Fara í efni

Beiðni um framkvæmdaleyfi í Varmahlíð - Vegna orkuskipta

Málsnúmer 2603117

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 93. fundur - 12.03.2026

Rarik óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir lagningu 12 kV háspennustrengs í Varmahlíð. Þessi framkvæmd er tilkomin vegna heimtaugarumsóknar Orku náttúrunnar í Varmahlíð sem tengist orkuskiptum. Gert er ráð fyrir að plægja þessa leið (90 cm dýpi) og er áætlaður verktími apríl 2026.
Gert er ráð fyrir að bora undir vegi (Hringveg og Sauðárkróksbraut).

Um framkvæmdina.
Vinnuvélarnar munu fylgja strengleiðinni sem sýnd er á meðfylgjandi mynd. Verktakar verða ráðnir í verkið og það verða líklega 2-4 starfsmenn að vinna við plægingu, auk þess sem að starfsmaður Rarik kemur til með að sinna verkeftirliti. Tveir starfsmenn sjá svo um tengingar þegar þar að kemur. Jarðýta verður notuð við plægingu á strengnum. Strengkeflin verða á plógýtunni og/eða á öðru tæki framan við plógýtuna.
Ekki verða nein varanleg ummerki á jarðvegi, gróðri eða dýralífi.
Gengið verður frá meðfram plógfari. Notuð verður beltagrafa til að draga úr mögulegu álagi á gróður. Reynslan sýnir að plógfar verður illgreinanlegt innan nokkurra ára.

Önnur leyfismál:
Skógræktarfélag Skagafjarðar hefur sent umsögn um framkvæmdina vegna Vélavalsreitsins, tölvupóstur frá Johan Holst sem gefur heimild með fyrirvara fyrir hönd Skóræktarfélags Skagafirðinga.
Minjastofnun - gerir ekki athugasemdir, tölvupóstur frá Guðmundi Stefáni Sigurðarssyni.
Búið að senda umsókn til Vegagerðarinnar, beðið eftir samþykki.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi að fengnu samþykki Vegagerðarinnar.