Fara í efni

Hafgrímsstaðir L146169 - Umsókn um færslu og stækkun á byggingarreit

Málsnúmer 2603090

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 93. fundur - 12.03.2026

Þann 20. sept. 2016 samþykkti sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkt skipulags- og byggingarnefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar á umsókn þáverandi landeiganda Hafgrímsstaða, landnúmer 146169, um stofnun byggingarreits á landi jarðarinnar skv. afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki nr. 776501, útg. 11.08.2016.
Þann 05.04.2017 samþykkti skipulags- og byggingarnefnd umsókn þáverandi landeiganda um stöðuleyfi, til eins árs, fyrir sjö aðstöðugáma. Sveitarstjórn staðfesti samþykkt skipulags- og byggingarnefndar þann 12.04.2017.
Snæbjörn Guðmundsson og Hallfríður H. Hafsteinsdóttir, f.h. Bletts ehf, þinglýsts eignanda Hafgrímsstaða, landnúmer 146169, óska eftir leyfi til þess að færa og stækka áður samþykktan byggingarreit, á landi Hafgrímsstaða í sveitarfélaginu Skagafirði L146169, líkt og sýnt er á meðfylgjandi afstöðuuppdrætti gerðum hjá Stoð ehf. verkfræðistofu, af Dagnýju Stefánsdóttur og Birni Magnúsi Árnasyni. Númer uppdráttar er S01 í verki nr. 77650001, útg. dags. 5. mars. 2026. Sótt er um tilfærslu um 42,2 m til norðurs og stækkun úr 140 m² í 264 m².

Óskað er eftir hámarksbyggingarmagni 120 m² og hámarksbyggingarhæð 3 m.
Þá er sótt um endurnýjun á stöðuleyfi fyrir sjö aðstöðugáma sbr. fyrri samþykkt skipulags- og byggingarnefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 05.04.2017.

Byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-4 í aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 og er utan landbúnaðarlands í flokki I og II. Byggingarreiturinn er í samræmi við markmið aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæðum þar sem hann stuðlar að sambúð landbúnaðar og ferðaþjónustu, gengur ekki inn á ræktað land og skerðir ekki aðgengi eða búrekstrarskilyrði. Þá styrkir hann búsetu og atvinnulíf á svæðinu og núverandi inniviðir nýtast áfram.

Í almennum ákvæðum um landnotkun á landbúnaðarsvæðum, í greinargerð aðalskipulags Skagafjarðar 2025-2040 segir:
"Skipulagsnefnd metur hverju sinni málsmeðferð uppbyggingaráforma m.t.t. skipulagslaga, með hliðsjón af ofangreindum ákvæðum og umfangi framkvæmda."
Þess skal gætt að önnur starfsemi en landbúnaður valdi ekki neikvæðum áhrifum á landbúnaðarland s.s. með mengun, skerðingu á aðgengi eða rjúfi samfellu á landbúnaðarsvæði í flokki I.
Áformin skerða ekki aðgengi að öðrum byggingum og hafa ekki meiri ásýndaráhrif af Skagafjarðarvegi (752) en nú er.
Óskað hefur verið eftir umsögn minjavarðar.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja færslu og stækkun byggingarreits að fenginni umsögn minjavarðar, en bendir jafnframt á að stöðuleyfi eru á forræði byggingarfulltrúa Skagafjarðar.