Fara í efni

Umsókn um stofnun þjóðlendu - Austurhluti Hofsafréttar

Málsnúmer 2603178

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 99. fundur - 28.05.2026

Lögð fram umsókn Regínu Sigurðardóttur fyrir hönd forsætisráðuneytisins dags. 17.03.2026 um stofnun þjóðlendu, Austurhluti Hofsafréttar í Skagafirði.
Umsókn um stofnun fasteignar (þjóðlendu), sbr. 14. gr. laga um skráningu, merki og mat fasteigna, nr. 6/2001, með síðari breytingum.
Landsvæði sem hér óskast stofnað er þjóðlenda skv. úrskurði óbyggðanefndar í máli nr. 4/2008, og dómum Héraðsdóms Norðurlands vestra í málum nr. E-23/2010, nr.E-35/2011, og Hrd.199/2011. Um hana fer eftir ákvæðum laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, nr. 58/1998, með síðari breytingum.

Landsvæði það sem afmarkað er hér á eftir, þ.e. Austurhluti Hofsafréttar er þjóðlenda og afréttareign Gilja, Bjarnastaðahlíðar, Litlu-Hlíðar Bústaða, Tunguháls I og II, og fjallskilasjóðs Hofsafréttar. Skráð stærð: 262,88 km².
Fyrirvari er um nákvæmni hnitpunkta í hnitaskrá þar sem skekkjumörk geta verið allt að 500 m, hnitakerfi er ÍSN93. Kortagrunnur er byggður á stafrænum gögnum Náttúrufræðistofnunnar og Veðurstofunnar.
Línur sem liggja samsíða hafa sömu staðsetningu. Afmörkun svæðisins er svohljóðandi sbr. úrskurð óbyggðanefndar í máli nr. 4/2008 og einnig meðf. kort.
Frá þeim stað þar sem Keldudalsá fellur í Austari-Jökulsá (1) er Keldudalsá fylgt í botn Keldudals (2). Þaðan er línan dregin til vesturs á austurenda Stafnsvatnahæðar (3) og þaðan til suðausturs á Neðri-Bakka við Runukvísl og áfram sömu stefnu í Runukvísl (4). Þaðan er Runukvísl fylgt að þeim stað þar sem Bleikálukvísl rennur í hana (5). Frá ármótum Runukvíslar og Bleikálukvíslar er Bleikálukvísl fylgt að upptökum hennar (6) í Hofsjökli. Frá upptökum Bleikálukvíslar er jaðri Hofsjökuls fylgt til austurs að upptökum Austari Jökulsár (7) sem síðan er fylgt (7a-d) að þeim stað þar sem Keldudalsá fellur í hana (1).
Landsvæði þetta er þjóðlenda og um slík landsvæði fer eftir ákvæðum laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afréttar, nr. 58/1998, með síðari breytingum.
Að því leyti sem fylgt er jökuljaðri er miðað við stöðu jökuls eins og hann var við gildistöku þjóðlendulaga 1. júlí 1998.
Landeigandi: Íslenska ríkið, skv. 2. gr. laga nr. 58/1998.
Fyrirsvarsmaður: Forsætisráðherra skv. d-lið, 5. tölul. 1. gr. forsetaúrskurðar nr. 5/2025 um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði íslands.

Fylgiskjöl: Útdráttur úr úrskurði óbyggðanefndar í máli nr. 4/2008, dags. 19.06.2009.
Dómur Héraðsdóms Norðurlands vestra í máli nr. E-23/2010, 4. mars 2011.
Dómur Hæstaréttar í máli nr. 199/2011, 11. apríl 2011.
Dómur Héraðsdóms Norðurlands vestra í máli nr. E-35/2011, 28. nóv. 2012.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðna stofnun þjóðlendu, Austurhluti Hofsafréttar í Skagafirði.