Fara í efni

Skipulagsnefnd

93. fundur 12. mars 2026 kl. 13:00 - 15:30 í Ráðhúsi, Skr.
Nefndarmenn
  • Sigríður Magnúsdóttir formaður
  • Jón Daníel Jónsson varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir aðalm.
  • Eyþór Fannar Sveinsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Sigurður H Ingvarsson starfsmaður skipulagsfulltrúa
  • Hildur Hartmannsdóttir starfsmaður skipulagsfulltrúa
Fundargerð ritaði: Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Glaumbær Byggðasafn Skagfirðinga - Deiliskipulag

Málsnúmer 2101290Vakta málsnúmer

Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við skipulagslýsingu fyrir Byggðasafn Skagfirðinga í Glaumbæ, Skagafirði, mál nr. 1641/2025 (https://skipulagsgatt.is/issues/2025/1641 ) í Skipulagsgáttinni, samráðsgátt Skipulagsstofnunar um skipulagsmál. Skipulagslýsingin var í auglýsingu dagana 28.01.2026- 26.02.2026, alls bárust 8 umsagnir.

Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.

Gestir

  • Arnar Birgir Ólafsson

2.Freyjugata - Tillaga að breytingu á deiliskipulagi

Málsnúmer 2511082Vakta málsnúmer

Gunnar Bjarnason ehf., hefur falið Praxis arkitektúr ehf. og Teiknistofunni Storð ehf. að vinna tillögu að deiliskipulagsbreytingu varðandi hluta gildandi deiliskipulags Gamla bæjarins á Sauðárkróki, Skagafirði.
Á umræddu skipulagssvæði, austan Freyjugötu á svonefndum bílastæðareit, eru samkvæmt gildandi deiliskipulagi 5 lóðir alls 4.423 m².
Á lóðinni nr. 9 stendur tveggja hæða fjölbýlishús með 8 íbúðum.
Skipulagssvæðið er samkvæmt Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 á miðsvæði M-401.
Deiliskipulagsbreytingin miðar að því að gera breytingar á lóðum austan Freyjugötu sem eru innan breytingarsvæðis fyrir einbýlishús sem verða skilgreind sem 4 lóðir fyrir einbýlishús. Lóðir stækkaðar og byggingarmagn aukið fyrir byggingar sem verða hæð og ris. Núverandi fjölbýlishúsalóð við Freyjugötu 9 verður minnkuð og á norður hluta hennar verða skilgreindar þrjár lóðir fyrir eitt raðhús. 7 íbúðir munu bætast við þær 8 sem fyrir eru lóðinni nr. 9. Núverandi húsagata verður lengd til austurs, og norður með lóðum nr. 9 og að austurhlið þriggja nýrra lóða sem munu fá númerin 7e, 7f og 7g.
Auk þess er skilgreindur vasagarður á milli lóðanna sem fær sér lóð, sem er skilgreind sem Freyjugata 7h.
Deiliskipulagstillagan er í samræmi við ákvæði og landnotkun í aðalskipulagi þar sem heimilt er að bæta við allt að 62 íbúðum á landnotkunarreitnum M-401.
Á lóðinni nr. 9 er fjölbýlishús þar sem skilmálum verður ekki breytt að öðru leiti en að lóð verður minnkuð og bætt við kvöð um gönguleið að sunnanverðu í gegnum lóðina á öruggara svæði milli bílastæða og byggingar. Auk þess er komið fyrir samhliða bílastæðum og göngustíg milli götunnar og lóðanna meðfram Freyjugötunni. Á Freyjugötunni eru skilgreindar tvær gönguleiðir yfir götuna með þrengingu götunnar, til að draga úr umferðarhraða. Ekki er tekin afstaða til þess hvort þessar gönguleiðir séu upphækkuð eða í plani við götuna.
Fyrir hönd Gunnars Bjarnasonar ehf. sem er með vilyrði skv. 8. gr. úthlutunarreglna sveitarfélagins fyrir Freyjugötu 7, er hér með óskað eftir að meðfylgjandi tillaga að deiliskipulagsbreytingu verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan er dagsett 27. febrúar 2026 og saman stendur af einum uppdrætti ásamt greinargerð.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagsbreytingartillögu fyrir "Freyjugötu 7 og 9 á Sauðárkróki" skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

