Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar - 196

Málsnúmer 2605020F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 50. fundur - 03.06.2026

Fundargerð 196. fundar byggðarráðs frá 27. maí 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 50. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti kynnti fundargerð. Guðlaugur Skúlason og Sigfús Ingi Sigfússon kvöddu sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 196 Svavar Atli Birgisson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Skagafjarðar sat fundinn undir þessum lið.

    Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

    Málið var áður á dagskrá 163. fundi byggðarráðs þann 24. september 2025. Þann 14. maí 2025 réðst HMS í úttekt á starfsemi Brunavarna Skagafjarðar. Gerðar voru athugasemdir við 2 atriði af þeim 32 sem voru til skoðunar og snéru bæði atriðin að húsakosti Brunavarna Skagafjarðar. Síðan þá hefur verið unnin greining og forvinna sem miðar að því að meta nauðsynlegar úrbætur á húsnæði Brunavarna Skagafjarðar ásamt aðkomu að svæðinu og skipulagi þess.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra í samvinnu við slökkviliðsstjóra að svara erindinu og vísar hönnunarvinnunni til fjárhagsáætlunargerðar.
    Bókun fundar Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

    Afgreiðsla 196. fundar byggðarráðs var staðfest á 50. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2026 með átta atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 196 Lögð voru fram drög að tveimur lóðarleigusamningum milli Skagafjarðar og Orku Náttúrunnar.

    Annars vegar er um að ræða Túngötu 1 á Hofsósi. Lóðin hefur landnúmerið L241013 og fasteignanúmerið F2542585. Staðfang lóðar er "Túngata 1".

    Hins vegar er um að ræða lóðarleigusamning á Flæðum á Sauðárkróki. Lóðin hefur landnúmerið L239828 og fasteignanúmerið F2539232. Staðfang lóðar er "Flæðar Hleðslustöð".

    Ársleiga er 4% af fasteignamati lóðar og fyrsti gjalddagi 1. júní 2026.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlögð drög að lóðarleigusamningum, dags. 28. maí 2026 og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Byggðarráð felur sveitarstjóra að undirrita samningana fyrir hönd Skagafjarðar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 196. fundar byggðarráðs var staðfest á 50. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 196 Lagður fram tölvupóstur frá Einari E. Einarssyni, dagsettur 23. maí sl. Í tölvupóstinum fer Einar þess á leit að eftirfarandi tillaga verði tekin á dagskrá byggðarráðs. Tillagan er svohljóðandi:

    "Tillaga: Undirritaður leggur til að endurskoðandi sveitarfélagsins framkvæmi milliuppgjör pr. 30.06 2026, fyrir sveitarfélagið og stofnanir þess. Í uppgjörinu komi fram rekstrarniðurstaða í samanburði við fjárhagsáætlun, uppreiknaðar eignir, skuldir og skuldbindingar og helstu lykiltölur sambærilegar þeim sem birtast í ársreikningi hverju sinni. Leggja skal niðurstöðuna fyrir byggðarráð eigi síðar en í lok september 2026.

    Greinargerð:
    Rekstur og fjárhagsstaða sveitarfélagsins Skagafjarðar var mjög góð í lok árs 2025, skuldir hlutfallslega litlar og veltufé frá rekstri í sögulegu hámarki, svo eitthvað sé nefnt. Frá áramótum hefur hins vegar mjög margt verið gert og samþykkt sem hefur haft mikil áhrif á rekstrar- og efnahagsreikning sveitarfélagsins. Vegur þar þyngst sala á 52 íbúðum sveitarfélagsins til Leigufélagsins Bríetar ehf. Við þessa sölu urðu miklar tilfærslur á eignum sveitarfélagsins ásamt mjög jákvæðum áhrifum af þeirri uppgreiðslu áhvílandi skulda sem urðu vegna sölunnar, ásamt því sem sveitarfélagið eignaðist hlut í Leigufélaginu Bríeti ehf. Einnig hefur verið undirritaður samningur við ríkisvaldið um yfirtöku á afmörkuðu landi undir þéttbýlinu á Hólum í Hjaltadal, með eignatilfærslu og peningagreiðslu til sveitarfélagsins vegna fyrirsjáanlegs kostnaðar við fráveitu staðarins. Ljóst er að áhrif þessara tveggja samninga hafa mikil á fjárhag sveitarfélagsins, ásamt áhrifum á skulda- og eignastöðu þess.

