Fara í efni

Sveitarstjórn Skagafjarðar

50. fundur 03. júní 2026 kl. 16:15 - 17:14 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Eyþór Fannar Sveinsson aðalm.
  • Elínborg Erla Ásgeirsdóttir varam.
    Aðalmaður: Jóhanna Ey Harðardóttir
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson aðalm.
  • Magnús Barðdal Reynisson aðalm.
  • Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir aðalm.
  • Guðlaugur Skúlason aðalm.
  • Einar Eðvald Einarsson aðalm.
  • Hrund Pétursdóttir aðalm.
  • Högni Elfar Gylfason aðalm.
Starfsmenn
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
Í upphafi fundar fór forseti þess á leit við fundarmenn að mál 2606019-"Prókúruumboð - sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs 2026" og 2606020-"Prókúruumboð - fjármálastjóri 2026" verði tekin á dagskrá fundar með afbrigðum. Samþykkt samhljóða

1.Kjör forseta sveitarstjórnar 2026

Málsnúmer 2605106Vakta málsnúmer

Kosning forseta sveitarstjórnar til eins árs í senn. Einar E. Einarsson bar upp tillögu um Svein Þ. Finster Úlfarsson sem forseta sveitarstjórnar. Aðrar tilnefningar komu ekki fram og telst hann því rétt kjörinn.

2.Kjör fyrsta varaforseta sveitarstjórnar 2026

Málsnúmer 2605107Vakta málsnúmer

Kosning fyrsta varaforseta sveitarstjórnar til eins árs í senn. Einar E. Einarsson bar upp tillögu um Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir sem fyrsta varaforseta sveitarstjórnar. Aðrar tilnefningar komu ekki fram og telst hann því rétt kjörinn.

3.Kjör annars varaforseta sveitarstjórnar 2026

Málsnúmer 2605108Vakta málsnúmer

Kosning annars varaforseta sveitarstjórnar til eins árs í senn. Einar E. Einarsson bar upp tillögu um Einar Eðvald Einarsson sem annan varaforseta sveitarstjórnar. Aðrar tilnefningar komu ekki fram og telst hann því rétt kjörin.

4.Byggðarráð Skagafjarðar - 196

Málsnúmer 2605020FVakta málsnúmer

Fundargerð 196. fundar byggðarráðs frá 27. maí 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 50. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti kynnti fundargerð. Guðlaugur Skúlason og Sigfús Ingi Sigfússon kvöddu sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 196 Svavar Atli Birgisson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Skagafjarðar sat fundinn undir þessum lið.

    Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

    Málið var áður á dagskrá 163. fundi byggðarráðs þann 24. september 2025. Þann 14. maí 2025 réðst HMS í úttekt á starfsemi Brunavarna Skagafjarðar. Gerðar voru athugasemdir við 2 atriði af þeim 32 sem voru til skoðunar og snéru bæði atriðin að húsakosti Brunavarna Skagafjarðar. Síðan þá hefur verið unnin greining og forvinna sem miðar að því að meta nauðsynlegar úrbætur á húsnæði Brunavarna Skagafjarðar ásamt aðkomu að svæðinu og skipulagi þess.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra í samvinnu við slökkviliðsstjóra að svara erindinu og vísar hönnunarvinnunni til fjárhagsáætlunargerðar.
    Bókun fundar Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

    Afgreiðsla 196. fundar byggðarráðs var staðfest á 50. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2026 með átta atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 196 Lögð voru fram drög að tveimur lóðarleigusamningum milli Skagafjarðar og Orku Náttúrunnar.

    Annars vegar er um að ræða Túngötu 1 á Hofsósi. Lóðin hefur landnúmerið L241013 og fasteignanúmerið F2542585. Staðfang lóðar er "Túngata 1".

    Hins vegar er um að ræða lóðarleigusamning á Flæðum á Sauðárkróki. Lóðin hefur landnúmerið L239828 og fasteignanúmerið F2539232. Staðfang lóðar er "Flæðar Hleðslustöð".

    Ársleiga er 4% af fasteignamati lóðar og fyrsti gjalddagi 1. júní 2026.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlögð drög að lóðarleigusamningum, dags. 28. maí 2026 og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Byggðarráð felur sveitarstjóra að undirrita samningana fyrir hönd Skagafjarðar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 196. fundar byggðarráðs var staðfest á 50. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 196 Lagður fram tölvupóstur frá Einari E. Einarssyni, dagsettur 23. maí sl. Í tölvupóstinum fer Einar þess á leit að eftirfarandi tillaga verði tekin á dagskrá byggðarráðs. Tillagan er svohljóðandi:

    "Tillaga: Undirritaður leggur til að endurskoðandi sveitarfélagsins framkvæmi milliuppgjör pr. 30.06 2026, fyrir sveitarfélagið og stofnanir þess. Í uppgjörinu komi fram rekstrarniðurstaða í samanburði við fjárhagsáætlun, uppreiknaðar eignir, skuldir og skuldbindingar og helstu lykiltölur sambærilegar þeim sem birtast í ársreikningi hverju sinni. Leggja skal niðurstöðuna fyrir byggðarráð eigi síðar en í lok september 2026.

    Greinargerð:
    Rekstur og fjárhagsstaða sveitarfélagsins Skagafjarðar var mjög góð í lok árs 2025, skuldir hlutfallslega litlar og veltufé frá rekstri í sögulegu hámarki, svo eitthvað sé nefnt. Frá áramótum hefur hins vegar mjög margt verið gert og samþykkt sem hefur haft mikil áhrif á rekstrar- og efnahagsreikning sveitarfélagsins. Vegur þar þyngst sala á 52 íbúðum sveitarfélagsins til Leigufélagsins Bríetar ehf. Við þessa sölu urðu miklar tilfærslur á eignum sveitarfélagsins ásamt mjög jákvæðum áhrifum af þeirri uppgreiðslu áhvílandi skulda sem urðu vegna sölunnar, ásamt því sem sveitarfélagið eignaðist hlut í Leigufélaginu Bríeti ehf. Einnig hefur verið undirritaður samningur við ríkisvaldið um yfirtöku á afmörkuðu landi undir þéttbýlinu á Hólum í Hjaltadal, með eignatilfærslu og peningagreiðslu til sveitarfélagsins vegna fyrirsjáanlegs kostnaðar við fráveitu staðarins. Ljóst er að áhrif þessara tveggja samninga hafa mikil á fjárhag sveitarfélagsins, ásamt áhrifum á skulda- og eignastöðu þess.

    Frá og með 1. júní 2026 tekur ný sveitarstjórn við rekstri sveitarfélagsins og því er mikilvægt að fyrir liggi staðfest uppgjör á rekstri og stöðu sveitarfélagsins fyrir fyrri helming ársins þannig að rekstrar- og fjárhagsstaða sveitarfélagsins við skiptin séu öllum ljós. Benda má á að sambærileg milliuppgjör hafa áður verið framkvæmd við breytingar á meirihlutum í sveitarstjórn Skagafjarðar.

    Fyrir hönd Framsóknarfélags Skagafjarðar
    Einar E. Einarsson"

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að verða við beiðninni og felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs framkvæmd milliuppgjörsins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 196. fundar byggðarráðs var staðfest á 50. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2026 með níu atkvæðum.
  • 4.4 2604115 17. júní 2026
    Byggðarráð Skagafjarðar - 196 Deildarstjóri þróunar, miðlun og menningar óskar eftir heimild til að loka eftirtöldum gatnamótum á meðan skrúðganga vegna þjóðhátíðardags þann 17. júní n.k. á sér stað:

    Gatnamót Skagfirðingabrautar/Skólastígs.
    Gatnamót Skagfirðingabrautar/Ránarstígs.
    Gatnamót Skagfirðingabrautar/Bárustígs.
    Gatnamót Skagfirðingabrautar/Öldustígs.
    Gatnamót Skagfirðingabrautar/Hegrabrautar/Sæmundarhlíðar rétt á meðan gangan fer inn í portið.
    Gatnamót Sæmundarhlíðar og Spítalastígs

    Sveitarfélagið mun koma upp lokunarpóstum í samvinnu við verkefnastjóra menningar-, ferðamála- og viðburðaverkefna. Tryggt verður að aðgengi sjúkrabíla og löggæsluaðila verði gott þrátt fyrir lokanir.

    Byggðarráð samþykkir erindið samhljóða fyrir sitt leyti og að uppfylltum öðrum tilskyldum leyfum, ásamt því að hjáleiðir verði vel merktar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 196. fundar byggðarráðs var staðfest á 50. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 196 Lögð voru fram drög að viljayfirlýsingu milli mennta- og barnamálaráðuneytisins annars vegar og sveitarfélagsins Skagafjarðar og Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra hins vegar.