3.Faxatorg - Flæðar - Óveruleg breyting á deiliskipulagi

Málsnúmer 2603094Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulaginu Flæðar á Sauðárkróki, uppdráttur ásamt greinargerð nr. DS01, dags. 09.03.2026, verknr. 56292114. Við frekari hönnun á Menningarhúsinu kom í ljós að stækka þarf norðausturhorn byggingarreitsins um 0,8 m2 eða ca. 76 cm. Einnig kom í ljós við nákvæmari uppmælingu á nú þegar byggðu Safnahúsi, að þar þarf að stækka byggingarreitinn að uppfærðri útlínu eða um 1 m2, alls stækkun á byggingarreit úr 3340 m2 í 3346 m2 eða um 6 m2.

Breytingin er það óveruleg að hún hefur engin aukin umhverfisáhrif umfram stefnumörkun deiliskipulags fyrir breytingu.
Stækkun byggingarreits, með útskoti til austurs, skerðir ekki útsýni eða aðgengi umfram skipulag fyrir breytingu, né hefur hún áhrif á skuggavarp,
öryggi eða heilsu manna eða aðra umhverfisþætti sem metnir voru í greinargerð deiliskipulags fyrir breytingu.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir Faxatorg, Flæðar á Sauðárkróki, skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd samþykkir einnig samhljóða að breytingin hafi engin áhrif á landnotkun nágrannalóða, breytingin hafi ekki í för með sér skuggavarp, sjónmengun, innsýn eða raskað útsýni aðliggjandi lóða og hafi engin áhrif á hagsmuni annarra aðila en sveitarfélagsins og því sé ekki þörf á grenndarkynningu, sbr. einnig 3. mgr. 44. gr. sömu laga.

Eyþór Fannar Sveinsson fulltrúi Byggðalista óskar bókað:
Föstudaginn 6. mars barst tilkynning til Sveitarstjórnar Skagafjarðar um að fyrirhuguð væri undirskriftasöfnun vegna byggingar menningarhús á Sauðárkróki. Byggðalistinn telur nauðsynlegt að öllum ákvörðunum vegna menningarhúss verði frestað þar til sveitarstjórn hefur tekið erindið fyrir um fyrirhugaða undirskriftarsöfnun. Tillaga þess efnis var lögð fram samdægurs þann 6. mars á 8. fundi Byggingarnefndar menningarhúss á Sauðárkróki og var tillögunni hafnað af meirihluta byggingarnefndar.

4.Laufblaðið, Sauðárkróki, íbúðarbyggð og opið svæði - Deiliskipulag

Málsnúmer 2511191Vakta málsnúmer

Hildur Hartmannsdóttir starfsmaður skipulagsfulltrúa fer yfir frumhugmyndir fyrir hönnun á opnum svæðum innan skipulagssvæðis Laufblaðsins.

Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.

Sigurður H. Ingvarsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.

