Fara í efni

Landbúnaðar- og innviðanefnd

44. fundur 19. mars 2026 kl. 08:00 - 10:00 að Borgarteigi 15, Sauðárkróki
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson formaður
  • Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir varaform.
  • Hildur Þóra Magnúsdóttir ritari
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Kári Gunnarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
  • Guðný Hólmfríður Axelsdóttir ritari
  • Hjörvar Halldórsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
  • Sigurður Arnar Friðriksson forstöðumaður framkvæmda
Fundargerð ritaði: Guðný Axelsdóttir ritari
Dagskrá

1.Ósk um leigu á Efri Flóa

Málsnúmer 2601312Vakta málsnúmer

Landbúnaðar- og innviðanefnd auglýsti Efri Flóa fyrir ofan Hofsós, alls 48 ha. til leigu. Aðeins ein umsókn barst á auglýsingatíma. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að hafna þeirri umsókn.

2.Fjallskilasamþykkt Skagafjarðar

Málsnúmer 2208249Vakta málsnúmer

Einar Einarsson kynnti drög að nýrri fjallskilasamþykkt sem unnin var í nefnd um fjallskilamál og skipuð var á síðasta ári, þar sem sitja fulltrúar bænda, kjörnir fulltrúar og umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi. Jafnframt starfaði Anna Lilja Ragnarsdóttir lögfræðingur með nefndinni. Vinna við uppfærslu Fjallskilasamþykktar Skagafjarðar er nú á lokametrunum, en haldnir hafa verið ellefu fundir í nefndinni. Einnig hefur verið fundað með fulltrúum fjallskiladeildanna og þeim gefinn kostur á að koma sínum ábendingum að.
Fjallskilasamþykktin er nú til yfirlestrar hjá Bændasamtökum Íslands og verður lögð fyrir til samþykktar þegar hún er tilbúin.

3.Refa- og minkaveiðiáætlun 2026

Málsnúmer 2603076Vakta málsnúmer

Lögð fram áætlun fyrir refa- og minkaveiðar 2026 ásamt uppfærðri gjaldskrá sem gerir ráð fyrir 5% hækkun.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir áætlunina samhljóða og felur umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa að kynna veiðimönnum niðurstöðuna áður en nýtt veiðitímabil hefst 1. maí.

4.Deildardalur ársreikningur 2025

Málsnúmer 2602124Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs Deildardals 2025

5.Ársreikningur 2025 Framhluti

Málsnúmer 2601314Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs Seyludeildar, framhluta og Lýt.deildar fyrir árið 2025

6.Akrahreppur ársreikningur 2025

Málsnúmer 2602195Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Upprekstrarfélags Akrahrepps fyrir árið 2025

7.Ársreikningur 2025 Skefilsstaðahreppur

Málsnúmer 2603007Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Skefilsstaðahrepps fyrir árið 2025

8.Unadalur ársreikningur 2025

Málsnúmer 2603111Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs Unadals fyrir árið 2025

9.Hofsafrétt ársreikningur 2025

Málsnúmer 2603113Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs Hofsafréttar fyrir árið 2025

10.Hrolleifsdalur ársreikningur 2025

Málsnúmer 2603140Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs Hrollleifsdals fyrir árið 2025

11.Staðarhreppur ársreikningur 2025

Málsnúmer 2603152Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs Staðardeildar fyrir árið 2025

12.Útboð veiði í Hjaltadalsá og Kolbeinsdalsá

Málsnúmer 2511072Vakta málsnúmer

Umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi kynnti tilboð sem bárust vegna útboðs veiði í Hjaltadalsá og Kolbeinsdalsá

13.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026

Málsnúmer 2601012Vakta málsnúmer

Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026 lagðar fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 10:00.