Byggðarráð Skagafjarðar
Dagskrá
1.Trúnaðarbók byggðarráðs
Málsnúmer 2412006Vakta málsnúmer
Fært í trúnaðarbók.
2.AECO - VSK og hringsiglingar
Málsnúmer 2602250Vakta málsnúmer
Lagt var fram minnisblað BBA//Fjeldco, dagsett 16. febrúar 2026, sem unnið var fyrir AECO. Í minnisblaðinu er fjallað um afmörkun og framkvæmd virðisaukaskattskyldu skemmtiferðaskipa í innanlandssiglingum auk þess sem gerð er grein fyrir gildandi lagaumgjörð, túlkun skattayfirvalda og þeim sjónarmiðum sem kunna að skipta máli varðandi skattlagningu þessarar starfsemi. AECO hefur miklar áhyggjur af samkeppnisfærni Íslands í hringsiglinum og telur álögur og íþyngjandi regluverk geta ógnað samkeppnisfærni landsins.
Í minnisblaðinu kemur jafnframt fram að samkvæmt ákvarðandi bréfi Skattsins nr. 2/2025 séu rekstraraðilar skemmtiferðaskipa í innanlandssiglingum taldir virðisaukaskattsskyldir, m.a. vegna fólksflutninga, gistiþjónustu og sölu á vöru og þjónustu um borð. Loks er í minnisblaðinu fjallað um atriði sem kunna að skipta máli við frekari útfærslu eða mat stjórnvalda, þar á meðal tæknileg atriði um hugsanlega undanþágu, tengsl við tollfrelsi skemmtiferðaskipa og hvort eðlilegra væri að skilgreina starfsemina sem undanþegna veltu eða undanþegna starfsemi samkvæmt VSK-lögum.
Í Skagafirði gætir áhrifa óvissu um álögur og lagaumhverfi þessarar atvinnugreinar og er eingöngu von á 6 skipakomum sumarið 2026 en skipakomurnar voru 25 árið 2025. Byggðarráð bendir á að slíkar skipakomur séu jafnan skipulagðar og bókaðar þrjú ár fram í tímann og telur því mikilvægt að um atvinnugreinina ríki stöðugt og fyrirsjáanlegt lagaumhverfi.

3.Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts
Málsnúmer 2602136Vakta málsnúmer
Fært í trúnaðarbók.
4.Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts
Málsnúmer 2602226Vakta málsnúmer
Fært í trúnaðarbók.
5.Uppsögn á samningi
Málsnúmer 2603003Vakta málsnúmer
Guðlaugur Skúlason vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.
Lagt var fram bréf frá Magnúsi Barðdal Reynissyni fyrir hönd aðalstjórnar Ungmennafélagsins Tindastóls, dagsett 27. febrúar 2026. Efni bréfsins er uppsögn rekstrarsamnings um skíðasvæðið í Tindastóli, en samningurinn er uppsegjanlegur með 6 mánaða fyrirvara.
Uppsögnin byggir á því að reksturinn sé of umfangsmikill og ábyrgðarmikill fyrir skíðadeildina. Fram kemur að núverandi kröfur og eftirlit við rekstur skíðasvæða séu of íþyngjandi fyrir deild sem drifin er að hluta á sjálfboðaliðastarfi og að forgangur deildarinnar sé ungmennastarf og skíðakennsla. Aðalstjórn vonast til að reksturinn færist til aðila með bolmagn og faglega getu og lýsir sig reiðubúna til áframhaldandi samtals við sveitarfélagið um yfirfærslu rekstrar og tengd mál.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að boða forsvarsmenn aðalstjórnar og skíðadeildar Tindastóls á fund byggðarráðs.