    Í viljayfirlýsingunni lýsa aðilar yfir áformum sínum um að sveitarfélagið Skagafjörður haldi utan um framkvæmdina um stækkun verknámsaðstöðu FNV. Stefnt er að því að hefja framkvæmdir við nýja verknámsbyggingu næsta vetur.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlögð drög að viljayfirlýsingu með fyrirvara um staðfestingu sveitarstjórnar. Sveitarstjóra falið að undirrita viljayfirlýsinguna fyrir hönd Skagafjarðar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 196. fundar byggðarráðs var staðfest á 50. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2026 með níu atkvæðum.

    Guðlaugur Skúlason gerði það að tillögu sinni að neðangreind bókun verði bókun sveitarstjórnar. Það var samþykkt samhljóða og er bókun svohljóðandi:
    "Sveitarstjórn Skagafjarðar fagnar undirritun viljayfirlýsingar mennta- og barnamálaráðuneytisins, Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra um uppbyggingu og stækkun verknámsaðstöðu skólans. Samkvæmt viljayfirlýsingunni verður verknámshúsið reist í tveimur áföngum og er áætlað að framkvæmdir við fyrri áfanga hefjist næsta vetur.
    Uppbyggingin er brýn enda hefur eftirspurn eftir iðn- og starfsnámi við FNV aukist verulega undanfarin ár og núverandi aðstaða hamlar framþróun námsins. Hluti kennslu hefur þurft að fara fram í bráðabirgðaúrræðum og ljóst er að bætt aðstaða mun skipta miklu máli fyrir nemendur, starfsfólk, atvinnulíf og samfélagið á Norðurlandi vestra.
    Sveitarstjórn fagnar því sérstaklega að Skagafjörður muni hafa umsjón með framkvæmdum á grundvelli frumathugunar Framkvæmdasýslu ríkisins og hugmyndum verkfræðistofunnar Stoðar ehf. Þá liggur fyrir að ríkissjóður greiði 60% kostnaðar við framkvæmdina og sveitarfélögin á Norðurlandi vestra 40%.
    Sveitarstjórn hefur áður beint áskorun til mennta- og barnamálaráðherra um að fylgja eftir áformum um stækkun verknámshússins. Það er því mikið ánægjuefni að skýr vilji liggi nú fyrir um framgang þessa mikilvæga verkefnis.
    Sveitarstjórn Skagafjarðar leggur jafnframt áherslu á að viljayfirlýsingunni verði fylgt eftir af festu þannig að framkvæmdir geti hafist næsta vetur eins og áform gera ráð fyrir. Sveitarstjórn hvetur ráðuneytið og hlutaðeigandi aðila til að vinna markvisst að því að gengið verði frá samningum svo tryggja megi framgang verkefnisins án tafar.
    Verkefnið er mikilvægt skref í eflingu iðn- og starfsnáms á landsbyggðinni og mun styrkja menntun, atvinnulíf og samfélag á Norðurlandi vestra til framtíðar."
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 196 Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 79/2026, "Drög að frumvarpi um breytingar á lögum um Byggðastofnun". Umsagnarfrestur er til og með 30.06. 2026.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða eftirfarandi umsögn:

    Byggðastofnun gegnir lykilhlutverki gagnvart hinum dreifðu byggðum, en hlutverk hennar er skýrt skilgreint í lögum nr. 106/1999 „að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu.“ Jafnframt segir í reglugerð fyrir Byggðastofnun nr. 347/2000: „Til að stuðla að vexti, nýsköpun og umbreytingu í atvinnulífi veitir stofnunin m.a. lán og ráðgjöf, fjármagnar og skipuleggur verkefni og stuðlar að öflugri atvinnuráðgjöf.“

    Mikilvægi Byggðastofnunar gagnvart þróun byggðar á Íslandi er því augljóst enda er hún ein mikilvægasta stofnun ríkisins til að halda utan um og hafa áhrif á þróun byggðar í landinu.

    Byggðarráð Skagafjarðar gerir ekki athugasemd við þær hugtakabreytingar sem verið er að laga eða samræma með þessum drögum að lagabreytingum. Aftur á móti vill byggðarráð benda á mikilvægi stofnunarinnar sem lánastofnunnar fyrir dreifðari byggðir þannig að þær hafi möguleika á lánsfjármögnun til verkefna á sambærilegum kjörum og önnur svæði búa við, þ.e.a.s. svæði þar sem starfandi bankastofnanir eru í dag tilbúnar að lána einstaklingum eða fyrirtækjum til fjárfestinga, út frá eigin mati á stöðu svæðanna eða fyrirtækja.

    Almennt sagt um lánakjör Byggðastofnunar þá eru þau í besta falli samkeppnishæf við bankakerfið, en ljóst er að bankarnir eru að bjóða einstaklingum og fyrirtækjum hagstæðari lán en Byggðastofnun gerir þegar þeir hafa trú á viðkomandi fyrirtæki eða svæði, út frá t.d. þróun á íbúafjölda eða hagvexti svæðisins.

    Byggðarráð telur því mikilvægt að stjórn stofnunarinnar geti með auknum sveigjanleika í lögum um starfsemi stofnunarinnar ákveðið að veita sérstaklega hagstæð lán, helst vaxtalaus, inn á viðkvæmustu byggðasvæðin á Íslandi, enda séu þau skilgreind með hliðsjón af þróun íbúafjölda, hagvexti og stöðu samkvæmt greiningum og samanburði svæða. Með þessu móti myndi opnast nýr og hagkvæmur lánamöguleiki fyrir einstaklinga og fyrirtæki að fjárfesta í atvinnuskapandi tækifærum á veikustu byggðasvæðum landsins og þannig stuðla að atvinnuuppbyggingu og fjölgun íbúa þessara svæða.

    Eigandi Byggðastofnunar, íslenska ríkið, á ekki að vera hrætt við að nota þessa stofnun sem alvöru verkfæri í fjármögnun atvinnu- og nýsköpunar á veikustu svæðunum samkvæmt skilgreiningum og þannig stuðla að uppgangi þeirra og vexti. Byggðastofnun er ekki og á ekki að vera venjuleg bankastofnun í eigu ríkisins með það eitt að markmiði að keppa við hina viðskiptabankana. Stofnuninni er í dag gert að reka sig að stórum hluta fyrir vaxtatekjur af lánasafninu. Eðlilegra væri að lánastarfsemi sé fjármögnuð með vaxtatekjum af lánasafninu, en önnur svið stofnunarinnar væru rekin fyrir framlag frá ríkinu. Þannig gæti ávinningur af vaxtatekjum lána á hagkvæmari svæðum niðurgreitt lán til veikari svæða með það að markmiði að jafna af alvöru búsetukjörin í landinu og efla byggð um land allt.
    Bókun fundar Hrund Pétursdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

    Afgreiðsla 196. fundar byggðarráðs var staðfest á 50. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2026 með átta atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 196 Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 88/2026, "Sviðslistastefna 2026-2030". Umsagnarfrestur er til og með 01.07. 2026.

    Byggðarráð Skagafjarðar fagnar drögum að nýrri sviðslistastefnu 2026-2030. Eðlilega er mikil áhersla á að tryggja stöðugleika í rekstri lykilstofnana þjóðarinnar í þessum efnum, þ.e. Þjóðleikhúsi, Íslenska dansflokksins og Óperunnar. Einnig má nefna að menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið styður myndarlega við öflugt menningarstarf á Akureyri með menningarsamningi við bæinn. Jákvætt er að leitast eigi við að tryggja jafnt aðgengi barna og ungmenna að sviðslistanámi óháð búsetu, kortleggja eigi innviði og aðstöðu - sérstaklega á landsbyggðinni, og að efla eigi dreifingu um landið með ferðasjóði og rannsóknum á hvaða hópar nýta sér sviðslistir.

    Byggðarráð bendir jafnframt á að víða á landsbyggðinni eru starfandi öflug leikfélög sem setja upp nokkur leikverk á ári hverju. Má þar nefna Leikfélag Sauðárkróks. Það myndi stuðla að bættu aðgengi að öflugum sviðslistum ef fjármagni yrði varið til styrktar þessum leikfélögum, í stað þess að stofna eingöngu ferðasjóð til að styðja við ferðir sviðslistahópa af höfuðborgarsvæðinu út á landsbyggðirnar. Sá styrkur, eins og hann er tilgreindur í drögum að sviðslistastefnu, er jafnframt af svo skornum skammti að hann mun ekki skipta sköpum í auknu framboði sviðslista um landið. Með öflugum stuðningi við leikfélög landsins er stuðlað að enn virkari starfsemi þeirra sem eykur aðgengi íbúa vítt og breytt um landið að sviðslistastarfsemi og ýtir undir áhuga barna og ungmenna á sviðslistum og sviðslistanámi.
    Bókun fundar Afgreiðsla 196. fundar byggðarráðs var staðfest á 50. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 196 Lögð fram til kynningar niðurstöður nýafstaðins útboðs jarðvinnu vegna Menningarhúss á Sauðárkróki.

