Fara í efni

Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 11_Umhverfis- og Landbúnaðarmál

Málsnúmer 2608083

Vakta málsnúmer

Landbúnaðar- og innviðanefnd - 50. fundur - 19.08.2026

Fjárhagsáætlun 2027, málaflokkur 11_Umhverfis- og landbúnaðarmál, fyrir rekstrarárið 2027 lögð fram.
Gunnar Páll Ólafsson bæjarverkstjóri Þjónustumiðstöðvar og Sveinn Úlfarsson landbúnaðar- og umhverfisfulltrúi sátu fundinn undir þessum lið.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar til Byggðaráðs.

Byggðarráð Skagafjarðar - 208. fundur - 10.09.2026

Vísað frá 50. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 19. ágúst sl., þannig bókað:
"Fjárhagsáætlun 2027, málaflokkur 11_Umhverfis- og landbúnaðarmál, fyrir rekstrarárið 2027 lögð fram.
Gunnar Páll Ólafsson bæjarverkstjóri Þjónustumiðstöðvar og Sveinn Úlfarsson landbúnaðar- og umhverfisfulltrúi sátu fundinn undir þessum lið.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar til Byggðaráðs."

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða rammaáætlun og felur forstöðumönnum að hefja vinnu við vinnubækur.

Landbúnaðar- og innviðanefnd - 53. fundur - 29.09.2026

Lögð fram, til fyrri umræðu, drög að fjárhagsáætlun ársins 2027 fyrir umhverfis- og landbúnaðarmál. Skiptingin tekur mið af núverandi rekstri og aðstæðum. Ítrekað er að áætlunin kann að taka breytingum samhliða áframhaldandi vinnslu hennar. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun umhverfis- og landbúnaðarmála 2027 og vísar til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að vinna áfram að gerð fjárhagsáætlunar og leggja fyrir nefndina til síðari umræðu.