Sigfríður Sigurjónsdóttir og Jón Sigurjónsson, f.h. Félagsbúsins Garðs ehf., þinglýsts eiganda jarðarinnar Garðs landnúmer 146375, óska eftir heimild til að stofna 484 m2 spildu úr landi jarðarinnar, sem Ásgarður, ásamt stofnun 400 m2 byggingarreits innan lóðarinnar, samkvæmt meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki nr. 71261010 útg. 19. maí 2026.
Landheiti útskiptrar lóðar vísar í heiti upprunajarðar.
Öll hlunnindi tilheyra áfram Garði Landnr. 146375.
Um er að ræða byggingarreit fyrir Gestahús. Hámarksbyggingarmagn verður 50 m2 og hámarksbyggingarhæð verður 5 m frá gólfi í mæni, þak verður tvíhallandi.
Landskipti og byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-4 í aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040 og styður við markmið aðalskipulags um uppbyggingu á landbúnaðarsvæðum, sbr. ákvæði í kafla 12, um að fjölga íbúum í dreifbýli og önnur markmið um landbúnað þar sem hann skerðir ekki nýtingu góðs ræktarlands til ræktunar og skerðir ekki sambúð landbúnaðar, ferðaþjónustu, frístundabyggðar og annarrar landnotkunar. Í 12.4 kafla í greinargerð aðalskipulags segir um almenn ákvæði um landnotkun á öllum landbúnaðarsvæðum:
"Þar er gert ráð fyrir uppbyggingum í tengslum við landbúnaðarstarfsemina en einnig er heimilt að nýta byggingar, byggja stök mannvirki og/eða breyta eldri byggingum, til annarrar starfsemi ef slíkur rekstur styður við landbúnaðarstarfsemi eða búsetu á svæðinu." Hér er um að ræða staka byggingu sem styður við búsetu á svæðinu, núverandi innviðir nýtast áfram, stök bygging verður að hámarki 50m² og uppbygging er ekki líkleg til að hafa veruleg áhrif á mengun eða aðgengi. Jafnframt segir í sama kafla:
"Skipulagsnefnd metur hverju sinni málsmeðferð uppbyggingaráforma m.t.t. skipulagslaga, með hliðsjón af ofangreindum ákvæðum og umfangi framkvæmda.
Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi til byggingar á stökum byggingum sem tengjast starfsemi bújarðar án deiliskipulags, ef umfang og/eða aðstæður gefi tilefni til. Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif."
Lögð verður áhersla á að áformuð uppbygging verði í samræmi við yfirbragð og ásýnd svæðisins og hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif. Áformin skerða ekki aðgengi að öðrum byggingum en kunna að hafa ásýndaráhrif af Hegranesvegi (764).
Óskað hefur verið eftir umsögn minjavarðar og vegagerðar vegna vegtengingar við Garðsveg (7618).
Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar spildu.
Engin fasteign er á umræddri spildu.
Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Garði, landnúmer 146375.
Málsnúmer í landeignaskrá er M003854.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða umbeðið nafnleyfi og jafnframt samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja landskiptin og stofnun byggingarreits að fenginni jákvæðri umsögn minjavarðar.