Fara í efni

Fyrirhuguð undirskriftasöfnun vegna byggingu menningarhúss á Sauðárkróki

Málsnúmer 2603206

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 47. fundur - 25.03.2026

Jóhanna Ey Harðardóttir vék af fundi og Eyþór Fannar Sveinsson tók sæti í hennar stað við afgreiðslu þessa máls.

Álfhildur Leifsdóttir kvaddi sér hljóðs og lagði fram bókun fyrir hönd VG og óháðra, svohljóðandi:
"VG og óháð lögðu fram tillögu um íbúakosningu um menningarhús vorið 2022. Ekki hvort ætti að byggja það heldur hvar það ætti að vera og hvaða tilgangi það ætti að þjóna. Það var ekki deila um byggingu þess á þeim tíma. Tilgangur okkar með tillögunni var að fá íbúa í samtalið og besta þannig hugmyndir um húsið - sem á að vera okkar allra í Skagafirði. Sú tillaga var því miður felld af fulltrúum Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og Byggðalista. Við erum ekki í nokkrum vafa um að við værum ekki í þessari stöðu í dag ef tillagan hefði fengið framgöngu. Í stað þess að hér sé gjá milli fólks um menningarhús þá myndi ríkja meiri sátt. Sátt sem næst með samtali og íhlutun íbúa, á þeim tímapunkti sem er góður til þessa samtals, ekki þegar það er orðið of seint.
Aðalatriðið í þessu öllu saman má þó ekki gleymast, að munir Byggðasafnsins þurfa varðveislurými sem uppfylla ákveðin skilyrði og að því á sannarlega að standa með sóma. En hér í þessum sal sveitarstjórnar er oft farið í söguskýringar og er nú vel við hæfi að gera svo og rifja upp að í eina tíð hafði Byggðasafnið rými til sýninga, geymslu og rannsókna. Það hefur ekki alltaf verið geymt á vörubrettum í geymslubili í iðnaðarhverfinu. En það var einmitt meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðismanna sem á þeim tíma ákvað að fara í makaskipti á húsum við Kaupfélagið og fórna þannig því rými sem Byggðasafnið hafði. Og hvað fékk sveitarfélagið í staðinn? Jú verulega illa farið hús við Aðalgötu 21 sem þurfti að gera við fyrir hundruðir milljóna. Sama hús og umræddur meirihluti ákvað að láta leigulaust til Sýndarveruleika ehf. í árafjöld. Hrakhólar Byggðasafnsins eru því í boði meirihluta.
Því miður hefur áform um menningarhús á Sauðárkróki skipt samfélaginu í tvær fylkingar. Við í VG og óháðum höfum margsinnis bent á þörf fyrir meira gagnsæi og aukið samtal í þessu verkefni því svo stórt, mikilvægt og fjárfrekt verkefni á ekki að vera unnið í hálfgerðri kyrrþey. Má þar t.d. rifja upp að sú sem hér stendur þurfti að óska eftir að aðrir sveitarstjórnarfulltrúar fengu kynningu á þeirri hönnun sem þeir áttu að samþykkja á sveitarstjórnarfundi, það þykir okkur sérstök stjórnsýsla. Vonandi ber komandi sveitarstjórn gæfa til að læra af þessari sögu og leita meira samtals og sátta meðal íbúa í framtíðinni."

Einar E. Einarsson kvaddi sér hljóðs og lagði fram bókun fyrir hönd meirihlutaflokka sveitarstjórnar, svohljóðandi:
"Samkvæmt 107. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 ákveður sveitarstjórn hvort fram skuli fara almenn atkvæðagreiðsla meðal íbúa sveitarfélags um einstök málefni þess. Í 2. mgr. 108. gr. sveitarstjórnarlaga er mælt fyrir um rétt íbúa til að óska eftir atkvæðagreiðslu um einstök málefni. Þar er mælt fyrir um að ef minnst 20% af þeim sem kosningarétt eiga í sveitarfélagi óska almennrar atkvæðagreiðslu skuli sveitarstjórn verða við því eigi síðar en innan árs frá því slík ósk berst, en heimilt er að ákveða hærra hlutfall í samþykkt um stjórn. Samkvæmt samþykkt um stjórn Skagafjarðar nr. 1336/2022 skal sveitarstjórn verða við beiðni um almenna atkvæðagreiðslu ef minnst 25% kosningabærra íbúa óska þess. Sveitarstjórn hefur engu að síður ákvörðunarvald um framkvæmd atkvæðagreiðslunnar og þá spurningu sem borin verður upp.

