Fara í efni

Sveitarstjórn Skagafjarðar

47. fundur 25. mars 2026 kl. 16:15 - 17:42 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson forseti
  • Hrund Pétursdóttir aðalm.
  • Hrefna Jóhannesdóttir aðalm.
  • Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir 1. varaforseti
  • Jóhanna Ey Harðardóttir aðalm.
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson 2. varaforseti
  • Álfhildur Leifsdóttir aðalm.
  • Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir aðalm.
  • Jón Daníel Jónsson varam.
    Aðalmaður: Guðlaugur Skúlason
Starfsmenn
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
Í upphafi fundar fór forseti þess á leit við fundarmenn að mál númer 2603076 - Refa- og minkaveiðiáætlun 2026 verði tekið á dagskrá fundarins með afbrigðum. Samþykkt samhljóða.

1.Byggðarráð Skagafjarðar - 183

Málsnúmer 2602027FVakta málsnúmer

Fundargerð 183. fundar byggðarráðs frá 25. febrúar 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 47. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 183 Fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 183. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 183 Lagt fram erindi frá sóknarnefnd Goðdalakirkjugarðs, með beiðni um að sveitarfélagið láti í té efni í kirkjugarðshlið við Goðdalakirkjugarð.
    Byggðarráð þakkar fyrir erindið um leið og það minnir á viðmiðunarreglur Kirkjugarðaráðs og Sambands íslenskra sveitarfélaga um kirkjugarðsstæði og fleira, en þar segir í 6. gr: "Kostnaðaráætlun þarf að afhenda sveitarfélagi áður en það lýkur vinnu við gerð fjárhagsáætlunar þess árs sem framkvæmdir eru fyrirhugaðar á. Slík áætlun skal liggja fyrir eigi síðar en í byrjun október árið áður en framkvæmdir eru fyrirhugaðar nema sveitarstjórn hafi veitt rýmri frest.
    Þar sem afgreiðsla sveitarstjórnar á fjárhagsáætlun næsta árs felur í sér bindandi ákvörðun um allar fjárhagslegar ráðstafanir sveitarfélagsins á því ári sem hún tekur til koma reikningar, sem ekki er gert ráð fyrir í kostnaðaráætlun skv. 1. mgr., að jafnaði ekki til greiðslu fyrr en næsta fjárhagsár þar á eftir."

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að afla nánari upplýsingar um fyrirhugaða framkvæmd, kostnaðaráætlun og framkvæmdatíma.
    Bókun fundar Afgreiðsla 183. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 183 Lagt fram erindi, dags. 17. febrúar 2026, frá Sálfræðistofunni Höfðabakka, þar sem óskað er eftir styrk vegna verkefnisins sterkariutilifid.is. Á vefsíðunni og smáforriti á vegum verkefnisins fá finna átta öflugar verkfærakistur fyrir hvert skólastig grunnskólans en efnið er nýtt sem forvörn og stuðningur á meðan beðið er eftir annarri þjónustu.

    Byggðarráð telur sér ekki fært að verða við erindinu en óskar forsvarsmönnum góðs gengis með verkefnið.
    Bókun fundar Afgreiðsla 183. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 183 Lögð fram umsagnarbeiðni úr máli 2026-012398, dagsett 17. febrúar 2026 frá embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Byggðasafns Skagfirðinga, kt. 550652-0139, Glaumbæ, 561 Varmahlíð um leyfi til reksturs Veitingaleyfi í Flokkur II-E Kaffihús, í Áshúsi, fastanúmer F214-0444, Glaumbær lóð, fyrir allt að 60 gesti.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd við umsóknina.
    Bókun fundar Afgreiðsla 183. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 183 Erindi vísað frá 43. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar með eftirfarandi bókun:
    "Á 42. fundi Atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar þann 16. janúar 2026 var tekið fyrir erindi dags. 17. nóvember 2025 frá Ástu Búadóttur, formanni Gallerí Alþýðulista. Nefndin samþykkti samhljóða að fresta afgreiðslu málsins þar til á næsta fundi.

    Gallerí Alþýðulist óskar eftir hærri styrk vegna aukinnar aðsóknar í upplýsingamiðstöðina á undanförnum árum, meðal annars vegna lengingar ferðamannatímabilsins á svæðinu. Vegna þess stendur til að lengja opnunartímabil starfseminnar og það krefst aukinna fjárútláta.

    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að hækka upphæð styrktarsamnings, sem gerður hefur verið ár hvert til styrktar starfsemi upplýsingamiðstöðvarinnar í Varmahlíð. Upphæð samningsins hefur ekki tekið breytingum frá árinu 2021 og er því lagt til að samningurinn fyrir árið 2026 verði uppreiknaður sem nemur vísitölu neyðsluverð, eða hækkun upp á 36,4%.

    Nefndin felur starfsmanni nefndarinnar að ganga til samninga við Gallerí Alþýðulist og gera árssamning með ofangreindum forsendum til hliðsjónar, með möguleika á framlengingu.

    Nefndin vísar málinu til byggðarráðs."

    Álfhildur Leifsdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að undirbúa gerð viðauka vegna hækkunar samningsins.
    Bókun fundar Álfhildur Leifsdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

    Afgreiðsla 183. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með átta atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 183 Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 27/2026, "Könnun um einföldun regluverks um verkefni sveitarfélaga". Umsagnarfrestur er til og með 10.03. 2026.
    Bókun fundar Afgreiðsla 183. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 183 Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 51/2026, "Drög að frumvarpi til laga um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati". Umsagnarfrestur er til og með 06.03. 2026.

    Byggðarráð Skagafjarðar fagnar því að loksins séu lögð fram formleg drög að frumvarpi til laga um rýmiseignir, þar sem jafnframt verður felld úr gildi undanþága rafveitna (vatnsafls-, jarðvarma- og vindaflsvirkjana, svo og annarra orkugjafa) frá fasteignamati. Byggðarráð lýsir jafnframt yfir ánægju með að áformað sé að fasteignaskattur geti dreifst á milli fleiri en eins sveitarfélags og að hluti af fasteignaskattstekjum af orkumannvirkjum skuli eiga að dreifast til sveitarfélaga í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
    Bókun fundar Afgreiðsla 183. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 183 Lögð fram til kynningar dagskrá Sjávarútvegsfundar 2026 sem haldinn er á vegum Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, miðvikudaginn 4. mars 2026 frá kl. 9:30-11:30, í Drift, Strandgötu 1 á Akureyri. Skráning á fundinn fer fram á vef Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, sjavarutvegssveitarfelog.is, og eru áhugasamir einstaklingar úr hópi kjörinna fulltrúa hvattir til að skrá sig þar. Bókun fundar Afgreiðsla 183. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.

2.Byggðarráð Skagafjarðar - 184

Málsnúmer 2602033FVakta málsnúmer

Fundargerð 184. fundar byggðarráðs frá 4. mars 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 47. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 184 Fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 184. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 184 Lagt var fram minnisblað BBA//Fjeldco, dagsett 16. febrúar 2026, sem unnið var fyrir AECO. Í minnisblaðinu er fjallað um afmörkun og framkvæmd virðisaukaskattskyldu skemmtiferðaskipa í innanlandssiglingum auk þess sem gerð er grein fyrir gildandi lagaumgjörð, túlkun skattayfirvalda og þeim sjónarmiðum sem kunna að skipta máli varðandi skattlagningu þessarar starfsemi. AECO hefur miklar áhyggjur af samkeppnisfærni Íslands í hringsiglinum og telur álögur og íþyngjandi regluverk geta ógnað samkeppnisfærni landsins.
    Í minnisblaðinu kemur jafnframt fram að samkvæmt ákvarðandi bréfi Skattsins nr. 2/2025 séu rekstraraðilar skemmtiferðaskipa í innanlandssiglingum taldir virðisaukaskattsskyldir, m.a. vegna fólksflutninga, gistiþjónustu og sölu á vöru og þjónustu um borð. Loks er í minnisblaðinu fjallað um atriði sem kunna að skipta máli við frekari útfærslu eða mat stjórnvalda, þar á meðal tæknileg atriði um hugsanlega undanþágu, tengsl við tollfrelsi skemmtiferðaskipa og hvort eðlilegra væri að skilgreina starfsemina sem undanþegna veltu eða undanþegna starfsemi samkvæmt VSK-lögum.

    Í Skagafirði gætir áhrifa óvissu um álögur og lagaumhverfi þessarar atvinnugreinar og er eingöngu von á 6 skipakomum sumarið 2026 en skipakomurnar voru 25 árið 2025. Byggðarráð bendir á að slíkar skipakomur séu jafnan skipulagðar og bókaðar þrjú ár fram í tímann og telur því mikilvægt að um atvinnugreinina ríki stöðugt og fyrirsjáanlegt lagaumhverfi.
    Bókun fundar Afgreiðsla 184. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 184 Fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 184. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 184 Fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 184. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 184 Guðlaugur Skúlason vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

    Lagt var fram bréf frá Magnúsi Barðdal Reynissyni fyrir hönd aðalstjórnar Ungmennafélagsins Tindastóls, dagsett 27. febrúar 2026. Efni bréfsins er uppsögn rekstrarsamnings um skíðasvæðið í Tindastóli, en samningurinn er uppsegjanlegur með 6 mánaða fyrirvara.

    Uppsögnin byggir á því að reksturinn sé of umfangsmikill og ábyrgðarmikill fyrir skíðadeildina. Fram kemur að núverandi kröfur og eftirlit við rekstur skíðasvæða séu of íþyngjandi fyrir deild sem drifin er að hluta á sjálfboðaliðastarfi og að forgangur deildarinnar sé ungmennastarf og skíðakennsla. Aðalstjórn vonast til að reksturinn færist til aðila með bolmagn og faglega getu og lýsir sig reiðubúna til áframhaldandi samtals við sveitarfélagið um yfirfærslu rekstrar og tengd mál.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að boða forsvarsmenn aðalstjórnar og skíðadeildar Tindastóls á fund byggðarráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 184. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 184 Lagt var fram sundurliðað kostnaðaryfirlit ásamt fylgiskjölum vegna kostnaðar sem Sótahnjúkur ehf. hefur haft á árinu 2025 af viðhalds- og endurbótaverkefnum við sundlaugina á Sólgörðum. Samtals réðist Sótahnjúkur ehf. í viðhaldsframkvæmdir að upphæð 2.691.664 kr. á síðasta ári. Veigamest var þar málun laugarkarsins ásamt öðru viðhaldi á lagnakerfi og laugarkari sundlaugarinnar.

    Jafnframt var lögð fram rekstruppgjör sundlaugarinnar fyrir árið 2025 og endurskoðuð rekstraráætlun fyrir árið 2026. Á síðasta ári fjölgaði heimsóknum í sundlaugina um 5% en var rekstrarniðurstaða sundlaugarinnar neikvæð um 165þ. kr.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að Sótahnjúkur ehf. skuli fá endurgreiddan kostnað vegna viðhaldsframkvæmda síðasta árs, að upphæð 2.691.664 kr. í samræmi við samning Skagafjarðar og Sótahnjúks ehf. um rekstur sundlaugarinnar á Sólgörðum.
    Bókun fundar Afgreiðsla 184. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 184 Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 27/2026, "Könnun um einföldun regluverks um verkefni sveitarfélaga".

    Umsagnarfrestur er til og með 10.03.2026.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að könnunin verði send á kjörna fulltrúa og hver og einn fulltrúi skili inn sínum ábendingum.
    Bókun fundar Afgreiðsla 184. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 184 Lagt fram til kynningar yfirlit yfir stöðu á innleiðingu tillagna úr skýrslu HLH ehf. um úttekt á stjórnsýslu, rekstri og fjármálum Skagafjarðar. Bókun fundar Afgreiðsla 184. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 184 Lagt fram bréf frá Siglingasambandi Íslands, dagsett 21. febrúar 2026. Í bréfinu er reifuð áskorun frá 53. Siglingaþingi SÍL haldið 21. febrúar 2026 þar sem skorað er á sveitarfélög landsins að leggja aukna og markvissa áherslu á vernd og góða umgengni um strandlengju landsins, tryggja aðgengi almennings að sjónum til útivistar og jafnframt huga sérstaklega að stuðningi við íþróttafélög og starfsemi sem byggir á nýtingu sjávar og strandar. Bókun fundar Afgreiðsla 184. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 184 Máli var vísað frá 42. fundi félagsmála- og tómstundanefndar, þann 26. febrúar sl., þannig bókað:
    "Lögð fram til kynningar álitsgerð send til sveitarfélaga frá félagsmála- og húsnæðisráðuneytinu um álitaefni sem tengjast fjármögnun á og ákvörðunum um þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk.

    Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að vísa til byggðarráðs."
    Bókun fundar Afgreiðsla 184. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 184 Lagður var fram tölvupóstur frá Forsætisráðuneytinu, dagsettur 27. febrúar 2026, þar sem vakin er athygli á ráðstefnu sem ráðuneytið stendur fyrir undir yfirskriftinni Vatnaskil í þjóðlendumálum. Á ráðstefnunni, sem haldin verður fimmtudaginn 12. mars í Safnahúsinu við Hverfisgötu, verður fjallað um málefni þjóðlenda en þau tímamót urðu í desember sl. að óbyggðanefnd kvað upp síðustu úrskurði sína. Nefndin hefur þar með lokið því verkefni sínu sem hófst 1998 að fjalla um mörk þjóðlenda og eignarlanda á landinu öllu. Bókun fundar Afgreiðsla 184. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.

3.Byggðarráð Skagafjarðar - 185

Málsnúmer 2603008FVakta málsnúmer

Fundargerð 185. fundar byggðarráðs frá 12. mars 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 47. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 185 Fyrir liggja drög að samningi milli Sýndarveruleika ehf. og Videosport ehf. um aðkomu hins síðari að rekstri þess fyrrnefnda að Aðalgötu 21a og 21b á Sauðárkróki. Félögin hafa óskað eftir að sveitarfélagið taki afstöðu til samningsdraganna.

    Í inngangsgrein samstarfssamnings milli sveitarfélagsins og Sýndarveruleika dags. 02.03.2018 kemur fram að samstarfið snúi að hönnun og uppsetningu safns um víkingasögu Íslands sem hafi tengingu við Skagafjörð. Muni safnið sérhæfa sig í sýndarveruleikaupplifun með áherslu á söguviðburði úr Skagafirði, sérstaklega, en ekki einskorðaða við Örlygsstaðabardaga. Í samningnum er gert ráð fyrir að veitingasala verði rekin í húsinu af hálfu Sýndarveruleika ehf.

    Samkvæmt 8. gr. samstarfssamningsins má hvorugur samningsaðila "framselja nein réttindi eða skyldur samkvæmt samningnum eða þeim skjölum sem vísað er til í honum". Í 2. gr. samstarfssamningsins kemur fram að gerður verði leigusamningur milli félagsins og sveitarfélagsins til 30 ára um húsnæði undir starfsemina sem verði endurgjaldslaust fyrstu 15 árin en með 50% afslætti síðari 15 árin undir starfsemi félagsins. Kemur fram í greininni að réttindi og skyldur skv. leigusamningnum séu óframseljanleg og óheimil án skriflegs samþykkis leigusala. Í húsaleigusamningi milli sveitarfélagsins og Sýndarveruleika ehf., um Aðalgötu 21a og 21b, sem sveitarfélagið undirritaði 29.03.2019, er þetta áréttað og kveðið á um að framsalsbannið gildi fyrir báða aðila.

    Samkvæmt bókun B við samstarfssamninginn sem undirrituð var hinn 20.12.2018 er gert ráð fyrir að starfsmenn sveitarfélagsins í umræddu húsi hafi það hlutverk að miðla upplýsingum um Skagafjörð til ferðamanna en jafnframt skulu þeir vinna við sölu- og upplýsingatengda þjónustu tengda starfsemi Sýndarveruleika í framangreindu húsnæði og ferðamennsku á svæðinu.

    Byggðarráð bendir á að hinn sérstaki tilgangur með samstarfi við Sýndarveruleika ehf., þar sem nýta skyldi nýsköpun við að koma ferðamannaiðnaði í sveitarfélaginu til vænlegri vegar, geti réttlætt að Sýndarveruleika ehf. séu færð þau réttindi og skyldur sem mælt er fyrir um í framangreindum samningum. Þær framsalstakmarkanir sem um þetta gilda eru því mikilvægar til þess að koma í veg fyrir að slík réttindi og skyldur, einkum réttindi, séu veitt aðila sem ekki ber slíka höfuðábyrgð á umræddu verkefni og Sýndarveruleiki gerir. Það er samhljóða álit byggðarráðs að framangreind samningsdrög, sem ekki eru undirrituð, geri ráð fyrir framsali sem fari í bága við ákvæði umræddra samninga og hafnar samhljóða að veita samþykki sitt fyrir þeim.

