Skipulagsnefnd
Dagskrá
1.Samráð; Áform um lagasetningu - Frumvarp um breytingu á skipulagslögum nr. 123 2010 (ýmsar breytingar)
Málsnúmer 2607067Vakta málsnúmer
2.Neðri-Ás 2, land 3 og 4 - Umsókn um deiliskipulag
Málsnúmer 1505046Vakta málsnúmer
Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við deiliskipulagstillögu fyrir "Neðri-Ás 2, í Hjaltadal, land 3 og 4" sem var í kynningu dagana 03.06.2026- 16.07.2026 í Skipulagsgáttinni mál nr. 704/2026, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/704 .
Sex umsagnir bárust sem gefa tilefni til minniháttar breytinga.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu málsins þar til frekari gögn liggja fyrir.

3.Beiðni um viðræður varðandi landamerki að Sjávarborg 1, 2, og 3
Málsnúmer 1907144Vakta málsnúmer
Magnús Barðdal sveitarstjóri Skagafjarðar, f.h. Sauðárkróks, landnr. 218097 og Sauðárkróksflugvallar, landnr. 143928, og þinglýstir eigendur Sjávarborgar I, landnr. 145953, Sjávarborgar II, landnr. 145955, og Sjávarborgar III, landnr. 145956 leggja fram sbr. lög nr. 6/2001 um skráningu, merki og mat fasteigna merkjalýsingu dags. 7. júlí 2026 sem unnin er á Stoð ehf. Verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni.
Afstöðuppdráttur og merkjalýsing var unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni, undirrituð af eigendum 15.07.2026.
Málsnúmer í landeignaskráningu HMS M004123.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitastjórn að staðfesta framlagða merkjalýsingu og afstöðuuppdrátt.

4.Reiðleið frá austanvatnabrúnni að Siglufjarðarvegi - Umsókn um framkvæmdaleyfi
Málsnúmer 2608050Vakta málsnúmer
Guðmundur Sveinsson sækir um fh. Reiðveganefndar Skagfirðings um leyfi fyrir lagningu reiðvegar frá austari vatnabrú Héraðsvatna við Lón upp að Siglufjarðarvegi.
Í erindi umsækjanda kemur m.a. fram:
Eftir viðræður og vettfangsferð með fulltrúa Vegagerðarinnar er talið mun betra að fara sunnan þjóðvegar. Þessi vegkafli hefur lengi verið erfiður hestamönnum vegna legu og takmörkunar á að geta verið utanvegar. Áætlað er að hefja framkvæmdir um leið og leyfi sveitarfélagsins liggur fyrir.
Fyrir liggur leyfi Vegagerðarinnar ásamt leyfi fyrir umbeðinni legu reiðvegar frá landeigendum Lóns L146416 og Narfastaða L146419, þá liggur fyrir umsögn minjavarðar án athugasemda.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi og fagnar um leið umsókninni sem miðar að því að auka öryggi hestamanna sem og annarra vegfarenda um svæðið.

5.Samgöngur og skipulag
Málsnúmer 2608021Vakta málsnúmer
Erna Bára Hreinsdóttir forstöðumaður skipulagsdeildar Vegagerðarinnar sendir bréf til sveitarstjóra og skipulagsfulltrúa sveitarfélagsins varðandi samgöngur og skipulag frá Vegagerðinni.
Í kjölfar sveitarstjórnarkosninga vill Vegagerðin minna á mikilvægi samráðs í tengslum við endurskoðun aðalskipulags og aðra skipulagsvinnu sem og lagalegar skyldur þar að lútandi.
Vegagerðin óskar eftir góðu samstarfi við vinnslu skipulagsáætlana hvað varðar þætti er snúa að starfsemi stofnunarinnar, svo sem vegum, umferð, umferðaröryggi, höfnum, sjávarhæð, siglingaleiðum, almenningssamgöngum, námum og fl.
Vegagerðin bendir sérstaklega á ákvæði VI. kafla vegalaga nr. 80/2007 varðandi skipulag og veghelgunarsvæði og þá sér í lagi að ákveða skal legu þjóðvega í skipulagi að fenginni tillögu Vegagerðarinnar að höfðu samráði Vegagerðarinnar og skipulagsyfirvalda.
Leiðbeiningar um gerð umferðaröryggisáætlana sveitarfélaga er að finna á heimasíðum Samgöngustofu og Vegagerðarinnar. Sveitarfélög eru hvött til að vinna umferðaröryggisáætlun eða að sjá til þess að þær séu endurskoðaðar reglulega. Mikilvægt er að góð samvinna sé á milli allra þeirra aðila sem að umferðaröryggismálum koma svo að aðgerðir séu samræmdar og framkvæmdar eins og best verður á kosið.
Sérstök athygli er vakin á leiðbeiningum um gerð samgöngumats sem finna má á heimasíðu Vegagerðarinnar. Ef fyrirhuguð eru uppbyggingaráform sem bera með sér talsverða aukningu á umferð eða breytingu á samsetningu umferðar óskar Vegagerðin eftir að unnið verði samgöngumat á skipulagstigi til að meta umfang breytinganna og hvort líklegt sé að þær kalli á framkvæmdir sem ekki er gert ráð fyrir á gildandi samgönguáætlun eða í öðrum áætlunum Vegagerðarinnar.

6.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 89
Málsnúmer 2607003FVakta málsnúmer
Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 89 þann 08.07.2026.
7.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 90
Málsnúmer 2607009FVakta málsnúmer
Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 90 þann 17.07.2026.
8.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 91
Málsnúmer 2607017FVakta málsnúmer
Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 91 þann 31.07.2026.
Fundi slitið - kl. 15:00.
Umsagnarfrestur er til og með 21.08.2026.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að gera engar umsagnir við frumvarp um breytingu á skipulagslögum nr. 123/2010.