Fara í efni

Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 09_Samgöngumál

Málsnúmer 2608097

Vakta málsnúmer

Landbúnaðar- og innviðanefnd - 50. fundur - 19.08.2026

Fjárhagsáætlun 2027, málaflokkur 09_Samgöngumál, fyrir rekstrarárið 2027 lögð fram.
Gunnar Páll Ólafsson bæjarverkstjóri Þjónustumiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar til Byggðaráðs.

Byggðarráð Skagafjarðar - 208. fundur - 10.09.2026

Vísað frá 50. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 19. ágúst sl., þannig bókað:
"Fjárhagsáætlun 2027, málaflokkur 09_Samgöngumál, fyrir rekstrarárið 2027 lögð fram.
Gunnar Páll Ólafsson bæjarverkstjóri Þjónustumiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar til Byggðaráðs."

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða rammaáætlun og felur forstöðumönnum að hefja vinnu við vinnubækur.

Landbúnaðar- og innviðanefnd - 53. fundur - 29.09.2026

Lögð fram, til fyrri umræðu, drög að fjárhagsáætlun ársins 2027 fyrir samgöngumál. Skiptingin tekur mið af núverandi rekstri og aðstæðum. Ítrekað er að áætlunin kann að taka breytingum samhliða áframhaldandi vinnslu hennar. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun samgöngumála 2027 og vísar til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að vinna áfram að gerð fjárhagsáætlunar og leggja fyrir nefndina til síðari umræðu.

Gunnar Páll Ólafsson bæjarverkstjóri sat fundinn undir þessum lið.