    Einnig bendir byggðarráð á að engin trygging sé fyrir því að í umræddu skjali sem er óundirritað feli í raun í sér samkomulag milli aðilanna.
    Bókun fundar Afgreiðsla 185. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 185 Fyrir byggðarráði liggja gögn varðandi fyrirhugaða stækkun landsins Hofsósland 23, landnr. 240949. Landið Hofsósland 23, landnr. 240949, í Skagafirði er við vegamót Siglufjarðarvegar (76) og Deildardalsvegar (781) og teygir sig til austurs, norðan með Grafará að landamerkjum Hofsóss, landnr. 218098, og Nýlendis, landnr. 146573. Aðkoma er af Deildardalsvegi. Um er að ræða stækkun landeignarinnar til suðurs að landamerkjum Hofsóss, landnr. 218098, og Grafargerðis, landnr. 146527, í Grafará. Stofnuð verður millispildan, Hofsósland 23 millispilda sem verður sameinuð Hofsóslandi 23 undir landnúmerinu 240949.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að skipt verði út úr landi Hofsóss L218098, landspildu sem skilgreind er í framlagðri merkjalýsingu og á uppdráttum sem gerður hefur verið af Stoð ehf, verkfræðistofu. „56100506 Hofsósland 23 merkjalýsing“ „ 56100506AFST Hofsósland 23 millispilda S01“ „ 56100506AFST Hofsósland 23 stækkun S02“ Gögn dagsett 9. mars 2026.
    Landið það sem um ræðir er 1,68 ha eða 16.811,7 m² spilda sunnan Hofsósland 23 L240949 austan Siglufjarðarvegar vestan Nýlendis L146576, að sunnan liggja merkin um Grafarár að merkjum Grafargerðis L146527. Eftir stofnun landsins Hofsósland 23 millispilda verður það sameinuð landinu Hofsósland 23 L240949. Engin mannvirki eru skráð innan útskiptrar spildu. Hlunnindi í Grafará sbr. merkjalýsingu fylgja landskiptum þessum. Hofsós, landnr 218098, er ekki skráð lögbýli skv. lögbýlaskrá.

    Byggðarráð samþykkir jafnframt samhljóða að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram.
    Bókun fundar Afgreiðsla 185. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 185 Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 499. mál, Varnir gegn sjóflóðum og skriðuföllum og Vegagerðin, framkvæmdastofnun samgöngumála (markmið nýting eigna, framkvæmdaumsjón). Frestur til að senda inn umsögn er til og með 19. mars nk.

    Byggðarráð Skagafjarðar fagnar áformum um aukinn skýrleika í lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum. Það er jákvæð breyting að til standi að hækka kostnaðarhlutfall Ofanflóðasjóðs vegna undirbúnings og framkvæmda við varnarvirki sem og vegna kaupa á eignum eða eignarnáms. Jafnframt er nauðsynlegt skref í eftirfylgni við almannavarnir að lögreglustjóri fái heimild til að leggja sektir á einstaklinga og beita valdi til að rýma eignir á hættusvæði, verði brotið gegn banni um að dvelja í eða á eignum á hættusvæði, sem keyptar hafa verið eða teknar eignarnámi í samræmi við 11. gr. laganna, á tímabilinu 1. nóvember til 30. apríl. Byggðarráð bendir á að athuga þarf ábyrgð á eftirliti, skv. tillögu um nýjan 2. málslið 3. mgr. 3. gr. Þar er lagt til að aðilar sem oft skortir faglega þekkingu verði látnir bera ábyrgð á eftirliti með snjóflóðahættu. Þarna getur freistnihætta verið mikil, að gera lítið úr hættu. Orðalagið „annarri starfsemi“ sýnist ónákvæmt og virðist t.d. geta náð til skóla og heilbrigðisstofnana í dreifbýli. Byggðarráð bendir einnig á að í 4. gr. verði mælt fyrir um skyldu ráðherra til þess að taka afstöðu til skipunar hættumatsnefndar innan tveggja vikna. Hafni hann skipun nefndarinnar skuli málefnalegur rökstuðningur óvilhalls aðila, sem ekki skal vera Veðurstofa Íslands, fylgja ákvörðun ráðherra, sem tekin skal eftir tilhlýðilegt samráð við sveitarstjórn. Skal vera unnt að kæra ákvörðun ráðherra til Úrskurðanefndar umhverfis- og auðlindamála innan nánar tiltekins frests. Lagt er til að í niðurlagsákvæði 9. gr. komi ákvæði um að ráðherra skuli við ákvarðanatöku skv. þessum lögum gæta í hvívetna að samræmi og afgreiða lík tilvik með líkum hætti. Heppilegt væri að mælt skuli fyrir um í lögunum hvernig birta skuli fjárhagsáætlun Ofanflóðasjóðs. Jafnframt að tekið skuli fram að ofanflóðagjald skuli einvörðungu vera til ráðstöfunar í þágu verkefna skv. ofanflóðalögum. Jafnframt væri heppilegra að annar málsl. 1. tölul. 3. mgr. 12. gr. orðist í þessa veru: Framkvæmdaáætlun skal miðast við markmið reglugerðar um hættumat vegna ofanflóða og flokkun og nýtingu hættusvæða, og skal í henni gert ráð fyrir tilfallandi uppkaupum og flutningi eigna skv. 11. gr.
    Bókun fundar Afgreiðsla 185. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 185 Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 505. mál, Sveitarstjórnarlög. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 20. mars nk.

    Byggðarráð Skagafjarðar fagnar frumvarpi til sveitarstjórnarlaga og mörgum þeirra breytinga sem þar er verið að leggja til að lögfesta en áréttar eftirfarandi:

    Skýra þyrfti betur heimild ráðherra í fjármálakafla frumvarpsins, til að undanskilja tilteknar skuldir eða skuldbindingar þannig að þær hafi engin eða aðeins hlutfallsleg áhrif við útreikning á skuldaviðmiði og jafnvægisreglu.
    Byggðasamlög og félög með ótakmarkaða ábyrgð sveitarfélaga, þar á meðal eignarhlutir í landshlutasamtökum, verði færð úr B-hluta í C-hluta reikningsskila. Í frumvarpinu er C-hluti skilgreindur sem félög með takmarkaða ábyrgð sem starfa á markaði, en sú skilgreining útilokar félög sem bera ótakmarkaða ábyrgð aðildarsveitarfélaga. Byggðarráð telur mikilvægt að þessi félög falli utan A- og B-hluta, þar sem núverandi flokkun í B-hluta skekkir ársreikning sveitarfélagsins. Þetta hefur áhrif á lykiltölur eins og handbært fé og veltufjármuni, og gefur ranga mynd af fjárhagslegri getu sveitarfélagsins til skuldasöfnunar og framkvæmda. Þrátt fyrir að þessi félög séu að mestu sjálfbær og rekin sjálfstætt, eru skuldbindingar þeirra teknar með í reikninginn, sem getur takmarkað fjárhagslegt svigrúm Skagafjarðar.
    Lækkun þröskulds fyrir skyldu til að framkvæma mat á áhrifum fjárfestinga, lántöku og ábyrgða úr 20% í 10% af skatttekjum er ansi bratt. Þó markmiðið um vandað mat sé í sjálfu sér jákvætt. Viðvörunarskylda við 10% mörkum þýðir að mun fleiri verkefni falla undir áhrifamat, sem getur leitt til aukins kostnaðar vegna aðkeyptrar sérfræðiþjónustu og aukins vinnuálags innan stjórnsýslunnar. Byggðarráð Skagafjarðar hvetur til þess að þröskuldurinn verði endurskoðaður með hliðsjón af raunhæfu svigrúmi sveitarfélaga til að sinna lögbundnum verkefnum án óhóflegs kostnaðar og flækjustigs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 185. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 185 Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 56/2026, "Flýting uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks". Umsagnarfrestur er til og með 26.03. 2026.

    Markmið frumvarpsins er að stytta afgreiðslutíma og auka fyrirsjáanleika við uppbyggingu raforkuinnviða. Þetta verður m.a. gert með því að tryggja að ágreiningur um bótafjárhæð eða lögmæti eignarnáms verði ekki sjálfkrafa til þess að fresta nauðsynlegum framkvæmdum, að því gefnu að réttindi landeigenda séu tryggð með fullnægjandi hætti. Áformað er að breyta raforkulögum á þann veg að heimildir sérleyfisfyrirtækja (Landsnets og dreifiveitna) verði samræmdar heimildum fjarskiptafyrirtækja samkvæmt lögum um fjarskipti, sem kveður á um að landeiganda sé skylt að þola lagningu flutningsvirkja og mannvirkja ef nauðsyn krefur, gegn fullum bótum fyrir sannanlegt tjón. Áformin snerta 72. gr. stjórnarskrárinnar um friðhelgi eignarréttar. Skilyrði eignarnáms um almenningsþörf og fullt verð haldast óbreytt.

    Byggðarráð Skagafjarðar tekur undir markmið um einföldun stjórnsýslu og regluverks en áform um skilvirkari málsmeðferð innviðaframkvæmda á borð við flutningskerfi raforku voru í stjórnarsáttmála fyrri ríkisstjórnar, líkt og þeirrar núverandi. Byggðarráð bendir eigi að síður á að friðhelgi eignarréttar er tryggður í stjórnarskrá Íslands og því þarf að vanda virkilega vel til mögulegra breytinga á lögum hvað þetta varðar. Tryggja þarf að hvati orkufyrirtækja til samráðs og samninga haldist og að eignarréttarákvæði stjórnarskrár verði ekki ógnað.
    Bókun fundar Afgreiðsla 185. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með sjö atkvæðum. Álfhildur Leifsdóttir og Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir, fulltrúar VG og óháðra sitja hjá við afgreiðslu málsins.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 185 Lögð fram til kynningar tilkynning frá forstjóra Heilbrigðisstofnunar Norðurlands um ákvörðun um að hætta varanlega með læknamóttöku á Hofsósi en ekki hefur verið þar móttaka síðan í apríl 2025. Ákvörðunin byggir á nokkrum meginástæðum, m.a. þeim, að þeir sem koma í viðtöl í móttökunni á Hofsósi þurfi oftar en ekki að koma hvort eð er á Sauðárkrók fyrir apótek, röntgen, blóðprufur o.s.frv. og því hægt að koma öllu slíku fyrir í sömu ferð, að hægt sé að veita betri þjónustu komi einstaklingar á Sauðárkrók, að erfitt sé að senda sérfræðing frá Sauðárkróki þegar færri læknar eru þar við störf, að núverandi húsnæði á Hofsósi sé ófullnægjandi, að HSN er rekið með halla og stöðugt þurfi að rýna í starfsemina af þeim sökum.

    Byggðarráð Skagafjarðar harmar að til þessarar ákvörðunar HSN þurfi að koma og felur sveitarstjóra að senda bréf til forstjóra HSN og heilbrigðisráðherra til að mótmæla ákvörðuninni og ónægum fjárveitingum til HSN.
    Bókun fundar Afgreiðsla 185. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.

    Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að gera bókun byggðarráðs á fundinum að bókun sveitarstjórnar. Bókunin verður þá svohljóðandi:
    "Sveitarstjórn Skagafjarðar harmar að til þessarar ákvörðunar HSN þurfi að koma og felur sveitarstjóra að senda bréf til forstjóra HSN og heilbrigðisráðherra til að mótmæla ákvörðuninni og ónægum fjárveitingum til HSN."
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 185 Lagt fram til kynningar ódagsett bréf frá framkvæmdastjóra Lánasjóðs sveitarfélaga, þar sem boðað er til aðalfundar sjóðsins föstudaginn 20. mars nk. Jafnframt er dagskrá aðalfundar kynnt í bréfinu. Sveitarstjórnarfulltrúar eiga rétt á að sækja aðalfundinn en sveitarstjóri er sjálfkrafa handhafi atkvæðisréttar sveitarfélagsins. Bókun fundar Afgreiðsla 185. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.

4.Byggðarráð Skagafjarðar - 186

Málsnúmer 2603012FVakta málsnúmer

Fundargerð 186. fundar byggðarráðs frá 19. mars 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 47. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 186 Kristján Jónasson endurskoðandi frá KPMG sat fundinn undir þessum lið og lagði fram ársreikning Skagafjarðar 2025. Öllum kjörnum sveitarstjórnarfulltrúum, sem ekki sitja í byggðarráði, var boðið að vera viðstödd kynningu hans. Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir og Sveinn Þ. Finster Úlfarsson sátu fundinn undir þessum dagskrárlið auk Hrund Pétursdóttur sem tók þátt í fundinum í gegnum fjarfundarbúnað.

    Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu 2025 námu 10.261 millj. kr. samkvæmt samanteknum ársreikningi fyrir A- og B-hluta, þar af námu rekstrartekjur A-hluta 8.719 millj. kr. Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum ársreikningi A- og B-hluta var jákvæð um 588 millj. kr., þar af jákvæð í A-hluta um 222 millj. kr. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2025 nam 6.116 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi, en eigið fé A-hluta nam 3.405 millj. kr.
    Byggðarráð samþykkir samhljóða að vísa ársreikningnum til fyrri umræðu í sveitarstjórn.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, ársreikningur 2025, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 186 Lögð fram skýrsla KPMG frá 11. mars 2026 þar sem farið er yfir niðurstöður stjórnsýsluskoðunar hjá sveitarfélaginu vegna ársins 2025. Bókun fundar Afgreiðsla 186. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 186 Guðlaugur Skúlason vék af fundi undir þessum lið og í hans stað mætti Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir til fundarins.

    Undir þessum dagskrárlið mættu fulltrúar frá aðalstjórn og skíðadeild Tindastóls, þau Magnús Barðdal Reynisson, Helga Daníelsdóttir og Stefán Árnason, vegna uppsagnar skíðadeildar Tindastóls á rekstrarsamningi við sveitarfélagið vegna Skíðasvæðis í Tindastóli.

    Umræður teknar um stöðu mála og farið yfir álitamál. Aðalstjórn Tindastóls mun vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins og kemur í kjölfarið aftur á fund byggðarráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 186. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 186 Fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 186. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 186 Lögð fram yfirlýsing frá fundi íbúa og velunnara Hóla í Hjaltadal og Háskólans á Hólum sem haldinn var 11. mars sl. Í yfirlýsingunni eru settar fram nokkrar kröfur, m.a. þá að ríkið, Háskólinn á Hólum og sveitarfélagið Skagafjörður vinni í sameiningu, með íbúum, að því að umhverfi Hólastaðar komist til þess vegs og virðingar sem sómi er að.

    Byggðarráð Skagafjarðar samþykkir samhljóða eftirfarandi bókun:

    Byggðarráð Skagafjarðar þakkar fyrir senda yfirlýsingu frá fundi íbúa og velunnara Hóla í Hjaltadal.

    Byggðarráð og sveitarstjórn Skagafjarðar hafa alla tíð stutt við uppbyggingu og starfsemi Háskólansá Hólum og viljað að Hólastaður væri sem glæsilegastur og að skólanum vegnaði sem best. Frá stofnun sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur verið í gangi samtal við ríkisvaldið um áhersluverkefni stjórnenda hverju sinni og um framtíðarsýn á þróun staðarins. Margt hefur áorkast í gegnum tíðina en vissulega mætti margt hafa gengið hraðar í þessum samskiptum. Fyrir utan að styðja beina uppbyggingu skólans hefur áhersla sveitarfélagsins verið á að skýra hlutverk hvors aðila, en þess ber að geta að Hólar í Hjaltadal eru ríkisjörð og ríkið því eigandi gatna og lóða á staðnum og innheimtir t.a.m. lóðarleigu sem slíkur. Hefur sveitarfélagið lagt til þrjár leiðir í þessum efnum, þ.e. 1) að ríkið sjái áfram um þá umhirðu svæðisins sem Háskólinn á Hólum sinnti áður, 2) að ríkið geri samning við sveitarfélagið Skagafjörð um ýmsa þjónustu sem veita þarf íbúum, 3) að kannaðir verði möguleikar þess að sveitarfélagið Skagafjörður yfirtaki með öllu eignarhald, umsjón og þjónustu þéttbýlis á Hólum að undangenginni fjármögnun ríkisins á lagfæringum og endurgerð fráveitukerfis fyrir svæðið. Standa vonir til að niðurstaða fáist í þessi mál á næstu vikum.