5.Bjarnastaðir L146271 í Blönduhlíð - Umsókn um stofnun byggingarreita

Málsnúmer 2603089Vakta málsnúmer

Guttormur Hrafn Stefánsson, þinglýstur eigandi jarðarinnar Bjarnastaðir, landnr. 146271, óskar eftir heimild til að stofna tvo byggingarreiti, annarsvegar 4872 m² byggingarreit fyrir fjárhús og hins vegar 5158 m² byggingarreit fyrir íbúðarhús, á landi jarðarinnar, skv. meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 74670001 dags. 5 mars 2026. Afstöðuppdráttur var unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Dagnýju Stefánsdóttur og Birni Magnúsi Árnasyni.
Engar byggingar eru á jörðinni eins og fram kemur í fasteignaskrá.
Um er að ræða byggingarreit fyrir nýtt einbýlishús sem verður að hámarki 250 m² að stærð og að hámarki 6 m að hæð, og byggingarreit fyrir nýtt fjárhús sem verður að hámarki 1500 m² að stærð og að hámarki 8 m að hæð.
Byggingarreitirnir, sem sótt er um, eru á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-1 skv. aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040. Áformin eru í fullu samræmi við stefnu aðalskipulagsins um eflingu landbúnaðar og búsetu, en í kafla 3.7 um almenn ákvæði landnotkunar á landbúnaðarsvæðum segir:
"Á landbúnaðarsvæðum er gert ráð fyrir uppbyggingu í tengslum við landbúnaðarstarfsemina en einnig er heimilt að nýta byggingar, byggja stök mannvirki og/eða breyta eldri byggingum, til annarrar starfsemi ef slíkur rekstur styður við landbúnaðarstarfsemi eða búsetu á svæðinu."
Byggingar sem hér er sótt um byggingarreiti fyrir eru forsendur þess að koma upp búskap á jörðinni. Hér er um að ræða fjárhúsbyggingu sem er nauðsynleg fyrir hefðbundinn búrekstur og íbúðarhús sem styður beint við hann. Staðsetning byggingarreitanna er valin með tilliti til byggingarhæfs lands annars vegar og gæði ræktunarlands hins vegar. Með þessum staðsetningum er ekki verið að taka gott ræktunarland undir byggingar. Einnig er gætt að því að byggingarnar rísi í nálægð við núverandi innviði til að skerða sem minnst nýtingu á góðu ræktarlandi (L-1), í samræmi við ákvæði Aðalskipulags Skagafjarðar. Komi til frekari byggingaráforma verður óskað eftir heimild til að láta vinna deiliskipulag. Jafnframt segir í aðalskipulaginu: "Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi til byggingar á stökum byggingum sem tengjast starfsemi bújarðar án deiliskipulags, ef umfang og/eða aðstæður gefa tilefni til. Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif."
Lögð verður áhersla á að áformuð uppbygging verði í samræmi við yfirbragð og ásýnd svæðisins og hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif. Áformin skerða ekki aðgengi að öðrum byggingum en kunna að hafa ásýndaráhrif af Siglufjarðarvegi (76).
Óskað hefur verið eftir umsögn minjavarðar og Vegagerðarinnar.
Fáist umsókn um byggingarreiti ekki samþykkt er sótt um stofnun 4872 m² byggingarreits fyrir fjárhús, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01, dags. 5. mars 2026 og umfjöllun hér að ofan og heimild til að láta vinna deiliskipulag á kostnað landeiganda sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fyrirliggur umsögn eigenda nærliggjandi landeigna vegna byggingareits fyrir fjárhús án athugasemda.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fresta erindinu og felur skipulagsfulltrúa að óska eftir frekari gögnum frá umsækjanda.

6.Hafgrímsstaðir L146169 - Umsókn um færslu og stækkun á byggingarreit

Málsnúmer 2603090Vakta málsnúmer

Þann 20. sept. 2016 samþykkti sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkt skipulags- og byggingarnefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar á umsókn þáverandi landeiganda Hafgrímsstaða, landnúmer 146169, um stofnun byggingarreits á landi jarðarinnar skv. afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki nr. 776501, útg. 11.08.2016.
Þann 05.04.2017 samþykkti skipulags- og byggingarnefnd umsókn þáverandi landeiganda um stöðuleyfi, til eins árs, fyrir sjö aðstöðugáma. Sveitarstjórn staðfesti samþykkt skipulags- og byggingarnefndar þann 12.04.2017.
Snæbjörn Guðmundsson og Hallfríður H. Hafsteinsdóttir, f.h. Bletts ehf, þinglýsts eignanda Hafgrímsstaða, landnúmer 146169, óska eftir leyfi til þess að færa og stækka áður samþykktan byggingarreit, á landi Hafgrímsstaða í sveitarfélaginu Skagafirði L146169, líkt og sýnt er á meðfylgjandi afstöðuuppdrætti gerðum hjá Stoð ehf. verkfræðistofu, af Dagnýju Stefánsdóttur og Birni Magnúsi Árnasyni. Númer uppdráttar er S01 í verki nr. 77650001, útg. dags. 5. mars. 2026. Sótt er um tilfærslu um 42,2 m til norðurs og stækkun úr 140 m² í 264 m².