    Tilboð voru opnuð föstudaginn 22. maí sl. í verkið "Menningarhús í Skagafirði - Jarðvinna 2026". Þrjú tilboð bárust og hafa verið yfirfarin. Engar útreikningsskekkjur fundust og engar athugasemdir voru gerðar við tilboðsopnun. Niðurstaðan er sú að lægstbjóðandi var Þ. Hansen ehf. sem bauð 49.619.193 kr. sem er 35,1% af kostnaðaráætlun sem Verkís vann fyrir Skagafjörð vegna verksins.

    Byggðarráð fagnar ánægjulegri niðurstöðu útboðs og að framundan sé fyrsti áfangi í verklegum framkvæmdum við uppbyggingu nýs menningarhúss.
    Bókun fundar Afgreiðsla 196. fundar byggðarráðs var staðfest á 50. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2026 með níu atkvæðum.

5.Skipulagsnefnd - 99

Málsnúmer 2605021FVakta málsnúmer

Fundargerð 99. fundar skipulagsnefndar frá 28. maí 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 50. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Skipulagsnefnd - 99 Lögð fram deiliskipulagstillaga á vinnslustigi fyrir Laufblaðið - íbúðabyggð á Sauðárkróki, dags. 21.05.2026, verknúmer 56291510, uppdrættir nr. DS01 og DS02 unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu.
    Á uppdráttunum er sýnd núverandi byggð og tillaga að hámarksnýtingarhlutfalli fyrir hverja lóð fyrir sig, sett upp í skýringartöflu til að hægt sé að glöggva sig á hversu marga fermetra til viðbótar væri mögulegt að byggja á hverri lóð.
    Hugmyndavinna Hildar Hartmannsdóttur er sýnd fyrir óbyggilegt opið svæði sem liggur milli Gilstúns og Brekkutúns til suðurs, þar sem megin þemun eru sýnd ásamt skýringarmyndum fyrir:
    - Akurinn, matjurta- og blómaræktun
    - Votengi, ofanvatnsrásir og söfunarlautir fyrir ofanvatn
    - Fjörsalir, leik- æfinga og upplifunarrými fyrir allan aldur
    - Hólavellir, sléttur grasflötur umlukinn gróðri

    Gert er ráð fyrir bílastæði útfrá Sæmundarhlíðinni til að auka ekki umferð bíla inn götur Túnahverfisins inn að opna svæðinu.
    Einnig er settur upp svokallaður hreyfiás í gegnum miðju skipulagssvæðisins (sem liggur vestur - austur) sem er ætlaður sem grænn tengiás um hverfið endilangt og skapa þannig grundvöll fyrir örugga tengingu um svæðið fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.
    Tillagan stillir upp möguleika á nýjum parhúsum á svæðinu, Gilstúni 21-23, Eyrartúni 11-13, 14-16 og 15-17.
    Skipulagsfulltrúi leggur til að samhliða auglýsingu vinnslutillögu deiliskipulagsins verði teknar prufuholur á umræddum lóðum að fengnu framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar Skagafjarðar til að hægt sé að taka upplýstar ákvaðanir varðandi þær lóðir í kjölfarið.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagsvinnslutillöguna fyrir "Laufblaðið, Sauðárkróki, íbúðarbyggð og opið svæði" í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Jafnframt samþykkir skipulagsnefnd samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi fyrir prufuholum á deiliskipulagssvæðinu.

    Sigurður H. Ingvarsson vék af fundi undir þessum lið.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Laufblaðið, Sauðárkróki, íbúðarbyggð og opið svæði - Deiliskipulag, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 99 Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við skipulagslýsingu fyrir deiliskipulagstillögu og aðalskipulagsbreytingu fyrir Furulund 3, 5 og 7 í Varmahlíð, mál nr. 483/2026 (https://skipulagsgatt.is/issues/2026/483 ) og mál nr. 484/2026 (https://skipulagsgatt.is/issues/2026/484 ) í Skipulagsgáttinni, samráðsgátt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um skipulagsmál.
    Skipulagslýsingarnar voru í auglýsingu dagana 29.04.2026- 21.05.2026 og bárust 5 umsagnir við deiliskipulagslýsinguna og sömuleiðis 5 umsagnir við aðalskipulagsbreytinguna.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 99. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 50. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 99 Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við skipulagslýsingu fyrir deiliskipulagstillögu fyrir Tjaldsvæðið við Borgargerði á Sauðárkróki, mál nr. 485/2026 (https://skipulagsgatt.is/issues/2026/485 ) í Skipulagsgáttinni, samráðsgátt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um skipulagsmál.
    Skipulagslýsingin var í auglýsingu dagana 29.04.2026- 21.05.2026 og bárust 4 umsagnir.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 99. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 50. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 99 Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir fyrir hönd Rarik sækir um óverulega breytingu á deiliskipulaginu Miðsvæði milli Skólagötu og Túngötu á Hofsósi fyrir lóð þeirra Túngötu 1a, sem ætluð er fyrir spennistöð.
    Í ljós hefur komið að breyta þarf lögun lóðarinnar og minnkar hún þar með úr 28 m2 í 20 m2, byggingarreitur helst óbreyttur.
    Breytingin hefur óveruleg áhrif á hagsmuni annarra aðila en sveitarfélagsins og umsækjanda.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir Miðsvæði milli Skólagötu og Túngötu á Hofsósi skv. 2.mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, ekki er talin þörf á grenndarkynningu þar sem breytingin hefur óveruleg áhrif á hagsmuni annarra aðila en sveitarfélagsins og umsækjanda. Einnig að í framhaldinu verði gerð uppfærð merkjalýsing og lóðarblöð á kostnað umsækjanda.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Miðsvæði milli Skólagötu og Túngötu, Hofsósi - Óveruleg breyting á deiliskipulagi, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 99 Lögð fram umsókn Regínu Sigurðardóttur fyrir hönd forsætisráðuneytisins dags. 17.03.2026 um stofnun þjóðlendu, Austurhluti Hofsafréttar í Skagafirði.
    Umsókn um stofnun fasteignar (þjóðlendu), sbr. 14. gr. laga um skráningu, merki og mat fasteigna, nr. 6/2001, með síðari breytingum.
    Landsvæði sem hér óskast stofnað er þjóðlenda skv. úrskurði óbyggðanefndar í máli nr. 4/2008, og dómum Héraðsdóms Norðurlands vestra í málum nr. E-23/2010, nr.E-35/2011, og Hrd.199/2011. Um hana fer eftir ákvæðum laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, nr. 58/1998, með síðari breytingum.

    Landsvæði það sem afmarkað er hér á eftir, þ.e. Austurhluti Hofsafréttar er þjóðlenda og afréttareign Gilja, Bjarnastaðahlíðar, Litlu-Hlíðar Bústaða, Tunguháls I og II, og fjallskilasjóðs Hofsafréttar. Skráð stærð: 262,88 km².
    Fyrirvari er um nákvæmni hnitpunkta í hnitaskrá þar sem skekkjumörk geta verið allt að 500 m, hnitakerfi er ÍSN93. Kortagrunnur er byggður á stafrænum gögnum Náttúrufræðistofnunnar og Veðurstofunnar.
    Línur sem liggja samsíða hafa sömu staðsetningu. Afmörkun svæðisins er svohljóðandi sbr. úrskurð óbyggðanefndar í máli nr. 4/2008 og einnig meðf. kort.
    Frá þeim stað þar sem Keldudalsá fellur í Austari-Jökulsá (1) er Keldudalsá fylgt í botn Keldudals (2). Þaðan er línan dregin til vesturs á austurenda Stafnsvatnahæðar (3) og þaðan til suðausturs á Neðri-Bakka við Runukvísl og áfram sömu stefnu í Runukvísl (4). Þaðan er Runukvísl fylgt að þeim stað þar sem Bleikálukvísl rennur í hana (5). Frá ármótum Runukvíslar og Bleikálukvíslar er Bleikálukvísl fylgt að upptökum hennar (6) í Hofsjökli. Frá upptökum Bleikálukvíslar er jaðri Hofsjökuls fylgt til austurs að upptökum Austari Jökulsár (7) sem síðan er fylgt (7a-d) að þeim stað þar sem Keldudalsá fellur í hana (1).
    Landsvæði þetta er þjóðlenda og um slík landsvæði fer eftir ákvæðum laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afréttar, nr. 58/1998, með síðari breytingum.
    Að því leyti sem fylgt er jökuljaðri er miðað við stöðu jökuls eins og hann var við gildistöku þjóðlendulaga 1. júlí 1998.
    Landeigandi: Íslenska ríkið, skv. 2. gr. laga nr. 58/1998.
    Fyrirsvarsmaður: Forsætisráðherra skv. d-lið, 5. tölul. 1. gr. forsetaúrskurðar nr. 5/2025 um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði íslands.

