Fara í efni

Félagsmála- og tómstundanefnd

48. fundur 05. nóvember 2026 kl. 14:00 - 16:10 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Jakob Logi Gunnarsson formaður
  • Guðrún Sonja Birgisdóttir varaform.
  • Halldór Jón Sigurðsson aðalm.
  • Sædís Bylgja Jónsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Þorvaldur Gröndal frístundastjóri
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir leiðtogi fatlaðs fólks og eldra fólks
  • Margrét Petra Ragnarsdóttir leiðtogi farsældar og félagsmála
  • Auður Inga Ingimarsdóttir leiðtogi fatlaðs fólks og eldra fólks
Fundargerð ritaði: Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá
Halldór Jón Sigurðsson tók þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað.

1.Stafræn þróun í velferðarþjónustu Skagafjarðar

Málsnúmer 2611007Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað leiðtoga fatlaðs fólks og eldra fólks. Frá því síðasta minnisblað um málið var lagt fyrir í maí sl. hefur orðið mikilvæg þróun á landsvísu sem hefur áhrif á áframhaldandi stefnumótun Skagafjarðar um stafræna þróun í velferðarþjónustu. Félags- og húsnæðismálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa markað sameiginlega framtíðarsýn um stafræna þróun og gagnamál í félagsþjónustu, ásamt aðgerðaáætlun til ársins 2028. Jafnframt er gert ráð fyrir fjárstuðningi við sveitarfélög vegna áskriftargjalda til loka árs 2028. Í ljósi þessarar þróunar er nú kannað hvort unnt sé að nýta eina sameiginlega stafræna lausn í velferðarþjónustu í stað tveggja aðskilinna lausna.

Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að fela starfsfólki nefndarinnar, í samstarfi við stjórnsýslu- og fjármálasvið, að vinna málið áfram í samræmi við þær áherslur sem fram koma í minnisblaðinu.

2.Frístundaakstur

Málsnúmer 2609288Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað leiðtoga frístunda- og íþróttamála um nýtingu og kostnað vegna frístundaaksturs. Í minnisblaðinu er gerð grein fyrir mismunandi útfærslum aksturs á þriðjudögum og föstudögum, meðal annars kostnaði við akstur báðar leiðir.

Félagsmála- og tómstundanefnd leggur til að frístundaakstur verði tryggður báðar leiðir á þriðjudögum og föstudögum. Nefndin telur mikilvægt að fyrirkomulagið stuðli að bættu aðgengi barna að skipulögðu íþrótta- og frístundastarfi óháð búsetu. Samþykkt samhljóða og vísað til byggðarráðs.

3.Hvatapeningar 2027

Málsnúmer 2608214Vakta málsnúmer

Lagt er til að hvatapeningar haldist óbreyttir árið 2027.

Fulltrúi Miðflokks óskar eftir því að leggja fram eftirfarandi tillögu:
Lagt er til að hvatapeningur verði í boði fyrir börn frá fæðingu til 18 ára aldurs.

Með breytingunni verði foreldrum gert kleift að nýta hvatapeninginn fyrir börn frá fæðingu í stað þess að rétturinn hefjist við 5 ára aldur, eins og nú er.

Mikilvægt er að skapa öllum börnum tækifæri til þátttöku í fjölbreyttri afþreyingu, tómstundum og skipulögðu starfi frá unga aldri. Fjölbreytt úrræði og afþreying standa nú þegar til boða fyrir þennan aldurshóp og því eðlilegt að hvatapeningurinn taki einnig til yngstu barnanna.

Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Byggðalista hafnar að svo stöddu tillögu um að breyta aldursviðmiði hvatapeninga úr 5?18 ára í 0?18 ára. Meirihlutinn telur mikilvægt að fyrir ákvörðun um slíka breytingu liggi fyrir upplýsingar um hvaða skipulagða íþrótta-, lista- og tómstundastarf stendur börnum undir fimm ára aldri til boða, þátttöku þeirra í slíku starfi og kostnaðaráhrif mögulegrar útvíkkunar. Starfsfólki er falið að taka þessar upplýsingar saman og leggja fyrir nefndina til frekari skoðunar.

Fulltrúi Miðflokks óskar að eftirfarandi bókun verði færð til fundargerðar fyrir hönd Miðflokksins:
Miðflokkurinn harmar að tillaga um að hvatapeningur nái til barna frá fæðingu til 18 ára aldurs hafi ekki verið samþykkt.

Að okkar mati eiga öll börn að hafa tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum tómstundum, afþreyingu og skipulögðu starfi óháð aldri. Það er engin ástæða til að útiloka yngstu börnin frá þessum stuðningi, enda stendur þeim þegar til boða fjölbreytt afþreying og tómstundastarf.

