Fara í efni

Hraðahindranir á Hólavegi

Málsnúmer 2610159

Vakta málsnúmer

Landbúnaðar- og innviðanefnd - 55. fundur - 04.11.2026

Tekin fyrir beiðni frá íbúa við Hólaveg, þar sem farið er fram á að hraðahindrun/þrengingar verði fjarlægðar.

Þrengingin var sett upp í kjölfar formlegra og óformlegra ábendinga íbúa um hraðakstur í götunni og er ætlað að bæta umferðaröryggi, einkum barna og annarra gangandi vegfarenda.

Staðsetning þrengingarinnar tekur mið af göngustíg milli Hólavegar 21 og 23 sem tengir Hólaveg og Hólmagrund. Um er að ræða einu göngutenginguna milli gatnanna á löngum kafla, en önnur tenging er syðst í götunni, í töluverðri fjarlægð.
Markmiðið er að draga úr umferðarhraða þar sem þessi gönguleið kemur að Hólavegi og gangandi vegfarendur þvera götuna. Þrengingin og hraðahindrunin á staðnum þjóna saman þeim tilgangi.

Það er mat nefndarinnar að núverandi staðsetning sé rökrétt með tilliti til gönguleiðarinnar og að flutningur þrengingarinnar myndi ekki þjóna sama öryggistilgangi. Með hliðsjón af framangreindu er það mat nefndarinnar að halda hraðaþrengingunni á núverandi stað.

Landbúnaðar og innviðanefnd samþykkir samhljóða að hafna beiðni um að fjarlægja hraðaþrenginguna við Hólaveg 21 og 26.