    Fylgiskjöl: Útdráttur úr úrskurði óbyggðanefndar í máli nr. 4/2008, dags. 19.06.2009.
    Dómur Héraðsdóms Norðurlands vestra í máli nr. E-23/2010, 4. mars 2011.
    Dómur Hæstaréttar í máli nr. 199/2011, 11. apríl 2011.
    Dómur Héraðsdóms Norðurlands vestra í máli nr. E-35/2011, 28. nóv. 2012.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðna stofnun þjóðlendu, Austurhluti Hofsafréttar í Skagafirði.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Umsókn um stofnun þjóðlendu - Austurhluti Hofsafréttar, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 99 Kári Heiðar Árnason sækir um frístundalóðina Steinsstaði 4, L222091.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að úthluta lóðinni til umsækjanda.
    Bókun fundar Afgreiðsla 99. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 50. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 99 Eiríkur Jónsson og Birna Jónsdóttir lóðarhafar Hólatúns 9 á Sauðárkróki óska eftir breikkun á innkeyrslu sinni til norðurs um 3 metra frá núverandi innkeyslu og 3 metra til suðurs í staðinn fyrir áður samþykkta 6 metra til suðurs sbr. leyfi frá árinu 2021 (málsnúmer 2106210).

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða umbeðna stækkun á innkeyrslu lóðar Hólatúns 9 á Sauðárkróki. Framkvæmdina skal vinna í samráði við Veitu- og framkvæmdasvið Skagafjarðar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 99. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 50. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 99 Málið áður á dagskrá á 93. fundi skipulagsnefndar þann 12.03.2026 og þá bókað:
    "Guttormur Hrafn Stefánsson, þinglýstur eigandi jarðarinnar Bjarnastaðir, landnr. 146271, óskar eftir heimild til að stofna tvo byggingarreiti, annarsvegar 4872 m² byggingarreit fyrir fjárhús og hins vegar 5158 m² byggingarreit fyrir íbúðarhús, á landi jarðarinnar, skv. meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 74670001 dags. 5 mars 2026. Afstöðuppdráttur var unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Dagnýju Stefánsdóttur og Birni Magnúsi Árnasyni. Engar byggingar eru á jörðinni eins og fram kemur í fasteignaskrá. Um er að ræða byggingarreit fyrir nýtt einbýlishús sem verður að hámarki 250 m² að stærð og að hámarki 6 m að hæð, og byggingarreit fyrir nýtt fjárhús sem verður að hámarki 1500 m² að stærð og að hámarki 8 m að hæð. Byggingarreitirnir, sem sótt er um, eru á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-1 skv. aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040. Áformin eru í fullu samræmi við stefnu aðalskipulagsins um eflingu landbúnaðar og búsetu, en í kafla 3.7 um almenn ákvæði landnotkunar á landbúnaðarsvæðum segir: "Á landbúnaðarsvæðum er gert ráð fyrir uppbyggingu í tengslum við landbúnaðarstarfsemina en einnig er heimilt að nýta byggingar, byggja stök mannvirki og/eða breyta eldri byggingum, til annarrar starfsemi ef slíkur rekstur styður við landbúnaðarstarfsemi eða búsetu á svæðinu." Byggingar sem hér er sótt um byggingarreiti fyrir eru forsendur þess að koma upp búskap á jörðinni. Hér er um að ræða fjárhúsbyggingu sem er nauðsynleg fyrir hefðbundinn búrekstur og íbúðarhús sem styður beint við hann. Staðsetning byggingarreitanna er valin með tilliti til byggingarhæfs lands annars vegar og gæði ræktunarlands hins vegar. Með þessum staðsetningum er ekki verið að taka gott ræktunarland undir byggingar. Einnig er gætt að því að byggingarnar rísi í nálægð við núverandi innviði til að skerða sem minnst nýtingu á góðu ræktarlandi (L-1), í samræmi við ákvæði Aðalskipulags Skagafjarðar. Komi til frekari byggingaráforma verður óskað eftir heimild til að láta vinna deiliskipulag. Jafnframt segir í aðalskipulaginu: "Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi til byggingar á stökum byggingum sem tengjast starfsemi bújarðar án deiliskipulags, ef umfang og/eða aðstæður gefa tilefni til. Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif." Lögð verður áhersla á að áformuð uppbygging verði í samræmi við yfirbragð og ásýnd svæðisins og hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif. Áformin skerða ekki aðgengi að öðrum byggingum en kunna að hafa ásýndaráhrif af Siglufjarðarvegi (76).
    Óskað hefur verið eftir umsögn minjavarðar og Vegagerðarinnar. Fáist umsókn um byggingarreiti ekki samþykkt er sótt um stofnun 4872 m² byggingarreits fyrir fjárhús, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01, dags. 5. mars 2026 og umfjöllun hér að ofan og heimild til að láta vinna deiliskipulag á kostnað landeiganda sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Fyrirliggur umsögn eigenda nærliggjandi landeigna vegna byggingareits fyrir fjárhús án athugasemda. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fresta erindinu og felur skipulagsfulltrúa að óska eftir frekari gögnum frá umsækjanda."

    Fyrirliggja umsagnir frá Minjastofnun Íslands, MAST, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra og Umhverfis- og orkustofnunar án athugasemda.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun tveggja byggingarreita í landi Bjarnastaða.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Bjarnastaðir L146271 í Blönduhlíð - Umsókn um stofnun byggingarreita, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 99 Sigfríður Sigurjónsdóttir og Jón Sigurjónsson, f.h. Félagsbúsins Garðs ehf., þinglýsts eiganda jarðarinnar Garðs landnúmer 146375, óska eftir heimild til að stofna 484 m2 spildu úr landi jarðarinnar, sem Ásgarður, ásamt stofnun 400 m2 byggingarreits innan lóðarinnar, samkvæmt meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki nr. 71261010 útg. 19. maí 2026.
    Landheiti útskiptrar lóðar vísar í heiti upprunajarðar.
    Öll hlunnindi tilheyra áfram Garði Landnr. 146375.
    Um er að ræða byggingarreit fyrir Gestahús. Hámarksbyggingarmagn verður 50 m2 og hámarksbyggingarhæð verður 5 m frá gólfi í mæni, þak verður tvíhallandi.
    Landskipti og byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-4 í aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040 og styður við markmið aðalskipulags um uppbyggingu á landbúnaðarsvæðum, sbr. ákvæði í kafla 12, um að fjölga íbúum í dreifbýli og önnur markmið um landbúnað þar sem hann skerðir ekki nýtingu góðs ræktarlands til ræktunar og skerðir ekki sambúð landbúnaðar, ferðaþjónustu, frístundabyggðar og annarrar landnotkunar. Í 12.4 kafla í greinargerð aðalskipulags segir um almenn ákvæði um landnotkun á öllum landbúnaðarsvæðum:
    "Þar er gert ráð fyrir uppbyggingum í tengslum við landbúnaðarstarfsemina en einnig er heimilt að nýta byggingar, byggja stök mannvirki og/eða breyta eldri byggingum, til annarrar starfsemi ef slíkur rekstur styður við landbúnaðarstarfsemi eða búsetu á svæðinu." Hér er um að ræða staka byggingu sem styður við búsetu á svæðinu, núverandi innviðir nýtast áfram, stök bygging verður að hámarki 50m² og uppbygging er ekki líkleg til að hafa veruleg áhrif á mengun eða aðgengi. Jafnframt segir í sama kafla:
    "Skipulagsnefnd metur hverju sinni málsmeðferð uppbyggingaráforma m.t.t. skipulagslaga, með hliðsjón af ofangreindum ákvæðum og umfangi framkvæmda.
    Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi til byggingar á stökum byggingum sem tengjast starfsemi bújarðar án deiliskipulags, ef umfang og/eða aðstæður gefi tilefni til. Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif."
    Lögð verður áhersla á að áformuð uppbygging verði í samræmi við yfirbragð og ásýnd svæðisins og hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif. Áformin skerða ekki aðgengi að öðrum byggingum en kunna að hafa ásýndaráhrif af Hegranesvegi (764).
    Óskað hefur verið eftir umsögn minjavarðar og vegagerðar vegna vegtengingar við Garðsveg (7618).
    Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar spildu.
    Engin fasteign er á umræddri spildu.
    Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Garði, landnúmer 146375.
    Málsnúmer í landeignaskrá er M003854.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða umbeðið nafnleyfi og jafnframt samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja landskiptin og stofnun byggingarreits að fenginni jákvæðri umsögn minjavarðar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Garður L146375 - Umsókn um stofnun landspildu og byggingarreits, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 99 Erla Sigríður Halldórsdóttir og Jón Alexandersson lóðarhafar Hólavegar 14 á Sauðárkróki óska eftir breikkun á innkeyrslu sinni um 2 metra til austurs. Með erindinu fylgir mynd sem gerir grein fyrir umbeðinni stækkun. Búið að að breikka stæðið innan lóðarinnar en aðgengið frá götunni er takmarkað þar sem innkeyrslan er óbreytt uppvið götu.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða umbeðna stækkun á innkeyrslu lóðar Hólavegs 14 á Sauðárkróki. Framkvæmdina skal vinna í samráði við Veitu- og framkvæmdasvið Skagafjarðar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 99. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 50. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 99 Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 85 þann 19.05.2026. Bókun fundar Afgreiðsla 99. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 50. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2026 með níu atkvæðum.

