Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar - 205

Málsnúmer 2608009F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 52. fundur - 26.08.2026

Fundargerð 205. fundar byggðarráðs frá 20. ágúst 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 52. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 205 Fulltrúar Björgunarsveitarinnar Skagfirðingasveitar, Björn Sigurður Jónsson og Hafdís Einarsdóttir, sátu fundinn undir þessum dagskrárlið og kynntu áform um uppbyggingu nýs húsnæðis fyrir björgunarsveitina.

    Farið var yfir starfsemi sveitarinnar og húsnæðisþörf vegna framtíðaruppbyggingar.

    Byggðarráð þakkar fulltrúum Björgunarsveitarinnar Skagfirðingasveitar fyrir góða kynningu og fyrir mikilvægt starf sveitarinnar í þágu öryggis og almannavarna í Skagafirði.
    Bókun fundar Afgreiðsla 205. fundar byggðarráðs var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 205 Formaður ber upp svohljóðandi tillögu:

    "Með vísan til 4. mgr. 55. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 heimilar byggðarráð sveitarstjóra að veita eftirtöldum starfsmanni sveitarfélagsins Skagafjarðar prókúruumboð: Elín Dögg Väljoats Gunnarsdóttur, Melatúni 3A, 550 Sauðárkróki.

    Byggðarráð samþykkir að framangreindum starfsmanni verði veitt prókúruumboð í samræmi við téð lagaákvæði. Umboðið nær til að undirrita skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og ábyrgðir svo og önnur skjöl sem fela í sér skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki byggðarráðs og/eða sveitarstjórnar þarf til. Umboðið gildir meðan viðkomandi gegnir starfi fjármálastjóra fyrir sveitarfélagið þó ekki lengur en til loka núverandi kjörtímabils sveitarstjórnar."

    Byggðarráð samþykkir tillöguna samhljóða og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Skráning prókúruhafa sveitarfélagsins 2026, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 205 Lagt fram kauptilboð í eignina Garðhús land (Háholt).

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að svara tilboðinu með gagntilboði og felur Fasteignasölu Sauðárkróks.

    Bókun fundar Afgreiðsla 205. fundar byggðarráðs var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 205 Fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 205. fundar byggðarráðs var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 205 Á lóðinni Furulundi 5 í Varmahlíð stendur aðstöðuhús sem nýtt hefur verið í tengslum við starfsemi leikskólans í Varmahlíð. Húsnæðið hefur ekki lengur hlutverki að gegna í starfsemi sveitarfélagsins og stendur nú autt.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að veita sveitarstjóra heimild til að fela fasteignasala að verðmeta eignina með sölu til flutnings í huga og leggja fyrir byggðarráð þegar verðmatið liggur fyrir.
    Bókun fundar Afgreiðsla 205. fundar byggðarráðs var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 205 Lagt er fram erindi frá Sýslumanninum á Vestfjörðum, dags. 27. maí 2026, varðandi skráningu Menningarsjóðs Eyþórs Stefánssonar í fyrirtækjaskrá Skattsins. Samkvæmt reglugerð nr. 532/2026 ber sjálfseignarstofnunum sem starfa á grundvelli staðfestrar skipulagsskrár að vera skráðar í fyrirtækjaskrá og hafa kennitölu. Fram kemur að sjóðurinn hefur ekki verið skráður og að frestur til að ljúka skráningu er til 1. október 2026.

    Fyrir liggur staðfest skipulagsskrá sjóðsins sem leggja þarf fram við skráningu.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að hafið verði umsóknarferli um skráningu Menningarsjóðs Eyþórs Stefánssonar í fyrirtækjaskrá Skattsins og öflun kennitölu fyrir sjóðinn. Fjármálastjóra er falið að annast skráninguna, undirrita nauðsynleg gögn, greiða tilheyrandi skráningargjald og tilkynna sýslumanni um kennitölu sjóðsins þegar hún liggur fyrir.
    Bókun fundar Afgreiðsla 205. fundar byggðarráðs var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 205 Lagt er fram erindi frá Sýslumanninum á Vestfjörðum, dags. 27. maí 2026, varðandi skráningu Fræðasjóðs Skagfirðinga í fyrirtækjaskrá Skattsins. Samkvæmt reglugerð nr. 532/2026 ber sjálfseignarstofnunum sem starfa á grundvelli staðfestrar skipulagsskrár að vera skráðar í fyrirtækjaskrá og hafa kennitölu. Fram kemur að sjóðurinn hefur ekki verið skráður og að frestur til að ljúka skráningu er til 1. október 2026.

    Fyrir liggur staðfest skipulagsskrá sjóðsins sem leggja þarf fram við skráningu.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að hafið verði umsóknarferli um skráningu Fræðasjóð Skagfirðinga í fyrirtækjaskrá Skattsins og öflun kennitölu fyrir sjóðinn. Fjármálastjóra er falið að annast skráninguna, undirrita nauðsynleg gögn, greiða tilheyrandi skráningargjald og tilkynna sýslumanni um kennitölu sjóðsins þegar hún liggur fyrir.
    Bókun fundar Afgreiðsla 205. fundar byggðarráðs var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 205 Lögð fram til kynningar samantekt frá Fjölmenningardegi Vinnumálastofnunar sem fram fór 26. maí 2026. Bókun fundar Afgreiðsla 205. fundar byggðarráðs var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.