Fara í efni

Landbúnaðar- og innviðanefnd

50. fundur 19. ágúst 2026 kl. 09:00 - 10:40 að Borgarteigi 15, Sauðárkróki
Nefndarmenn
  • Guðlaugur Skúlason formaður
  • Elínborg Erla Ásgeirsdóttir varam.
  • Einar Eðvald Einarsson varam.
    Aðalmaður: Atli Már Traustason
  • Högni Elfar Gylfason áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
  • Hjörvar Halldórsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
  • Gunnar Páll Ólafsson verkstjóri á veitu- og framkvæmdasviði
  • Sigurður Arnar Friðriksson forstöðumaður framkvæmda
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Sigurður Arnar Friðriksson Forstöðumaður framkvæmda
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 08_Hreinlætismál

Málsnúmer 2608081Vakta málsnúmer

Fjárhagsáætlun Skagafjarðar, málaflokkur 08_Hreinlætismál, fyrir rekstrárið 2027 lögð fram.
Sveinn Úlfarsson landbúnaðar- og umhverfisfulltrúi sat fundinn undir þessum lið.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar til Byggðaráðs.

2.Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 09_Samgöngumál

Málsnúmer 2608097Vakta málsnúmer

Fjárhagsáætlun 2027, málaflokkur 09_Samgöngumál, fyrir rekstrarárið 2027 lögð fram.
Gunnar Páll Ólafsson bæjarverkstjóri Þjónustumiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar til Byggðaráðs.

3.Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 11_Umhverfis- og Landbúnaðarmál

Málsnúmer 2608083Vakta málsnúmer

Fjárhagsáætlun 2027, málaflokkur 11_Umhverfis- og landbúnaðarmál, fyrir rekstrarárið 2027 lögð fram.
Gunnar Páll Ólafsson bæjarverkstjóri Þjónustumiðstöðvar og Sveinn Úlfarsson landbúnaðar- og umhverfisfulltrúi sátu fundinn undir þessum lið.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar til Byggðaráðs.

4.Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 69_SKV-fráveita

Málsnúmer 2608095Vakta málsnúmer

Fjárhagsáætlun Skagafjarðar, málaflokkur 69 fráveita, fyrir rekstrárið 2027 lögð fram.
Gunnar Páll Ólafsson bæjarverkstjóri Þjónustumiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar til Byggðaráðs.

5.Umsóknir í Styrkvegasjóð 2026

Málsnúmer 2601050Vakta málsnúmer

Fyrirliggur styrkur frá Vegagerðinni upp á 3.000.000 kr. Sem er um 64% af því sem sótt var um. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að útdeila styrknum skv. eftirfarandi:

Kolbeinsdalsvegur 1.380.000 kr.
Heiðarlandsvegur 550.000 kr.
Kálfárdalsvegur 370.000 kr.
Rústakofavegur 450.000 kr.
Brú á Goðdalaleið 250.000 kr.

Sviðstjóra veitu- og framkvæmdasviðs falið að tilkynna afgreiðslu til umsóknaraðila.

6.Beitarhólf nr. 27 og 28 í Efri Flóa auglýst til leigu

Málsnúmer 2505025Vakta málsnúmer

Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að auglýsa hólf 27 og 28 í austari flóa við Hofsós til leigu.
Gert er ráð fyrir fimm ára leigutíma og til greina kemur ef fleiri en einn sækja um að hægt verði að skipta Flóanum upp.
Sviðstjóra veitu- og framkvæmdasviðs falið að auglýsa hólfið.

Fundi slitið - kl. 10:40.