Félagsheimilið Ljósheimar - rekstur 2026-2028
Málsnúmer 2512036
Vakta málsnúmerAtvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 44. fundur - 12.03.2026
Sveitarfélagið auglýsti í janúar sl. eftir umsóknum frá aðilum sem vildu taka að sér rekstur félagsheimilisins Ljósheima. Umsóknarfresturinn rann út 27. febrúar sl. og alls barst inn ein umsókn.
Framlögð umsókn um rekstur félagsheimilisins Ljósheima.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að fela starfsmönnum nefndarinnar að ganga til samninga við Videosport ehf.
Forsendur samningsins eru þær sömu og þegar gengið var til samninga við félagsheimilin Hegranes og Skagasel.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48. fundur - 25.08.2026
Á 47. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar fól nefndin starfsmanni nefndarinnar að auglýsa aftur rekstur Félagsheimilisins Ljósheima.
Auglýsingin birtist á heimasíðu sveitarfélagsins, á samfélagsmiðlum þess og í Sjónhorninu í júní. Auglýsingin var endurbirt í byrjun ágúst.
Umsóknarfrestur var til og með 15. ágúst sl.
Alls barst inn ein umsókn um rekstur Félagsheimilisins Ljósheima og verður fjallað um hana í næsta lið.
Nefndin vill koma á framfæri þökkum til Kristínar Elfu Magnúsdóttur og Sigurpáls Aðalsteinssonar fyrir þeirra störf í þágu samfélagsins.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 49. fundur - 24.09.2026
Umræður um rekstur félagsheimilisins.
Fyrirtækið Grettistak veitingar ehf. hefur dregið umsókn sína til baka.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að auglýsa aftur rekstur félagsheimilisins Ljósheima með sambærilegum hætti og gert var síðast.
Nefndin samþykkir jafnframt samhljóða að í birtri auglýsingu skuli koma fram með skýrum hætti að stígi engin áhugasamur fram eða ekki náist samningar við umsækjendur, skuli húsið sett í söluferli.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 50. fundur - 26.10.2026
Á 49. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar fól nefndin starfsmanni nefndarinnar að auglýsa aftur rekstur Félagsheimilisins Ljósheima.
Auglýsingin birtist á heimasíðu sveitarfélagsins, á samfélagsmiðlum þess og í Sjónhorninu í byrjun september.
Umsóknarfrestur var til og með 12. október sl.
Alls barst inn ein umsókn um rekstur Félagsheimilisins Ljósheima og verður fjallað um hana í næsta lið.
Auglýsingin birtist á heimasíðu sveitarfélagsins, á samfélagsmiðlum þess og í Sjónhorninu í byrjun september.
Umsóknarfrestur var til og með 12. október sl.
Alls barst inn ein umsókn um rekstur Félagsheimilisins Ljósheima og verður fjallað um hana í næsta lið.
Umræður um áform varðandi félagsheimilið.
Nefndin samþykkir með tveimur atkvæðum svohljóðandi auglýsingu:
Rekstraraðili fyrir félagsheimilið Ljósheima
"Sveitarfélagið Skagafjörður auglýsir eftir umsóknum frá aðilum sem vilja taka að sér rekstur félagsheimilisins Ljósheima á Sauðárkróki til allt að 10 ára með gagnkvæmum uppsagnarákvæðum.
Rekstraraðila er ætlað að sjá um daglega starfsemi í húsinu, útleigu, ræstingar og minni háttar viðhald. Afhending húsnæðis er eftir samkomulagi.
Leigugreiðsla tekur mið af álögðum fasteignasköttum, skyldutryggingum og viðhaldskostnaði sem nemur 0,85% af brunabótamati fasteignarinnar. Rekstraraðila ber jafnframt að standa straum af greiðslu rafmagns, hita og annarra trygginga.
Óskað er eftir að umsókn fylgi upplýsingar um bakgrunn og reynslu umsækjanda.
Umsóknarfrestur er til og með 27. febrúar 2026 og skal skila umsóknum í Ráðhúsið á Sauðárkróki, Skagfirðingabraut 21, 550 Sauðárkróki eða á netfangið skagafjordur@skagafjordur.is."
Forsendur eru þær sömu og þegar auglýst var eftir rekstraraðilum að félagsheimili Hegraness og Skagaseli.
Elínborg Erla Ásgeirsdóttir, fulltrúi Byggðalista, sat hjá við afgreiðslu málsins.