Skipulagsnefnd
Dagskrá
1.Laufblaðið, Sauðárkróki, íbúðarbyggð og opið svæði - Deiliskipulag
Málsnúmer 2511191Vakta málsnúmer
Gestir
- Björn Magnús Árnason
2.Furulundur 3, 5, og 7 í Varmahlíð - Deiliskipulag
Málsnúmer 2603229Vakta málsnúmer
Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við skipulagslýsingu fyrir deiliskipulagstillögu og aðalskipulagsbreytingu fyrir Furulund 3, 5 og 7 í Varmahlíð, mál nr. 483/2026 (https://skipulagsgatt.is/issues/2026/483 ) og mál nr. 484/2026 (https://skipulagsgatt.is/issues/2026/484 ) í Skipulagsgáttinni, samráðsgátt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um skipulagsmál.
Skipulagslýsingarnar voru í auglýsingu dagana 29.04.2026- 21.05.2026 og bárust 5 umsagnir við deiliskipulagslýsinguna og sömuleiðis 5 umsagnir við aðalskipulagsbreytinguna.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.

3.Tjaldsvæði við Borgargerði - Deiliskipulag
Málsnúmer 2602204Vakta málsnúmer
Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við skipulagslýsingu fyrir deiliskipulagstillögu fyrir Tjaldsvæðið við Borgargerði á Sauðárkróki, mál nr. 485/2026 (https://skipulagsgatt.is/issues/2026/485 ) í Skipulagsgáttinni, samráðsgátt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um skipulagsmál.
Skipulagslýsingin var í auglýsingu dagana 29.04.2026- 21.05.2026 og bárust 4 umsagnir.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.
Skipulagslýsingin var í auglýsingu dagana 29.04.2026- 21.05.2026 og bárust 4 umsagnir.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.
Gestir
- Björn Magnús Árnason
4.Miðsvæði milli Skólagötu og Túngötu, Hofsósi - Óveruleg breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 2605264Vakta málsnúmer
Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir fyrir hönd Rarik sækir um óverulega breytingu á deiliskipulaginu Miðsvæði milli Skólagötu og Túngötu á Hofsósi fyrir lóð þeirra Túngötu 1a, sem ætluð er fyrir spennistöð.
Í ljós hefur komið að breyta þarf lögun lóðarinnar og minnkar hún þar með úr 28 m2 í 20 m2, byggingarreitur helst óbreyttur.
Breytingin hefur óveruleg áhrif á hagsmuni annarra aðila en sveitarfélagsins og umsækjanda.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir Miðsvæði milli Skólagötu og Túngötu á Hofsósi skv. 2.mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, ekki er talin þörf á grenndarkynningu þar sem breytingin hefur óveruleg áhrif á hagsmuni annarra aðila en sveitarfélagsins og umsækjanda. Einnig að í framhaldinu verði gerð uppfærð merkjalýsing og lóðarblöð á kostnað umsækjanda.