    Þá hefur ríkið sjálft haft uppi hugmyndir um framkvæmdir af hálfu þess og annarra aðila, bæði heima á Hólum og einnig Sauðárkróki. Má þar nefna kaup á Brúnastöðum, uppbyggingu kennsluaðstöðu fyrir hestafræðideild og ferðamáladeild á svæði hestafræðideildar á Hólum, uppbyggingu lagareldishúsnæðis á Sauðárkróki og uppbyggingu kennsluaðstöðu fyrir fiskeldis- og fiskalíffræðideild og ferðamáladeild á Sauðárkróki, ásamt hugmyndum um stofnun Hólastofu um þjóðmenningarstaðinn Hóla í Hjaltadal. Hvað varðar aðalbyggingu Háskólans á Hólum, þá hefur sveitarfélagið Skagafjörður lagt áherslu á að sú bygging verði gerð upp enda hefur hún mikið menningarsögulegt gildi fyrir svæðið í heild sinni. Nauðsynlegt er að aðalbygging og aðrar svipmiklar byggingar á Hólum verði staðarprýði í stað þess að verða niðurníðslu að bráð.

    Í öllum samtölum sem sveitarstjórn hefur átt við þingmenn og ráðherra um þessa uppbyggingu hafa þeir verið hvattir til dáða og margoft verið skorað á ráðherra og ríkisstjórnir að hraða þessum framkvæmdum og tryggja þannig uppbyggingu Háskólans á Hólum og Hólastaðar.

    Það er því gleðilegt að nú skuli stefna í útboð á nýju lagereldishúsi sem staðsett verður á Sauðárkróki. Einnig að nýlega hafi byrjað nám í járningum og hófhirðu, sem kennt er á Hólum. Með nýrri háskólasamstæðu Háskóla Íslands bindur byggðarráð vonir til að unnt sé að koma upp fleiri námsleiðum á Hólum og Sauðákróki og einnig að heimild til að skipuleggja doktorsnám og brautskrá doktora við aðildarháskólann á Hólum verði að veruleika. Þá er mikið fagnaðarefni að höfuðstöðvar Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands flytjist í Skagafjörð.

    Byggðarráð styður einnig allar hugmyndir um eflingu á starfsemi Þjóðkirkjunnar á Hólum með fjölgun stöðugilda og að embætti vígslubiskups Hólastiftis verði þar áfram sem og önnur starfsemi sem ríkið myndi vilja byggja þar upp.

    Byggðarráð Skagafjarðar lýsir sig reiðubúið til áframhaldandi samtals við forsvarsmenn Háskólans á Hólum og ríkisins um uppbyggingu og framtíð Háskólans á Hólum og Hólastaðar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 186. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 186 Kynnt erindi sem beint var til sveitarfélagsins í september 2025. Meðfylgjandi erindinu eru upplýsingar frá kirkjugarðsstjórn Hofskirkjugarðs vegna endurbóta á girðingu við Hofskirkjugarð. Er óskað eftir að Skagafjörður styrki efniskostnað endurnýjunar girðingar og hliðgrindar við vestur- og norðvesturhlið Hofskirkjugarðs, að upphæð kr. 3.794.000,- í samræmi við kostnaðaráætlun og teikningar sem fylgja með erindinu. Landeigandi hyggst sinna umsjón og viðhaldi girðingar á suður-, austur- og norðausturhlið garðsins í samræmi við samkomulag á milli hans og kirkjugarðsstjórnar Hofskirkjugarðs, dagsett 14.02. 2026, sem einnig fylgir með erindinu.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða greiðslu efniskostnaðar í samræmi við fyrirlagt erindi að upphæð kr. 3.794.000, enda samræmist það viðmiðunarreglum Kirkjugarðaráðs og Sambands íslenskra sveitarfélaga um kirkjugarðsstæði og fleira.
    Bókun fundar Afgreiðsla 186. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 186 Fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 186. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 186 Lagt fram til kynningar fundarboð á aðalfund Norðurár bs. sem haldinn verður mánudaginn 23. mars 2026 kl 13:30 í menningarhúsinu Miðgarði Skagafirði. Sveitarstjóri er sjálfkrafa handhafi atkvæðisréttar sveitarfélagsins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 186. fundar byggðarráðs var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.

5.Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 44

Málsnúmer 2603003FVakta málsnúmer

Fundargerð 44. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar frá 12. mars 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 47. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 44 Starfsmaður nefndarinnar fer yfir þau mál sem eru á döfinni frá síðasta fundi.

    Skýrslan er flutt munnlega og til kynningar.

    Nefndin þakkar fyrir yfirferðina.
    Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 44 Sveitarfélagið auglýsti í janúar sl. eftir umsóknum frá aðilum sem vildu taka að sér rekstur félagsheimilisins Ljósheima. Umsóknarfresturinn rann út 27. febrúar sl. og alls barst inn ein umsókn.

    Framlögð umsókn um rekstur félagsheimilisins Ljósheima.

    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að fela starfsmönnum nefndarinnar að ganga til samninga við Videosport ehf.

    Forsendur samningsins eru þær sömu og þegar gengið var til samninga við félagsheimilin Hegranes og Skagasel.
    Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • 5.3 2602201 Víkingurinn 2026
    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 44 Framlagt erindi dags. 23. febrúar 2026 frá Magnúsi Ver Magnússyni þar sem óskað er eftir styrkveitingu vegna Víkingurinn - keppni um sterkustu menn landsins.

    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þakka fyrir erindið og samþykkir samhljóða að styrkja verkefnið, ef keppnin verður haldin í Skagafirði, um gistingu fyrir þátttakendur og starfsfólk Víkings ásamt einni máltið.
    Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • 5.4 2602004 Skúnaskrall 2026
    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 44 Skúnaskrall er barnamenningarhátíð á Norðurlandi vestra sem fram fer dagana 21. október til 4. nóvember 2026.

    Umræður um þátttöku sveitarfélagsins á hátíðinni.

    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd fagnar því að það sé verið að endurvekja þessa frábæru hátíð og samþykkir samhljóða að sveitarfélagið taki þátt í skipulagningu og framkvæmd þess sem hluti af stýrihópi SSNV.
    Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 44 Lagður fram til kynningar ársreikningur frá félagsheimilinu Héðinsminni. Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.

6.Félagsmála- og tómstundanefnd - 42

Málsnúmer 2602026FVakta málsnúmer

Fundargerð 42. fundar félagsmála- og tómstundanefndar frá 26. febrúar 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 47. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 42 Á 39. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 27. október 2025, var leiðtoga frístunda- og íþróttamála falið að taka saman aðsóknartölur sundlauganna á meðan að skólasund er kennt, þar sem kannað verði hvaða áhrif það hefði á þjónustuna að loka lauginni á meðan á sundkennslu stendur. Minnisblað með upplýsingum um umfang og tímatöflur sundkennslu og leiðir til að tryggja öryggi lagt fyrir nefndina.

    Félagsmála- og tómstundanefnd felur starfsfólki nefndarinnar að tryggja mönnun í klefagæslu á meðan á skólasundi stendur út skólaárið 2025-2026. Sviðsstjóra er falið að vinna að skipulagi næsta skólaárs í samráði við skólastjórnendur og leiðtoga frístunda- og íþróttamála með það að markmiði að tryggja öryggi sundlaugargesta. Ef ekki er hægt að tryggja viðbótarmönnun fram að vori samþykkir félagsmála- og tómstundanefnd að útfærðar verði takmarkanir á opnunartíma fyrir almenning á þeim tíma sem ekki er hægt að tryggja laugargæslu vegna klefagæslu. Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Afgreiðsla 42. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • 6.2 2510148 Hvatapeningar 2026
    Félagsmála- og tómstundanefnd - 42 Á 39. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 27. október 2025 var fjallað um hvatapeninga fyrir árið 2026 og samþykkt hækkun á almennum hvatapeningum. Jafnframt var lagt til að starfsfólk nefndarinnar myndi taka saman upplýsingar og kostnaðarmeta tillögu um tekjutengdar viðbótargreiðslu hvatapeninga.

    Lagt er til að notuð verði sömu tekjuviðmið og eru fyrir viðbótarniðurgreiðslum í leikskólum og frístund. Einstaklingar sem falla undir hærra tekjuviðmiðið geta sótt um viðbótargreiðslur hvatapeninga að upphæð 20.000 kr. á ári. Starfsfólki nefndarinnar falið að útbúa reglur um viðbótargreiðslu hvatapeninga og leggja fyrir nefndina á næsta fundi. Um er að ræða tímabundið verkefni sem verður endurskoðað að tveimur árum liðnum. Samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
    Bókun fundar Afgreiðsla 42. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 42 Fulltrúar Vg og Óháð ásamt Byggðalisti leggja fram eftirfarandi tillögu:
    Félagsmála- og tómstundanefndar samþykkir samhljóða að núverandi aldurstakmark úthlutunar hvatapeninga verði endurskoðað í gerð fjárhagsáætlunar ársins 2027 og fært úr 5-18 ára í 0-18 ára.
    Greinagerð:
    Samkvæmt meirihluta sáttmála sitjandi meirihluta var áætlan að tryggja að ÖLL börn í sveitarfélaginu eigi þess kost að stunda íþróttir og tómstundir. Sveitarfélagið Skagafjörður er aðili að verkefninu Heilsueflandi samfélag og samkvæmt meirihluta sáttmála var ætlunin að verða aðili að verkefninu Barnvænt sveitarfélag. Því ættum við að stuðla að jöfnuði og samveru fjölskyldunnar í íþrótta- og tómstundastarfi, óháð aldri og fjárhag og breyta núverandi aldurstakmarki.

    Fulltrúar meirihlutans óska bókað: Samvistir foreldra og barna, þar sem truflandi áreitum úr umhverfinu er haldið í lágmarki, eru börnum mjög mikilvægar. Sérstaklega er það mikilvægt fyrir börn sem eru stóran hluta dagsins í leikskóla þar sem áreiti úr umhverfinu er mikið. Þegar börn eldast breytast samverustundirnar en þær halda áfram að vera mikilvægar. Þá skiptir meira máli að foreldrar taki virkan þátt í tómstundastarfi og íþróttaiðkun barna sinna ásamt því að eiga rólegar samverustundir.

    Í núverandi reglum um hvatapeninga eiga foreldrar rétt á því að sækja um hvatapeninga fyrir börn sín frá 1. janúar þess árs sem börn ná 5 ára aldri. Fulltrúar meirihlutans telja það ekki börnum fyrir bestu að hvetja til þess að auka álag og áreiti á börn frá 0 ára aldri.

    Tillagan er felld með tveimur atkvæðum meirihlutans.

    Fulltrúar Vg og óháð og Byggðalista óska bókað: Við undrum okkur á því að meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokks velji að fylgja ekki eftir orðum sínum og stefnum, hvað þá gangi gegn orðum sínum og stefnum. Okkur þykir því sorglegt að meirihluti telji að 0-5 ára börn teljist ekki til barna í sveitarfélaginu Skagafirði og telji tómstunda iðkun barna yngri en 5 ára valda þeim óþarfa áreiti og streitu eins og til dæmis samvera foreldra og barns á sund- og eða reiðnámskeiði. Mikilvægt er að greiða leiðir foreldra til að leggja grunn að heilsueflandi lífstíl barna sinna frá unga aldri.
    Með því að samþykkja tillögu fulltrúa Vg og Óháð ásamt Byggðalista hefði meirihlutinn geta stutt við barnafjölskyldur í sveitarfélaginu og jafnað aðgengi allra barna að tómstundum í Skagafirði.
    Bókun fundar Afgreiðsla 42. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.

    Fulltrúar VG og óháðra ásamt fulltrúum Byggðalista ítreka bókun sína frá fundinum, svohljóðandi:
    "Við undrum okkur á því að meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokks velji að fylgja ekki eftir orðum sínum og stefnum, hvað þá gangi gegn orðum sínum og stefnum. Okkur þykir því sorglegt að meirihluti telji að 0-5 ára börn teljist ekki til barna í sveitarfélaginu Skagafirði og telji tómstunda iðkun barna yngri en 5 ára valda þeim óþarfa áreiti og streitu eins og til dæmis samvera foreldra og barns á sund- og eða reiðnámskeiði. Mikilvægt er að greiða leiðir foreldra til að leggja grunn að heilsueflandi lífstíl barna sinna frá unga aldri.
    Með því að samþykkja tillögu fulltrúa Vg og Óháð ásamt Byggðalista hefði meirihlutinn geta stutt við barnafjölskyldur í sveitarfélaginu og jafnað aðgengi allra barna að tómstundum í Skagafirði."

    Fulltrúar meirihluta ítreka bókun sína frá fundinum, svohljóðandi:
    "Samvistir foreldra og barna, þar sem truflandi áreitum úr umhverfinu er haldið í lágmarki, eru börnum mjög mikilvægar. Sérstaklega er það mikilvægt fyrir börn sem eru stóran hluta dagsins í leikskóla þar sem áreiti úr umhverfinu er mikið. Þegar börn eldast breytast samverustundirnar en þær halda áfram að vera mikilvægar. Þá skiptir meira máli að foreldrar taki virkan þátt í tómstundastarfi og íþróttaiðkun barna sinna ásamt því að eiga rólegar samverustundir.

    Í núverandi reglum um hvatapeninga eiga foreldrar rétt á því að sækja um hvatapeninga fyrir börn sín frá 1. janúar þess árs sem börn ná 5 ára aldri. Fulltrúar meirihlutans telja það ekki börnum fyrir bestu að hvetja til þess að auka álag og áreiti á börn frá 0 ára aldri."
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 42 Lögð fram til kynningar álitsgerð send til sveitarfélaga frá félagsmála- og húsnæðisráðuneytinu um álitaefni sem tengjast fjármögnun á og ákvörðunum um þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk.

    Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að vísa til byggðarráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 42. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 42 Eitt mál tekið fyrir og fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 42. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.

7.Fræðslunefnd - 46

Málsnúmer 2603013FVakta málsnúmer

Fundargerð 46. fundar fræðslunefndar frá 19. mars 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 47. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Fræðslunefnd - 46 Lagður fram tölvupóstur dags. 16. febrúar 2026 þar sem Heilbrigðisráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 44/2026, „Drög að reglugerð um skólaheilsugæslu“. Umsagnarfrestur var til og með 2. mars 2026. Með nýrri reglugerð verður sett fram skýr skilgreining á fyrirkomulagi skólaheilsugæslu, þeirri þjónustu sem í henni felst og hvernig henni skuli háttað. Bókun fundar Afgreiðsla 46. fundar fræðslunefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 46 Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnti samstarfsverkefni fjögurra sveitarfélaga sem hafa verið að skoða að þróa með sér samrýnt mönnunarlíkan fyrir grunnskóla. Það er mikill hagur af því að geta unnið líkan fyrir grunnskóla í samstarfi við sveitarfélög sem eru með álíka skólastærðir og skólagerðir. Samstarfið stendur yfir frá janúar 2026 til byrjun apríl 2026 og ef það gengur vel eru væntingar um að samstarfið haldi áfram næstu árin. Bókun fundar Afgreiðsla 46. fundar fræðslunefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 46 Könnun var send rafrænt á foreldra leikskólabarna í Skagafirði með það að markmiði að ná fram viðhorfi þeirra til nýs fyrirkomulags skráningardaga og breyttrar gjaldskrár. Alls bárust 93 svör. Niðurstöður benda til þess að töluverður hluti foreldra telji að nýtt fyrirkomulag skráningardaga og breytt gjaldskrá í leikskólum Skagafjarðar sé töluverð áskorun. Kerfið hentar illa foreldrum í fullri vinnu, einstæðum foreldrum og þeim sem hafa takmarkað svigrúm til að vera heima með börn á skráningardögum. Einnig lýsa margir foreldrar því að breytingarnar hafi haft í för með sér aukið álag og kostnað þrátt fyrir að markmiðið hafi verið að stuðla að sparnaði. Þá hafa foreldrar áhyggjur af því að börn séu stundum án vina sinna í leikskólanum á skráningardögum. Jafnframt kemur fram að upplýsingagjöf um breytingarnar hafi almennt verið talin góð. Helstu ábendingar foreldra snúa að framkvæmd kerfisins, sveigjanleika og fjölda skráningardaga. Meðal tillagna sem fram komu voru aukinn sveigjanleiki, fækkun skráningardaga og endurskoðun á gjaldtöku.