Óskað er eftir hámarksbyggingarmagni 120 m² og hámarksbyggingarhæð 3 m.
Þá er sótt um endurnýjun á stöðuleyfi fyrir sjö aðstöðugáma sbr. fyrri samþykkt skipulags- og byggingarnefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 05.04.2017.

Byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-4 í aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 og er utan landbúnaðarlands í flokki I og II. Byggingarreiturinn er í samræmi við markmið aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæðum þar sem hann stuðlar að sambúð landbúnaðar og ferðaþjónustu, gengur ekki inn á ræktað land og skerðir ekki aðgengi eða búrekstrarskilyrði. Þá styrkir hann búsetu og atvinnulíf á svæðinu og núverandi inniviðir nýtast áfram.

Í almennum ákvæðum um landnotkun á landbúnaðarsvæðum, í greinargerð aðalskipulags Skagafjarðar 2025-2040 segir:
"Skipulagsnefnd metur hverju sinni málsmeðferð uppbyggingaráforma m.t.t. skipulagslaga, með hliðsjón af ofangreindum ákvæðum og umfangi framkvæmda."
Þess skal gætt að önnur starfsemi en landbúnaður valdi ekki neikvæðum áhrifum á landbúnaðarland s.s. með mengun, skerðingu á aðgengi eða rjúfi samfellu á landbúnaðarsvæði í flokki I.
Áformin skerða ekki aðgengi að öðrum byggingum og hafa ekki meiri ásýndaráhrif af Skagafjarðarvegi (752) en nú er.
Óskað hefur verið eftir umsögn minjavarðar.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja færslu og stækkun byggingarreits að fenginni umsögn minjavarðar, en bendir jafnframt á að stöðuleyfi eru á forræði byggingarfulltrúa Skagafjarðar.

7.Ysti Mór L146830 - Umsókn um stofnun landspildu og byggingarreits

Málsnúmer 2603091Vakta málsnúmer

Stefán Logi Haraldsson og Marteinn Jónsson, f.h. Ysta Mós ehf., þinglýsts eiganda jarðarinnar Ysta Mós landnúmer 146830, óska eftir heimild til að stofna 5285 m2 spildu úr landi jarðarinnar, sem Ysta Mó 2, og til að stofna 2642,8 m2 byggingarreit innan lóðarinnar, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 74322001 dags. 3 mars 2026.
Afstöðuuppdrátturinn var unninn á Stoð verkfræðistofu ehf.
Landheiti útskiptrar lóðar vísar í heiti upprunajarðar.
Öll hlunnindi tilheyra áfram Ysta Mó landnr. 146830.
Um er að ræða byggingarreit fyrir frístundahús á 1-2 hæðum. Hámarks byggingarmagn verður 200 m2 og hámarks byggingarhæð verður 8 m frá kjallaragólfi í mæni. Reiturinn er 10 m frá lóðarmörkum sbr. 5.3.2.12. gr. Skipulagsreglugerðar nr. 90/2013.
Landskipti og byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu frístundasvæði nr. F-1 í aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040 og styður við markmið aðalskipulags um uppbyggingu á frístundasvæðum, sbr. ákvæði í kafla 3.9 um frístundabyggð segir meðal annars:
"Almennt nýtingarhlutfall lóða er 0,03 á svæðum fyrir frístundabyggð þó þannig að nýtingarhlutfall geti orðið allt að 0,05 fyrir lóðir minni en 0,4 ha. Almennt skulu frístundalóðir vera um 0,5 ha. Við gerð deiliskipulags fyrir frístundabyggð skal þess gætt að hún raski ekki vistgerðum sem njóta sérstakrar verndar, skv. lögum um náttúruvernd og skerði ekki landbúnaðarland í L-1. eða L-2. flokki"
Lóðarstærðin sem hér er sótt um er því í fullu samræmi við viðmið skipulagsins um stærð frístundalóða. Jafnframt er byggingarmagn, sem sótt er í samræmi við viðmiða um nýtingarhlutfall á slíkum svæðum. Landskipti útskiptrar lóðar skerða ekki landbúnaðarsvæði í I. og II. flokki og raska ekki vistgerðum sem njóta sérstakrar verndar í samræmi við ákvæði aðalskipulagsins.
Hér er um að ræða staka byggingu sem styður við útivist og afþreyingu á svæðinu. Núverandi innviðir nýtast áfram og uppbygging er ekki líkleg til að hafa veruleg áhrif á mengun eða aðgengi.
Lögð verður áhersla á að áformuð uppbygging verði í samræmi við yfirbragð og ásýnd svæðisins og hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif. Áformin skerða ekki aðgengi að öðrum byggingum en kunna að hafa ásýndaráhrif af Siglufjarðarvegi (76), en vegna þess að Siglufjarðarvegur stendur um 25m ofar eru ásýndaráhrif mjög takmörkuð.
Engin fasteign er á umræddri spildu.
Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Ysta Mó, landnr. 146830.
Yfirferðaréttur að útskiptri spildu er frá Siglufjarðarvegi (76), um veg í landi Ysta Mós landnr.146830.
Óskað hefur verið eftir umsögn minjavarðar.
Málsnúmer í landeignaskrá er M003510.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja landskiptin og stofnun byggingarreits að fenginni umsögn minjavarðar.

