Guðmundur Sveinsson sækir um fh. Reiðveganefndar Skagfirðings um leyfi fyrir lagningu reiðvegar frá austari vatnabrú Héraðsvatna við Lón upp að Siglufjarðarvegi.
Í erindi umsækjanda kemur m.a. fram:
Eftir viðræður og vettfangsferð með fulltrúa Vegagerðarinnar er talið mun betra að fara sunnan þjóðvegar. Þessi vegkafli hefur lengi verið erfiður hestamönnum vegna legu og takmörkunar á að geta verið utanvegar. Áætlað er að hefja framkvæmdir um leið og leyfi sveitarfélagsins liggur fyrir.
Fyrir liggur leyfi Vegagerðarinnar ásamt leyfi fyrir umbeðinni legu reiðvegar frá landeigendum Lóns L146416 og Narfastaða L146419, þá liggur fyrir umsögn minjavarðar án athugasemda.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi og fagnar um leið umsókninni sem miðar að því að auka öryggi hestamanna sem og annarra vegfarenda um svæðið.