6.Landbúnaðar- og innviðanefnd - 47

Málsnúmer 2605017FVakta málsnúmer

Fundargerð 47. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar frá 21. maí 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 50. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 47 Kynnt drög að uppfærðri samþykkt um fráveitu í Skagafirði nr. 1402 frá 12 des. 2023.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög og vísar til sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 50. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 47 Lagt fram erindi frá Soroptimistaklúbbi Skagafjarðar dags. 9. maí 2026 þar sem óskað er eftir hækkun á greiðslu vegna samstarfsverkefnis um Umhverfisviðurkenningar Skagafjarðar.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að framvegis verði greiðsla til verkefnisins 545.000 kr. á ári og gjaldfærist af lið 11890.
    Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 50. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 47 Ársreikningur Heiðadeildar Blöndu og Svartár fyrir árið 2025 lagður fram til kynningar.
    Jafnframt gerði sviðstjóri grein fyrir nýafstöðnum aðalfundi deildarinnar en á hann mættu fyrir hönd Skagafjarðar Hjörvar Halldórsson, Gunnar Valgarðsson, Þórunn Eyjólfsdóttir og Aron Pétursson sem situr áfram í stjórn félagsins fyrir hönd Skagafjarðar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 50. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 47 Ársskýrsla Náttúrufræðistofnunar 2025 lögð fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 50. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 47 Lögð fram til kynningar úttekt á ástandi hrossahaga 1997-2025 - Kolbeinsdalur og Silfrastaðaafrétt. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 50. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 47 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026 lagðar fram til kynningar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 50. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2026 með níu atkvæðum.

7.Ráðning sveitarstjóra

Málsnúmer 2605270Vakta málsnúmer

Magnús Barðdal Reynisson vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

Sveinn Þ. Finstar Úlfarsson, forseti sveitarstjórnar, kvaddi sér hljóðs og bar upp svohljóðandi tillögu:
"Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkir að ráða Magnús Barðdal Reynisson sem sveitarstjóra sveitarfélagsins kjörtímabilið 2026-2030 og samþykkir fyrirliggjandi ráðningarsamning. Magnús Barðdal tekur til starfa þann 15. júní 2026. Sveitarstjórn býður Magnús velkominn til starfa og þakkar Sigfúsi Inga Sigfússyni sem lætur af störfum sem sveitarstjóri 14. júní næstkomandi fyrir hans störf og óskar Sigfúsi velfarnaðar í þeim verkefnum sem hann tekur sér fyrir hendur."

Einar E. Einarsson kvaddi sér hljóðs og lagði fram bókun, svohljóðandi:
"Fulltrúar Framsóknarflokks og Miðflokks óska bókað að nýr meirihluti sveitastjórnar Skagafjarðar hefur alfarið staðið einn að ráðningu á nýjum sveitarstjóra og hefur það verið gert án auglýsingar eða nokkurrar aðkomu þeirra flokka sem nú skipa minnihluta sveitarstjórnar.
Æskilegast hefði verið að auglýsa eftir nýjum sveitarstjóra eins og t.d. Byggðalistinn var ítrekað búin að lýsa yfir fyrir kosningar að yrði gert, kæmist hann til valda.
Við óskum Magnúsi Barðdal Reynissyni velfarnaðar í starfi og vonumst til góðs samstarfs. Við minnum á að hlutverk sveitarstjóra er að vera sveitarstjóri Skagfirðinga allra.

Einar E. Einarsson
Hrund Pétursdóttir
Högni Elfar Gylfason"

Stutt hlé var gert á fundi.

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með fimm atkvæðum. Einar E. Einarsson, Hrund Pétursdóttir og Högni Elfar Gylfason sitja hjá við afgreiðslu málsins.

8.Siðareglur kjörinna fulltrúa 2026-2030

Málsnúmer 2605111Vakta málsnúmer

Siðarelgur kjörinna fulltrúa, sem samþykktar voru af sveitarstjórn Skagafjarðar þann 10. maí 2023, lagðar fram óbreyttar til samþykktar nýrrar sveitarstjórnar Skagafjarðar.

Siðareglurnar bornar upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykktar með níu atkvæðum.

9.Kjör fulltrúa í byggðarráð 2026

Málsnúmer 2605099Vakta málsnúmer

Kosning fulltrúa í byggðarráð til eins árs í senn. Þrír aðalmenn og þrír til vara. Forseti bar upp tillögu um fulltrúa í byggðarráð, aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.

Aðalmenn: Eyþór Fannar Sveinsson, Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir og Einar Eðvald Einarsson.
Varamenn: Jóhanna Ey Harðardóttir, Guðlaugur Skúlason og Hrund Pétursdóttir.

Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þau því rétt kjörin.

10.Kjör formanns og varaformanns byggðarráðs 2026

Málsnúmer 2605109Vakta málsnúmer

Kosning um formann og varaformann byggðarráðs til eins árs í senn. Forseti bar upp tillögu um Eyþór Fannar Sveinsson sem formann og Sólborgu Sigurrós Borgarsdóttur sem varaformann í byggðarráð. Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þau því rétt kjörin.

11.Tilnefning áheyrnarfulltrúa í byggðarráð 2026

Málsnúmer 2605105Vakta málsnúmer

Tilnefning áheyrnarfulltrúa í byggðarráð til eins árs í senn. Forseti bar fram tillögu um áheyrnarfulltrúa og einn til vara.

Áheyrnarfulltrúi: Högni Elfar Gylfason.
Varamaður áheyrnarfulltrúa: Jódís Helga Káradóttir.

Aðrar tilnefningar komu ekki fram og teljast þau því rétt kjörin.

12.Kjör fulltrúa í atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd 2026

Málsnúmer 2605100Vakta málsnúmer

Kjör í atvinnu- menningar- og kynningarnefnd til fjögurra ára, þrír aðalmenn og áheyrnarfulltrúi og jafnmargir til vara. Forseti bar upp tillögu um fulltrúa í atvinnu- menningar-og kynningarnefnd, aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.
Aðalmenn: Davíð Logi Jónsson, Guðbjörg Konráðsdóttir og Sylvía Sif Halldórsdóttir.
Varamenn: Elínborg Erla Ásgeirsdóttir, Anton Þorri Axelsson og Hrefna Jóhannesdóttir.
Áheyrnarfulltrúi: Hreiðar Örn Steinþórsson.
Varamaður áheyrnarfulltrúa: Jódís Helga Káradóttir.
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og teljast þau því rétt kjörin.

13.Kjör fulltrúa í félagsmála- og tómstundanefnd 2026

Málsnúmer 2605101Vakta málsnúmer

Kjör í félags- og tómstundanefnd til fjögurra ára, þrír aðalmenn og áheyrnarfulltrúi og jafnmargir til vara. Forseti bar upp tillögu um fulltrúa í félags- og tómstundanefnd, aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.
Aðalmenn: Jakob Logi Gunnarsson, Guðrún Sonja Birgisdóttir og Halldór Jón Sigurðsson.
Varamenn: Sandra Jónsdóttir, Bryndís Rut Haraldsdóttir og Sigurður Bjarni Rafnsson.
Áheyrnarfulltrúi: Sædís Bylgja Jónsdóttir.
Varamaður áheyrnarfulltrúa: Helga Rósa Pálsdóttir.
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þau því rétt kjörin.

14.Kjör fulltrúa í fræðslunefnd 2026

Málsnúmer 2605102Vakta málsnúmer

Kjör í fræðslunefnd til fjögurra ára, þrír aðalmenn og áheyrnarfulltrúi og jafnmargir til vara. Forseti bar upp tillögu um fulltrúa í fræðslunefnd, aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.
Aðalmenn: Jóhanna Ey Harðardóttir, Rósanna Valdimarsdóttir og Elfa Björk Víðisdóttir.
Varamenn: Harpa Katrín Halldórsdóttir, Sigrún Eva Helgadóttir og Karen Edda Kristjánsdóttir.
Áheyrnarfulltrúi: Sigurlína Erla Magnúsdóttir.
Varamaður áheyrnarfulltrúa: Hrund Pétursdóttir.
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þau því rétt kjörin.

