Fara í efni

Faxatorg - Flæðar - Óveruleg breyting á deiliskipulagi

Málsnúmer 2603094

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 93. fundur - 12.03.2026

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulaginu Flæðar á Sauðárkróki, uppdráttur ásamt greinargerð nr. DS01, dags. 09.03.2026, verknr. 56292114. Við frekari hönnun á Menningarhúsinu kom í ljós að stækka þarf norðausturhorn byggingarreitsins um 0,8 m2 eða ca. 76 cm. Einnig kom í ljós við nákvæmari uppmælingu á nú þegar byggðu Safnahúsi, að þar þarf að stækka byggingarreitinn að uppfærðri útlínu eða um 1 m2, alls stækkun á byggingarreit úr 3340 m2 í 3346 m2 eða um 6 m2.

Breytingin er það óveruleg að hún hefur engin aukin umhverfisáhrif umfram stefnumörkun deiliskipulags fyrir breytingu.
Stækkun byggingarreits, með útskoti til austurs, skerðir ekki útsýni eða aðgengi umfram skipulag fyrir breytingu, né hefur hún áhrif á skuggavarp,
öryggi eða heilsu manna eða aðra umhverfisþætti sem metnir voru í greinargerð deiliskipulags fyrir breytingu.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir Faxatorg, Flæðar á Sauðárkróki, skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd samþykkir einnig samhljóða að breytingin hafi engin áhrif á landnotkun nágrannalóða, breytingin hafi ekki í för með sér skuggavarp, sjónmengun, innsýn eða raskað útsýni aðliggjandi lóða og hafi engin áhrif á hagsmuni annarra aðila en sveitarfélagsins og því sé ekki þörf á grenndarkynningu, sbr. einnig 3. mgr. 44. gr. sömu laga.

Eyþór Fannar Sveinsson fulltrúi Byggðalista óskar bókað:
Föstudaginn 6. mars barst tilkynning til Sveitarstjórnar Skagafjarðar um að fyrirhuguð væri undirskriftasöfnun vegna byggingar menningarhús á Sauðárkróki. Byggðalistinn telur nauðsynlegt að öllum ákvörðunum vegna menningarhúss verði frestað þar til sveitarstjórn hefur tekið erindið fyrir um fyrirhugaða undirskriftarsöfnun. Tillaga þess efnis var lögð fram samdægurs þann 6. mars á 8. fundi Byggingarnefndar menningarhúss á Sauðárkróki og var tillögunni hafnað af meirihluta byggingarnefndar.