Fara í efni

Uppsögn á samningi

Málsnúmer 2603003

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 184. fundur - 04.03.2026

Guðlaugur Skúlason vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

Lagt var fram bréf frá Magnúsi Barðdal Reynissyni fyrir hönd aðalstjórnar Ungmennafélagsins Tindastóls, dagsett 27. febrúar 2026. Efni bréfsins er uppsögn rekstrarsamnings um skíðasvæðið í Tindastóli, en samningurinn er uppsegjanlegur með 6 mánaða fyrirvara.

Uppsögnin byggir á því að reksturinn sé of umfangsmikill og ábyrgðarmikill fyrir skíðadeildina. Fram kemur að núverandi kröfur og eftirlit við rekstur skíðasvæða séu of íþyngjandi fyrir deild sem drifin er að hluta á sjálfboðaliðastarfi og að forgangur deildarinnar sé ungmennastarf og skíðakennsla. Aðalstjórn vonast til að reksturinn færist til aðila með bolmagn og faglega getu og lýsir sig reiðubúna til áframhaldandi samtals við sveitarfélagið um yfirfærslu rekstrar og tengd mál.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að boða forsvarsmenn aðalstjórnar og skíðadeildar Tindastóls á fund byggðarráðs.

Byggðarráð Skagafjarðar - 186. fundur - 19.03.2026

Guðlaugur Skúlason vék af fundi undir þessum lið og í hans stað mætti Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir til fundarins.

Undir þessum dagskrárlið mættu fulltrúar frá aðalstjórn og skíðadeild Tindastóls, þau Magnús Barðdal Reynisson, Helga Daníelsdóttir og Stefán Árnason, vegna uppsagnar skíðadeildar Tindastóls á rekstrarsamningi við sveitarfélagið vegna Skíðasvæðis í Tindastóli.

Umræður teknar um stöðu mála og farið yfir álitamál. Aðalstjórn Tindastóls mun vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins og kemur í kjölfarið aftur á fund byggðarráðs.