15.Kjör fulltrúa í landbúnaðar- og innviðanefnd 2026

Málsnúmer 2605103Vakta málsnúmer

Kjör í landbúnaðar- og innviðanefnd til fjögurra ára, þrír aðalmenn og áheyrnarfulltrúi og jafnmargir til vara. Forseti bar upp tillögu um fulltrúa í landbúnaðar- og innviðanefnd, aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.
Aðalmenn: Guðlaugur Skúlason, Elínborg Erla Ásgeirsdóttir og Atli Már Traustason.
Varamenn: Jakob Logi Gunnarsson, Davíð Logi Jónsson og Einar Eðvald Einarsson.
Áheyrnarfulltrúi: Högni Elfar Gylfason.
Varamaður áheyrnarfulltrúa: Kristján Ingi Sigurðsson.
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þau því rétt kjörin.

16.Kjör fulltrúa í skipulagsnefnd 2026

Málsnúmer 2605104Vakta málsnúmer

Kjör í skipulagsnefnd til fjögurra ára, þrír aðalmenn og áheyrnarfulltrúi og jafnmargir til vara. Forseti bar upp tillögu um fulltrúa í skipulagsnefnd, aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.
Aðalmenn: Ingvar Daði Jóhannsson, Jón Daníel Jónsson og Jódís Helga Káradóttir.
Varamenn: Eyþór Fannar Sveinsson, Gunnar Smári Reynaldsson og Högni Elfar Gylfason.
Áheyrnarfulltrúi: Helga Þórsdóttir
Varamaður áheyrnarfulltrúa: Sigurður Bjarni Rafnsson.
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þau því rétt kjörin.

17.Kjör fulltrúa í almannavarnanefnd 2026

Málsnúmer 2605112Vakta málsnúmer

Kjör fulltrúa í almannavarnarnefnd til fjögurra ára, tveir aðalmenn og tveir til vara. Forseti bar upp tillögu um fulltrúa í almannavarnarnefnd, aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.
Aðalmenn: Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir og Einar Eðvald Einarsson.
Varamenn: Guðlaugur Skúlason og Hrund Pétursdóttir.
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þau því rétt kjörin.

18.Kjör fulltrúa á ársþing SSNV 2026

Málsnúmer 2605114Vakta málsnúmer

Kjör fulltrúa á ársþing SSNV til fjögurra ára. Forseti bar upp tillögu um fulltrúa á ársþing SSNV til fjögurra ára, aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.
Aðalmenn: Magnús Barðdal Reynisson, Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir, Rósanna Valdimarsdóttir, Jón Daníel Jónsson, Eyþór Fannar Sveinsson, Jóhanna Ey Harðardóttir, Sveinn Þ. Finster Úlfarsson, Elínborg Erla Ásgeirsdóttir, Einar Eðvald Einarsson, Sylvía Sif Halldórsdóttir, Högni Elfar Gylfason og Jódís Helga Káradóttir.

Varamenn: Guðbjörg Konráðsdóttir, Jóhann Daði Gíslason, Anton Þorri Axelsson, Grazyna Maria Garlak, Ingvar Daði Jóhannsson, Bryndís Rut Haraldsdóttir, Davíð Logi Jónsson, Guðrún Sonja Birgisdóttir, Helga Þórsdóttir, Sigurlína Erla Magnúsdóttir, Elfa Björk Víðisdóttir og Sædís Bylgja Jónsdóttir.

Aðrar tilnefningar komu ekki fram og teljast þau því rétt kjörin.

19.Kjör fulltrúa í Heilbrigðiseftirlit Nl. vestra 2026

Málsnúmer 2605116Vakta málsnúmer

Kjör fulltrúa í Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra til fjögurra ára, tveir aðalmenn og tveir til vara. Forseti bar upp tillögu um fulltrúa í Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra, aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.
Aðalmenn: Guðrún Sonja Birgisdóttir og Elfa Björk Víðisdóttir.
Varamenn: Merete Rabølle og Sædís Bylgja Jónsdóttir.
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þau því rétt kjörin.

20.Kjör í yfirkjörstjórn 2026

Málsnúmer 2605118Vakta málsnúmer

Kjör yfirkjörstjórnar Skagafjarðar, til fjögurra ára. Fram kom tillaga um eftirtalin:
Aðalmenn: Hjalti Árnason, Gunnar Sveinsson og Ásgrímur Sigurbjörnsson.
Varamenn: Aldís Hilmarsdóttir, Sunna Atladóttir og Magnús Helgason.
Aðrar tilnefningar komu ekki fram skoðast þessir aðilar því rétt kjörnir.

21.Kjör í kjördeild 1 á Sauðárkróki 2026

Málsnúmer 2605119Vakta málsnúmer

Kjör í kjördeild 1 á Sauðárkróki, til fjögurra ára. Fram kom tillaga um eftirtalin
Aðalmenn: Atli Víðir Hjartarson, Ásta Ólöf Jónsdóttir og Kristjana E. Jónsdóttir.
Varamenn: Brynja Ólafsdóttir, Steinn Leó Rögnvaldsson og Guðný Guðmundsdóttir.
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og teljast þau því rétt kjörin.

22.Kjör í kjördeild 2 í Varmahlíð 2026

Málsnúmer 2605120Vakta málsnúmer

Hrund Pétursdóttir og Elínborg Erla Ásgeirsdóttir véku af fundi við afgreiðslu þessa máls.

Kjör í kjördeild 2 í Varmahlíð, til fjögurra ára. Fram kom tillaga um eftirtalin
Aðalmenn: Valgerður Inga Kjartansdóttir, Vagn Þormar Stefánsson og Valdimar Óskar Sigmarsson
Varamenn: Sigríður Sigurðardóttir, Bjarni Bragason og Erna Reynisdóttir.
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og teljast þau því rétt kjörin.

23.Kjör í kjördeild 3 á Hofsósi 2026

Málsnúmer 2605121Vakta málsnúmer

Kjör í kjördeild 3 á Hofsósi, til fjögurra ára. Fram kom tillaga um eftirtalin
Aðalmenn: Ingibjörg Klara Helgadóttir, Sigmundur Jóhannesson og Alda Laufey Haraldsdóttir.
Varamenn: Vala Kristín Ófeigsdóttir, Eiríkur Arnarson og Sjöfn Guðmundsdóttir.
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og teljast þau því rétt kjörin.

24.Kjör fulltrúa í byggingarnefnd Sundlaugar Sauðárkróks 2026

Málsnúmer 2605145Vakta málsnúmer

Kjör fulltrúa í stjórn byggingarnefndar Sundlaugar Sauðárkróks til fjögurra ára, fjórir aðalmenn. Forseti bar upp tillögu um fulltrúa í byggingarnefnd Sundlaugar Sauðárkróks, aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.

Aðalmenn: Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir, Eyþór Fannar Sveinsson, Einar Eðvald Einarsson og Högni Elfar Gylfason.

Varamenn: Guðlaugur Skúlason, Jóhanna Ey Harðardóttir, Hrund Pétursdóttir og Jódís Helga Káradóttir.

Aðrar tilnefningar komu ekki fram og teljast þau því rétt kjörin.

25.Kjör fulltrúa í byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi 2026

Málsnúmer 2605146Vakta málsnúmer

Kjör fulltrúa í stjórn byggingarnefndar skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi til fjögurra ára, fjórir aðalmenn. Forseti bar upp tillögu um fulltrúa í byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi, aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.

Aðalmenn: Eyþór Fannar Sveinsson, Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir, Einar Eðvald Einarsson og Högni Elfar Gylfason.

Varamenn: Jóhanna Ey Harðardóttir, Guðlaugur Skúlason, Hrund Pétursdóttir og Jódís Helga Káradóttir.

Aðrar tilnefningar komu ekki fram og teljast þau því rétt kjörin.

26.Kjör fulltrúa í byggingarnefnd menningarhúss á Sauðárkróki 2026

Málsnúmer 2605147Vakta málsnúmer

Kjör fulltrúa í stjórn byggingarnefndar menningarhúss á Sauðárkróki til fjögurra ára, fjórir aðalmenn. Forseti bar upp tillögu um fulltrúa í byggingarnefnd menningarhúss á Sauðárkróki, aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.

Aðalmenn: Guðlaugur Skúlason, Eyþór Fannar Sveinsson, Einar Eðvald Einarsson og Högni Elfar Gylfason.

Varamenn: Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir, Jóhanna Ey Harðardóttir, Hrund Pétursdóttir og Jódís Helga Káradóttir.

Aðrar tilnefningar komu ekki fram og teljast þau því rétt kjörin.