5.Umsókn um stofnun þjóðlendu - Austurhluti Hofsafréttar
Málsnúmer 2603178Vakta málsnúmer
Lögð fram umsókn Regínu Sigurðardóttur fyrir hönd forsætisráðuneytisins dags. 17.03.2026 um stofnun þjóðlendu, Austurhluti Hofsafréttar í Skagafirði.
Umsókn um stofnun fasteignar (þjóðlendu), sbr. 14. gr. laga um skráningu, merki og mat fasteigna, nr. 6/2001, með síðari breytingum.
Landsvæði sem hér óskast stofnað er þjóðlenda skv. úrskurði óbyggðanefndar í máli nr. 4/2008, og dómum Héraðsdóms Norðurlands vestra í málum nr. E-23/2010, nr.E-35/2011, og Hrd.199/2011. Um hana fer eftir ákvæðum laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, nr. 58/1998, með síðari breytingum.
Landsvæði það sem afmarkað er hér á eftir, þ.e. Austurhluti Hofsafréttar er þjóðlenda og afréttareign Gilja, Bjarnastaðahlíðar, Litlu-Hlíðar Bústaða, Tunguháls I og II, og fjallskilasjóðs Hofsafréttar. Skráð stærð: 262,88 km².
Fyrirvari er um nákvæmni hnitpunkta í hnitaskrá þar sem skekkjumörk geta verið allt að 500 m, hnitakerfi er ÍSN93. Kortagrunnur er byggður á stafrænum gögnum Náttúrufræðistofnunnar og Veðurstofunnar.
Línur sem liggja samsíða hafa sömu staðsetningu. Afmörkun svæðisins er svohljóðandi sbr. úrskurð óbyggðanefndar í máli nr. 4/2008 og einnig meðf. kort.
Frá þeim stað þar sem Keldudalsá fellur í Austari-Jökulsá (1) er Keldudalsá fylgt í botn Keldudals (2). Þaðan er línan dregin til vesturs á austurenda Stafnsvatnahæðar (3) og þaðan til suðausturs á Neðri-Bakka við Runukvísl og áfram sömu stefnu í Runukvísl (4). Þaðan er Runukvísl fylgt að þeim stað þar sem Bleikálukvísl rennur í hana (5). Frá ármótum Runukvíslar og Bleikálukvíslar er Bleikálukvísl fylgt að upptökum hennar (6) í Hofsjökli. Frá upptökum Bleikálukvíslar er jaðri Hofsjökuls fylgt til austurs að upptökum Austari Jökulsár (7) sem síðan er fylgt (7a-d) að þeim stað þar sem Keldudalsá fellur í hana (1).
Landsvæði þetta er þjóðlenda og um slík landsvæði fer eftir ákvæðum laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afréttar, nr. 58/1998, með síðari breytingum.
Að því leyti sem fylgt er jökuljaðri er miðað við stöðu jökuls eins og hann var við gildistöku þjóðlendulaga 1. júlí 1998.
Landeigandi: Íslenska ríkið, skv. 2. gr. laga nr. 58/1998.
Fyrirsvarsmaður: Forsætisráðherra skv. d-lið, 5. tölul. 1. gr. forsetaúrskurðar nr. 5/2025 um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði íslands.
Fylgiskjöl: Útdráttur úr úrskurði óbyggðanefndar í máli nr. 4/2008, dags. 19.06.2009.
Dómur Héraðsdóms Norðurlands vestra í máli nr. E-23/2010, 4. mars 2011.
Dómur Hæstaréttar í máli nr. 199/2011, 11. apríl 2011.
Dómur Héraðsdóms Norðurlands vestra í máli nr. E-35/2011, 28. nóv. 2012.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðna stofnun þjóðlendu, Austurhluti Hofsafréttar í Skagafirði.

6.Steinsstaðir lóð nr. 4 L222091 - Umsókn um lóð
Málsnúmer 2605238Vakta málsnúmer
Kári Heiðar Árnason sækir um frístundalóðina Steinsstaði 4, L222091.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að úthluta lóðinni til umsækjanda.

7.Hólatún 9 - Lóðarmál, Umsókn um breikkun á innkeyrslu
Málsnúmer 2605208Vakta málsnúmer
Eiríkur Jónsson og Birna Jónsdóttir lóðarhafar Hólatúns 9 á Sauðárkróki óska eftir breikkun á innkeyrslu sinni til norðurs um 3 metra frá núverandi innkeyslu og 3 metra til suðurs í staðinn fyrir áður samþykkta 6 metra til suðurs sbr. leyfi frá árinu 2021 (málsnúmer 2106210).
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða umbeðna stækkun á innkeyrslu lóðar Hólatúns 9 á Sauðárkróki. Framkvæmdina skal vinna í samráði við Veitu- og framkvæmdasvið Skagafjarðar.