    Frá og með 1. júní 2026 tekur ný sveitarstjórn við rekstri sveitarfélagsins og því er mikilvægt að fyrir liggi staðfest uppgjör á rekstri og stöðu sveitarfélagsins fyrir fyrri helming ársins þannig að rekstrar- og fjárhagsstaða sveitarfélagsins við skiptin séu öllum ljós. Benda má á að sambærileg milliuppgjör hafa áður verið framkvæmd við breytingar á meirihlutum í sveitarstjórn Skagafjarðar.

    Fyrir hönd Framsóknarfélags Skagafjarðar
    Einar E. Einarsson"

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að verða við beiðninni og felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs framkvæmd milliuppgjörsins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 196. fundar byggðarráðs var staðfest á 50. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2026 með níu atkvæðum.
  • .4 2604115 17. júní 2026
    Byggðarráð Skagafjarðar - 196 Deildarstjóri þróunar, miðlun og menningar óskar eftir heimild til að loka eftirtöldum gatnamótum á meðan skrúðganga vegna þjóðhátíðardags þann 17. júní n.k. á sér stað:

    Gatnamót Skagfirðingabrautar/Skólastígs.
    Gatnamót Skagfirðingabrautar/Ránarstígs.
    Gatnamót Skagfirðingabrautar/Bárustígs.
    Gatnamót Skagfirðingabrautar/Öldustígs.
    Gatnamót Skagfirðingabrautar/Hegrabrautar/Sæmundarhlíðar rétt á meðan gangan fer inn í portið.
    Gatnamót Sæmundarhlíðar og Spítalastígs

    Sveitarfélagið mun koma upp lokunarpóstum í samvinnu við verkefnastjóra menningar-, ferðamála- og viðburðaverkefna. Tryggt verður að aðgengi sjúkrabíla og löggæsluaðila verði gott þrátt fyrir lokanir.

    Byggðarráð samþykkir erindið samhljóða fyrir sitt leyti og að uppfylltum öðrum tilskyldum leyfum, ásamt því að hjáleiðir verði vel merktar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 196. fundar byggðarráðs var staðfest á 50. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 196 Lögð voru fram drög að viljayfirlýsingu milli mennta- og barnamálaráðuneytisins annars vegar og sveitarfélagsins Skagafjarðar og Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra hins vegar.

    Í viljayfirlýsingunni lýsa aðilar yfir áformum sínum um að sveitarfélagið Skagafjörður haldi utan um framkvæmdina um stækkun verknámsaðstöðu FNV. Stefnt er að því að hefja framkvæmdir við nýja verknámsbyggingu næsta vetur.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlögð drög að viljayfirlýsingu með fyrirvara um staðfestingu sveitarstjórnar. Sveitarstjóra falið að undirrita viljayfirlýsinguna fyrir hönd Skagafjarðar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 196. fundar byggðarráðs var staðfest á 50. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2026 með níu atkvæðum.

