Fara í efni

Samgöngur og skipulag

Málsnúmer 2608021

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 103. fundur - 13.08.2026

Erna Bára Hreinsdóttir forstöðumaður skipulagsdeildar Vegagerðarinnar sendir bréf til sveitarstjóra og skipulagsfulltrúa sveitarfélagsins varðandi samgöngur og skipulag frá Vegagerðinni.

Í kjölfar sveitarstjórnarkosninga vill Vegagerðin minna á mikilvægi samráðs í tengslum við endurskoðun aðalskipulags og aðra skipulagsvinnu sem og lagalegar skyldur þar að lútandi.
Vegagerðin óskar eftir góðu samstarfi við vinnslu skipulagsáætlana hvað varðar þætti er snúa að starfsemi stofnunarinnar, svo sem vegum, umferð, umferðaröryggi, höfnum, sjávarhæð, siglingaleiðum, almenningssamgöngum, námum og fl.
Vegagerðin bendir sérstaklega á ákvæði VI. kafla vegalaga nr. 80/2007 varðandi skipulag og veghelgunarsvæði og þá sér í lagi að ákveða skal legu þjóðvega í skipulagi að fenginni tillögu Vegagerðarinnar að höfðu samráði Vegagerðarinnar og skipulagsyfirvalda.
Leiðbeiningar um gerð umferðaröryggisáætlana sveitarfélaga er að finna á heimasíðum Samgöngustofu og Vegagerðarinnar. Sveitarfélög eru hvött til að vinna umferðaröryggisáætlun eða að sjá til þess að þær séu endurskoðaðar reglulega. Mikilvægt er að góð samvinna sé á milli allra þeirra aðila sem að umferðaröryggismálum koma svo að aðgerðir séu samræmdar og framkvæmdar eins og best verður á kosið.
Sérstök athygli er vakin á leiðbeiningum um gerð samgöngumats sem finna má á heimasíðu Vegagerðarinnar. Ef fyrirhuguð eru uppbyggingaráform sem bera með sér talsverða aukningu á umferð eða breytingu á samsetningu umferðar óskar Vegagerðin eftir að unnið verði samgöngumat á skipulagstigi til að meta umfang breytinganna og hvort líklegt sé að þær kalli á framkvæmdir sem ekki er gert ráð fyrir á gildandi samgönguáætlun eða í öðrum áætlunum Vegagerðarinnar.