27.Prókúruumboð - sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs 2026

Málsnúmer 2606019Vakta málsnúmer

Með vísan til 4. mgr. 55. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 heimilar sveitarstjórn sveitarstjóra að veita eftirtöldum starfsmanni sveitarfélagsins Skagafjarðar prókúruumboð: Baldri Hrafni Björnssyni, Skagfirðingabraut 35, 550 Sauðárkróki.
Sveitarstjórn samþykkir að framangreindum starfsmanni verði veitt prókúruumboð í samræmi við téð lagaákvæði. Umboðið nær til að undirrita skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og ábyrgðir svo og önnur skjöl sem fela í sér skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki byggðarráðs og/eða sveitarstjórnar þarf til. Umboðið gildir meðan viðkomandi gegnir tilteknu starfi fyrir sveitarfélagið þó ekki lengur en til loka núverandi kjörtímabils sveitarstjórnar. Jafnframt eru eldri umboð úr gildi fallin.

Forseti bar upp tillöguna sem er samþykkt með níu atkvæðum.

28.Prókúruumboð - fjármálastjóri 2026

Málsnúmer 2606020Vakta málsnúmer

Með vísan til 4. mgr. 55. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 heimilar sveitarstjórn sveitarstjóra að veita eftirtöldum starfsmanni sveitarfélagsins Skagafjarðar prókúruumboð: Friðrik Margeir Friðriksson, Dalatúni 15, 550 Sauðárkróki. Sveitarstjórn samþykkir að framangreindum starfsmanni verði veitt prókúruumboð í samræmi við téð lagaákvæði. Umboðið nær til að undirrita skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og ábyrgðir svo og önnur skjöl sem fela í sér skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki byggðarráðs og/eða sveitarstjórnar þarf til. Umboðið gildir meðan viðkomandi gegnir starfi fjármálastjóra fyrir sveitarfélagið þó ekki lengur en til loka núverandi kjörtímabils sveitarstjórnar. Jafnframt eru eldri umboð úr gildi fallin.

Forseti bar upp tillöguna sem er samþykkt með níu atkvæðum.

29.Laufblaðið, Sauðárkróki, íbúðarbyggð og opið svæði - Deiliskipulag

Málsnúmer 2511191Vakta málsnúmer

Vísað frá 99. fundi skipulagsnefndar frá 28. mái sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Lögð fram deiliskipulagstillaga á vinnslustigi fyrir Laufblaðið - íbúðabyggð á Sauðárkróki, dags. 21.05.2026, verknúmer 56291510, uppdrættir nr. DS01 og DS02 unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu.
Á uppdráttunum er sýnd núverandi byggð og tillaga að hámarksnýtingarhlutfalli fyrir hverja lóð fyrir sig, sett upp í skýringartöflu til að hægt sé að glöggva sig á hversu marga fermetra til viðbótar væri mögulegt að byggja á hverri lóð.
Hugmyndavinna Hildar Hartmannsdóttur er sýnd fyrir óbyggilegt opið svæði sem liggur milli Gilstúns og Brekkutúns til suðurs, þar sem megin þemun eru sýnd ásamt skýringarmyndum fyrir:
- Akurinn, matjurta- og blómaræktun
- Votengi, ofanvatnsrásir og söfunarlautir fyrir ofanvatn
- Fjörsalir, leik- æfinga og upplifunarrými fyrir allan aldur
- Hólavellir, sléttur grasflötur umlukinn gróðri

Gert er ráð fyrir bílastæði útfrá Sæmundarhlíðinni til að auka ekki umferð bíla inn götur Túnahverfisins inn að opna svæðinu.
Einnig er settur upp svokallaður hreyfiás í gegnum miðju skipulagssvæðisins (sem liggur vestur - austur) sem er ætlaður sem grænn tengiás um hverfið endilangt og skapa þannig grundvöll fyrir örugga tengingu um svæðið fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.
Tillagan stillir upp möguleika á nýjum parhúsum á svæðinu, Gilstúni 21-23, Eyrartúni 11-13, 14-16 og 15-17.
Skipulagsfulltrúi leggur til að samhliða auglýsingu vinnslutillögu deiliskipulagsins verði teknar prufuholur á umræddum lóðum að fengnu framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar Skagafjarðar til að hægt sé að taka upplýstar ákvaðanir varðandi þær lóðir í kjölfarið.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagsvinnslutillöguna fyrir "Laufblaðið, Sauðárkróki, íbúðarbyggð og opið svæði" í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Jafnframt samþykkir skipulagsnefnd samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi fyrir prufuholum á deiliskipulagssvæðinu.

Sigurður H. Ingvarsson vék af fundi undir þessum lið.
Gestir: Björn Magnús Árnason"

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að auglýsa deiliskipulagsvinnslutillöguna fyrir "Laufblaðið, Sauðárkróki, íbúðarbyggð og opið svæði" í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn með níu atkvæðum að veita umbeðið framkvæmdaleyfi fyrir prufuholum á deiliskipulagssvæðinu.

30.Miðsvæði milli Skólagötu og Túngötu, Hofsósi - Óveruleg breyting á deiliskipulagi

Málsnúmer 2605264Vakta málsnúmer

Vísað frá 99. fundi skipulagsnefndar frá 28. mái sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir fyrir hönd Rarik sækir um óverulega breytingu á deiliskipulaginu Miðsvæði milli Skólagötu og Túngötu á Hofsósi fyrir lóð þeirra Túngötu 1a, sem ætluð er fyrir spennistöð.
Í ljós hefur komið að breyta þarf lögun lóðarinnar og minnkar hún þar með úr 28 m2 í 20 m2, byggingarreitur helst óbreyttur.
Breytingin hefur óveruleg áhrif á hagsmuni annarra aðila en sveitarfélagsins og umsækjanda.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir Miðsvæði milli Skólagötu og Túngötu á Hofsósi skv. 2.mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, ekki er talin þörf á grenndarkynningu þar sem breytingin hefur óveruleg áhrif á hagsmuni annarra aðila en sveitarfélagsins og umsækjanda. Einnig að í framhaldinu verði gerð uppfærð merkjalýsing og lóðarblöð á kostnað umsækjanda."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir Miðsvæði milli Skólagötu og Túngötu á Hofsósi skv. 2.mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, ekki er talin þörf á grenndarkynningu þar sem breytingin hefur óveruleg áhrif á hagsmuni annarra aðila en sveitarfélagsins og umsækjanda.

31.Umsókn um stofnun þjóðlendu - Austurhluti Hofsafréttar

Málsnúmer 2603178Vakta málsnúmer

Vísað frá 99. fundi skipulagsnefndar frá 28. mái sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Lögð fram umsókn Regínu Sigurðardóttur fyrir hönd forsætisráðuneytisins dags. 17.03.2026 um stofnun þjóðlendu, Austurhluti Hofsafréttar í Skagafirði.
Umsókn um stofnun fasteignar (þjóðlendu), sbr. 14. gr. laga um skráningu, merki og mat fasteigna, nr. 6/2001, með síðari breytingum.
Landsvæði sem hér óskast stofnað er þjóðlenda skv. úrskurði óbyggðanefndar í máli nr. 4/2008, og dómum Héraðsdóms Norðurlands vestra í málum nr. E-23/2010, nr.E-35/2011, og Hrd.199/2011. Um hana fer eftir ákvæðum laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, nr. 58/1998, með síðari breytingum.

Landsvæði það sem afmarkað er hér á eftir, þ.e. Austurhluti Hofsafréttar er þjóðlenda og afréttareign Gilja, Bjarnastaðahlíðar, Litlu-Hlíðar Bústaða, Tunguháls I og II, og fjallskilasjóðs Hofsafréttar. Skráð stærð: 262,88 km².
Fyrirvari er um nákvæmni hnitpunkta í hnitaskrá þar sem skekkjumörk geta verið allt að 500 m, hnitakerfi er ÍSN93. Kortagrunnur er byggður á stafrænum gögnum Náttúrufræðistofnunnar og Veðurstofunnar.
Línur sem liggja samsíða hafa sömu staðsetningu. Afmörkun svæðisins er svohljóðandi sbr. úrskurð óbyggðanefndar í máli nr. 4/2008 og einnig meðf. kort.
Frá þeim stað þar sem Keldudalsá fellur í Austari-Jökulsá (1) er Keldudalsá fylgt í botn Keldudals (2). Þaðan er línan dregin til vesturs á austurenda Stafnsvatnahæðar (3) og þaðan til suðausturs á Neðri-Bakka við Runukvísl og áfram sömu stefnu í Runukvísl (4). Þaðan er Runukvísl fylgt að þeim stað þar sem Bleikálukvísl rennur í hana (5). Frá ármótum Runukvíslar og Bleikálukvíslar er Bleikálukvísl fylgt að upptökum hennar (6) í Hofsjökli. Frá upptökum Bleikálukvíslar er jaðri Hofsjökuls fylgt til austurs að upptökum Austari Jökulsár (7) sem síðan er fylgt (7a-d) að þeim stað þar sem Keldudalsá fellur í hana (1).
Landsvæði þetta er þjóðlenda og um slík landsvæði fer eftir ákvæðum laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afréttar, nr. 58/1998, með síðari breytingum.
Að því leyti sem fylgt er jökuljaðri er miðað við stöðu jökuls eins og hann var við gildistöku þjóðlendulaga 1. júlí 1998.
Landeigandi: Íslenska ríkið, skv. 2. gr. laga nr. 58/1998.
Fyrirsvarsmaður: Forsætisráðherra skv. d-lið, 5. tölul. 1. gr. forsetaúrskurðar nr. 5/2025 um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði íslands.

