Fara í efni

Landbúnaðar- og innviðanefnd

55. fundur 04. nóvember 2026 kl. 09:00 - 11:00 að Borgarteigi 15, Sauðárkróki
Nefndarmenn
  • Guðlaugur Skúlason formaður
  • Elínborg Erla Ásgeirsdóttir varaform.
  • Atli Már Traustason aðalm.
  • Högni Elfar Gylfason áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
  • Hjörvar Halldórsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
  • Gunnar Páll Ólafsson verkstjóri á veitu- og framkvæmdasviði
  • Sigurður Arnar Friðriksson forstöðumaður framkvæmda
  • Árni Egilsson skrifstofustjóri
  • Elín Dögg Väljaots Gunnarsd. fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Sigurður Arnar Friðriksson forstöðumaður framkvæmda
Dagskrá

1.Gjaldskrá Skagafjarðarhafna 2027

Málsnúmer 2608196Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að endurnýjaðri gjaldskrá Skagafjarðarhafna 2027.

Gert er ráð fyrir 2,5% hækkun. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir gjaldskrána samhljóða og vísar henni til byggðaráðs til afgreiðslu.

Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sat fundinn undir þessum lið.

2.Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 61_Hafnarsjóður Skagafjarðar

Málsnúmer 2608087Vakta málsnúmer

Lögð fram til seinni umræðu fjárhagsáætlun Hafnarsjóðs Skagafjarðar, fyrir árið 2027.

Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar henni til byggðarráðs til afgreiðslu.

Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sat fundinn undir þessum lið.

3.Gjaldskrá sorphirðu- og sorpeyðingar 2027

Málsnúmer 2608198Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að endurnýjaðri gjaldskrá sorphirðu- og sorpeyðingar 2027.

Samningur sveitarfélagsins við Íslenska gámafélagið er bundinn launavísitölu og undirvísitölu neysluverðs fyrir rekstur ökutækja. Hækkanir á þessum vísitölum hafa því áhrif á kostnað við sorpþjónustuna. Hin stóra breytan er úrgangsmagn sem safnast saman á heimilum og á móttökustöðvum, ásamt því hversu vel íbúar flokka.
Samkvæmt gildandi lögum skal gjaldtaka sveitarfélaga vegna sorpþjónustu endurspegla raunkostnað við þjónustuna. Þetta er því ekki hefðbundin skattlagningarheimild þar sem hægt er að ákveða gjaldið óháð kostnaði heldur þarf kostnaðargrunnurinn að vera rekjanlegur og gjaldskráin studd raunverulegum kostnaði.

Til að mæta áætluðum kostnaði við söfnun, flutning og meðhöndlun úrgangs og tekjur af sorpgjöldum standi sem næst undir kostnaði þjónustunnar árið 2027 er lagt til að gjaldskráin hækki um 3,1-7,2% frá árinu 2026.

Nefndin hvetur íbúa sveitarfélagsins til að standa vel að flokkun sorps nú sem fyrr. Góður árangur í flokkun og aukin endurvinnsla verður til þess að minna magn sorps fer til urðunar, sem getur skilað sér í lækkun gjalda til notenda þjónustunnar.

Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir gjaldskrána samhljóða og vísar henni til byggðaráðs til afgreiðslu.

Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sat fundinn undir þessum lið.

4.Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 08_Hreinlætismál

Málsnúmer 2608081Vakta málsnúmer

Lögð fram til seinni umræðu fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 08, hreinlætismál, fyrir árið 2027.
Áætlun sorpgjalda hækki um 3,1-7,2% frá árinu 2026. Aðrir þættir málaflokksins hækka um 2,5%.

Samningur sveitarfélagsins við Íslenska gámafélagið er bundinn launavísitölu og undirvísitölu neysluverðs fyrir rekstur ökutækja. Breytingar á þessum vísitölum hafa því áhrif á kostnað við sorpþjónustuna. Hin stóra breytan er úrgangsmagn sem safnast saman á heimilum og á móttökustöðvum, ásamt því hversu vel íbúar flokka.
Til að tekjur af sorpgjöldum standi sem næst undir kostnaði þjónustunnar árið 2027 er lagt til að gjaldskráin hækki um 3,1-7,2% frá árinu 2026.

Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar henni til byggðarráðs til afgreiðslu.

Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sat fundinn undir þessum lið.

5.Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 09_Samgöngumál

Málsnúmer 2608097Vakta málsnúmer

Lögð fram til seinni umræðu fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 09, samgöngumál, fyrir árið 2027.

Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar henni til byggðarráðs til afgreiðslu.

Gunnar Páll Ólafsson bæjarverkstjóri og Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sátu fundinn undir þessum lið.

6.Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 69_SKV-fráveita

Málsnúmer 2608095Vakta málsnúmer

Lögð fram til seinni umræðu fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 69, fráveita, fyrir árið 2027.

Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar henni til byggðarráðs til afgreiðslu.

Gunnar Páll Ólafsson bæjarverkstjóri og Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sátu fundinn undir þessum lið

7.Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 67_SKV-hitaveita

Málsnúmer 2608091Vakta málsnúmer

Lögð fram til seinni umræðu fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 67, hitaveita, fyrir árið 2027.

Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar henni til byggðarráðs til afgreiðslu.

Árni Egilsson skrifstofustjóri SKV og Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sátu fundinn undir þessum lið.

8.Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 65_SKV-sjóveita

Málsnúmer 2608089Vakta málsnúmer

Lögð fram til seinni umræðu fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 65, sjóveita, fyrir árið 2027.

Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar henni til byggðarráðs til afgreiðslu.

Árni Egilsson skrifstofustjóri SKV og Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sátu fundinn undir þessum lið.

9.Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 63_SKV-vatnsveita

Málsnúmer 2608088Vakta málsnúmer

Lögð fram til seinni umræðu fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 63, vatnsveita, fyrir árið 2027.

Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar henni til byggðarráðs til afgreiðslu.

Árni Egilsson skrifstofustjóri SKV og Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sátu fundinn undir þessum lið.

10.Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 11_Umhverfis- og Landbúnaðarmál

Málsnúmer 2608083Vakta málsnúmer

Lögð fram til seinni umræðu fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 11, umhverfis og landbúnaðarmál, fyrir árið 2027.

Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar henni til byggðarráðs til afgreiðslu.

Sveinn Finster Úlfarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi og Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sátu fundinn undir þessum lið.

11.Fjárhagsáætlun fjallskilanefnda 2027 - Akrahreppur

Málsnúmer 2610275Vakta málsnúmer

Farið yfir fjárhagsáætlun fjallskilanefndar Akrahrepps.

Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fela sviðstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs að vinna endanlega tillögu að úthlutun samkvæmt umræðum á fundinum.

Sveinn Finster Úlfarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi og Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sátu fundinn undir þessum lið.

12.Fjárhagsáætlun fjallskilanefnda 2027 - Hofsaafrétt

Málsnúmer 2610274Vakta málsnúmer

Farið yfir fjárhagsáætlun fjallskilanefndar Hofsafréttar.

Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fela sviðstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs að vinna endanlega tillögu að úthlutun samkvæmt umræðum á fundinum.

Sveinn Finster Úlfarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi og Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sátu fundinn undir þessum lið.

13.Fjárhagsáætlun fjallskilanefnda 2027 - Hofsós og Unadalur

Málsnúmer 2610273Vakta málsnúmer

Farið yfir fjárhagsáætlun fjallskilanefndar Hofsós og Unadals.

Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fela sviðstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs að vinna endanlega tillögu að úthlutun samkvæmt umræðum á fundinum.

Sveinn Finster Úlfarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi og Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sátu fundinn undir þessum lið.

14.Fjárhagsáætlun fjallskilanefnda 2027 - Vestur fljót og hrollleifsdalur

Málsnúmer 2610269Vakta málsnúmer

Farið yfir fjárhagsáætlun fjallskilanefndar Vestur-Fljóta og Hrolleifsdals.

Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fela sviðstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs að vinna endanlega tillögu að úthlutun samkvæmt umræðum á fundinum.

Sveinn Finster Úlfarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi og Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sátu fundinn undir þessum lið.

15.Fjárhagsáætlun fjallskilanefnda 2027 - Hegranes

Málsnúmer 2610272Vakta málsnúmer

Farið yfir fjárhagsáætlun fjallskilanefndar Hegraness.

Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fela sviðstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs að vinna endanlega tillögu að úthlutun samkvæmt umræðum á fundinum.

Sveinn Finster Úlfarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi og Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sátu fundinn undir þessum lið.

16.Hraðahindranir á Hólavegi

Málsnúmer 2610159Vakta málsnúmer

Tekin fyrir beiðni frá íbúa við Hólaveg, þar sem farið er fram á að hraðahindrun/þrengingar verði fjarlægðar.

Þrengingin var sett upp í kjölfar formlegra og óformlegra ábendinga íbúa um hraðakstur í götunni og er ætlað að bæta umferðaröryggi, einkum barna og annarra gangandi vegfarenda.

Staðsetning þrengingarinnar tekur mið af göngustíg milli Hólavegar 21 og 23 sem tengir Hólaveg og Hólmagrund. Um er að ræða einu göngutenginguna milli gatnanna á löngum kafla, en önnur tenging er syðst í götunni, í töluverðri fjarlægð.
Markmiðið er að draga úr umferðarhraða þar sem þessi gönguleið kemur að Hólavegi og gangandi vegfarendur þvera götuna. Þrengingin og hraðahindrunin á staðnum þjóna saman þeim tilgangi.

Það er mat nefndarinnar að núverandi staðsetning sé rökrétt með tilliti til gönguleiðarinnar og að flutningur þrengingarinnar myndi ekki þjóna sama öryggistilgangi. Með hliðsjón af framangreindu er það mat nefndarinnar að halda hraðaþrengingunni á núverandi stað.

Landbúnaðar og innviðanefnd samþykkir samhljóða að hafna beiðni um að fjarlægja hraðaþrenginguna við Hólaveg 21 og 26.

Fundi slitið - kl. 11:00.