Fara í efni

Strenglagning frá aðveitustöð að Furulundi Varmahlíð - Framkvæmaleyfisumsókn

Málsnúmer 2511212

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 93. fundur - 12.03.2026

Rarik óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir strenglagningu við og í Varmahlíð. Gert er ráð fyrir að leggja 12 kV háspennustreng frá Aðveitustöð við Varmahlíð að Furulundi í Varmahlíð.
Gert er ráð fyrir að plægja þessa leið 90 cm dýpi og áætlaður verktími apríl 2026.
Þessi lagnaleið var unnin í samtali við landeigendur og starfsfólk sveitarfélagsins.

Um framkvæmdina.
Vinnuvélarnar munu fylgja strengleiðinni sem sýnd er á meðfylgjandi mynd. Verktakar verða ráðnir í verkið og það verða líklega 2-4 starfsmenn að vinna við plægingu, auk þess sem að starfsmaður Rarik kemur til með að sinna verkeftirliti. Tveir starfsmenn sjá svo um tengingar þegar þar að kemur. Jarðýta verður notuð við plægingu á strengnum. Strengkeflin verða á plógýtunni og/eða á öðru tæki framan við plógýtuna.
Ekki verða nein varanleg ummerki á jarðvegi, gróðri eða dýralífi.
Gengið verður frá meðfram plógfari. Notuð verður beltagrafa til að draga úr mögulegu álagi á gróður. Reynslan sýnir að plógfar verður ill greinanlegt innan nokkurra ára.

Önnur leyfismál:
Skógræktarfélag Skagafjarðar hefur sent umsögn um framkvæmdina, tölvupóstur frá Johan Holst.
Fiskistofa - leyfi til að þvera Víðimýrará.
Minjastofnun - gerir ekki athugasemdir, tölvupóstur Guðmundur Stefán Sigurðarson.
Vegagerðin - í vinnslu.
Samkomulag við landeigendur - í vinnslu, sjá staðlað samkomulag í viðhengi.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi að fengnu samþykki Vegagerðarinnar og hluteigandi landeigenda.