Miðflokkurinn mun áfram leggja áherslu á að hvatapeningurinn verði aðgengilegur öllum börnum frá fæðingu til 18 ára aldurs.

Nefndin samþykkir samhljóða að óska eftir því að starfsfólk taki saman upplýsingar um hvaða skipulagða íþrótta-, lista- og tómstundastarf stendur börnum undir fimm ára aldri til boða, hver þátttakan er í slíku starfi og kostnaðaráhrif mögulegrar útvíkkunar.

4.Niðurgreiðslur til dagforeldra og foreldragreiðslur 2027

Málsnúmer 2608207Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga meirihluta að upphæð niðurgreiðslna skv. 6. gr. reglna um niðurgreiðslu á daggæslu í heimahúsum og um foreldragreiðslur hækki um 10.000 kr. frá 1. janúar 2027 og verði 120.000 kr. á mánuði.

Fulltrúi Miðflokksins óskar eftir að leggja fram eftirfarandi tillögu:
Lagt er til að foreldragreiðslur Skagafjarðar verði hækkaðar úr 110.000 kr. í 150.000 kr. á mánuði.

Það er mat Miðflokksins að mikilvægt sé að styðja vel við barnafjölskyldur í Skagafirði og skapa þeim sem bestar aðstæður til að samræma fjölskyldulíf og atvinnuþátttöku.

Þegar 12 mánaða fæðingarorlofi lýkur getur myndast tímabil þar til barn fær leikskólapláss. Það getur skapað fjölskyldum bæði fjárhagslegar og félagslegar áskoranir.

Með hækkun foreldragreiðslna viljum við styðja betur við þær fjölskyldur sem lenda í þessari stöðu og tryggja þeim aukinn fjárhagslegan stuðning á meðan beðið er eftir leikskólaplássi.

Miðflokkurinn telur jafnframt mikilvægt að horfa til þess að fjárhagsáætlun sveitarfélagsins geri ráð fyrir rekstri leikskólaplássa fyrir þau börn sem eru á bið eftir vistun. Kostnaður við að greiða foreldrum hærri foreldragreiðslur kann því að vera umtalsvert lægri en sá kostnaður sem fylgir rekstri leikskólaplássa fyrir sömu börn. Því er mikilvægt að skoða fjárhagsleg áhrif breytingarinnar í samhengi við þann kostnað sem ella hefði fallið til vegna leikskólarekstrar.

Þó þarf að fara fram nánara kostnaðarmat áður en endanleg fjárhagsleg áhrif breytingarinnar liggja fyrir.

Miðflokkurinn leggur jafnframt áfram áherslu á að meginmarkmiðið verði að efla leikskóla Skagafjarðar, tryggja nægt framboð leikskólaplássa og skapa fjölskyldum fyrirsjáanleika í dagvistun barna sinna.

Foreldragreiðslur eiga að vera stuðningur við fjölskyldur á meðan beðið er eftir leikskólaplássi, en ekki koma í stað öflugrar leikskólaþjónustu.

Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Byggðalista minnir á að á síðasta ári voru foreldragreiðslur hækkaðar verulega, úr rúmlega 66 þúsund krónum í 110 þúsund krónur á mánuði, til að koma betur til móts við foreldra barna sem bíða eftir leikskólaplássi. Tillaga um hækkun í 120 þúsund krónur frá 1. janúar 2027 er áframhald þeirrar stefnu og felur í sér enn frekari hækkun stuðnings við fjölskyldur.

Meirihlutinn telur mikilvægt að horfa til þessarar þróunar í heild sinni. Á tveimur árum hafa greiðslurnar þannig hækkað úr rúmlega 66 þúsund krónum í 120 þúsund krónur á mánuði, eða um 81%. Meirihlutinn telur þetta sýna skýran vilja til að styðja við foreldra í þessari stöðu, samhliða því að gæta þarf ábyrgðar í rekstri sveitarfélagsins m.a. í ljósi niðurstöðu 6 mánaðar uppgjörs sveitarfélagsins og vinna áfram að því meginmarkmiði að börn fái leikskólapláss. Tillögu Miðflokksins hafnað.

Miðflokkurinn fagnar því að til standi að hækka foreldragreiðslur í Skagafirði, enda er það mikilvægt skref í stuðningi við barnafjölskyldur. Að okkar mati þarf þó að ganga lengra. Tillaga Miðflokksins um að hækka foreldragreiðslur í 150.000 kr. á mánuði er hugsuð sem fyrsta skref í átt að sanngjarnari og betri stuðningi við þær fjölskyldur sem þurfa að brúa bilið þar til leikskólapláss býðst.

