Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 44
Málsnúmer 2603003F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 47. fundur - 25.03.2026
Fundargerð 44. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar frá 12. mars 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 47. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 44 Starfsmaður nefndarinnar fer yfir þau mál sem eru á döfinni frá síðasta fundi.
Skýrslan er flutt munnlega og til kynningar.
Nefndin þakkar fyrir yfirferðina.
Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 44 Sveitarfélagið auglýsti í janúar sl. eftir umsóknum frá aðilum sem vildu taka að sér rekstur félagsheimilisins Ljósheima. Umsóknarfresturinn rann út 27. febrúar sl. og alls barst inn ein umsókn.
Framlögð umsókn um rekstur félagsheimilisins Ljósheima.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að fela starfsmönnum nefndarinnar að ganga til samninga við Videosport ehf.
Forsendur samningsins eru þær sömu og þegar gengið var til samninga við félagsheimilin Hegranes og Skagasel.
Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 44 Framlagt erindi dags. 23. febrúar 2026 frá Magnúsi Ver Magnússyni þar sem óskað er eftir styrkveitingu vegna Víkingurinn - keppni um sterkustu menn landsins.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þakka fyrir erindið og samþykkir samhljóða að styrkja verkefnið, ef keppnin verður haldin í Skagafirði, um gistingu fyrir þátttakendur og starfsfólk Víkings ásamt einni máltið. Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 44 Skúnaskrall er barnamenningarhátíð á Norðurlandi vestra sem fram fer dagana 21. október til 4. nóvember 2026.
Umræður um þátttöku sveitarfélagsins á hátíðinni.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd fagnar því að það sé verið að endurvekja þessa frábæru hátíð og samþykkir samhljóða að sveitarfélagið taki þátt í skipulagningu og framkvæmd þess sem hluti af stýrihópi SSNV. Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 44 Lagður fram til kynningar ársreikningur frá félagsheimilinu Héðinsminni. Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 47. fundi sveitarstjórnar 25. mars 2026 með níu atkvæðum.