Fjallað er um undirskriftasafnanir vegna almennra atkvæðagreiðslna samkvæmt sveitarstjórnarlögum í reglugerð nr. 155/2013. Þar kemur fram að tilkynna skal sveitarstjórn um fyrirhugaða undirskriftarsöfnun í sveitarfélaginu. Ef undirskriftarsöfnun lýtur að ósk um atkvæðagreiðslu um tiltekna ákvörðun sem sveitarstjórn hefur þegar tekið skal frestur til að tilkynna um fyrirhugaða undirskriftarsöfnun vera fjórar vikur frá því ákvörðun var birt, sbr. 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar. Eftir að sveitarstjórn hefur fengið tilkynningu um fyrirhugaða undirskriftarsöfnun, skal hún innan fjögurra vikna meta hvort ákvæði 3. mgr. 108. gr. sveitarstjórnarlaga hamli því að unnt sé að krefjast almennrar atkvæðagreiðslu um málið og tilkynna ábyrgðaraðila um niðurstöðu sína. Þá skal sveitarstjórn leiðbeina ábyrgðaraðila um orðalag tilkynningarinnar og önnur framkvæmdaratriði eftir því sem þörf er á. Telji sveitarstjórn að undirskriftarsöfnun samrýmist ekki 3. mgr. 108. gr. skal beiðninni hafnað.

Atkvæðagreiðsla um einstök málefni sem fram fara á vegum sveitarfélags, hvort sem er á grundvelli ákvörðunar sveitarstjórnar eða að frumkvæði íbúa, eru almennt ráðgefandi nema sveitarstjórn ákveði annað sbr. 3. mgr. 107. gr. sveitarstjórnarlaga. Ráðgefandi atkvæðagreiðslur á grundvelli sveitarstjórnarlaga eru ein af ýmsum leiðum sem sveitarfélög hafa til að leita samráðs við íbúa sína.

Sveitarstjórn Skagafjarðar tók ákvörðun þann 10. maí 2023 um samkomulag við ríkið um byggingu menningarhúss í Skagafirði og hefur síðan ákvörðun um fjármagn til verkefnisins verið samþykkt í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins, síðast þann 19. nóvember 2025. Auk þess hefur ríkið þegar innt af hendi greiðslur í tengslum við verkefnið til sveitarfélagsins. Tillaga um að efna til íbúakosningar um ákvörðun sveitarstjórnar um byggingu menningarhúss á Sauðárkróki var felld í sveitarstjórn þann 25. febrúar 2026.

Tilkynning um fyrirhugaða undirskriftarsöfnun lýtur að ósk um atkvæðagreiðslu um ákvörðun um byggingu menningarhúss og samninga við ríkið þar um. Fram kemur í tilkynningunni að óskað sé atkvæðagreiðslu um frestun byggingar menningarhúss á Sauðárkróki og endurupptöku á samningi við ríkið vegna þess. Tilkynning um fyrirhugaða atkvæðagreiðslu þarf að tengjast efnislega tiltekinni ákvörðun og tilkynningin þarf að berast innan tiltekins tíma frá því sú ákvörðun var tekin. Sú ákvörðun sem vísað var til var tekin í sveitarstjórn í maí 2023 og frestur til þess að tilkynna um fyrirhugaða undirskriftarsöfnun um þá tilteknu ákvörðun sem sveitarstjórn tók er liðinn miðað við ákvæði reglugerðarinnar um fjögurra vikna frest.

Meirihluti sveitarstjórnar bendir á að í ljósi framangreinds telur meirihluti sveitarstjórnar að framangreind beiðni um undirskriftarsöfnun uppfylli ekki skilyrði reglugerðar nr. 155/2013.

Bent er á að hægt er að kæra framangreinda ákvörðun til innviðaráðuneytis."


Hlé gert á fundi kl. 16:53

Fundi haldið áfram kl. 17:14

Sveinn Þ. Finster Úlfarsson kvaddi sér hljóðs og lagði fram bókun fyrir hönd Byggðalista, svohljóðandi:
"Miðað við framkomna bókun meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks er auðséð að meirihlutinn muni ekki heimila söfnun undirskrifta um fyrirhugaða uppbyggingu menningarhús á Sauðárkróki. Við undrum okkur á því að þau meti frest til söfnunar liðinn á þeim grundvelli að undirskriftasöfnun sem hér á að greiða atkvæði um snúist um samkomulag um byggingu menningarhús í Skagafirði.
Við teljum það liggja augljóst fyrir að fyrirhuguð undirskriftasöfnun felist í hvort halda eigi áfram uppbyggingu menningarhús á Sauðárkróki í þeirri mynd sem komin er fram á teikniborðið en ekki um samningin sem slíkan."

Tillaga um að hafna beiðni um undirskriftarsöfnun með rökum sem reifuð voru í bókun meirihlutaflokka borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með fimm atkvæðum. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson og Eyþór Fannar Sveinsson, fulltrúar Byggðalista óska bókað að þeir greiða atkvæði gegn tillögunni. Álfhildur Leifsdóttir og Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir fulltrúar VG og óháðra óska bókað að þær sitja hjá við afgreiðslu málsins.