    Guðlaugur Skúlason gerði það að tillögu sinni að neðangreind bókun verði bókun sveitarstjórnar. Það var samþykkt samhljóða og er bókun svohljóðandi:
    "Sveitarstjórn Skagafjarðar fagnar undirritun viljayfirlýsingar mennta- og barnamálaráðuneytisins, Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra um uppbyggingu og stækkun verknámsaðstöðu skólans. Samkvæmt viljayfirlýsingunni verður verknámshúsið reist í tveimur áföngum og er áætlað að framkvæmdir við fyrri áfanga hefjist næsta vetur.
    Uppbyggingin er brýn enda hefur eftirspurn eftir iðn- og starfsnámi við FNV aukist verulega undanfarin ár og núverandi aðstaða hamlar framþróun námsins. Hluti kennslu hefur þurft að fara fram í bráðabirgðaúrræðum og ljóst er að bætt aðstaða mun skipta miklu máli fyrir nemendur, starfsfólk, atvinnulíf og samfélagið á Norðurlandi vestra.
    Sveitarstjórn fagnar því sérstaklega að Skagafjörður muni hafa umsjón með framkvæmdum á grundvelli frumathugunar Framkvæmdasýslu ríkisins og hugmyndum verkfræðistofunnar Stoðar ehf. Þá liggur fyrir að ríkissjóður greiði 60% kostnaðar við framkvæmdina og sveitarfélögin á Norðurlandi vestra 40%.
    Sveitarstjórn hefur áður beint áskorun til mennta- og barnamálaráðherra um að fylgja eftir áformum um stækkun verknámshússins. Það er því mikið ánægjuefni að skýr vilji liggi nú fyrir um framgang þessa mikilvæga verkefnis.
    Sveitarstjórn Skagafjarðar leggur jafnframt áherslu á að viljayfirlýsingunni verði fylgt eftir af festu þannig að framkvæmdir geti hafist næsta vetur eins og áform gera ráð fyrir. Sveitarstjórn hvetur ráðuneytið og hlutaðeigandi aðila til að vinna markvisst að því að gengið verði frá samningum svo tryggja megi framgang verkefnisins án tafar.
    Verkefnið er mikilvægt skref í eflingu iðn- og starfsnáms á landsbyggðinni og mun styrkja menntun, atvinnulíf og samfélag á Norðurlandi vestra til framtíðar."
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 196 Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 79/2026, "Drög að frumvarpi um breytingar á lögum um Byggðastofnun". Umsagnarfrestur er til og með 30.06. 2026.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða eftirfarandi umsögn:

    Byggðastofnun gegnir lykilhlutverki gagnvart hinum dreifðu byggðum, en hlutverk hennar er skýrt skilgreint í lögum nr. 106/1999 „að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu.“ Jafnframt segir í reglugerð fyrir Byggðastofnun nr. 347/2000: „Til að stuðla að vexti, nýsköpun og umbreytingu í atvinnulífi veitir stofnunin m.a. lán og ráðgjöf, fjármagnar og skipuleggur verkefni og stuðlar að öflugri atvinnuráðgjöf.“

    Mikilvægi Byggðastofnunar gagnvart þróun byggðar á Íslandi er því augljóst enda er hún ein mikilvægasta stofnun ríkisins til að halda utan um og hafa áhrif á þróun byggðar í landinu.

    Byggðarráð Skagafjarðar gerir ekki athugasemd við þær hugtakabreytingar sem verið er að laga eða samræma með þessum drögum að lagabreytingum. Aftur á móti vill byggðarráð benda á mikilvægi stofnunarinnar sem lánastofnunnar fyrir dreifðari byggðir þannig að þær hafi möguleika á lánsfjármögnun til verkefna á sambærilegum kjörum og önnur svæði búa við, þ.e.a.s. svæði þar sem starfandi bankastofnanir eru í dag tilbúnar að lána einstaklingum eða fyrirtækjum til fjárfestinga, út frá eigin mati á stöðu svæðanna eða fyrirtækja.

    Almennt sagt um lánakjör Byggðastofnunar þá eru þau í besta falli samkeppnishæf við bankakerfið, en ljóst er að bankarnir eru að bjóða einstaklingum og fyrirtækjum hagstæðari lán en Byggðastofnun gerir þegar þeir hafa trú á viðkomandi fyrirtæki eða svæði, út frá t.d. þróun á íbúafjölda eða hagvexti svæðisins.

    Byggðarráð telur því mikilvægt að stjórn stofnunarinnar geti með auknum sveigjanleika í lögum um starfsemi stofnunarinnar ákveðið að veita sérstaklega hagstæð lán, helst vaxtalaus, inn á viðkvæmustu byggðasvæðin á Íslandi, enda séu þau skilgreind með hliðsjón af þróun íbúafjölda, hagvexti og stöðu samkvæmt greiningum og samanburði svæða. Með þessu móti myndi opnast nýr og hagkvæmur lánamöguleiki fyrir einstaklinga og fyrirtæki að fjárfesta í atvinnuskapandi tækifærum á veikustu byggðasvæðum landsins og þannig stuðla að atvinnuuppbyggingu og fjölgun íbúa þessara svæða.