    Önnur könnun var send á starfsfólk leikskóla í Skagafirði til að kanna viðhorf þeirra til breytinganna. Könnunin var send á rúmlega 100 starfsmenn og bárust 26 svör. Sökum þess hve lágt svarhlutfallið reyndist skal líta á niðurstöðurnar sem vísbendingu um viðhorf starfsfólks. Niðurstöður sýna að skoðanir starfsfólks eru skiptar varðandi áhrif breytinga á gjaldskrá og skráningardaga. Um 46% starfsmanna telja álag hafa minnkað, á meðan 23% eru því ósammála, og stór hópur tekur ekki afstöðu með eða á móti. Ánægja með breytingarnar mælist þó nokkur, en 54% segjast ánægð eða mjög ánægð, á meðan 42% eru hlutlaus. Þegar litið er til áhrifa á faglegt starf benda niðurstöður til þess að starfsfólk sjái þar bæði tækifæri og áskoranir, og mat á svigrúmi til undirbúnings er nokkuð mismunandi. Skráningardagar virðast helst kalla á frekari endurskoðun meðal annars vegna þess að barnahópar eru stundum fámennir og starfsfólk upplifir auknar tilfærslur á milli deilda. Á sama tíma kemur fram jákvæð reynsla á sumum starfsstöðvum, þar sem starfsandi og vinnuumhverfi hafa batnað.

    Fræðslunefnd samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra að rýna niðurstöður könnunar með skólastjórnendum. Skráningardagar verða endurskoðaðir að teknu tilliti til 4 ?5 vikna sumarlokana og verða breytingar kynntar vel fyrir foreldrum og starfsfólki þegar þær liggja fyrir.
    Bókun fundar Afgreiðsla 46. fundar fræðslunefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.

8.Landbúnaðar- og innviðanefnd - 43

Málsnúmer 2603001FVakta málsnúmer

Fundargerð 43. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar frá 5. mars 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 47. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 43 Sviðstjóri veitu- og framkvæmdasviðs fór yfir fyrirliggjandi framkvæmda- og fjárfestingaáætlun fyrir gatnaframkvæmdir og Skagafjarðarveitur fram til ársins 2030.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að sviðstjóri vinni áfram að áætluninni og leggi fyrir nefndina.
    Bókun fundar Afgreiðsla 43. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 43 Pétur Ingi Grétarsson sótti um leyfi til að halda allt að 6 kindur á úthlutaðri lóð á Nöfum. Fjallað var um umsóknina á fundi nefndarinnar þann 13.11.2025 og aftur 22.01.2026. Nú hefur borist tölvupóstur frá Pétri þar sem áform um byggingu bragga eru kynnt.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að gefa ársfrest til að koma upp viðurkenndri aðstöðu til búfjárhalds á lóðinni. Að því loknu verður gengið frá leigusamningi.
    Sveinn Finster Úlfarsson vék af fundi undir þessum lið.
    Bókun fundar Sveinn Þ. Finster Úlfarsson vék af fundi við afgreiðslu þessa liðar.

    Afgreiðsla 43. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með átta atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 43 Kynnt drög að nýrri fjallskilasamþykkt Skagafjarðar sem er í vinnslu endurskoðunarnefndar. Fyrirhugað er að kynna fyrirliggjandi drög fyrir fjallskilanenfdum sveitarfélagsins á komandi vikum. Bókun fundar Afgreiðsla 43. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 43 Til kynningar - Þjóðlendur og sveitarfélagsmörk. Bókun fundar Afgreiðsla 43. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.

9.Landbúnaðar- og innviðanefnd - 44

Málsnúmer 2603015FVakta málsnúmer

Fundargerð 44. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar frá 19. mars 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 47. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 44 Landbúnaðar- og innviðanefnd auglýsti Efri Flóa fyrir ofan Hofsós, alls 48 ha. til leigu. Aðeins ein umsókn barst á auglýsingatíma. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að hafna þeirri umsókn. Bókun fundar Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

    Afgreiðsla 44. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með átta atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 44 Einar Einarsson kynnti drög að nýrri fjallskilasamþykkt sem unnin var í nefnd um fjallskilamál og skipuð var á síðasta ári, þar sem sitja fulltrúar bænda, kjörnir fulltrúar og umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi. Jafnframt starfaði Anna Lilja Ragnarsdóttir lögfræðingur með nefndinni. Vinna við uppfærslu Fjallskilasamþykktar Skagafjarðar er nú á lokametrunum, en haldnir hafa verið ellefu fundir í nefndinni. Einnig hefur verið fundað með fulltrúum fjallskiladeildanna og þeim gefinn kostur á að koma sínum ábendingum að.
    Fjallskilasamþykktin er nú til yfirlestrar hjá Bændasamtökum Íslands og verður lögð fyrir til samþykktar þegar hún er tilbúin.
    Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 44 Lögð fram áætlun fyrir refa- og minkaveiðar 2026 ásamt uppfærðri gjaldskrá sem gerir ráð fyrir 5% hækkun.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir áætlunina samhljóða og felur umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa að kynna veiðimönnum niðurstöðuna áður en nýtt veiðitímabil hefst 1. maí.
    Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 44 Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs Deildardals 2025 Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 44 Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs Seyludeildar, framhluta og Lýt.deildar fyrir árið 2025 Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 44 Lagður fram til kynningar ársreikningur Upprekstrarfélags Akrahrepps fyrir árið 2025 Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 44 Lagður fram til kynningar ársreikningur Skefilsstaðahrepps fyrir árið 2025 Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 44 Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs Unadals fyrir árið 2025 Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 44 Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs Hofsafréttar fyrir árið 2025 Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 44 Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs Hrollleifsdals fyrir árið 2025 Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 44 Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs Staðardeildar fyrir árið 2025
    Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 44 Umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi kynnti tilboð sem bárust vegna útboðs veiði í Hjaltadalsá og Kolbeinsdalsá Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 44 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026 lagðar fram til kynningar Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.

10.Skipulagsnefnd - 92

Málsnúmer 2602031FVakta málsnúmer

Fundargerð 92. fundar skipulagsnefndar frá 26. febrúar 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 47. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Skipulagsnefnd - 92 Þann 18.02.2026 birti Skipulagsstofnun viðbrögð á Skipulagsgáttinni varðandi Aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040, mál. nr. 613/2024.
    Þar sem skipulagið er samþykkt og veitir sveitarfélaginu þar með heimild til að skila inn útprentuðum gögnum og í framhaldinu verði skipulagið staðfest með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.
    Bókun fundar Afgreiðsla 92. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 92 Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við skipulagslýsingu fyrir Hofsós - Plássið, Sandurinn, Brekkan og Bakkinn, mál nr. 4/2026 (https://skipulagsgatt.is/issues/2026/4 ) í Skipulagsgáttinni, samráðsgátt Skipulagsstofnunar um skipulagsmál. Skipulagslýsingin var í auglýsingu dagana 07.01.2026- 30.01.2026 og bárust 13 umsagnir.

    Björn Magnús Árnason frá Stoð ehf. verkfræðistofu sat fundinn undir þessum lið.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.
    Bókun fundar Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

    Afgreiðsla 92. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með átta atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 92 Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við skipulagslýsingu fyrir Laufblaðið, Sauðárkróki, íbúðarbyggð og opið svæði, mál nr. 3/2026 (https://skipulagsgatt.is/issues/2026/3 ) í Skipulagsgáttinni, samráðsgátt Skipulagsstofnunar um skipulagsmál. Skipulagslýsingin var í auglýsingu dagana 07.01.2026- 30.01.2026 og bárust 10 umsagnir.

    Björn Magnús Árnason frá Stoð ehf. verkfræðistofu sat fundinn undir þessum lið.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 92. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 92 Farið yfir áherslupunkta, næstu skref varðandi gerð deiliskipulags fyrir tjaldsvæðið við Borgargerði á Sauðárkróki.
    Frumhönnunin sem unnin var af Arnari Birgi Ólafssyni hjá Teiknistofu Norðurlands í tengslum við staðarval tjaldsvæðisins sem fór fram við gerð Aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040.

    Skipulagsnefnd samþykkir með tveimur atkvæðum að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.

    Álfhildur Leifsdóttir fulltrúi VG og óháðra óskar bókað:
    Í ljósi þess að aðstöðuhús verður fært á tjaldsvæði á Nöfum vegna uppbyggingar menningarhúss á Flæðunum, teljum við skynsamlegt að nýta það tækifæri og skipuleggja varanlegt og aðlaðandi tjaldsvæði á Nöfunum. Þar sem þarf að leiða heitt vatn á svæðið og huga að fráveitu og er því hagkvæmt að ganga alla leið og byggja upp metnaðarfulla og skjólgóða framtíðarlausn fremur en bráðabirgðaaðstöðu. Nafirnar eru með frábært útsýni yfir fjörðinn sem býður upp á tækifæri til að skapa eftirsótta upplifun fyrir ferðamenn sem sækja svæðið heim.
    Bókun fundar Afgreiðsla 92. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.

    Fulltrúar VG og óháðra ítreka bókun fulltrúa síns frá fundinum, svohljóðandi:
    "Í ljósi þess að aðstöðuhús verður fært á tjaldsvæði á Nöfum vegna uppbyggingar menningarhúss á Flæðunum, teljum við skynsamlegt að nýta það tækifæri og skipuleggja varanlegt og aðlaðandi tjaldsvæði á Nöfunum. Þar sem þarf að leiða heitt vatn á svæðið og huga að fráveitu og er því hagkvæmt að ganga alla leið og byggja upp metnaðarfulla og skjólgóða framtíðarlausn fremur en bráðabirgðaaðstöðu. Nafirnar eru með frábært útsýni yfir fjörðinn sem býður upp á tækifæri til að skapa eftirsótta upplifun fyrir ferðamenn sem sækja svæðið heim."
  • Skipulagsnefnd - 92 Lögð fram deiliskipulagstillaga fyrir Tumabrekku land 2 L220570 unnin af Ínu Björk Ársælsdóttur á Stoð ehf. verkfræðistofu. Skipulagsuppdráttur nr. DS-01, dags. 08.11.2024, verknr. 7586001. Uppdrátturinn sýnir staðsetningu byggingarreita, lóðamarka, vegtenginga og aðkomu að byggingum, ásamt helstu byggingarskilmálum. Stærð skipulagssvæðisins er 1,58 ha og að mestu mólendi.
    Vegna ábendingar frá Skipulagsstofnun þarf að endurtaka málsmeðferð skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, en þar sem engar breytingar hafa verið gerðar á tillögunni frá fyrri auglýsingu, munu fyrri umsagnir gilda berist ekki fleiri.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagstillöguna Tumabrekka land 2 L220570 í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

    Hildur Hartmannsdóttir víkur af fundi við þennan dagskrálið.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Tumabrekka land 2 L220570 - Deiliskipulag, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 92 Lögð fram deiliskipulagstillaga, Sorpmóttaka og gámalóð, Hofsósi dags. 29.04.2024, uppdráttur nr. DS01, útgáfa 1.0 sem unnin var á Stoð ehf. verkfræðistofu. Skipulagssvæðið er 11.414 m² að stærð á mótum Norðurbrautar að sunnan og Bæjarbrautar að austan. Að vestan afmarkast svæðið af vesturlóðamörkum áhaldahúss sveitarfélagsins. Skipulagsuppdráttur nr. DS-01 sýnir lóðir, aðkomu að lóðum og byggingarreiti á skipulagssvæðinu, ásamt helstu byggingarskilmálum. Á deiliskipulagsuppdrættinum eru sýndar þrjár lóðir á svæðinu, lóð gámageymslusvæðisins, lóð áhaldahússins og lóð sorpmóttökunnar. Starfsemi og umferðarsvæði sem fyrir eru á iðnaðarsvæðinu fá með deiliskipulagstillögunni skilgreindar lóðir, götur og innkeyrslur á lóðir.
    Vegna ábendingar frá Skipulagsstofnun þarf að endurtaka málsmeðferð skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, en þar sem engar breytingar hafa verið gerðar á tillögunni frá fyrri auglýsingu, munu fyrri umsagnir gilda berist ekki fleiri.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagstillöguna Sorpmóttaka og gámalóð, Hofsósi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Hofsós - Sorpmóttaka og gámasvæði - Deiliskipulag, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 92 Lögð fram deiliskipulagstillaga fyrir Skógargötureitinn, íbúðabyggð á Sauðárkróki, uppdráttur nr. DS01, útgáfa 2.0, dags. 04.09.2024 sem unnin var af Birni Magnúsi Árnasyni á Stoð ehf. verkfræðistofu. Einnig lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Gamla bæjarins á Sauðárkróki frá 1987 sem fellir umrætt svæði úr gildi, verknúmer 56291601, uppdráttur nr. DS01, útgáfa 1.0, dags. 04.09.2024.
    Breyting á uppdrætti er að svæði sem afmarkast af Aðalgötu að austan, göngustíg að sunnan, Skógargötu að vestan og göngustíg og bílastæðum við Kaupvangstorg að norðan., skv. gildandi deiliskipulagi. Svæði þetta fellur út í deiliskipulagi gamla bæjarins á Sauðárkróki. Skipulagssvæði gamla bæjarins minnkar um 6.380 m². Breytingarsvæðið er innan íbúðabyggðar nr. ÍB401 í aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 og verndarsvæðis nr. MV401. Breytingin er í samræmi við ákvæði aðalskipulags.
    Vegna ábendingar frá Skipulagsstofnun þarf að endurtaka málsmeðferð skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, en þar sem engar breytingar hafa verið gerðar á tillögunum frá fyrri auglýsingum, munu fyrri umsagnir gilda berist ekki fleiri.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða, að teknu tilliti til innsendra umsagna við skipulagslýsingu og vinnslutillögu að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa framkomna deiliskipulagstillögu "Skógargötureitur Sauðárkróki" í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og breytingu á deiliskipulagi Gamla bæjarins á Sauðárkróki frá 1987.

    Sigríður Magnúsdóttir víkur af fundi við þennan dagskrálið.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Sauðárkrókur - Deiliskipulag. Skógargata, Aðalgata frá leikvelli að Kambastíg, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 92 Vatneyri 1 Skagafjörður L143831 F2337231 (þekkt sem Vatnspökkunarverksmiðja), lóðin er til í opinberum skrám, en samræmist ekki gildandi deiliskipulagi.

    Þar sem umræddri lóð hefur ekki verið eytt, samþykkir skipulagsnefnd samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að eyða lóðinni og auk þess að klára frágang lóðamála, þ.e.a.s. frágang lóðarblaða og gera lóðarleigusamninga við hluteigandi á grundvelli gildandi deiliskipulags Sauðárkrókshafnar að fengnu samþykki landbúnaðar- og innviðanefndar Skagafjarðar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 92. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 92 Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 79 þann 13.02.2026. Bókun fundar Jóhanna Ey Harðardóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

    Afgreiðsla 92. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með átta atkvæðum.

11.Skipulagsnefnd - 93

Málsnúmer 2603009FVakta málsnúmer

Fundargerð 93. fundar skipulagsnefndar frá 12. mars 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 47. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Skipulagsnefnd - 93 Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við skipulagslýsingu fyrir Byggðasafn Skagfirðinga í Glaumbæ, Skagafirði, mál nr. 1641/2025 (https://skipulagsgatt.is/issues/2025/1641 ) í Skipulagsgáttinni, samráðsgátt Skipulagsstofnunar um skipulagsmál. Skipulagslýsingin var í auglýsingu dagana 28.01.2026- 26.02.2026, alls bárust 8 umsagnir.

    Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 93. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 93 Gunnar Bjarnason ehf., hefur falið Praxis arkitektúr ehf. og Teiknistofunni Storð ehf. að vinna tillögu að deiliskipulagsbreytingu varðandi hluta gildandi deiliskipulags Gamla bæjarins á Sauðárkróki, Skagafirði.
    Á umræddu skipulagssvæði, austan Freyjugötu á svonefndum bílastæðareit, eru samkvæmt gildandi deiliskipulagi 5 lóðir alls 4.423 m².
    Á lóðinni nr. 9 stendur tveggja hæða fjölbýlishús með 8 íbúðum.
    Skipulagssvæðið er samkvæmt Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 á miðsvæði M-401.
    Deiliskipulagsbreytingin miðar að því að gera breytingar á lóðum austan Freyjugötu sem eru innan breytingarsvæðis fyrir einbýlishús sem verða skilgreind sem 4 lóðir fyrir einbýlishús. Lóðir stækkaðar og byggingarmagn aukið fyrir byggingar sem verða hæð og ris. Núverandi fjölbýlishúsalóð við Freyjugötu 9 verður minnkuð og á norður hluta hennar verða skilgreindar þrjár lóðir fyrir eitt raðhús. 7 íbúðir munu bætast við þær 8 sem fyrir eru lóðinni nr. 9. Núverandi húsagata verður lengd til austurs, og norður með lóðum nr. 9 og að austurhlið þriggja nýrra lóða sem munu fá númerin 7e, 7f og 7g.
    Auk þess er skilgreindur vasagarður á milli lóðanna sem fær sér lóð, sem er skilgreind sem Freyjugata 7h.
    Deiliskipulagstillagan er í samræmi við ákvæði og landnotkun í aðalskipulagi þar sem heimilt er að bæta við allt að 62 íbúðum á landnotkunarreitnum M-401.
    Á lóðinni nr. 9 er fjölbýlishús þar sem skilmálum verður ekki breytt að öðru leiti en að lóð verður minnkuð og bætt við kvöð um gönguleið að sunnanverðu í gegnum lóðina á öruggara svæði milli bílastæða og byggingar. Auk þess er komið fyrir samhliða bílastæðum og göngustíg milli götunnar og lóðanna meðfram Freyjugötunni. Á Freyjugötunni eru skilgreindar tvær gönguleiðir yfir götuna með þrengingu götunnar, til að draga úr umferðarhraða. Ekki er tekin afstaða til þess hvort þessar gönguleiðir séu upphækkuð eða í plani við götuna.
    Fyrir hönd Gunnars Bjarnasonar ehf. sem er með vilyrði skv. 8. gr. úthlutunarreglna sveitarfélagins fyrir Freyjugötu 7, er hér með óskað eftir að meðfylgjandi tillaga að deiliskipulagsbreytingu verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan er dagsett 27. febrúar 2026 og saman stendur af einum uppdrætti ásamt greinargerð.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagsbreytingartillögu fyrir "Freyjugötu 7 og 9 á Sauðárkróki" skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Freyjugata - Tillaga að breytingu á deiliskipulagi, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 93 Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulaginu Flæðar á Sauðárkróki, uppdráttur ásamt greinargerð nr. DS01, dags. 09.03.2026, verknr. 56292114. Við frekari hönnun á Menningarhúsinu kom í ljós að stækka þarf norðausturhorn byggingarreitsins um 0,8 m2 eða ca. 76 cm. Einnig kom í ljós við nákvæmari uppmælingu á nú þegar byggðu Safnahúsi, að þar þarf að stækka byggingarreitinn að uppfærðri útlínu eða um 1 m2, alls stækkun á byggingarreit úr 3340 m2 í 3346 m2 eða um 6 m2.

    Breytingin er það óveruleg að hún hefur engin aukin umhverfisáhrif umfram stefnumörkun deiliskipulags fyrir breytingu.
    Stækkun byggingarreits, með útskoti til austurs, skerðir ekki útsýni eða aðgengi umfram skipulag fyrir breytingu, né hefur hún áhrif á skuggavarp,
    öryggi eða heilsu manna eða aðra umhverfisþætti sem metnir voru í greinargerð deiliskipulags fyrir breytingu.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir Faxatorg, Flæðar á Sauðárkróki, skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Skipulagsnefnd samþykkir einnig samhljóða að breytingin hafi engin áhrif á landnotkun nágrannalóða, breytingin hafi ekki í för með sér skuggavarp, sjónmengun, innsýn eða raskað útsýni aðliggjandi lóða og hafi engin áhrif á hagsmuni annarra aðila en sveitarfélagsins og því sé ekki þörf á grenndarkynningu, sbr. einnig 3. mgr. 44. gr. sömu laga.

    Eyþór Fannar Sveinsson fulltrúi Byggðalista óskar bókað:
    Föstudaginn 6. mars barst tilkynning til Sveitarstjórnar Skagafjarðar um að fyrirhuguð væri undirskriftasöfnun vegna byggingar menningarhús á Sauðárkróki. Byggðalistinn telur nauðsynlegt að öllum ákvörðunum vegna menningarhúss verði frestað þar til sveitarstjórn hefur tekið erindið fyrir um fyrirhugaða undirskriftarsöfnun. Tillaga þess efnis var lögð fram samdægurs þann 6. mars á 8. fundi Byggingarnefndar menningarhúss á Sauðárkróki og var tillögunni hafnað af meirihluta byggingarnefndar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Faxatorg - Flæðar - Óveruleg breyting á deiliskipulagi, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 93 Hildur Hartmannsdóttir starfsmaður skipulagsfulltrúa fer yfir frumhugmyndir fyrir hönnun á opnum svæðum innan skipulagssvæðis Laufblaðsins.

    Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.

    Sigurður H. Ingvarsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 93. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 93 Guttormur Hrafn Stefánsson, þinglýstur eigandi jarðarinnar Bjarnastaðir, landnr. 146271, óskar eftir heimild til að stofna tvo byggingarreiti, annarsvegar 4872 m² byggingarreit fyrir fjárhús og hins vegar 5158 m² byggingarreit fyrir íbúðarhús, á landi jarðarinnar, skv. meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 74670001 dags. 5 mars 2026. Afstöðuppdráttur var unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Dagnýju Stefánsdóttur og Birni Magnúsi Árnasyni.
    Engar byggingar eru á jörðinni eins og fram kemur í fasteignaskrá.
    Um er að ræða byggingarreit fyrir nýtt einbýlishús sem verður að hámarki 250 m² að stærð og að hámarki 6 m að hæð, og byggingarreit fyrir nýtt fjárhús sem verður að hámarki 1500 m² að stærð og að hámarki 8 m að hæð.
    Byggingarreitirnir, sem sótt er um, eru á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-1 skv. aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040. Áformin eru í fullu samræmi við stefnu aðalskipulagsins um eflingu landbúnaðar og búsetu, en í kafla 3.7 um almenn ákvæði landnotkunar á landbúnaðarsvæðum segir:
    "Á landbúnaðarsvæðum er gert ráð fyrir uppbyggingu í tengslum við landbúnaðarstarfsemina en einnig er heimilt að nýta byggingar, byggja stök mannvirki og/eða breyta eldri byggingum, til annarrar starfsemi ef slíkur rekstur styður við landbúnaðarstarfsemi eða búsetu á svæðinu."
    Byggingar sem hér er sótt um byggingarreiti fyrir eru forsendur þess að koma upp búskap á jörðinni. Hér er um að ræða fjárhúsbyggingu sem er nauðsynleg fyrir hefðbundinn búrekstur og íbúðarhús sem styður beint við hann. Staðsetning byggingarreitanna er valin með tilliti til byggingarhæfs lands annars vegar og gæði ræktunarlands hins vegar. Með þessum staðsetningum er ekki verið að taka gott ræktunarland undir byggingar. Einnig er gætt að því að byggingarnar rísi í nálægð við núverandi innviði til að skerða sem minnst nýtingu á góðu ræktarlandi (L-1), í samræmi við ákvæði Aðalskipulags Skagafjarðar. Komi til frekari byggingaráforma verður óskað eftir heimild til að láta vinna deiliskipulag. Jafnframt segir í aðalskipulaginu: "Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi til byggingar á stökum byggingum sem tengjast starfsemi bújarðar án deiliskipulags, ef umfang og/eða aðstæður gefa tilefni til. Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif."
    Lögð verður áhersla á að áformuð uppbygging verði í samræmi við yfirbragð og ásýnd svæðisins og hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif. Áformin skerða ekki aðgengi að öðrum byggingum en kunna að hafa ásýndaráhrif af Siglufjarðarvegi (76).
    Óskað hefur verið eftir umsögn minjavarðar og Vegagerðarinnar.
    Fáist umsókn um byggingarreiti ekki samþykkt er sótt um stofnun 4872 m² byggingarreits fyrir fjárhús, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01, dags. 5. mars 2026 og umfjöllun hér að ofan og heimild til að láta vinna deiliskipulag á kostnað landeiganda sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Fyrirliggur umsögn eigenda nærliggjandi landeigna vegna byggingareits fyrir fjárhús án athugasemda.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fresta erindinu og felur skipulagsfulltrúa að óska eftir frekari gögnum frá umsækjanda.
    Bókun fundar Afgreiðsla 93. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 93 Þann 20. sept. 2016 samþykkti sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkt skipulags- og byggingarnefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar á umsókn þáverandi landeiganda Hafgrímsstaða, landnúmer 146169, um stofnun byggingarreits á landi jarðarinnar skv. afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki nr. 776501, útg. 11.08.2016.
    Þann 05.04.2017 samþykkti skipulags- og byggingarnefnd umsókn þáverandi landeiganda um stöðuleyfi, til eins árs, fyrir sjö aðstöðugáma. Sveitarstjórn staðfesti samþykkt skipulags- og byggingarnefndar þann 12.04.2017.
    Snæbjörn Guðmundsson og Hallfríður H. Hafsteinsdóttir, f.h. Bletts ehf, þinglýsts eignanda Hafgrímsstaða, landnúmer 146169, óska eftir leyfi til þess að færa og stækka áður samþykktan byggingarreit, á landi Hafgrímsstaða í sveitarfélaginu Skagafirði L146169, líkt og sýnt er á meðfylgjandi afstöðuuppdrætti gerðum hjá Stoð ehf. verkfræðistofu, af Dagnýju Stefánsdóttur og Birni Magnúsi Árnasyni. Númer uppdráttar er S01 í verki nr. 77650001, útg. dags. 5. mars. 2026. Sótt er um tilfærslu um 42,2 m til norðurs og stækkun úr 140 m² í 264 m².

    Óskað er eftir hámarksbyggingarmagni 120 m² og hámarksbyggingarhæð 3 m.
    Þá er sótt um endurnýjun á stöðuleyfi fyrir sjö aðstöðugáma sbr. fyrri samþykkt skipulags- og byggingarnefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 05.04.2017.

    Byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-4 í aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 og er utan landbúnaðarlands í flokki I og II. Byggingarreiturinn er í samræmi við markmið aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæðum þar sem hann stuðlar að sambúð landbúnaðar og ferðaþjónustu, gengur ekki inn á ræktað land og skerðir ekki aðgengi eða búrekstrarskilyrði. Þá styrkir hann búsetu og atvinnulíf á svæðinu og núverandi inniviðir nýtast áfram.

    Í almennum ákvæðum um landnotkun á landbúnaðarsvæðum, í greinargerð aðalskipulags Skagafjarðar 2025-2040 segir:
    "Skipulagsnefnd metur hverju sinni málsmeðferð uppbyggingaráforma m.t.t. skipulagslaga, með hliðsjón af ofangreindum ákvæðum og umfangi framkvæmda."
    Þess skal gætt að önnur starfsemi en landbúnaður valdi ekki neikvæðum áhrifum á landbúnaðarland s.s. með mengun, skerðingu á aðgengi eða rjúfi samfellu á landbúnaðarsvæði í flokki I.
    Áformin skerða ekki aðgengi að öðrum byggingum og hafa ekki meiri ásýndaráhrif af Skagafjarðarvegi (752) en nú er.
    Óskað hefur verið eftir umsögn minjavarðar.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja færslu og stækkun byggingarreits að fenginni umsögn minjavarðar, en bendir jafnframt á að stöðuleyfi eru á forræði byggingarfulltrúa Skagafjarðar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Hafgrímsstaðir L146169 - Umsókn um færslu og stækkun á byggingarreit, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 93 Stefán Logi Haraldsson og Marteinn Jónsson, f.h. Ysta Mós ehf., þinglýsts eiganda jarðarinnar Ysta Mós landnúmer 146830, óska eftir heimild til að stofna 5285 m2 spildu úr landi jarðarinnar, sem Ysta Mó 2, og til að stofna 2642,8 m2 byggingarreit innan lóðarinnar, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 74322001 dags. 3 mars 2026.
    Afstöðuuppdrátturinn var unninn á Stoð verkfræðistofu ehf.
    Landheiti útskiptrar lóðar vísar í heiti upprunajarðar.
    Öll hlunnindi tilheyra áfram Ysta Mó landnr. 146830.
    Um er að ræða byggingarreit fyrir frístundahús á 1-2 hæðum. Hámarks byggingarmagn verður 200 m2 og hámarks byggingarhæð verður 8 m frá kjallaragólfi í mæni. Reiturinn er 10 m frá lóðarmörkum sbr. 5.3.2.12. gr. Skipulagsreglugerðar nr. 90/2013.
    Landskipti og byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu frístundasvæði nr. F-1 í aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040 og styður við markmið aðalskipulags um uppbyggingu á frístundasvæðum, sbr. ákvæði í kafla 3.9 um frístundabyggð segir meðal annars:
    "Almennt nýtingarhlutfall lóða er 0,03 á svæðum fyrir frístundabyggð þó þannig að nýtingarhlutfall geti orðið allt að 0,05 fyrir lóðir minni en 0,4 ha. Almennt skulu frístundalóðir vera um 0,5 ha. Við gerð deiliskipulags fyrir frístundabyggð skal þess gætt að hún raski ekki vistgerðum sem njóta sérstakrar verndar, skv. lögum um náttúruvernd og skerði ekki landbúnaðarland í L-1. eða L-2. flokki"
    Lóðarstærðin sem hér er sótt um er því í fullu samræmi við viðmið skipulagsins um stærð frístundalóða. Jafnframt er byggingarmagn, sem sótt er í samræmi við viðmiða um nýtingarhlutfall á slíkum svæðum. Landskipti útskiptrar lóðar skerða ekki landbúnaðarsvæði í I. og II. flokki og raska ekki vistgerðum sem njóta sérstakrar verndar í samræmi við ákvæði aðalskipulagsins.
    Hér er um að ræða staka byggingu sem styður við útivist og afþreyingu á svæðinu. Núverandi innviðir nýtast áfram og uppbygging er ekki líkleg til að hafa veruleg áhrif á mengun eða aðgengi.
    Lögð verður áhersla á að áformuð uppbygging verði í samræmi við yfirbragð og ásýnd svæðisins og hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif. Áformin skerða ekki aðgengi að öðrum byggingum en kunna að hafa ásýndaráhrif af Siglufjarðarvegi (76), en vegna þess að Siglufjarðarvegur stendur um 25m ofar eru ásýndaráhrif mjög takmörkuð.
    Engin fasteign er á umræddri spildu.
    Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Ysta Mó, landnr. 146830.
    Yfirferðaréttur að útskiptri spildu er frá Siglufjarðarvegi (76), um veg í landi Ysta Mós landnr.146830.
    Óskað hefur verið eftir umsögn minjavarðar.
    Málsnúmer í landeignaskrá er M003510.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja landskiptin og stofnun byggingarreits að fenginni umsögn minjavarðar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Ysti Mór L146830 - Umsókn um stofnun landspildu og byggingarreits, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 93 Málið varðar Sjávarborg I, landnr. 145953, umsókn um landskipti. Málsnr. sveitarfélags er 2411062, málsnúmer í landeignaskráningu er M000514.

    Þann 27.11.2024 staðfesti sveitarstjórn Skagafjarðar afgreiðslu skipulagsnefndar Skagafjarðar, dags. 14.11.2024, á umsókn landeigenda Sjávarborgar I, L145953, um stofnun landspildu út úr landi jarðarinnar sem "Sjávarborg". Í umsókn landeigenda, bókun skipulagsnefndar og sveitarstjórnar kemur eftirfarandi fram:
    "Í Fasteignaskrá HMS er spildan sem um ræðir merkt "Sjávarborg I, skiki 1/7" og hefur skráða stærð." Í ljós hefur komið að skráning á "skikum" í vefsjá landeigna var ekki í samræmi við þinglýst gögn.

    Fyrirliggur umsókn merkjalýsanda, f.h. landeiganda sbr. meðfylgjandi tölvupósta dags. 19.02.2026 og 27.02.2026, um að málið verði tekið fyrir aftur og að áðurnefnd setning verði felld út.

    Einnig er þess óskað að málið verið afgreitt grundvelli meðfylgjandi merkjalýsingar, dags. 17.10.2024 með breytingu dags. 20.03.2025. Breytingarskrá er á fyrstu síðu merkjalýsingar og felur í sér að tilvísanir í skika hafi verið felldar út.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða erindið eins og það er fyrirlagt og felur skipulagsfulltúa að vinna málið áfram.
    Bókun fundar Afgreiðsla 93. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 93 Þann 27.11.2024 staðfesti sveitarstjórn Skagafjarðar afgreiðslu skipulagsnefndar Skagafjarðar, dags. 14.11.2024, á umsókn Helgu Jóhönnu Haraldsdóttur, Gyðu Sigurlaugar Haraldsdóttur, Eddu Eiríku Haraldsdóttur, og Nönnu Margrétar Haraldsdóttur, þinglýstra eigenda Sjávarborgar II, landnr. 145955, um stofnun landspildu úr landi jarðarinnar sem "Neðriborg". Í umsókn landeigenda, bókun skipulagsnefndar og sveitarstjórnar kemur eftirfarandi fram:
    "Í Fasteignaskrá HMS er spildan sem um ræðir merkt "Sjávarborg II, skiki 1/5" og hefur skráða stærð."
    Í ljós hefur komið að umrædd skráning í vefsjá landeignaskrár HMS var ekki í samræmi við þinglýst gögn og hefur hún nú verið leiðrétt.