6.Sundlaugin Sólgörðum - Framkvæmd samnings 2026
Málsnúmer 2603033Vakta málsnúmer
Lagt var fram sundurliðað kostnaðaryfirlit ásamt fylgiskjölum vegna kostnaðar sem Sótahnjúkur ehf. hefur haft á árinu 2025 af viðhalds- og endurbótaverkefnum við sundlaugina á Sólgörðum. Samtals réðist Sótahnjúkur ehf. í viðhaldsframkvæmdir að upphæð 2.691.664 kr. á síðasta ári. Veigamest var þar málun laugarkarsins ásamt öðru viðhaldi á lagnakerfi og laugarkari sundlaugarinnar.
Jafnframt var lögð fram rekstruppgjör sundlaugarinnar fyrir árið 2025 og endurskoðuð rekstraráætlun fyrir árið 2026. Á síðasta ári fjölgaði heimsóknum í sundlaugina um 5% en var rekstrarniðurstaða sundlaugarinnar neikvæð um 165þ. kr.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að Sótahnjúkur ehf. skuli fá endurgreiddan kostnað vegna viðhaldsframkvæmda síðasta árs, að upphæð 2.691.664 kr. í samræmi við samning Skagafjarðar og Sótahnjúks ehf. um rekstur sundlaugarinnar á Sólgörðum.

7.Samráð; Könnun um einföldun regluverks um verkefni sveitarfélaga
Málsnúmer 2602144Vakta málsnúmer
Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 27/2026, "Könnun um einföldun regluverks um verkefni sveitarfélaga".
Umsagnarfrestur er til og með 10.03.2026.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að könnunin verði send á kjörna fulltrúa og hver og einn fulltrúi skili inn sínum ábendingum.

8.Yfirferð yfir tillögur úr skýrslu HLH ráðgjafar
Málsnúmer 2403229Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar yfirlit yfir stöðu á innleiðingu tillagna úr skýrslu HLH ehf. um úttekt á stjórnsýslu, rekstri og fjármálum Skagafjarðar.
9.Áskorun frá Siglingasambandi Íslands
Málsnúmer 2602240Vakta málsnúmer
Lagt fram bréf frá Siglingasambandi Íslands, dagsett 21. febrúar 2026. Í bréfinu er reifuð áskorun frá 53. Siglingaþingi SÍL haldið 21. febrúar 2026 þar sem skorað er á sveitarfélög landsins að leggja aukna og markvissa áherslu á vernd og góða umgengni um strandlengju landsins, tryggja aðgengi almennings að sjónum til útivistar og jafnframt huga sérstaklega að stuðningi við íþróttafélög og starfsemi sem byggir á nýtingu sjávar og strandar.
10.Hlutverk SIS mats við framkvæmd þjónustu
Málsnúmer 2602171Vakta málsnúmer
Máli var vísað frá 42. fundi félagsmála- og tómstundanefndar, þann 26. febrúar sl., þannig bókað:
"Lögð fram til kynningar álitsgerð send til sveitarfélaga frá félagsmála- og húsnæðisráðuneytinu um álitaefni sem tengjast fjármögnun á og ákvörðunum um þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk.
Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að vísa til byggðarráðs."

11.Vatnaskil í þjóðlendumálum - ráðstefna í Safnahúsinu 12. mars
Málsnúmer 2603008Vakta málsnúmer
Lagður var fram tölvupóstur frá Forsætisráðuneytinu, dagsettur 27. febrúar 2026, þar sem vakin er athygli á ráðstefnu sem ráðuneytið stendur fyrir undir yfirskriftinni Vatnaskil í þjóðlendumálum. Á ráðstefnunni, sem haldin verður fimmtudaginn 12. mars í Safnahúsinu við Hverfisgötu, verður fjallað um málefni þjóðlenda en þau tímamót urðu í desember sl. að óbyggðanefnd kvað upp síðustu úrskurði sína. Nefndin hefur þar með lokið því verkefni sínu sem hófst 1998 að fjalla um mörk þjóðlenda og eignarlanda á landinu öllu.
Fundi slitið - kl. 16:11.