    Eigandi Byggðastofnunar, íslenska ríkið, á ekki að vera hrætt við að nota þessa stofnun sem alvöru verkfæri í fjármögnun atvinnu- og nýsköpunar á veikustu svæðunum samkvæmt skilgreiningum og þannig stuðla að uppgangi þeirra og vexti. Byggðastofnun er ekki og á ekki að vera venjuleg bankastofnun í eigu ríkisins með það eitt að markmiði að keppa við hina viðskiptabankana. Stofnuninni er í dag gert að reka sig að stórum hluta fyrir vaxtatekjur af lánasafninu. Eðlilegra væri að lánastarfsemi sé fjármögnuð með vaxtatekjum af lánasafninu, en önnur svið stofnunarinnar væru rekin fyrir framlag frá ríkinu. Þannig gæti ávinningur af vaxtatekjum lána á hagkvæmari svæðum niðurgreitt lán til veikari svæða með það að markmiði að jafna af alvöru búsetukjörin í landinu og efla byggð um land allt.
    Bókun fundar Hrund Pétursdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

    Afgreiðsla 196. fundar byggðarráðs var staðfest á 50. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2026 með átta atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 196 Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 88/2026, "Sviðslistastefna 2026-2030". Umsagnarfrestur er til og með 01.07. 2026.

    Byggðarráð Skagafjarðar fagnar drögum að nýrri sviðslistastefnu 2026-2030. Eðlilega er mikil áhersla á að tryggja stöðugleika í rekstri lykilstofnana þjóðarinnar í þessum efnum, þ.e. Þjóðleikhúsi, Íslenska dansflokksins og Óperunnar. Einnig má nefna að menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið styður myndarlega við öflugt menningarstarf á Akureyri með menningarsamningi við bæinn. Jákvætt er að leitast eigi við að tryggja jafnt aðgengi barna og ungmenna að sviðslistanámi óháð búsetu, kortleggja eigi innviði og aðstöðu - sérstaklega á landsbyggðinni, og að efla eigi dreifingu um landið með ferðasjóði og rannsóknum á hvaða hópar nýta sér sviðslistir.

    Byggðarráð bendir jafnframt á að víða á landsbyggðinni eru starfandi öflug leikfélög sem setja upp nokkur leikverk á ári hverju. Má þar nefna Leikfélag Sauðárkróks. Það myndi stuðla að bættu aðgengi að öflugum sviðslistum ef fjármagni yrði varið til styrktar þessum leikfélögum, í stað þess að stofna eingöngu ferðasjóð til að styðja við ferðir sviðslistahópa af höfuðborgarsvæðinu út á landsbyggðirnar. Sá styrkur, eins og hann er tilgreindur í drögum að sviðslistastefnu, er jafnframt af svo skornum skammti að hann mun ekki skipta sköpum í auknu framboði sviðslista um landið. Með öflugum stuðningi við leikfélög landsins er stuðlað að enn virkari starfsemi þeirra sem eykur aðgengi íbúa vítt og breytt um landið að sviðslistastarfsemi og ýtir undir áhuga barna og ungmenna á sviðslistum og sviðslistanámi.
    Bókun fundar Afgreiðsla 196. fundar byggðarráðs var staðfest á 50. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 196 Lögð fram til kynningar niðurstöður nýafstaðins útboðs jarðvinnu vegna Menningarhúss á Sauðárkróki.

    Tilboð voru opnuð föstudaginn 22. maí sl. í verkið "Menningarhús í Skagafirði - Jarðvinna 2026". Þrjú tilboð bárust og hafa verið yfirfarin. Engar útreikningsskekkjur fundust og engar athugasemdir voru gerðar við tilboðsopnun. Niðurstaðan er sú að lægstbjóðandi var Þ. Hansen ehf. sem bauð 49.619.193 kr. sem er 35,1% af kostnaðaráætlun sem Verkís vann fyrir Skagafjörð vegna verksins.

    Byggðarráð fagnar ánægjulegri niðurstöðu útboðs og að framundan sé fyrsti áfangi í verklegum framkvæmdum við uppbyggingu nýs menningarhúss.
    Bókun fundar Afgreiðsla 196. fundar byggðarráðs var staðfest á 50. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2026 með níu atkvæðum.