Skipulagsnefnd
Dagskrá
1.Endurskoðun aðalskipulags Skagafjarðar 2025-2040
Málsnúmer 2404001Vakta málsnúmer
2.Hofsós - Plássið, Sandurinn, Brekkan og Bakkinn - Deiliskipulag
Málsnúmer 2506198Vakta málsnúmer
Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við skipulagslýsingu fyrir Hofsós - Plássið, Sandurinn, Brekkan og Bakkinn, mál nr. 4/2026 (https://skipulagsgatt.is/issues/2026/4 ) í Skipulagsgáttinni, samráðsgátt Skipulagsstofnunar um skipulagsmál. Skipulagslýsingin var í auglýsingu dagana 07.01.2026- 30.01.2026 og bárust 13 umsagnir.
Björn Magnús Árnason frá Stoð ehf. verkfræðistofu sat fundinn undir þessum lið.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.

Gestir
- Björn Magnús Árnason
3.Laufblaðið, Sauðárkróki, íbúðarbyggð og opið svæði - Deiliskipulag
Málsnúmer 2511191Vakta málsnúmer
Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við skipulagslýsingu fyrir Laufblaðið, Sauðárkróki, íbúðarbyggð og opið svæði, mál nr. 3/2026 (https://skipulagsgatt.is/issues/2026/3 ) í Skipulagsgáttinni, samráðsgátt Skipulagsstofnunar um skipulagsmál. Skipulagslýsingin var í auglýsingu dagana 07.01.2026- 30.01.2026 og bárust 10 umsagnir.
Björn Magnús Árnason frá Stoð ehf. verkfræðistofu sat fundinn undir þessum lið.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.
Björn Magnús Árnason frá Stoð ehf. verkfræðistofu sat fundinn undir þessum lið.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.
Gestir
- Björn Magnús Árnason
4.Tjaldsvæði við Borgargerði - Deiliskipulag
Málsnúmer 2602204Vakta málsnúmer
Farið yfir áherslupunkta, næstu skref varðandi gerð deiliskipulags fyrir tjaldsvæðið við Borgargerði á Sauðárkróki.
Frumhönnunin sem unnin var af Arnari Birgi Ólafssyni hjá Teiknistofu Norðurlands í tengslum við staðarval tjaldsvæðisins sem fór fram við gerð Aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040.
Skipulagsnefnd samþykkir með tveimur atkvæðum að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.
Álfhildur Leifsdóttir fulltrúi VG og óháðra óskar bókað:
Í ljósi þess að aðstöðuhús verður fært á tjaldsvæði á Nöfum vegna uppbyggingar menningarhúss á Flæðunum, teljum við skynsamlegt að nýta það tækifæri og skipuleggja varanlegt og aðlaðandi tjaldsvæði á Nöfunum. Þar sem þarf að leiða heitt vatn á svæðið og huga að fráveitu og er því hagkvæmt að ganga alla leið og byggja upp metnaðarfulla og skjólgóða framtíðarlausn fremur en bráðabirgðaaðstöðu. Nafirnar eru með frábært útsýni yfir fjörðinn sem býður upp á tækifæri til að skapa eftirsótta upplifun fyrir ferðamenn sem sækja svæðið heim.

5.Tumabrekka land 2 L220570 - Deiliskipulag
Málsnúmer 2405682Vakta málsnúmer
Lögð fram deiliskipulagstillaga fyrir Tumabrekku land 2 L220570 unnin af Ínu Björk Ársælsdóttur á Stoð ehf. verkfræðistofu. Skipulagsuppdráttur nr. DS-01, dags. 08.11.2024, verknr. 7586001. Uppdrátturinn sýnir staðsetningu byggingarreita, lóðamarka, vegtenginga og aðkomu að byggingum, ásamt helstu byggingarskilmálum. Stærð skipulagssvæðisins er 1,58 ha og að mestu mólendi.
Vegna ábendingar frá Skipulagsstofnun þarf að endurtaka málsmeðferð skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, en þar sem engar breytingar hafa verið gerðar á tillögunni frá fyrri auglýsingu, munu fyrri umsagnir gilda berist ekki fleiri.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagstillöguna Tumabrekka land 2 L220570 í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hildur Hartmannsdóttir víkur af fundi við þennan dagskrálið.

