Fara í efni

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd

44. fundur 12. mars 2026 kl. 14:00 - 14:46 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Ragnar Helgason formaður
  • Hrefna Jóhannesdóttir varaform.
  • Elínborg Erla Ásgeirsdóttir aðalm.
  • Tinna Kristín Stefánsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Maria Neves deildarstjóri
Fundargerð ritaði: Maria Neves deildarstjóri þróunar, miðlunar og menningar
Dagskrá
Hrefna Jóhannesdóttir sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.

1.Skýrsla deildarstjóra

Málsnúmer 2508066Vakta málsnúmer

Starfsmaður nefndarinnar fer yfir þau mál sem eru á döfinni frá síðasta fundi.

Skýrslan er flutt munnlega og til kynningar.

Nefndin þakkar fyrir yfirferðina.

2.Félagsheimilið Ljósheimar - rekstur 2026-2036

Málsnúmer 2512036Vakta málsnúmer

Sveitarfélagið auglýsti í janúar sl. eftir umsóknum frá aðilum sem vildu taka að sér rekstur félagsheimilisins Ljósheima. Umsóknarfresturinn rann út 27. febrúar sl. og alls barst inn ein umsókn.

Framlögð umsókn um rekstur félagsheimilisins Ljósheima.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að fela starfsmönnum nefndarinnar að ganga til samninga við Videosport ehf.

Forsendur samningsins eru þær sömu og þegar gengið var til samninga við félagsheimilin Hegranes og Skagasel.

3.Víkingurinn 2026

Málsnúmer 2602201Vakta málsnúmer

Framlagt erindi dags. 23. febrúar 2026 frá Magnúsi Ver Magnússyni þar sem óskað er eftir styrkveitingu vegna Víkingurinn - keppni um sterkustu menn landsins.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þakka fyrir erindið og samþykkir samhljóða að styrkja verkefnið, ef keppnin verður haldin í Skagafirði, um gistingu fyrir þátttakendur og starfsfólk Víkings ásamt einni máltið.

4.Skúnaskrall 2026

Málsnúmer 2602004Vakta málsnúmer

Skúnaskrall er barnamenningarhátíð á Norðurlandi vestra sem fram fer dagana 21. október til 4. nóvember 2026.

Umræður um þátttöku sveitarfélagsins á hátíðinni.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd fagnar því að það sé verið að endurvekja þessa frábæru hátíð og samþykkir samhljóða að sveitarfélagið taki þátt í skipulagningu og framkvæmd þess sem hluti af stýrihópi SSNV.

5.Ársreikningar félagsheimila 2025

Málsnúmer 2601193Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur frá félagsheimilinu Héðinsminni.

Fundi slitið - kl. 14:46.