    Fyrirliggur umsókn merkjalýsanda, f.h. þinglýstra eigenda jarðarinnar Sjávarborg II, landnúmer 145955, sbr. meðfylgjandi tölvupósta dags. 13.02.2026 og 14.02.2026, þar sem óskað er eftir að fyrri bókun verði breytt þar sem áðurnefnd setning: "Í Fasteignaskrá HMS er spildan sem um ræðir merkt "Sjávarborg II, skiki 1/5" og hefur skráða stærð." verði felld út.

    Meðfylgjandi er merkjalýsing, dags. 17.10.2024 með breytingu dags. 20.03.2025. Breytingin felst í að tilvísanir í skika hafa verið felldar út. Merkjalýsandi f.h. þinglýstra landeigenda sbr. meðfylgjandi tölvupósta, óskar jafnframt eftir því að málið tekið fyrir að nýju og afgreitt á grundvelli nýrrar merkjalýsingar.
    Málsnúmer í landeignaskráningu er M000518.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða erindið eins og það er fyrirlagt og felur skipulagsfulltúa að vinna málið áfram.
    Bókun fundar Afgreiðsla 93. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 93 Gunnar Páll Ólafsson og Guðbjörg Óskarsdóttir lóðarhafar Hvannahlíðar 7 á Sauðárkróki óska eftir samþykki fyrir breikkun á innkeyrslu, um 2,5 metra til norðurs, sem þegar hefur verið framkvæmd.
    Árið 2024 létu lóðarhafar steypa planið framan við húsið, og í tengslum við þær framkvæmdir þurfi að endurnýja neyslu- og fráveitulagnir að húsinu. Við þær framkvæmdir var gangstéttin brotin upp norðan við innkeyrslu eins og meðfylgjandi gögn sýna.

    Þegar gengið var frá gangstétt og innkeyrslu að framkvæmdum loknum var innkeyrslan breikkuð sem nam þeim hluta gangstéttar sem hafði verið rofin, eða tæplega 2,5 metrum. Láðist lóðarhöfum að óska eftir samþykki fyrir þeirri breikkun og fá formlegt samþykki fyrir þeirri breytingu.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða umbeðna breikkun á bílastæði eins er lýst í umsókninni en minnir á að sækja skal um leyfi fyrir slíkum framkvæmdum áður en þær hefjast. Skipulagsnefndin bendir jafnframt á að óleyfisframkvæmdir geta verið gerðar afturkræfar á kostnað þess sem framkvæmir.
    Bókun fundar Hrund Pétursdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

    Afgreiðsla 93. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með átta atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 93 Hjálagt er vinnuskrá fyrir Gránumóa 63 og 64 dags. 11.03.2026 þar sem báðar lóðirnar hafa verið stækkaðar að miðlínu vegar og um leið verður aðkoma sveitarfélagsins að vatnstönkunum færð á lóð Gránumóa 62 L218124. Tillaga veitu- og framkvæmdasviðs Skagafjarðar að færslu aðkomunnar fyrir Gránumóa 62 verður unnin í samráði við skipulagsfulltrúa.
    Reimar Marteinsson fyrir hönd Kaupfélags Skagfirðinga sem er lóðarhafi beggja lóðanna hefur yfirfarið og samþykkt framlögð gögn.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða umbeðna lóðarstækkun við Gránumóa 63 og 64 á grundvelli vinnuskrár dags. 11.03.2026 í verki nr. 56191YFIRL Gránumóar 63 og 64 unnið á Stoð ehf. verkfræðistofu og felur skipulagsfulltúa að láta útbúa merkjalýsingu, ný lóðarblöð og lóðarleigusamninga.
    Bókun fundar Afgreiðsla 93. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 93 Rarik óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir lagningu 12 kV háspennustrengs í Varmahlíð. Þessi framkvæmd er tilkomin vegna heimtaugarumsóknar Orku náttúrunnar í Varmahlíð sem tengist orkuskiptum. Gert er ráð fyrir að plægja þessa leið (90 cm dýpi) og er áætlaður verktími apríl 2026.
    Gert er ráð fyrir að bora undir vegi (Hringveg og Sauðárkróksbraut).

    Um framkvæmdina.
    Vinnuvélarnar munu fylgja strengleiðinni sem sýnd er á meðfylgjandi mynd. Verktakar verða ráðnir í verkið og það verða líklega 2-4 starfsmenn að vinna við plægingu, auk þess sem að starfsmaður Rarik kemur til með að sinna verkeftirliti. Tveir starfsmenn sjá svo um tengingar þegar þar að kemur. Jarðýta verður notuð við plægingu á strengnum. Strengkeflin verða á plógýtunni og/eða á öðru tæki framan við plógýtuna.
    Ekki verða nein varanleg ummerki á jarðvegi, gróðri eða dýralífi.
    Gengið verður frá meðfram plógfari. Notuð verður beltagrafa til að draga úr mögulegu álagi á gróður. Reynslan sýnir að plógfar verður illgreinanlegt innan nokkurra ára.

    Önnur leyfismál:
    Skógræktarfélag Skagafjarðar hefur sent umsögn um framkvæmdina vegna Vélavalsreitsins, tölvupóstur frá Johan Holst sem gefur heimild með fyrirvara fyrir hönd Skóræktarfélags Skagafirðinga.
    Minjastofnun - gerir ekki athugasemdir, tölvupóstur frá Guðmundi Stefáni Sigurðarssyni.
    Búið að senda umsókn til Vegagerðarinnar, beðið eftir samþykki.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi að fengnu samþykki Vegagerðarinnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Beiðni um framkvæmdaleyfi í Varmahlíð - Vegna orkuskipta, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 93 Rarik óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir strenglagningu við og í Varmahlíð. Gert er ráð fyrir að leggja 12 kV háspennustreng frá Aðveitustöð við Varmahlíð að Furulundi í Varmahlíð.
    Gert er ráð fyrir að plægja þessa leið 90 cm dýpi og áætlaður verktími apríl 2026.
    Þessi lagnaleið var unnin í samtali við landeigendur og starfsfólk sveitarfélagsins.

    Um framkvæmdina.
    Vinnuvélarnar munu fylgja strengleiðinni sem sýnd er á meðfylgjandi mynd. Verktakar verða ráðnir í verkið og það verða líklega 2-4 starfsmenn að vinna við plægingu, auk þess sem að starfsmaður Rarik kemur til með að sinna verkeftirliti. Tveir starfsmenn sjá svo um tengingar þegar þar að kemur. Jarðýta verður notuð við plægingu á strengnum. Strengkeflin verða á plógýtunni og/eða á öðru tæki framan við plógýtuna.
    Ekki verða nein varanleg ummerki á jarðvegi, gróðri eða dýralífi.
    Gengið verður frá meðfram plógfari. Notuð verður beltagrafa til að draga úr mögulegu álagi á gróður. Reynslan sýnir að plógfar verður ill greinanlegt innan nokkurra ára.

    Önnur leyfismál:
    Skógræktarfélag Skagafjarðar hefur sent umsögn um framkvæmdina, tölvupóstur frá Johan Holst.
    Fiskistofa - leyfi til að þvera Víðimýrará.
    Minjastofnun - gerir ekki athugasemdir, tölvupóstur Guðmundur Stefán Sigurðarson.
    Vegagerðin - í vinnslu.
    Samkomulag við landeigendur - í vinnslu, sjá staðlað samkomulag í viðhengi.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi að fengnu samþykki Vegagerðarinnar og hluteigandi landeigenda.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Strenglagning frá aðveitustöð að Furulundi Varmahlíð - Framkvæmaleyfisumsókn, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 93 Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 80 þann 27.02.2026. Bókun fundar Jóhanna Ey Harðardóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

    Afgreiðsla 93. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með átta atkvæðum.

12.Byggingarnefnd menningarhúss á Sauðárkróki - 8

Málsnúmer 2603006FVakta málsnúmer

Fundargerð 8. fundar byggingarnefndar menningarhúss á Sauðárkróki frá 6. mars 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 47. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggingarnefnd menningarhúss á Sauðárkróki - 8 Birgir Teitsson og Sara Axelsdóttir frá ARKÍS arkitektum fóru yfir aðaluppdrætti nýs menningarhúss á Sauðárkróki. Auk nefndarmanna og starfsmanna sveitarfélagsins sem unnið hafa með nefndinni var einnig boðið til fundarins fulltrúum úr ráðgefandi hópi sveitarfélagsins um aðgengismál. Úr þeim hópi tók þátt í fundinum Magnús Jóhannesson.

    Jóhanna Ey Harðardóttir fulltrúi Byggðalista leggur fram eftirfarandi tillögu:
    Byggingarnefnd menningarhúss á Sauðárkróki samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu á hönnun menningarhúss á Sauðárkróki.
    Sveitarstjórn Skagafjarðar hefur borist erindi þar sem tilkynnt er um fyrirhugaða undirskriftasöfnun vegna byggingu menningarhúss á Sauðárkróki og því nauðsynlegt að fresta afgreiðslu málsins þar til sveitarstjórn hefur tekið fyrir erindi um fyrirhugaða undirskriftasöfnun.

    Meirihluti byggingarnefndar hafnar tillögunni.

    Meirihluti byggingarnefndar samþykkir samhljóða fyrirlagða aðaluppdrætti nýs menningarhúss. Fulltrúi Byggðalista greiðir atkvæði á móti.
    Bókun fundar Fundargerð 8. fundar byggingarnefndar menningarhúss á Sauðárkróki var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með fimm atkvæðum. Álfhildur Leifsdóttir og Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir fulltrúar VG og óháðra óska bókað að þær sitja hjá við afgreiðslu málsins. Jóhanna Ey Harðardóttir og Sveinn Þ. Finster Úlfarsson fulltrúar Byggðalista óska bókað að þau greiða atkvæði gegn afgreiðslu fundarins.

13.Byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi - 6

Málsnúmer 2603014FVakta málsnúmer

Fundargerð 6. fundar byggingarnefndar skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi frá 19. mars 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 47. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi - 6 Lögð fram bréf frá starfsfólki leikskólans Tröllaborgar, starfsfólki Grunnskólans austan Vatna, foreldraráði leikskólans Tröllaborgar og foreldrum barna, sem og skólaráði Grunnskólans austan Vatna, dags. 11. og 13. mars 2026. Það er sammerkt með efni bréfanna að samstaða er um það meðal bréfritara að forgangsröðun næstu framkvæmda í uppbyggingu og endurbótum á skóla- og íþróttamannvirkjum á Hofsósi ættu að vera nýtt íþróttahús í fyrsta áfanga, nýtt mötuneyti í öðrum áfanga og skipulagsbreytingar innanhúss á núverandi húsnæði í þriðja áfanga. Telja bréfritarar unnt að leysa vandkvæði við frestun mötuneytisaðstöðu með skipulagsbreytingum innanhúss. Jafnframt leggja bréfritarar áherslu á að gólfflötur nýs íþróttahúss verði stækkaður frá því sem teikningar gera ráð fyrir.

    Byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að vinna að endurskoðun teikninga nýs íþróttahúss og tengibyggingar með breyttar stærðir og endurskipulagningu rýma að leiðarljósi. Byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja samþykkir samhljóða að framkvæmdir við íþróttamannvirki verði næsti áfangi framkvæmda. Stefnt er að því að drög að nýjum teikningum liggi fyrir um miðjan apríl.
    Bókun fundar Fundargerð 6. fundar byggingarnefndar skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.

14.Fyrirhuguð undirskriftasöfnun vegna byggingu menningarhúss á Sauðárkróki

Málsnúmer 2603206Vakta málsnúmer

Jóhanna Ey Harðardóttir vék af fundi og Eyþór Fannar Sveinsson tók sæti í hennar stað við afgreiðslu þessa máls.

Álfhildur Leifsdóttir kvaddi sér hljóðs og lagði fram bókun fyrir hönd VG og óháðra, svohljóðandi:
"VG og óháð lögðu fram tillögu um íbúakosningu um menningarhús vorið 2022. Ekki hvort ætti að byggja það heldur hvar það ætti að vera og hvaða tilgangi það ætti að þjóna. Það var ekki deila um byggingu þess á þeim tíma. Tilgangur okkar með tillögunni var að fá íbúa í samtalið og besta þannig hugmyndir um húsið - sem á að vera okkar allra í Skagafirði. Sú tillaga var því miður felld af fulltrúum Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og Byggðalista. Við erum ekki í nokkrum vafa um að við værum ekki í þessari stöðu í dag ef tillagan hefði fengið framgöngu. Í stað þess að hér sé gjá milli fólks um menningarhús þá myndi ríkja meiri sátt. Sátt sem næst með samtali og íhlutun íbúa, á þeim tímapunkti sem er góður til þessa samtals, ekki þegar það er orðið of seint.
Aðalatriðið í þessu öllu saman má þó ekki gleymast, að munir Byggðasafnsins þurfa varðveislurými sem uppfylla ákveðin skilyrði og að því á sannarlega að standa með sóma. En hér í þessum sal sveitarstjórnar er oft farið í söguskýringar og er nú vel við hæfi að gera svo og rifja upp að í eina tíð hafði Byggðasafnið rými til sýninga, geymslu og rannsókna. Það hefur ekki alltaf verið geymt á vörubrettum í geymslubili í iðnaðarhverfinu. En það var einmitt meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðismanna sem á þeim tíma ákvað að fara í makaskipti á húsum við Kaupfélagið og fórna þannig því rými sem Byggðasafnið hafði. Og hvað fékk sveitarfélagið í staðinn? Jú verulega illa farið hús við Aðalgötu 21 sem þurfti að gera við fyrir hundruðir milljóna. Sama hús og umræddur meirihluti ákvað að láta leigulaust til Sýndarveruleika ehf. í árafjöld. Hrakhólar Byggðasafnsins eru því í boði meirihluta.
Því miður hefur áform um menningarhús á Sauðárkróki skipt samfélaginu í tvær fylkingar. Við í VG og óháðum höfum margsinnis bent á þörf fyrir meira gagnsæi og aukið samtal í þessu verkefni því svo stórt, mikilvægt og fjárfrekt verkefni á ekki að vera unnið í hálfgerðri kyrrþey. Má þar t.d. rifja upp að sú sem hér stendur þurfti að óska eftir að aðrir sveitarstjórnarfulltrúar fengu kynningu á þeirri hönnun sem þeir áttu að samþykkja á sveitarstjórnarfundi, það þykir okkur sérstök stjórnsýsla. Vonandi ber komandi sveitarstjórn gæfa til að læra af þessari sögu og leita meira samtals og sátta meðal íbúa í framtíðinni."

Einar E. Einarsson kvaddi sér hljóðs og lagði fram bókun fyrir hönd meirihlutaflokka sveitarstjórnar, svohljóðandi:
"Samkvæmt 107. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 ákveður sveitarstjórn hvort fram skuli fara almenn atkvæðagreiðsla meðal íbúa sveitarfélags um einstök málefni þess. Í 2. mgr. 108. gr. sveitarstjórnarlaga er mælt fyrir um rétt íbúa til að óska eftir atkvæðagreiðslu um einstök málefni. Þar er mælt fyrir um að ef minnst 20% af þeim sem kosningarétt eiga í sveitarfélagi óska almennrar atkvæðagreiðslu skuli sveitarstjórn verða við því eigi síðar en innan árs frá því slík ósk berst, en heimilt er að ákveða hærra hlutfall í samþykkt um stjórn. Samkvæmt samþykkt um stjórn Skagafjarðar nr. 1336/2022 skal sveitarstjórn verða við beiðni um almenna atkvæðagreiðslu ef minnst 25% kosningabærra íbúa óska þess. Sveitarstjórn hefur engu að síður ákvörðunarvald um framkvæmd atkvæðagreiðslunnar og þá spurningu sem borin verður upp.