6.Hofsós - Sorpmóttaka og gámasvæði - Deiliskipulag.
Málsnúmer 2302209Vakta málsnúmer
Lögð fram deiliskipulagstillaga, Sorpmóttaka og gámalóð, Hofsósi dags. 29.04.2024, uppdráttur nr. DS01, útgáfa 1.0 sem unnin var á Stoð ehf. verkfræðistofu. Skipulagssvæðið er 11.414 m² að stærð á mótum Norðurbrautar að sunnan og Bæjarbrautar að austan. Að vestan afmarkast svæðið af vesturlóðamörkum áhaldahúss sveitarfélagsins. Skipulagsuppdráttur nr. DS-01 sýnir lóðir, aðkomu að lóðum og byggingarreiti á skipulagssvæðinu, ásamt helstu byggingarskilmálum. Á deiliskipulagsuppdrættinum eru sýndar þrjár lóðir á svæðinu, lóð gámageymslusvæðisins, lóð áhaldahússins og lóð sorpmóttökunnar. Starfsemi og umferðarsvæði sem fyrir eru á iðnaðarsvæðinu fá með deiliskipulagstillögunni skilgreindar lóðir, götur og innkeyrslur á lóðir.
Vegna ábendingar frá Skipulagsstofnun þarf að endurtaka málsmeðferð skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, en þar sem engar breytingar hafa verið gerðar á tillögunni frá fyrri auglýsingu, munu fyrri umsagnir gilda berist ekki fleiri.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagstillöguna Sorpmóttaka og gámalóð, Hofsósi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

7.Sauðárkrókur - Deiliskipulag. Skógargata, Aðalgata frá leikvelli að Kambastíg
Málsnúmer 2202094Vakta málsnúmer
Lögð fram deiliskipulagstillaga fyrir Skógargötureitinn, íbúðabyggð á Sauðárkróki, uppdráttur nr. DS01, útgáfa 2.0, dags. 04.09.2024 sem unnin var af Birni Magnúsi Árnasyni á Stoð ehf. verkfræðistofu. Einnig lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Gamla bæjarins á Sauðárkróki frá 1987 sem fellir umrætt svæði úr gildi, verknúmer 56291601, uppdráttur nr. DS01, útgáfa 1.0, dags. 04.09.2024.
Breyting á uppdrætti er að svæði sem afmarkast af Aðalgötu að austan, göngustíg að sunnan, Skógargötu að vestan og göngustíg og bílastæðum við Kaupvangstorg að norðan., skv. gildandi deiliskipulagi. Svæði þetta fellur út í deiliskipulagi gamla bæjarins á Sauðárkróki. Skipulagssvæði gamla bæjarins minnkar um 6.380 m². Breytingarsvæðið er innan íbúðabyggðar nr. ÍB401 í aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 og verndarsvæðis nr. MV401. Breytingin er í samræmi við ákvæði aðalskipulags.
Vegna ábendingar frá Skipulagsstofnun þarf að endurtaka málsmeðferð skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, en þar sem engar breytingar hafa verið gerðar á tillögunum frá fyrri auglýsingum, munu fyrri umsagnir gilda berist ekki fleiri.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða, að teknu tilliti til innsendra umsagna við skipulagslýsingu og vinnslutillögu að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa framkomna deiliskipulagstillögu "Skógargötureitur Sauðárkróki" í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og breytingu á deiliskipulagi Gamla bæjarins á Sauðárkróki frá 1987.
Sigríður Magnúsdóttir víkur af fundi við þennan dagskrálið.

8.Vatneyri 1 (L143831) - Lóðarmál
Málsnúmer 2601024Vakta málsnúmer
Vatneyri 1 Skagafjörður L143831 F2337231 (þekkt sem Vatnspökkunarverksmiðja), lóðin er til í opinberum skrám, en samræmist ekki gildandi deiliskipulagi.
Þar sem umræddri lóð hefur ekki verið eytt, samþykkir skipulagsnefnd samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að eyða lóðinni og auk þess að klára frágang lóðamála, þ.e.a.s. frágang lóðarblaða og gera lóðarleigusamninga við hluteigandi á grundvelli gildandi deiliskipulags Sauðárkrókshafnar að fengnu samþykki landbúnaðar- og innviðanefndar Skagafjarðar.

9.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 79
Málsnúmer 2602018FVakta málsnúmer
Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 79 þann 13.02.2026.
Fundi slitið - kl. 15:15.
Þar sem skipulagið er samþykkt og veitir sveitarfélaginu þar með heimild til að skila inn útprentuðum gögnum og í framhaldinu verði skipulagið staðfest með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.