8.Bjarnastaðir L146271 í Blönduhlíð - Umsókn um stofnun byggingarreita
Málsnúmer 2603089Vakta málsnúmer
Málið áður á dagskrá á 93. fundi skipulagsnefndar þann 12.03.2026 og þá bókað:
"Guttormur Hrafn Stefánsson, þinglýstur eigandi jarðarinnar Bjarnastaðir, landnr. 146271, óskar eftir heimild til að stofna tvo byggingarreiti, annarsvegar 4872 m² byggingarreit fyrir fjárhús og hins vegar 5158 m² byggingarreit fyrir íbúðarhús, á landi jarðarinnar, skv. meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 74670001 dags. 5 mars 2026. Afstöðuppdráttur var unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Dagnýju Stefánsdóttur og Birni Magnúsi Árnasyni. Engar byggingar eru á jörðinni eins og fram kemur í fasteignaskrá. Um er að ræða byggingarreit fyrir nýtt einbýlishús sem verður að hámarki 250 m² að stærð og að hámarki 6 m að hæð, og byggingarreit fyrir nýtt fjárhús sem verður að hámarki 1500 m² að stærð og að hámarki 8 m að hæð. Byggingarreitirnir, sem sótt er um, eru á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-1 skv. aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040. Áformin eru í fullu samræmi við stefnu aðalskipulagsins um eflingu landbúnaðar og búsetu, en í kafla 3.7 um almenn ákvæði landnotkunar á landbúnaðarsvæðum segir: "Á landbúnaðarsvæðum er gert ráð fyrir uppbyggingu í tengslum við landbúnaðarstarfsemina en einnig er heimilt að nýta byggingar, byggja stök mannvirki og/eða breyta eldri byggingum, til annarrar starfsemi ef slíkur rekstur styður við landbúnaðarstarfsemi eða búsetu á svæðinu." Byggingar sem hér er sótt um byggingarreiti fyrir eru forsendur þess að koma upp búskap á jörðinni. Hér er um að ræða fjárhúsbyggingu sem er nauðsynleg fyrir hefðbundinn búrekstur og íbúðarhús sem styður beint við hann. Staðsetning byggingarreitanna er valin með tilliti til byggingarhæfs lands annars vegar og gæði ræktunarlands hins vegar. Með þessum staðsetningum er ekki verið að taka gott ræktunarland undir byggingar. Einnig er gætt að því að byggingarnar rísi í nálægð við núverandi innviði til að skerða sem minnst nýtingu á góðu ræktarlandi (L-1), í samræmi við ákvæði Aðalskipulags Skagafjarðar. Komi til frekari byggingaráforma verður óskað eftir heimild til að láta vinna deiliskipulag. Jafnframt segir í aðalskipulaginu: "Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi til byggingar á stökum byggingum sem tengjast starfsemi bújarðar án deiliskipulags, ef umfang og/eða aðstæður gefa tilefni til. Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif." Lögð verður áhersla á að áformuð uppbygging verði í samræmi við yfirbragð og ásýnd svæðisins og hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif. Áformin skerða ekki aðgengi að öðrum byggingum en kunna að hafa ásýndaráhrif af Siglufjarðarvegi (76).
Óskað hefur verið eftir umsögn minjavarðar og Vegagerðarinnar. Fáist umsókn um byggingarreiti ekki samþykkt er sótt um stofnun 4872 m² byggingarreits fyrir fjárhús, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01, dags. 5. mars 2026 og umfjöllun hér að ofan og heimild til að láta vinna deiliskipulag á kostnað landeiganda sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fyrirliggur umsögn eigenda nærliggjandi landeigna vegna byggingareits fyrir fjárhús án athugasemda. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fresta erindinu og felur skipulagsfulltrúa að óska eftir frekari gögnum frá umsækjanda."
Fyrirliggja umsagnir frá Minjastofnun Íslands, MAST, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra og Umhverfis- og orkustofnunar án athugasemda.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun tveggja byggingarreita í landi Bjarnastaða.

9.Garður L146375 - Umsókn um stofnun landspildu og byggingarreits
Málsnúmer 2605236Vakta málsnúmer
Sigfríður Sigurjónsdóttir og Jón Sigurjónsson, f.h. Félagsbúsins Garðs ehf., þinglýsts eiganda jarðarinnar Garðs landnúmer 146375, óska eftir heimild til að stofna 484 m2 spildu úr landi jarðarinnar, sem Ásgarður, ásamt stofnun 400 m2 byggingarreits innan lóðarinnar, samkvæmt meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki nr. 71261010 útg. 19. maí 2026.
Landheiti útskiptrar lóðar vísar í heiti upprunajarðar.
Öll hlunnindi tilheyra áfram Garði Landnr. 146375.
Um er að ræða byggingarreit fyrir Gestahús. Hámarksbyggingarmagn verður 50 m2 og hámarksbyggingarhæð verður 5 m frá gólfi í mæni, þak verður tvíhallandi.
Landskipti og byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-4 í aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040 og styður við markmið aðalskipulags um uppbyggingu á landbúnaðarsvæðum, sbr. ákvæði í kafla 12, um að fjölga íbúum í dreifbýli og önnur markmið um landbúnað þar sem hann skerðir ekki nýtingu góðs ræktarlands til ræktunar og skerðir ekki sambúð landbúnaðar, ferðaþjónustu, frístundabyggðar og annarrar landnotkunar. Í 12.4 kafla í greinargerð aðalskipulags segir um almenn ákvæði um landnotkun á öllum landbúnaðarsvæðum:
"Þar er gert ráð fyrir uppbyggingum í tengslum við landbúnaðarstarfsemina en einnig er heimilt að nýta byggingar, byggja stök mannvirki og/eða breyta eldri byggingum, til annarrar starfsemi ef slíkur rekstur styður við landbúnaðarstarfsemi eða búsetu á svæðinu." Hér er um að ræða staka byggingu sem styður við búsetu á svæðinu, núverandi innviðir nýtast áfram, stök bygging verður að hámarki 50m² og uppbygging er ekki líkleg til að hafa veruleg áhrif á mengun eða aðgengi. Jafnframt segir í sama kafla:
"Skipulagsnefnd metur hverju sinni málsmeðferð uppbyggingaráforma m.t.t. skipulagslaga, með hliðsjón af ofangreindum ákvæðum og umfangi framkvæmda.
Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi til byggingar á stökum byggingum sem tengjast starfsemi bújarðar án deiliskipulags, ef umfang og/eða aðstæður gefi tilefni til. Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif."
Lögð verður áhersla á að áformuð uppbygging verði í samræmi við yfirbragð og ásýnd svæðisins og hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif. Áformin skerða ekki aðgengi að öðrum byggingum en kunna að hafa ásýndaráhrif af Hegranesvegi (764).
Óskað hefur verið eftir umsögn minjavarðar og vegagerðar vegna vegtengingar við Garðsveg (7618).
Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar spildu.
Engin fasteign er á umræddri spildu.
Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Garði, landnúmer 146375.
Málsnúmer í landeignaskrá er M003854.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða umbeðið nafnleyfi og jafnframt samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja landskiptin og stofnun byggingarreits að fenginni jákvæðri umsögn minjavarðar.