Fjallað er um undirskriftasafnanir vegna almennra atkvæðagreiðslna samkvæmt sveitarstjórnarlögum í reglugerð nr. 155/2013. Þar kemur fram að tilkynna skal sveitarstjórn um fyrirhugaða undirskriftarsöfnun í sveitarfélaginu. Ef undirskriftarsöfnun lýtur að ósk um atkvæðagreiðslu um tiltekna ákvörðun sem sveitarstjórn hefur þegar tekið skal frestur til að tilkynna um fyrirhugaða undirskriftarsöfnun vera fjórar vikur frá því ákvörðun var birt, sbr. 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar. Eftir að sveitarstjórn hefur fengið tilkynningu um fyrirhugaða undirskriftarsöfnun, skal hún innan fjögurra vikna meta hvort ákvæði 3. mgr. 108. gr. sveitarstjórnarlaga hamli því að unnt sé að krefjast almennrar atkvæðagreiðslu um málið og tilkynna ábyrgðaraðila um niðurstöðu sína. Þá skal sveitarstjórn leiðbeina ábyrgðaraðila um orðalag tilkynningarinnar og önnur framkvæmdaratriði eftir því sem þörf er á. Telji sveitarstjórn að undirskriftarsöfnun samrýmist ekki 3. mgr. 108. gr. skal beiðninni hafnað.

Atkvæðagreiðsla um einstök málefni sem fram fara á vegum sveitarfélags, hvort sem er á grundvelli ákvörðunar sveitarstjórnar eða að frumkvæði íbúa, eru almennt ráðgefandi nema sveitarstjórn ákveði annað sbr. 3. mgr. 107. gr. sveitarstjórnarlaga. Ráðgefandi atkvæðagreiðslur á grundvelli sveitarstjórnarlaga eru ein af ýmsum leiðum sem sveitarfélög hafa til að leita samráðs við íbúa sína.

Sveitarstjórn Skagafjarðar tók ákvörðun þann 10. maí 2023 um samkomulag við ríkið um byggingu menningarhúss í Skagafirði og hefur síðan ákvörðun um fjármagn til verkefnisins verið samþykkt í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins, síðast þann 19. nóvember 2025. Auk þess hefur ríkið þegar innt af hendi greiðslur í tengslum við verkefnið til sveitarfélagsins. Tillaga um að efna til íbúakosningar um ákvörðun sveitarstjórnar um byggingu menningarhúss á Sauðárkróki var felld í sveitarstjórn þann 25. febrúar 2026.

Tilkynning um fyrirhugaða undirskriftarsöfnun lýtur að ósk um atkvæðagreiðslu um ákvörðun um byggingu menningarhúss og samninga við ríkið þar um. Fram kemur í tilkynningunni að óskað sé atkvæðagreiðslu um frestun byggingar menningarhúss á Sauðárkróki og endurupptöku á samningi við ríkið vegna þess. Tilkynning um fyrirhugaða atkvæðagreiðslu þarf að tengjast efnislega tiltekinni ákvörðun og tilkynningin þarf að berast innan tiltekins tíma frá því sú ákvörðun var tekin. Sú ákvörðun sem vísað var til var tekin í sveitarstjórn í maí 2023 og frestur til þess að tilkynna um fyrirhugaða undirskriftarsöfnun um þá tilteknu ákvörðun sem sveitarstjórn tók er liðinn miðað við ákvæði reglugerðarinnar um fjögurra vikna frest.

Meirihluti sveitarstjórnar bendir á að í ljósi framangreinds telur meirihluti sveitarstjórnar að framangreind beiðni um undirskriftarsöfnun uppfylli ekki skilyrði reglugerðar nr. 155/2013.

Bent er á að hægt er að kæra framangreinda ákvörðun til innviðaráðuneytis."


Hlé gert á fundi kl. 16:53

Fundi haldið áfram kl. 17:14

Sveinn Þ. Finster Úlfarsson kvaddi sér hljóðs og lagði fram bókun fyrir hönd Byggðalista, svohljóðandi:
"Miðað við framkomna bókun meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks er auðséð að meirihlutinn muni ekki heimila söfnun undirskrifta um fyrirhugaða uppbyggingu menningarhús á Sauðárkróki. Við undrum okkur á því að þau meti frest til söfnunar liðinn á þeim grundvelli að undirskriftasöfnun sem hér á að greiða atkvæði um snúist um samkomulag um byggingu menningarhús í Skagafirði.
Við teljum það liggja augljóst fyrir að fyrirhuguð undirskriftasöfnun felist í hvort halda eigi áfram uppbyggingu menningarhús á Sauðárkróki í þeirri mynd sem komin er fram á teikniborðið en ekki um samningin sem slíkan."

Tillaga um að hafna beiðni um undirskriftarsöfnun með rökum sem reifuð voru í bókun meirihlutaflokka borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með fimm atkvæðum. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson og Eyþór Fannar Sveinsson, fulltrúar Byggðalista óska bókað að þeir greiða atkvæði gegn tillögunni. Álfhildur Leifsdóttir og Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir fulltrúar VG og óháðra óska bókað að þær sitja hjá við afgreiðslu málsins.

15.Tumabrekka land 2 L220570 - Deiliskipulag

Málsnúmer 2405682Vakta málsnúmer

Jóhanna Ey Harðardóttir tók aftur sæti á fundinum af Eyþóri Fannari Sveinssyni.

Vísað frá 92. fundi skipulagsnefndar frá 26. febrúar sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Lögð fram deiliskipulagstillaga fyrir Tumabrekku land 2 L220570 unnin af Ínu Björk Ársælsdóttur á Stoð ehf. verkfræðistofu. Skipulagsuppdráttur nr. DS-01, dags. 08.11.2024, verknr. 7586001. Uppdrátturinn sýnir staðsetningu byggingarreita, lóðamarka, vegtenginga og aðkomu að byggingum, ásamt helstu byggingarskilmálum. Stærð skipulagssvæðisins er 1,58 ha og að mestu mólendi.
Vegna ábendingar frá Skipulagsstofnun þarf að endurtaka málsmeðferð skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, en þar sem engar breytingar hafa verið gerðar á tillögunni frá fyrri auglýsingu, munu fyrri umsagnir gilda berist ekki fleiri.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagstillöguna Tumabrekka land 2 L220570 í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hildur Hartmannsdóttir víkur af fundi við þennan dagskrálið."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að auglýsa deiliskipulagstillöguna Tumabrekka land 2 L220570 í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

16.Hofsós - Sorpmóttaka og gámasvæði - Deiliskipulag.

Málsnúmer 2302209Vakta málsnúmer

Vísað frá 92. fundi skipulagsnefndar frá 26. febrúar sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Lögð fram deiliskipulagstillaga, Sorpmóttaka og gámalóð, Hofsósi dags. 29.04.2024, uppdráttur nr. DS01, útgáfa 1.0 sem unnin var á Stoð ehf. verkfræðistofu. Skipulagssvæðið er 11.414 m² að stærð á mótum Norðurbrautar að sunnan og Bæjarbrautar að austan. Að vestan afmarkast svæðið af vesturlóðamörkum áhaldahúss sveitarfélagsins. Skipulagsuppdráttur nr. DS-01 sýnir lóðir, aðkomu að lóðum og byggingarreiti á skipulagssvæðinu, ásamt helstu byggingarskilmálum. Á deiliskipulagsuppdrættinum eru sýndar þrjár lóðir á svæðinu, lóð gámageymslusvæðisins, lóð áhaldahússins og lóð sorpmóttökunnar. Starfsemi og umferðarsvæði sem fyrir eru á iðnaðarsvæðinu fá með deiliskipulagstillögunni skilgreindar lóðir, götur og innkeyrslur á lóðir.
Vegna ábendingar frá Skipulagsstofnun þarf að endurtaka málsmeðferð skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, en þar sem engar breytingar hafa verið gerðar á tillögunni frá fyrri auglýsingu, munu fyrri umsagnir gilda berist ekki fleiri.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagstillöguna Sorpmóttaka og gámalóð, Hofsósi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að auglýsa deiliskipulagstillöguna Sorpmóttaka og gámalóð, Hofsósi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

17.Sauðárkrókur - Deiliskipulag. Skógargata, Aðalgata frá leikvelli að Kambastíg

Málsnúmer 2202094Vakta málsnúmer

Vísað frá 92. fundi skipulagsnefndar frá 26. febrúar sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Lögð fram deiliskipulagstillaga fyrir Skógargötureitinn, íbúðabyggð á Sauðárkróki, uppdráttur nr. DS01, útgáfa 2.0, dags. 04.09.2024 sem unnin var af Birni Magnúsi Árnasyni á Stoð ehf. verkfræðistofu. Einnig lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Gamla bæjarins á Sauðárkróki frá 1987 sem fellir umrætt svæði úr gildi, verknúmer 56291601, uppdráttur nr. DS01, útgáfa 1.0, dags. 04.09.2024.
Breyting á uppdrætti er að svæði sem afmarkast af Aðalgötu að austan, göngustíg að sunnan, Skógargötu að vestan og göngustíg og bílastæðum við Kaupvangstorg að norðan., skv. gildandi deiliskipulagi. Svæði þetta fellur út í deiliskipulagi gamla bæjarins á Sauðárkróki. Skipulagssvæði gamla bæjarins minnkar um 6.380 m². Breytingarsvæðið er innan íbúðabyggðar nr. ÍB401 í aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 og verndarsvæðis nr. MV401. Breytingin er í samræmi við ákvæði aðalskipulags.
Vegna ábendingar frá Skipulagsstofnun þarf að endurtaka málsmeðferð skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, en þar sem engar breytingar hafa verið gerðar á tillögunum frá fyrri auglýsingum, munu fyrri umsagnir gilda berist ekki fleiri.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða, að teknu tilliti til innsendra umsagna við skipulagslýsingu og vinnslutillögu að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa framkomna deiliskipulagstillögu "Skógargötureitur Sauðárkróki" í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og breytingu á deiliskipulagi Gamla bæjarins á Sauðárkróki frá 1987.

Sigríður Magnúsdóttir víkur af fundi við þennan dagskrálið."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að auglýsa framkomna deiliskipulagstillögu "Skógargötureitur Sauðárkróki" í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og breytingu á deiliskipulagi Gamla bæjarins á Sauðárkróki frá 1987.

18.Freyjugata - Tillaga að breytingu á deiliskipulagi

Málsnúmer 2511082Vakta málsnúmer

Vísað frá 93. fundi skipulagsnefndar frá 12. mars sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Gunnar Bjarnason ehf., hefur falið Praxis arkitektúr ehf. og Teiknistofunni Storð ehf. að vinna tillögu að deiliskipulagsbreytingu varðandi hluta gildandi deiliskipulags Gamla bæjarins á Sauðárkróki, Skagafirði.
Á umræddu skipulagssvæði, austan Freyjugötu á svonefndum bílastæðareit, eru samkvæmt gildandi deiliskipulagi 5 lóðir alls 4.423 m².
Á lóðinni nr. 9 stendur tveggja hæða fjölbýlishús með 8 íbúðum.
Skipulagssvæðið er samkvæmt Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 á miðsvæði M-401.
Deiliskipulagsbreytingin miðar að því að gera breytingar á lóðum austan Freyjugötu sem eru innan breytingarsvæðis fyrir einbýlishús sem verða skilgreind sem 4 lóðir fyrir einbýlishús. Lóðir stækkaðar og byggingarmagn aukið fyrir byggingar sem verða hæð og ris. Núverandi fjölbýlishúsalóð við Freyjugötu 9 verður minnkuð og á norður hluta hennar verða skilgreindar þrjár lóðir fyrir eitt raðhús. 7 íbúðir munu bætast við þær 8 sem fyrir eru lóðinni nr. 9. Núverandi húsagata verður lengd til austurs, og norður með lóðum nr. 9 og að austurhlið þriggja nýrra lóða sem munu fá númerin 7e, 7f og 7g.
Auk þess er skilgreindur vasagarður á milli lóðanna sem fær sér lóð, sem er skilgreind sem Freyjugata 7h.
Deiliskipulagstillagan er í samræmi við ákvæði og landnotkun í aðalskipulagi þar sem heimilt er að bæta við allt að 62 íbúðum á landnotkunarreitnum M-401.
Á lóðinni nr. 9 er fjölbýlishús þar sem skilmálum verður ekki breytt að öðru leiti en að lóð verður minnkuð og bætt við kvöð um gönguleið að sunnanverðu í gegnum lóðina á öruggara svæði milli bílastæða og byggingar. Auk þess er komið fyrir samhliða bílastæðum og göngustíg milli götunnar og lóðanna meðfram Freyjugötunni. Á Freyjugötunni eru skilgreindar tvær gönguleiðir yfir götuna með þrengingu götunnar, til að draga úr umferðarhraða. Ekki er tekin afstaða til þess hvort þessar gönguleiðir séu upphækkuð eða í plani við götuna.
Fyrir hönd Gunnars Bjarnasonar ehf. sem er með vilyrði skv. 8. gr. úthlutunarreglna sveitarfélagins fyrir Freyjugötu 7, er hér með óskað eftir að meðfylgjandi tillaga að deiliskipulagsbreytingu verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan er dagsett 27. febrúar 2026 og saman stendur af einum uppdrætti ásamt greinargerð.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagsbreytingartillögu fyrir "Freyjugötu 7 og 9 á Sauðárkróki" skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að auglýsa deiliskipulagsbreytingartillögu fyrir "Freyjugötu 7 og 9 á Sauðárkróki" skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

19.Faxatorg - Flæðar - Óveruleg breyting á deiliskipulagi

Málsnúmer 2603094Vakta málsnúmer

Vísað frá 93. fundi skipulagsnefndar frá 12. mars sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulaginu Flæðar á Sauðárkróki, uppdráttur ásamt greinargerð nr. DS01, dags. 09.03.2026, verknr. 56292114. Við frekari hönnun á Menningarhúsinu kom í ljós að stækka þarf norðausturhorn byggingarreitsins um 0,8 m2 eða ca. 76 cm. Einnig kom í ljós við nákvæmari uppmælingu á nú þegar byggðu Safnahúsi, að þar þarf að stækka byggingarreitinn að uppfærðri útlínu eða um 1 m2, alls stækkun á byggingarreit úr 3340 m2 í 3346 m2 eða um 6 m2.

Breytingin er það óveruleg að hún hefur engin aukin umhverfisáhrif umfram stefnumörkun deiliskipulags fyrir breytingu.
Stækkun byggingarreits, með útskoti til austurs, skerðir ekki útsýni eða aðgengi umfram skipulag fyrir breytingu, né hefur hún áhrif á skuggavarp,
öryggi eða heilsu manna eða aðra umhverfisþætti sem metnir voru í greinargerð deiliskipulags fyrir breytingu.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir Faxatorg, Flæðar á Sauðárkróki, skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd samþykkir einnig samhljóða að breytingin hafi engin áhrif á landnotkun nágrannalóða, breytingin hafi ekki í för með sér skuggavarp, sjónmengun, innsýn eða raskað útsýni aðliggjandi lóða og hafi engin áhrif á hagsmuni annarra aðila en sveitarfélagsins og því sé ekki þörf á grenndarkynningu, sbr. einnig 3. mgr. 44. gr. sömu laga.

Eyþór Fannar Sveinsson fulltrúi Byggðalista óskar bókað:
Föstudaginn 6. mars barst tilkynning til Sveitarstjórnar Skagafjarðar um að fyrirhuguð væri undirskriftasöfnun vegna byggingar menningarhús á Sauðárkróki. Byggðalistinn telur nauðsynlegt að öllum ákvörðunum vegna menningarhúss verði frestað þar til sveitarstjórn hefur tekið erindið fyrir um fyrirhugaða undirskriftarsöfnun. Tillaga þess efnis var lögð fram samdægurs þann 6. mars á 8. fundi Byggingarnefndar menningarhúss á Sauðárkróki og var tillögunni hafnað af meirihluta byggingarnefndar."

Sveitarstjórn samþykkir, með sjö atkvæðum óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir Faxatorg, Flæðar á Sauðárkróki, skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Sveitarstjórn fellst jafnframt með sjö atkvæðum á rök skipulagsnefndar að breytingin hafi engin áhrif á landnotkun nágrannalóða, breytingin hafi ekki í för með sér skuggavarp, sjónmengun, innsýn eða raskað útsýni aðliggjandi lóða og hafi engin áhrif á hagsmuni annarra aðila en sveitarfélagsins og því sé ekki þörf á grenndarkynningu, sbr. einnig 3. mgr. 44. gr. sömu laga. Jóhanna Ey Harðardóttir og Sveinn Þ. Finster Úlfarsson óska bókað að þau greiða atkvæði gegn óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir Faxatorg, Flæðar á Sauðárkróki.