Tillaga meirihluta um hækkun foreldragreiðslna um 10.000 kr. samþykkt með tveimur atkvæðum meirihluta. Fulltrúi Framsóknarflokks situr hjá við afgreiðslu.

5.Styrkbeiðni - Stígamót

Málsnúmer 2610071Vakta málsnúmer

Lögð fram styrkbeiðni frá Stígamótum vegna starfsemi samtakanna fyrir árið 2027. Nefndin samþykkir samhljóða að hafna erindinu og óskar Stígamótum alls góðs í störfum sínum.

6.Beiðni um gjaldfrjálsan aðgang að sundlaugum

Málsnúmer 2610233Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá skólameistara Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra þar sem óskað er eftir því að gjaldtaka fyrir nemendur skólans sem ekki hafa lögheimili í Skagafirði verði endurskoðuð. Félagsmála- og tómstundanefnd felur starfsfólki nefndarinnar að afla frekari upplýsinga um málið hjá skólastjórnendum FNV í takt við umræður fundarins og leggja fyrir á næsta fundi nefndarinnar.

7.Jólamót Molduxa 2026

Málsnúmer 2610142Vakta málsnúmer

Íþróttafélagið Molduxar óskar eftir endurgjaldslausum aðgangi að íþróttahúsinu á Sauðárkróki vegna jólamóts félagsins þann 26. desember nk. Nefndin samþykkir samhljóða að fella niður leigu á íþróttahúsinu vegna þessa og vísar til 4. gr. reglna um útleigu á íþróttahúsum í ákvörðun sinni.

8.Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 01_Þjónusta við fatlað fólk

Málsnúmer 2608073Vakta málsnúmer

Lögð fram til síðari umræðu fjárhagsáætlun fyrir þjónustu við fatlað fólk (málaflokkur 01) fyrir árið 2027. Áætlunin hefur verið unnin í samstarfi við stjórnsýslu- og fjármálasvið sem og forstöðumenn einstakra stofnana. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir áætlunina samhljóða fyrir sitt leyti og vísar henni til byggðarráðs.

9.Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 02_Félagsþjónusta

Málsnúmer 2608074Vakta málsnúmer

Lögð fram til síðari umræðu fjárhagsáætlun félagsþjónustu (málaflokkur 02) fyrir árið 2027. Áætlunin hefur verið unnin í samstarfi við stjórnsýslu- og fjármálasvið sem og forstöðumenn einstakra stofnana. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir áætlunina samhljóða fyrir sitt leyti og vísar henni til byggðarráðs.

10.Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 06_Æskulýðs- og íþróttamál

Málsnúmer 2608076Vakta málsnúmer

Lögð fram til síðari umræðu fjárhagsáætlun æskulýðs og íþróttamála (málaflokkur 06) fyrir árið 2027. Áætlunin hefur verið unnin í samstarfi við stjórnsýslu- og fjármálasvið. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir áætlunina samhljóða fyrir sitt leyti og vísar henni til byggðarráðs.

11.Fundargerðir öldungaráðs

Málsnúmer 2601066Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar 5. fundargerð frá 27. ágúst sl.

Félagsmála- og tómstundanefnd hefur farið yfir tillögu öldungaráðs um breytingu á 2. gr. samþykkta ráðsins, þess efnis að seta í öldungaráði verði launuð. Nefndin vísar tillögunni til byggðarráðs til afgreiðslu.

Félagsmála- og tómstundanefnd tekur undir mikilvægi þess að stuðla að aukinni þátttöku eldri borgara í heilsueflingu og skipulögðu frístundastarfi. Nefndin telur þó ekki tímabært að taka ákvörðun um sérstakan frístundastyrk fyrir eldri borgara að svo stöddu og leggur til að málið verði skoðað nánar, meðal annars með tilliti til fyrirliggjandi úrræða, kostnaðar og mögulegrar útfærslu.

Nefndin samþykkir samhljóða að fela starfsfólki að taka saman gögn um það hvað stendur eldra fólki til boða, hvernig styrkjum til félagsstarfs eldri borgara er háttað í dag og hvort og hvernig önnur sveitarfélög útfæra þessi mál hjá sér.

12.Fundargerðir fagráðs - málefni fatlaðs fólks

Málsnúmer 2601063Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar tvær fundargerðir, nr. 53 frá 27.október 2026 og nr. 54 frá 29.október 2026.

13.Barnavernarþjónusta Mið - Norðurlands fundargerðir faghóps

Málsnúmer 2301093Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar tvær fundargerðir frá fundi nr. 70 frá 5. október 2026 og fundi nr. 71 frá 2. nóvember 2026.

Fundi slitið - kl. 16:10.