10.Hólavegur 14 - Umsókn um breikkun á innkeyrslu
Málsnúmer 2605240Vakta málsnúmer
Erla Sigríður Halldórsdóttir og Jón Alexandersson lóðarhafar Hólavegar 14 á Sauðárkróki óska eftir breikkun á innkeyrslu sinni um 2 metra til austurs. Með erindinu fylgir mynd sem gerir grein fyrir umbeðinni stækkun. Búið að að breikka stæðið innan lóðarinnar en aðgengið frá götunni er takmarkað þar sem innkeyrslan er óbreytt uppvið götu.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða umbeðna stækkun á innkeyrslu lóðar Hólavegs 14 á Sauðárkróki. Framkvæmdina skal vinna í samráði við Veitu- og framkvæmdasvið Skagafjarðar.

11.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 85
Málsnúmer 2605015FVakta málsnúmer
Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 85 þann 19.05.2026.
Fundi slitið - kl. 15:00.
Á uppdráttunum er sýnd núverandi byggð og tillaga að hámarksnýtingarhlutfalli fyrir hverja lóð fyrir sig, sett upp í skýringartöflu til að hægt sé að glöggva sig á hversu marga fermetra til viðbótar væri mögulegt að byggja á hverri lóð.
Hugmyndavinna Hildar Hartmannsdóttur er sýnd fyrir óbyggilegt opið svæði sem liggur milli Gilstúns og Brekkutúns til suðurs, þar sem megin þemun eru sýnd ásamt skýringarmyndum fyrir:
- Akurinn, matjurta- og blómaræktun
- Votengi, ofanvatnsrásir og söfunarlautir fyrir ofanvatn
- Fjörsalir, leik- æfinga og upplifunarrými fyrir allan aldur
- Hólavellir, sléttur grasflötur umlukinn gróðri
Gert er ráð fyrir bílastæði útfrá Sæmundarhlíðinni til að auka ekki umferð bíla inn götur Túnahverfisins inn að opna svæðinu.
Einnig er settur upp svokallaður hreyfiás í gegnum miðju skipulagssvæðisins (sem liggur vestur - austur) sem er ætlaður sem grænn tengiás um hverfið endilangt og skapa þannig grundvöll fyrir örugga tengingu um svæðið fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.
Tillagan stillir upp möguleika á nýjum parhúsum á svæðinu, Gilstúni 21-23, Eyrartúni 11-13, 14-16 og 15-17.
Skipulagsfulltrúi leggur til að samhliða auglýsingu vinnslutillögu deiliskipulagsins verði teknar prufuholur á umræddum lóðum að fengnu framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar Skagafjarðar til að hægt sé að taka upplýstar ákvaðanir varðandi þær lóðir í kjölfarið.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagsvinnslutillöguna fyrir "Laufblaðið, Sauðárkróki, íbúðarbyggð og opið svæði" í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Jafnframt samþykkir skipulagsnefnd samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi fyrir prufuholum á deiliskipulagssvæðinu.
Sigurður H. Ingvarsson vék af fundi undir þessum lið.