20.Hafgrímsstaðir L146169 - Umsókn um færslu og stækkun á byggingarreit

Málsnúmer 2603090Vakta málsnúmer

Vísað frá 93. fundi skipulagsnefndar frá 12. mars sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Þann 20. sept. 2016 samþykkti sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkt skipulags- og byggingarnefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar á umsókn þáverandi landeiganda Hafgrímsstaða, landnúmer 146169, um stofnun byggingarreits á landi jarðarinnar skv. afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki nr. 776501, útg. 11.08.2016.
Þann 05.04.2017 samþykkti skipulags- og byggingarnefnd umsókn þáverandi landeiganda um stöðuleyfi, til eins árs, fyrir sjö aðstöðugáma. Sveitarstjórn staðfesti samþykkt skipulags- og byggingarnefndar þann 12.04.2017.
Snæbjörn Guðmundsson og Hallfríður H. Hafsteinsdóttir, f.h. Bletts ehf, þinglýsts eignanda Hafgrímsstaða, landnúmer 146169, óska eftir leyfi til þess að færa og stækka áður samþykktan byggingarreit, á landi Hafgrímsstaða í sveitarfélaginu Skagafirði L146169, líkt og sýnt er á meðfylgjandi afstöðuuppdrætti gerðum hjá Stoð ehf. verkfræðistofu, af Dagnýju Stefánsdóttur og Birni Magnúsi Árnasyni. Númer uppdráttar er S01 í verki nr. 77650001, útg. dags. 5. mars. 2026. Sótt er um tilfærslu um 42,2 m til norðurs og stækkun úr 140 m² í 264 m².

Óskað er eftir hámarksbyggingarmagni 120 m² og hámarksbyggingarhæð 3 m.
Þá er sótt um endurnýjun á stöðuleyfi fyrir sjö aðstöðugáma sbr. fyrri samþykkt skipulags- og byggingarnefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 05.04.2017.

Byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-4 í aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 og er utan landbúnaðarlands í flokki I og II. Byggingarreiturinn er í samræmi við markmið aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæðum þar sem hann stuðlar að sambúð landbúnaðar og ferðaþjónustu, gengur ekki inn á ræktað land og skerðir ekki aðgengi eða búrekstrarskilyrði. Þá styrkir hann búsetu og atvinnulíf á svæðinu og núverandi inniviðir nýtast áfram.

Í almennum ákvæðum um landnotkun á landbúnaðarsvæðum, í greinargerð aðalskipulags Skagafjarðar 2025-2040 segir:
"Skipulagsnefnd metur hverju sinni málsmeðferð uppbyggingaráforma m.t.t. skipulagslaga, með hliðsjón af ofangreindum ákvæðum og umfangi framkvæmda."
Þess skal gætt að önnur starfsemi en landbúnaður valdi ekki neikvæðum áhrifum á landbúnaðarland s.s. með mengun, skerðingu á aðgengi eða rjúfi samfellu á landbúnaðarsvæði í flokki I.
Áformin skerða ekki aðgengi að öðrum byggingum og hafa ekki meiri ásýndaráhrif af Skagafjarðarvegi (752) en nú er.
Óskað hefur verið eftir umsögn minjavarðar.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja færslu og stækkun byggingarreits að fenginni umsögn minjavarðar, en bendir jafnframt á að stöðuleyfi eru á forræði byggingarfulltrúa Skagafjarðar."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum færslu og stækkun byggingarreits að fenginni umsögn minjavarðar, en bendir jafnframt á að stöðuleyfi eru á forræði byggingarfulltrúa Skagafjarðar.

21.Ysti Mór L146830 - Umsókn um stofnun landspildu og byggingarreits

Málsnúmer 2603091Vakta málsnúmer

Vísað frá 93. fundi skipulagsnefndar frá 12. mars sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Stefán Logi Haraldsson og Marteinn Jónsson, f.h. Ysta Mós ehf., þinglýsts eiganda jarðarinnar Ysta Mós landnúmer 146830, óska eftir heimild til að stofna 5285 m2 spildu úr landi jarðarinnar, sem Ysta Mó 2, og til að stofna 2642,8 m2 byggingarreit innan lóðarinnar, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 74322001 dags. 3 mars 2026.
Afstöðuuppdrátturinn var unninn á Stoð verkfræðistofu ehf.
Landheiti útskiptrar lóðar vísar í heiti upprunajarðar.
Öll hlunnindi tilheyra áfram Ysta Mó landnr. 146830.
Um er að ræða byggingarreit fyrir frístundahús á 1-2 hæðum. Hámarks byggingarmagn verður 200 m2 og hámarks byggingarhæð verður 8 m frá kjallaragólfi í mæni. Reiturinn er 10 m frá lóðarmörkum sbr. 5.3.2.12. gr. Skipulagsreglugerðar nr. 90/2013.
Landskipti og byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu frístundasvæði nr. F-1 í aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040 og styður við markmið aðalskipulags um uppbyggingu á frístundasvæðum, sbr. ákvæði í kafla 3.9 um frístundabyggð segir meðal annars:
"Almennt nýtingarhlutfall lóða er 0,03 á svæðum fyrir frístundabyggð þó þannig að nýtingarhlutfall geti orðið allt að 0,05 fyrir lóðir minni en 0,4 ha. Almennt skulu frístundalóðir vera um 0,5 ha. Við gerð deiliskipulags fyrir frístundabyggð skal þess gætt að hún raski ekki vistgerðum sem njóta sérstakrar verndar, skv. lögum um náttúruvernd og skerði ekki landbúnaðarland í L-1. eða L-2. flokki"
Lóðarstærðin sem hér er sótt um er því í fullu samræmi við viðmið skipulagsins um stærð frístundalóða. Jafnframt er byggingarmagn, sem sótt er í samræmi við viðmiða um nýtingarhlutfall á slíkum svæðum. Landskipti útskiptrar lóðar skerða ekki landbúnaðarsvæði í I. og II. flokki og raska ekki vistgerðum sem njóta sérstakrar verndar í samræmi við ákvæði aðalskipulagsins.
Hér er um að ræða staka byggingu sem styður við útivist og afþreyingu á svæðinu. Núverandi innviðir nýtast áfram og uppbygging er ekki líkleg til að hafa veruleg áhrif á mengun eða aðgengi.
Lögð verður áhersla á að áformuð uppbygging verði í samræmi við yfirbragð og ásýnd svæðisins og hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif. Áformin skerða ekki aðgengi að öðrum byggingum en kunna að hafa ásýndaráhrif af Siglufjarðarvegi (76), en vegna þess að Siglufjarðarvegur stendur um 25m ofar eru ásýndaráhrif mjög takmörkuð.
Engin fasteign er á umræddri spildu.
Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Ysta Mó, landnr. 146830.
Yfirferðaréttur að útskiptri spildu er frá Siglufjarðarvegi (76), um veg í landi Ysta Mós landnr.146830.
Óskað hefur verið eftir umsögn minjavarðar.
Málsnúmer í landeignaskrá er M003510.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja landskiptin og stofnun byggingarreits að fenginni umsögn minjavarðar."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum landskiptin og stofnun byggingarreits að fenginni umsögn minjavarðar.

22.Beiðni um framkvæmdaleyfi í Varmahlíð - Vegna orkuskipta

Málsnúmer 2603117Vakta málsnúmer

Vísað frá 93. fundi skipulagsnefndar frá 12. mars sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Rarik óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir lagningu 12 kV háspennustrengs í Varmahlíð. Þessi framkvæmd er tilkomin vegna heimtaugarumsóknar Orku náttúrunnar í Varmahlíð sem tengist orkuskiptum. Gert er ráð fyrir að plægja þessa leið (90 cm dýpi) og er áætlaður verktími apríl 2026.
Gert er ráð fyrir að bora undir vegi (Hringveg og Sauðárkróksbraut).

Um framkvæmdina.
Vinnuvélarnar munu fylgja strengleiðinni sem sýnd er á meðfylgjandi mynd. Verktakar verða ráðnir í verkið og það verða líklega 2-4 starfsmenn að vinna við plægingu, auk þess sem að starfsmaður Rarik kemur til með að sinna verkeftirliti. Tveir starfsmenn sjá svo um tengingar þegar þar að kemur. Jarðýta verður notuð við plægingu á strengnum. Strengkeflin verða á plógýtunni og/eða á öðru tæki framan við plógýtuna.
Ekki verða nein varanleg ummerki á jarðvegi, gróðri eða dýralífi.
Gengið verður frá meðfram plógfari. Notuð verður beltagrafa til að draga úr mögulegu álagi á gróður. Reynslan sýnir að plógfar verður illgreinanlegt innan nokkurra ára.

Önnur leyfismál:
Skógræktarfélag Skagafjarðar hefur sent umsögn um framkvæmdina vegna Vélavalsreitsins, tölvupóstur frá Johan Holst sem gefur heimild með fyrirvara fyrir hönd Skóræktarfélags Skagafirðinga.
Minjastofnun - gerir ekki athugasemdir, tölvupóstur frá Guðmundi Stefáni Sigurðarssyni.
Búið að senda umsókn til Vegagerðarinnar, beðið eftir samþykki.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi að fengnu samþykki Vegagerðarinnar."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að veita umbeðið framkvæmdaleyfi að fengnu samþykki Vegagerðarinnar.

23.Strenglagning frá aðveitustöð að Furulundi Varmahlíð - Framkvæmaleyfisumsókn

Málsnúmer 2511212Vakta málsnúmer

Vísað frá 93. fundi skipulagsnefndar frá 12. mars sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Rarik óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir strenglagningu við og í Varmahlíð. Gert er ráð fyrir að leggja 12 kV háspennustreng frá Aðveitustöð við Varmahlíð að Furulundi í Varmahlíð.
Gert er ráð fyrir að plægja þessa leið 90 cm dýpi og áætlaður verktími apríl 2026.
Þessi lagnaleið var unnin í samtali við landeigendur og starfsfólk sveitarfélagsins.

Um framkvæmdina.
Vinnuvélarnar munu fylgja strengleiðinni sem sýnd er á meðfylgjandi mynd. Verktakar verða ráðnir í verkið og það verða líklega 2-4 starfsmenn að vinna við plægingu, auk þess sem að starfsmaður Rarik kemur til með að sinna verkeftirliti. Tveir starfsmenn sjá svo um tengingar þegar þar að kemur. Jarðýta verður notuð við plægingu á strengnum. Strengkeflin verða á plógýtunni og/eða á öðru tæki framan við plógýtuna.
Ekki verða nein varanleg ummerki á jarðvegi, gróðri eða dýralífi.
Gengið verður frá meðfram plógfari. Notuð verður beltagrafa til að draga úr mögulegu álagi á gróður. Reynslan sýnir að plógfar verður ill greinanlegt innan nokkurra ára.

Önnur leyfismál:
Skógræktarfélag Skagafjarðar hefur sent umsögn um framkvæmdina, tölvupóstur frá Johan Holst.
Fiskistofa - leyfi til að þvera Víðimýrará.
Minjastofnun - gerir ekki athugasemdir, tölvupóstur Guðmundur Stefán Sigurðarson.
Vegagerðin - í vinnslu.
Samkomulag við landeigendur - í vinnslu, sjá staðlað samkomulag í viðhengi.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi að fengnu samþykki Vegagerðarinnar og hluteigandi landeigenda."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að veita umbeðið framkvæmdaleyfi að fengnu samþykki Vegagerðarinnar og hluteigandi landeigenda.

24.Refa- og minkaveiðiáætlun 2026

Málsnúmer 2603076Vakta málsnúmer

Máli vísað frá 187. fundi byggðarráðs þann 25. mars sl., þannig bókað:
"Landbúnaðar- og innviðanefnd bókaði eftirfarandi um refa- og minkaveiðiáætlun fyrir árið 2026, á 44. fundi hennar 19. mars 2026:
"Lögð fram áætlun fyrir refa- og minkaveiðar 2026 ásamt uppfærðri gjaldskrá sem gerir ráð fyrir 5% hækkun.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir áætlunina samhljóða og felur umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa að kynna veiðimönnum niðurstöðuna áður en nýtt veiðitímabil hefst 1. maí."
Byggðarráð samþykkir áætlunina og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Áætlun fyrir refa- og minkaveiðar fyrir árið 2026 borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.

25.Skagafjörður - ársreikningur 2025

Málsnúmer 2511163Vakta málsnúmer

Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri kvaddi sér hljóðs.

Ársreikningur Skagafjarðar fyrir árið 2025 er hér lagður fram til fyrri umræðu.

Ársreikningurinn samanstendur af upplýsingum um A-hluta sveitarsjóðs og A- og B-hluta samantekinn. Í A-hluta er aðalsjóður auk eignasjóðs og þjónustustöðvar. Í B-hluta eru veitustofnanir, hafnarsjóður, félagslegar íbúðir, Tímatákn ehf. og Eyvindarstaðaheiði ehf., auk hlutdeildarfélaga sem koma inn í reikningsskil sveitarfélagsins eftir hlutfallslegri ábyrgð sveitarfélagsins, þ.e. Norðurá bs. og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.

Rekstrartekjur Skagafjarðar námu á árinu 10.261 m.kr. af samstæðunni í heild. Þar af voru rekstrartekjur A-hluta 8.719 m.kr. Rekstrargjöld samstæðunnar að frátöldum afskriftum og fjármagnsliðum voru 8.856 m.kr., þar af A-hluti 7.954 m.kr. Rekstrarafgangur A- og B-hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði er 1.405 m.kr., þar af er rekstrarniðurstaða A-hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði jákvæð um 765 m.kr. Afskriftir eru samtals 369 m.kr., þar af 192 m.kr. hjá A-hluta. Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru hjá samstæðunni í heild samtals 437 m.kr., þ.a. eru 351 m.kr. fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur í A-hluta sveitarsjóðs. Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta á árinu 2025 er jákvæð um 588 millj. króna og rekstrarniðurstaða A-hluta er jákvæð um 222 millj. króna.

Eignir Skagafjarðar A- og B-hluta voru í árslok samtals 16.858 m.kr, þar af voru eignir A-hluta 12.913 m.kr. Skuldir og skuldbindingar voru í árslok 2025 samtals 10.743 m.kr., þar af hjá A-hluta 9.508 m.kr. Langtímaskuldir námu alls 6.543 m.kr. hjá A- og B-hluta auk 648 m.kr. næsta árs afborgana. Eigið fé nam 6.116 millj. króna hjá samstæðunni í árslok og er eiginfjárhlutfall 36,3% samanborið við 33,3% árið 2024. Lífeyrisskuldbindingar nema 2.119 m.kr. í árslok.

Veltufé frá rekstri A- og B-hluta nam 1.408 m.kr., þar af er veltufé frá rekstri A-hluta 835 m.kr. Handbært fé frá rekstri A- og B-hluta er 1.245 m.kr. Fjárfestingahreyfingar samstæðunnar námu á árinu 2025, 1.097 m.kr., þar af námu fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum 1.224 millj. króna. Afborganir langtímalána og skuldbreytingar námu 621 m.kr. Handbært fé nam 387 m.kr. í árslok. Ný langtímalán voru að fjárhæð 550 m.kr.

Í 64. gr. sveitarstjórnarlaga er kveðið á um að heildarskuldir og skuldbindingar A- og B-hluta í reikningsskilum skv. 60. gr. megi ekki vera hærri en nemur 150% af reglulegum tekjum. Frá heildarskuldum og skuldbindingum er heimilt að draga frá hluta lífeyrisskuldbindinga sem og tekjur og skuldir veitna og langtímakröfu vegna Brúar lífeyrissjóðs. Hjá Skagafirði er skuldahlutfall í ársreikningi fyrir árið 2025, 105% án þess að dreginn sé frá sá hluti af heildarskuldum sem heimilað er í lögum og reglugerð. Skuldaviðmið er 81% þegar búið er að draga frá það sem heimilt er vegna lífeyrisskuldbindinga og veltufé frá rekstri.

Ársreikningur 2025 borin upp til afgreiðslu og samþykktur með níu atkvæðum og vísað til síðari umræðu.

26.Fundargerðir SÍS 2026

Málsnúmer 2601009Vakta málsnúmer

Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga númer 993 frá 18. febrúar 2026, 994 frá 3. mars 2026 og 995 frá 10. mars 2026 voru lagðar fram til kynningar á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026.

27.Fundargerðir SSNV 2026

Málsnúmer 2601010Vakta málsnúmer

Fundargerðir stjórnar SSNV númer 136 frá 19. febrúar 2026 og 137 frá 24. febrúar 2026 voru lagðar fram til kynningar á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026.

Fundi slitið - kl. 17:42.