Áskorun frá Siglingasambandi Íslands
Málsnúmer 2602240
Vakta málsnúmerByggðarráð Skagafjarðar - 184. fundur - 04.03.2026
Lagt fram bréf frá Siglingasambandi Íslands, dagsett 21. febrúar 2026. Í bréfinu er reifuð áskorun frá 53. Siglingaþingi SÍL haldið 21. febrúar 2026 þar sem skorað er á sveitarfélög landsins að leggja aukna og markvissa áherslu á vernd og góða umgengni um strandlengju landsins, tryggja aðgengi almennings að sjónum til útivistar og jafnframt huga sérstaklega að stuðningi við íþróttafélög og starfsemi sem byggir á nýtingu sjávar og strandar.