Fylgiskjöl: Útdráttur úr úrskurði óbyggðanefndar í máli nr. 4/2008, dags. 19.06.2009.
Dómur Héraðsdóms Norðurlands vestra í máli nr. E-23/2010, 4. mars 2011.
Dómur Hæstaréttar í máli nr. 199/2011, 11. apríl 2011.
Dómur Héraðsdóms Norðurlands vestra í máli nr. E-35/2011, 28. nóv. 2012.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðna stofnun þjóðlendu, Austurhluti Hofsafréttar í Skagafirði."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum umbeðna stofnun þjóðlendu, Austurhluti Hofsafréttar í Skagafirði.

32.Bjarnastaðir L146271 í Blönduhlíð - Umsókn um stofnun byggingarreita

Málsnúmer 2603089Vakta málsnúmer

Vísað frá 99. fundi skipulagsnefndar frá 28. mái sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Málið áður á dagskrá á 93. fundi skipulagsnefndar þann 12.03.2026 og þá bókað:
"Guttormur Hrafn Stefánsson, þinglýstur eigandi jarðarinnar Bjarnastaðir, landnr. 146271, óskar eftir heimild til að stofna tvo byggingarreiti, annarsvegar 4872 m² byggingarreit fyrir fjárhús og hins vegar 5158 m² byggingarreit fyrir íbúðarhús, á landi jarðarinnar, skv. meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 74670001 dags. 5 mars 2026. Afstöðuppdráttur var unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Dagnýju Stefánsdóttur og Birni Magnúsi Árnasyni. Engar byggingar eru á jörðinni eins og fram kemur í fasteignaskrá. Um er að ræða byggingarreit fyrir nýtt einbýlishús sem verður að hámarki 250 m² að stærð og að hámarki 6 m að hæð, og byggingarreit fyrir nýtt fjárhús sem verður að hámarki 1500 m² að stærð og að hámarki 8 m að hæð. Byggingarreitirnir, sem sótt er um, eru á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-1 skv. aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040. Áformin eru í fullu samræmi við stefnu aðalskipulagsins um eflingu landbúnaðar og búsetu, en í kafla 3.7 um almenn ákvæði landnotkunar á landbúnaðarsvæðum segir: "Á landbúnaðarsvæðum er gert ráð fyrir uppbyggingu í tengslum við landbúnaðarstarfsemina en einnig er heimilt að nýta byggingar, byggja stök mannvirki og/eða breyta eldri byggingum, til annarrar starfsemi ef slíkur rekstur styður við landbúnaðarstarfsemi eða búsetu á svæðinu." Byggingar sem hér er sótt um byggingarreiti fyrir eru forsendur þess að koma upp búskap á jörðinni. Hér er um að ræða fjárhúsbyggingu sem er nauðsynleg fyrir hefðbundinn búrekstur og íbúðarhús sem styður beint við hann. Staðsetning byggingarreitanna er valin með tilliti til byggingarhæfs lands annars vegar og gæði ræktunarlands hins vegar. Með þessum staðsetningum er ekki verið að taka gott ræktunarland undir byggingar. Einnig er gætt að því að byggingarnar rísi í nálægð við núverandi innviði til að skerða sem minnst nýtingu á góðu ræktarlandi (L-1), í samræmi við ákvæði Aðalskipulags Skagafjarðar. Komi til frekari byggingaráforma verður óskað eftir heimild til að láta vinna deiliskipulag. Jafnframt segir í aðalskipulaginu: "Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi til byggingar á stökum byggingum sem tengjast starfsemi bújarðar án deiliskipulags, ef umfang og/eða aðstæður gefa tilefni til. Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif." Lögð verður áhersla á að áformuð uppbygging verði í samræmi við yfirbragð og ásýnd svæðisins og hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif. Áformin skerða ekki aðgengi að öðrum byggingum en kunna að hafa ásýndaráhrif af Siglufjarðarvegi (76).
Óskað hefur verið eftir umsögn minjavarðar og Vegagerðarinnar. Fáist umsókn um byggingarreiti ekki samþykkt er sótt um stofnun 4872 m² byggingarreits fyrir fjárhús, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01, dags. 5. mars 2026 og umfjöllun hér að ofan og heimild til að láta vinna deiliskipulag á kostnað landeiganda sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fyrirliggur umsögn eigenda nærliggjandi landeigna vegna byggingareits fyrir fjárhús án athugasemda. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fresta erindinu og felur skipulagsfulltrúa að óska eftir frekari gögnum frá umsækjanda."

Fyrirliggja umsagnir frá Minjastofnun Íslands, MAST, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra og Umhverfis- og orkustofnunar án athugasemda.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun tveggja byggingarreita í landi Bjarnastaða."

Stutt hlé var gert á fundi.

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum stofnun tveggja byggingarreita í landi Bjarnastaða.

33.Garður L146375 - Umsókn um stofnun landspildu og byggingarreits

Málsnúmer 2605236Vakta málsnúmer

Vísað frá 99. fundi skipulagsnefndar frá 28. mái sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Sigfríður Sigurjónsdóttir og Jón Sigurjónsson, f.h. Félagsbúsins Garðs ehf., þinglýsts eiganda jarðarinnar Garðs landnúmer 146375, óska eftir heimild til að stofna 484 m2 spildu úr landi jarðarinnar, sem Ásgarður, ásamt stofnun 400 m2 byggingarreits innan lóðarinnar, samkvæmt meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki nr. 71261010 útg. 19. maí 2026.
Landheiti útskiptrar lóðar vísar í heiti upprunajarðar.
Öll hlunnindi tilheyra áfram Garði Landnr. 146375.
Um er að ræða byggingarreit fyrir Gestahús. Hámarksbyggingarmagn verður 50 m2 og hámarksbyggingarhæð verður 5 m frá gólfi í mæni, þak verður tvíhallandi.
Landskipti og byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-4 í aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040 og styður við markmið aðalskipulags um uppbyggingu á landbúnaðarsvæðum, sbr. ákvæði í kafla 12, um að fjölga íbúum í dreifbýli og önnur markmið um landbúnað þar sem hann skerðir ekki nýtingu góðs ræktarlands til ræktunar og skerðir ekki sambúð landbúnaðar, ferðaþjónustu, frístundabyggðar og annarrar landnotkunar. Í 12.4 kafla í greinargerð aðalskipulags segir um almenn ákvæði um landnotkun á öllum landbúnaðarsvæðum:
"Þar er gert ráð fyrir uppbyggingum í tengslum við landbúnaðarstarfsemina en einnig er heimilt að nýta byggingar, byggja stök mannvirki og/eða breyta eldri byggingum, til annarrar starfsemi ef slíkur rekstur styður við landbúnaðarstarfsemi eða búsetu á svæðinu." Hér er um að ræða staka byggingu sem styður við búsetu á svæðinu, núverandi innviðir nýtast áfram, stök bygging verður að hámarki 50m² og uppbygging er ekki líkleg til að hafa veruleg áhrif á mengun eða aðgengi. Jafnframt segir í sama kafla:
"Skipulagsnefnd metur hverju sinni málsmeðferð uppbyggingaráforma m.t.t. skipulagslaga, með hliðsjón af ofangreindum ákvæðum og umfangi framkvæmda.
Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi til byggingar á stökum byggingum sem tengjast starfsemi bújarðar án deiliskipulags, ef umfang og/eða aðstæður gefi tilefni til. Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif."
Lögð verður áhersla á að áformuð uppbygging verði í samræmi við yfirbragð og ásýnd svæðisins og hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif. Áformin skerða ekki aðgengi að öðrum byggingum en kunna að hafa ásýndaráhrif af Hegranesvegi (764).
Óskað hefur verið eftir umsögn minjavarðar og vegagerðar vegna vegtengingar við Garðsveg (7618).
Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar spildu.
Engin fasteign er á umræddri spildu.
Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Garði, landnúmer 146375.
Málsnúmer í landeignaskrá er M003854.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða umbeðið nafnleyfi og jafnframt samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja landskiptin og stofnun byggingarreits að fenginni jákvæðri umsögn minjavarðar."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum landskiptin og stofnun byggingarreits að fenginni jákvæðri umsögn minjavarðar.

Fundi slitið - kl. 17:14.