Fara í efni

Tjarnarnes L227338 - Umsókn um stofnun landspildu

Málsnúmer 2608155

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 104. fundur - 20.08.2026

Brynhildur Sigtryggsdóttir og Ómar Kjartansson, þinglýstir eigendur jarðarinnar Tjarnarness, landnúmer 227338, óska eftir heimild til að stofna 79.496,1 m2 spildu úr landi jarðarinnar, sem "Arnarnes", skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 78260320 útg. 14. ágúst 2026 og merkjalýsingu dags. 14. ágúst 2026. Afstöðuppdrátturinn var unninn á Stoð verkfræðistofu ehf. af Dagnýju Stefánsdóttur og merkjalýsing unnin af Birni Magnúsi Árnasyni. Óskað er eftir því að útskipt spilda verði skráð sem annað land (80).
Landheiti útskiptrar spildu vísar til upprunajarðar og staðhátta.
Öll hlunnindi tilheyra áfram Tjarnarnesi landnr. 227338.
Í aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 er spildan á landbúnaðarlandi nr. L-4.
Landskiptin samræmast stefnu aðalskipulagsins um uppbyggingu, landnotkun og styðja við búsetu í dreifbýli.
Landskipti hafa óveruleg áhrif á búrekstrarskilyrði og skerða ekki landbúnaðarsvæði í I. og II. flokki.
Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar spildu.
Engin fasteign er á umræddri spildu.
Tjarnarnes, L227338, er ekki skráð lögbýli í skv. Lögbýlaskrá 2025.
Málsnúmer í landeignaskráningu HMS M004143.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðin landskipti, nefndin samþykkir jafnframt samhljóða umbeðið nafnleyfi.