Fara í efni

Huldulandi í Hegranesi L223299 - Umsókn um stækkun byggingarreits

Málsnúmer 2608079

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 104. fundur - 20.08.2026

Pálmi Jónsson og María Eymundsdóttir landeigendur Huldulands í Hegranesi L223299 óska eftir stækkun byggingarreits fyrir framleiðslueldhús.
Framleiðslueldhúsið verður um 40 fermetrar, yrði nýtingahlutfall byggingareitsins með eldhúsinu og öðrum byggingum sem er nú þegar búið að byggja innan hans undir 2,5%. Hámarkshæð eldhúsins 4 m. Fjarlægð frá næsta húsi innan Huldulands er ríflega 12 m.
Byggja á á landi sem telst til ræktunarflokks 4 og nýtist því illa eða að mjög takmörkuðu leiti til ræktunar. Framkvæmdirnar styðja við búsetu og atvinnuþátttöku í dreifbýli og kolefnissporið er mjög lítið þar sem aðallega á að vinna jurtir sem eru ræktaðar í Huldulandi. Í aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 er gert ráð fyrir uppbyggingu tengda landbúnaði svo sem varðandi vinnslu. Framleiðslueldhúsið fer ekki yfir 2000 m2 viðmið og er fyrsta bygging fyrir aðra starfsemi sem rís á jörðinni. Hvorki er gengið á fornminjar né mikilvægt lífríki með byggingunni.
Meðfylgjandi er:
- Jákvæð umsögn minjavarðar
- Hnitsettur uppdráttur af byggingarreit

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að heimila umbeðna stækkun á byggingarreit fyrir um 40 m2 framleiðslueldhús í landi Huldulands.