8.Sjávarborg I L145953 - Umsókn um landskipti

Málsnúmer 2411062Vakta málsnúmer

Málið varðar Sjávarborg I, landnr. 145953, umsókn um landskipti. Málsnr. sveitarfélags er 2411062, málsnúmer í landeignaskráningu er M000514.

Þann 27.11.2024 staðfesti sveitarstjórn Skagafjarðar afgreiðslu skipulagsnefndar Skagafjarðar, dags. 14.11.2024, á umsókn landeigenda Sjávarborgar I, L145953, um stofnun landspildu út úr landi jarðarinnar sem "Sjávarborg". Í umsókn landeigenda, bókun skipulagsnefndar og sveitarstjórnar kemur eftirfarandi fram:
"Í Fasteignaskrá HMS er spildan sem um ræðir merkt "Sjávarborg I, skiki 1/7" og hefur skráða stærð." Í ljós hefur komið að skráning á "skikum" í vefsjá landeigna var ekki í samræmi við þinglýst gögn.

Fyrirliggur umsókn merkjalýsanda, f.h. landeiganda sbr. meðfylgjandi tölvupósta dags. 19.02.2026 og 27.02.2026, um að málið verði tekið fyrir aftur og að áðurnefnd setning verði felld út.

Einnig er þess óskað að málið verið afgreitt grundvelli meðfylgjandi merkjalýsingar, dags. 17.10.2024 með breytingu dags. 20.03.2025. Breytingarskrá er á fyrstu síðu merkjalýsingar og felur í sér að tilvísanir í skika hafi verið felldar út.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða erindið eins og það er fyrirlagt og felur skipulagsfulltúa að vinna málið áfram.

9.Sjávarborg II L145955 - Umsókn um landskipti

Málsnúmer 2411061Vakta málsnúmer

Þann 27.11.2024 staðfesti sveitarstjórn Skagafjarðar afgreiðslu skipulagsnefndar Skagafjarðar, dags. 14.11.2024, á umsókn Helgu Jóhönnu Haraldsdóttur, Gyðu Sigurlaugar Haraldsdóttur, Eddu Eiríku Haraldsdóttur, og Nönnu Margrétar Haraldsdóttur, þinglýstra eigenda Sjávarborgar II, landnr. 145955, um stofnun landspildu úr landi jarðarinnar sem "Neðriborg". Í umsókn landeigenda, bókun skipulagsnefndar og sveitarstjórnar kemur eftirfarandi fram:
"Í Fasteignaskrá HMS er spildan sem um ræðir merkt "Sjávarborg II, skiki 1/5" og hefur skráða stærð."
Í ljós hefur komið að umrædd skráning í vefsjá landeignaskrár HMS var ekki í samræmi við þinglýst gögn og hefur hún nú verið leiðrétt.

