Lögð fram drög að endurnýjaðri gjaldskrá sorphirðu- og sorpeyðingar 2027.
Samningur sveitarfélagsins við Íslenska gámafélagið er bundinn launavísitölu og undirvísitölu neysluverðs fyrir rekstur ökutækja. Hækkanir á þessum vísitölum hafa því áhrif á kostnað við sorpþjónustuna. Hin stóra breytan er úrgangsmagn sem safnast saman á heimilum og á móttökustöðvum, ásamt því hversu vel íbúar flokka.
Samkvæmt gildandi lögum skal gjaldtaka sveitarfélaga vegna sorpþjónustu endurspegla raunkostnað við þjónustuna. Þetta er því ekki hefðbundin skattlagningarheimild þar sem hægt er að ákveða gjaldið óháð kostnaði heldur þarf kostnaðargrunnurinn að vera rekjanlegur og gjaldskráin studd raunverulegum kostnaði.
Til að mæta áætluðum kostnaði við söfnun, flutning og meðhöndlun úrgangs og tekjur af sorpgjöldum standi sem næst undir kostnaði þjónustunnar árið 2027 er lagt til að gjaldskráin hækki um 3,1-7,2% frá árinu 2026.
Nefndin hvetur íbúa sveitarfélagsins til að standa vel að flokkun sorps nú sem fyrr. Góður árangur í flokkun og aukin endurvinnsla verður til þess að minna magn sorps fer til urðunar, sem getur skilað sér í lækkun gjalda til notenda þjónustunnar.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir gjaldskrána samhljóða og vísar henni til byggðaráðs til afgreiðslu.
Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sat fundinn undir þessum lið.