Fara í efni

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd

50. fundur 26. október 2026 kl. 14:00 - 15:26 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Davíð Logi Jónsson formaður
  • Guðbjörg Konráðsdóttir varaform.
  • Sylvía Sif Halldórsdóttir aðalm.
  • Hreiðar Örn Steinþórsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Maria Neves deildarstjóri
Fundargerð ritaði: Maria Neves deildarstjóri þróunar, miðlunar og menningar
Dagskrá

1.Skýrsla starfsmanna nefndarinnar

Málsnúmer 2606139Vakta málsnúmer

Starfsmaður nefndarinnar fer yfir þau mál sem eru á döfinni.

Skýrslan er flutt munnlega og til kynningar.

Nefndin þakkar fyrir yfirferðina.

2.Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 05_Menningarmál

Málsnúmer 2608075Vakta málsnúmer

Fjárhagsáætlun fyrir málaflokk nr. 05 - menningarmál lögð fram og tekin til seinni umræðu.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun fyrir menningarmál með áorðnum breytingum og vísar til seinni umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn.

3.Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 11_Atvinnumál

Málsnúmer 2608098Vakta málsnúmer

Fjárhagsáætlun fyrir málaflokk nr. 11 - atvinnumál lögð fram og tekin til seinni umræðu.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun fyrir atvinnumál og vísar til seinni umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn.

4.Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 21_kynningarmál

Málsnúmer 2608139Vakta málsnúmer

Fjárhagsáætlun fyrir málaflokk nr. 21 - kynningarmál lögð fram og tekin til seinni umræðu.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun fyrir kynningarmál og vísar til seinni umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn.

5.Rekstur tjaldsvæða í Skagafirði - Hofsós, Varmahlíð og Sauðárkrókur

Málsnúmer 2608093Vakta málsnúmer

Umræður um framtíð tjaldsvæða í Skagafirði.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að fela starfsmanni nefndarinnar að undirbúa sölu tjaldsvæðanna í Varmahlíð og á Hofsósi.

Nefndin telur rétt að sveitarfélagið dragi úr samkeppnisrekstri við einkaaðila og leggi fyrst og fremst áherslu á lögbundin verkefni og þjónustu. Á undanförnum árum hafa byggst upp vel útbúin tjaldsvæði og fjölbreytt ferðaþjónusta víða í Skagafirði. Nefndin telur því tímabært að skapa tækifæri fyrir ferðaþjónustuaðila til að taka við rekstri og áframhaldandi uppbyggingu þessara tjaldsvæða.

Stefnt er að því að tjaldsvæðin í Varmahlíð og á Hofsósi verði auglýst til sölu að loknum næsta fundi nefndarinnar.

Jafnframt leggur nefndin til að ákvörðun um framtíð tjaldsvæðisins á Nöfum á Sauðárkróki verði frestað til næsta fundar nefndarinnar.

Ástæða frestunarinnar er sú að ljúka þarf þeirri undirbúningsvinnu sem þegar er hafin um framtíðarskipulag tjaldsvæðisins. Þar er meðal annars verið að meta staðsetningu þess til skemmri og lengri tíma með hliðsjón af aðalskipulagi, mögulega uppbyggingu svæðisins og kostnaði við nauðsynlegar framkvæmdir.

Erindinu er vísað til byggðarráðs til afgreiðslu.

6.Félagsheimilið Ljósheimar - rekstur 2026-2036

Málsnúmer 2512036Vakta málsnúmer

Á 49. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar fól nefndin starfsmanni nefndarinnar að auglýsa aftur rekstur Félagsheimilisins Ljósheima.

Auglýsingin birtist á heimasíðu sveitarfélagsins, á samfélagsmiðlum þess og í Sjónhorninu í byrjun september.

Umsóknarfrestur var til og með 12. október sl.

Alls barst inn ein umsókn um rekstur Félagsheimilisins Ljósheima og verður fjallað um hana í næsta lið.

7.Umsókn um rekstur á félagsheimilinu Ljósheimum

Málsnúmer 2610045Vakta málsnúmer

Framlögð umsókn um rekstur félagsheimilisins Ljósheima.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að fela starfsmanni nefndarinnar að ganga til samninga við Ísabellu Friðriksdóttur og Hilmi Örn Eiríksson.

8.Rekstur og umsjón Víðimýrarkirkju

Málsnúmer 2610022Vakta málsnúmer

Framlagt erindi frá Berglindi Þorsteinsdóttur, safnstjóra Byggðasafns Skagfirðinga, dagsett 1. október 2026 um rekstur og umsjón Víðimýrakirkju.

Byggðasafn Skagfirðinga hefur um árabil annast rekstur og umsjón Víðimýrarkirkju samkvæmt samningi við Þjóðminjasafn Íslands, sem hefur runnið úr gildi. Miklar breytingar hafa orðið á afnotum kirkjunnar og rekstrarforsendur breyst. Því leggur forstöðumaður Byggðasafns Skagafjarðar til að Þjóðminjasafnið, sem eigandi kirkjunnar, taki nú ákvörðun um framtíðarfyrirkomulag reksturs og aðgengis að Víðimýrarkirkju.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að ekki verður sóst eftir endurnýjun samnings við Þjóðminjasafn Íslands um rekstur og umsjón Víðimýrakirkju og vísar erindinu til byggðarráðs.

Jafnframt felur nefndin starfsmanni nefndarinnar að taka deildina út úr fjárhagsáætlun 2027 áður en hún verður framlögð fyrir byggðarráð.

9.SveitaSæla 2027

Málsnúmer 2509207Vakta málsnúmer

Umræður um hátíðina Sveitasæla sem fyrirhuguð er árið 2027.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd felur starfsmanni nefndarinnar að eiga fund með forsvarsmönnum Flugu til að ákveða fyrirkomulag hátíðarinnar á næsta ári.

Fundi slitið - kl. 15:26.