Fyrirliggur umsókn merkjalýsanda, f.h. þinglýstra eigenda jarðarinnar Sjávarborg II, landnúmer 145955, sbr. meðfylgjandi tölvupósta dags. 13.02.2026 og 14.02.2026, þar sem óskað er eftir að fyrri bókun verði breytt þar sem áðurnefnd setning: "Í Fasteignaskrá HMS er spildan sem um ræðir merkt "Sjávarborg II, skiki 1/5" og hefur skráða stærð." verði felld út.

Meðfylgjandi er merkjalýsing, dags. 17.10.2024 með breytingu dags. 20.03.2025. Breytingin felst í að tilvísanir í skika hafa verið felldar út. Merkjalýsandi f.h. þinglýstra landeigenda sbr. meðfylgjandi tölvupósta, óskar jafnframt eftir því að málið tekið fyrir að nýju og afgreitt á grundvelli nýrrar merkjalýsingar.
Málsnúmer í landeignaskráningu er M000518.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða erindið eins og það er fyrirlagt og felur skipulagsfulltúa að vinna málið áfram.

10.Hvannahlíð 7 - Innkeyrsla á lóð.

Málsnúmer 2508182Vakta málsnúmer

Gunnar Páll Ólafsson og Guðbjörg Óskarsdóttir lóðarhafar Hvannahlíðar 7 á Sauðárkróki óska eftir samþykki fyrir breikkun á innkeyrslu, um 2,5 metra til norðurs, sem þegar hefur verið framkvæmd.
Árið 2024 létu lóðarhafar steypa planið framan við húsið, og í tengslum við þær framkvæmdir þurfi að endurnýja neyslu- og fráveitulagnir að húsinu. Við þær framkvæmdir var gangstéttin brotin upp norðan við innkeyrslu eins og meðfylgjandi gögn sýna.

Þegar gengið var frá gangstétt og innkeyrslu að framkvæmdum loknum var innkeyrslan breikkuð sem nam þeim hluta gangstéttar sem hafði verið rofin, eða tæplega 2,5 metrum. Láðist lóðarhöfum að óska eftir samþykki fyrir þeirri breikkun og fá formlegt samþykki fyrir þeirri breytingu.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða umbeðna breikkun á bílastæði eins er lýst í umsókninni en minnir á að sækja skal um leyfi fyrir slíkum framkvæmdum áður en þær hefjast. Skipulagsnefndin bendir jafnframt á að óleyfisframkvæmdir geta verið gerðar afturkræfar á kostnað þess sem framkvæmir.

11.Gránumóar lóð 64 - Beiðni um lóðarstækkun

Málsnúmer 2505102Vakta málsnúmer

Hjálagt er vinnuskrá fyrir Gránumóa 63 og 64 dags. 11.03.2026 þar sem báðar lóðirnar hafa verið stækkaðar að miðlínu vegar og um leið verður aðkoma sveitarfélagsins að vatnstönkunum færð á lóð Gránumóa 62 L218124. Tillaga veitu- og framkvæmdasviðs Skagafjarðar að færslu aðkomunnar fyrir Gránumóa 62 verður unnin í samráði við skipulagsfulltrúa.
Reimar Marteinsson fyrir hönd Kaupfélags Skagfirðinga sem er lóðarhafi beggja lóðanna hefur yfirfarið og samþykkt framlögð gögn.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða umbeðna lóðarstækkun við Gránumóa 63 og 64 á grundvelli vinnuskrár dags. 11.03.2026 í verki nr. 56191YFIRL Gránumóar 63 og 64 unnið á Stoð ehf. verkfræðistofu og felur skipulagsfulltúa að láta útbúa merkjalýsingu, ný lóðarblöð og lóðarleigusamninga.

