmer 2608073

Vakta málsnúmer

Félagsmála- og tómstundanefnd - 46. fundur - 20.08.2026

Fjárhagsrammi fyrir rekstrarárið 2027 í málaflokki 01, málefni fatlaðs fólks, ásamt forsendum lagður fram.

Félagsmála- og tómstundanefnd - 47. fundur - 01.10.2026

Lögð fram drög að fjárhagsáætlun ársins 2027 fyrir málaflokk 01 (Þjónusta við fatlað fólk) til fyrri umræðu. Drögin taka mið af núverandi rekstri og fyrirliggjandi forsendum. Fram kemur að fjárhagsáætlunin sé enn í vinnslu og geti tekið breytingum við áframhaldandi vinnu.

Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða framlögð drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 og vísar þeim til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra að vinna áfram að gerð áætlunarinnar og leggja endurskoðuð drög fyrir nefndina til síðari umræðu.