Fara í efni

Bjarnastaðir L146271 í Blönduhlíð - Umsókn um stofnun byggingarreita

Málsnúmer 2603089

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 93. fundur - 12.03.2026

Guttormur Hrafn Stefánsson, þinglýstur eigandi jarðarinnar Bjarnastaðir, landnr. 146271, óskar eftir heimild til að stofna tvo byggingarreiti, annarsvegar 4872 m² byggingarreit fyrir fjárhús og hins vegar 5158 m² byggingarreit fyrir íbúðarhús, á landi jarðarinnar, skv. meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 74670001 dags. 5 mars 2026. Afstöðuppdráttur var unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Dagnýju Stefánsdóttur og Birni Magnúsi Árnasyni.
Engar byggingar eru á jörðinni eins og fram kemur í fasteignaskrá.
Um er að ræða byggingarreit fyrir nýtt einbýlishús sem verður að hámarki 250 m² að stærð og að hámarki 6 m að hæð, og byggingarreit fyrir nýtt fjárhús sem verður að hámarki 1500 m² að stærð og að hámarki 8 m að hæð.
Byggingarreitirnir, sem sótt er um, eru á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-1 skv. aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040. Áformin eru í fullu samræmi við stefnu aðalskipulagsins um eflingu landbúnaðar og búsetu, en í kafla 3.7 um almenn ákvæði landnotkunar á landbúnaðarsvæðum segir:
"Á landbúnaðarsvæðum er gert ráð fyrir uppbyggingu í tengslum við landbúnaðarstarfsemina en einnig er heimilt að nýta byggingar, byggja stök mannvirki og/eða breyta eldri byggingum, til annarrar starfsemi ef slíkur rekstur styður við landbúnaðarstarfsemi eða búsetu á svæðinu."
Byggingar sem hér er sótt um byggingarreiti fyrir eru forsendur þess að koma upp búskap á jörðinni. Hér er um að ræða fjárhúsbyggingu sem er nauðsynleg fyrir hefðbundinn búrekstur og íbúðarhús sem styður beint við hann. Staðsetning byggingarreitanna er valin með tilliti til byggingarhæfs lands annars vegar og gæði ræktunarlands hins vegar. Með þessum staðsetningum er ekki verið að taka gott ræktunarland undir byggingar. Einnig er gætt að því að byggingarnar rísi í nálægð við núverandi innviði til að skerða sem minnst nýtingu á góðu ræktarlandi (L-1), í samræmi við ákvæði Aðalskipulags Skagafjarðar. Komi til frekari byggingaráforma verður óskað eftir heimild til að láta vinna deiliskipulag. Jafnframt segir í aðalskipulaginu: "Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi til byggingar á stökum byggingum sem tengjast starfsemi bújarðar án deiliskipulags, ef umfang og/eða aðstæður gefa tilefni til. Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif."
Lögð verður áhersla á að áformuð uppbygging verði í samræmi við yfirbragð og ásýnd svæðisins og hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif. Áformin skerða ekki aðgengi að öðrum byggingum en kunna að hafa ásýndaráhrif af Siglufjarðarvegi (76).
Óskað hefur verið eftir umsögn minjavarðar og Vegagerðarinnar.
Fáist umsókn um byggingarreiti ekki samþykkt er sótt um stofnun 4872 m² byggingarreits fyrir fjárhús, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01, dags. 5. mars 2026 og umfjöllun hér að ofan og heimild til að láta vinna deiliskipulag á kostnað landeiganda sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fyrirliggur umsögn eigenda nærliggjandi landeigna vegna byggingareits fyrir fjárhús án athugasemda.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fresta erindinu og felur skipulagsfulltrúa að óska eftir frekari gögnum frá umsækjanda.