12.Beiðni um framkvæmdaleyfi í Varmahlíð - Vegna orkuskipta

Málsnúmer 2603117Vakta málsnúmer

Rarik óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir lagningu 12 kV háspennustrengs í Varmahlíð. Þessi framkvæmd er tilkomin vegna heimtaugarumsóknar Orku náttúrunnar í Varmahlíð sem tengist orkuskiptum. Gert er ráð fyrir að plægja þessa leið (90 cm dýpi) og er áætlaður verktími apríl 2026.
Gert er ráð fyrir að bora undir vegi (Hringveg og Sauðárkróksbraut).

Um framkvæmdina.
Vinnuvélarnar munu fylgja strengleiðinni sem sýnd er á meðfylgjandi mynd. Verktakar verða ráðnir í verkið og það verða líklega 2-4 starfsmenn að vinna við plægingu, auk þess sem að starfsmaður Rarik kemur til með að sinna verkeftirliti. Tveir starfsmenn sjá svo um tengingar þegar þar að kemur. Jarðýta verður notuð við plægingu á strengnum. Strengkeflin verða á plógýtunni og/eða á öðru tæki framan við plógýtuna.
Ekki verða nein varanleg ummerki á jarðvegi, gróðri eða dýralífi.
Gengið verður frá meðfram plógfari. Notuð verður beltagrafa til að draga úr mögulegu álagi á gróður. Reynslan sýnir að plógfar verður illgreinanlegt innan nokkurra ára.

Önnur leyfismál:
Skógræktarfélag Skagafjarðar hefur sent umsögn um framkvæmdina vegna Vélavalsreitsins, tölvupóstur frá Johan Holst sem gefur heimild með fyrirvara fyrir hönd Skóræktarfélags Skagafirðinga.
Minjastofnun - gerir ekki athugasemdir, tölvupóstur frá Guðmundi Stefáni Sigurðarssyni.
Búið að senda umsókn til Vegagerðarinnar, beðið eftir samþykki.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi að fengnu samþykki Vegagerðarinnar.

13.Strenglagning frá aðveitustöð að Furulundi Varmahlíð - Framkvæmaleyfisumsókn

Málsnúmer 2511212Vakta málsnúmer

Rarik óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir strenglagningu við og í Varmahlíð. Gert er ráð fyrir að leggja 12 kV háspennustreng frá Aðveitustöð við Varmahlíð að Furulundi í Varmahlíð.
Gert er ráð fyrir að plægja þessa leið 90 cm dýpi og áætlaður verktími apríl 2026.
Þessi lagnaleið var unnin í samtali við landeigendur og starfsfólk sveitarfélagsins.

Um framkvæmdina.
Vinnuvélarnar munu fylgja strengleiðinni sem sýnd er á meðfylgjandi mynd. Verktakar verða ráðnir í verkið og það verða líklega 2-4 starfsmenn að vinna við plægingu, auk þess sem að starfsmaður Rarik kemur til með að sinna verkeftirliti. Tveir starfsmenn sjá svo um tengingar þegar þar að kemur. Jarðýta verður notuð við plægingu á strengnum. Strengkeflin verða á plógýtunni og/eða á öðru tæki framan við plógýtuna.
Ekki verða nein varanleg ummerki á jarðvegi, gróðri eða dýralífi.
Gengið verður frá meðfram plógfari. Notuð verður beltagrafa til að draga úr mögulegu álagi á gróður. Reynslan sýnir að plógfar verður ill greinanlegt innan nokkurra ára.

Önnur leyfismál:
Skógræktarfélag Skagafjarðar hefur sent umsögn um framkvæmdina, tölvupóstur frá Johan Holst.
Fiskistofa - leyfi til að þvera Víðimýrará.
Minjastofnun - gerir ekki athugasemdir, tölvupóstur Guðmundur Stefán Sigurðarson.
Vegagerðin - í vinnslu.
Samkomulag við landeigendur - í vinnslu, sjá staðlað samkomulag í viðhengi.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi að fengnu samþykki Vegagerðarinnar og hluteigandi landeigenda.

14.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 80

Málsnúmer 2602028FVakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 80 þann 27.02.2026.

Fundi slitið - kl. 15:30.