Fara í efni

Byggingarnefnd menningarhúss á Sauðárkróki

8. fundur 06. mars 2026 kl. 13:30 - 14:25 með fjarfundabúnaði
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson aðalm.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir aðalm.
  • Guðlaugur Skúlason aðalm.
Starfsmenn
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
  • Berglind Þorsteinsdóttir forstöðumaður byggðasafns
  • Kristín Sigurrós Einarsdóttir forstöðumaður héraðsbókasafns
  • Sólborg Una Pálsdóttir forstöðumaður héraðsskjalasafns
  • Hjörvar Halldórsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
Fundargerð ritaði: Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Dagskrá

1.Hönnun menningarhúss á Sauðárkróki

Málsnúmer 2509192Vakta málsnúmer

Birgir Teitsson og Sara Axelsdóttir frá ARKÍS arkitektum fóru yfir aðaluppdrætti nýs menningarhúss á Sauðárkróki. Auk nefndarmanna og starfsmanna sveitarfélagsins sem unnið hafa með nefndinni var einnig boðið til fundarins fulltrúum úr ráðgefandi hópi sveitarfélagsins um aðgengismál. Úr þeim hópi tók þátt í fundinum Magnús Jóhannesson.

Jóhanna Ey Harðardóttir fulltrúi Byggðalista leggur fram eftirfarandi tillögu:
Byggingarnefnd menningarhúss á Sauðárkróki samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu á hönnun menningarhúss á Sauðárkróki.
Sveitarstjórn Skagafjarðar hefur borist erindi þar sem tilkynnt er um fyrirhugaða undirskriftasöfnun vegna byggingu menningarhúss á Sauðárkróki og því nauðsynlegt að fresta afgreiðslu málsins þar til sveitarstjórn hefur tekið fyrir erindi um fyrirhugaða undirskriftasöfnun.

Meirihluti byggingarnefndar hafnar tillögunni.

Meirihluti byggingarnefndar samþykkir samhljóða fyrirlagða aðaluppdrætti nýs menningarhúss. Fulltrúi Byggðalista greiðir atkvæði á móti.

Fundi slitið - kl. 14:25.