Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar

183. fundur 25. febrúar 2026 kl. 08:00 - 09:29 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Guðlaugur Skúlason formaður
  • Einar Eðvald Einarsson varaform.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir aðalm.
  • Álfhildur Leifsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Trúnaðarbók byggðarráðs

Málsnúmer 2412006Vakta málsnúmer

Fært í trúnaðarbók.

2.Endurnýjun kirkjugarðshliðs

Málsnúmer 2602189Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá sóknarnefnd Goðdalakirkjugarðs, með beiðni um að sveitarfélagið láti í té efni í kirkjugarðshlið við Goðdalakirkjugarð.
Byggðarráð þakkar fyrir erindið um leið og það minnir á viðmiðunarreglur Kirkjugarðaráðs og Sambands íslenskra sveitarfélaga um kirkjugarðsstæði og fleira, en þar segir í 6. gr: "Kostnaðaráætlun þarf að afhenda sveitarfélagi áður en það lýkur vinnu við gerð fjárhagsáætlunar þess árs sem framkvæmdir eru fyrirhugaðar á. Slík áætlun skal liggja fyrir eigi síðar en í byrjun október árið áður en framkvæmdir eru fyrirhugaðar nema sveitarstjórn hafi veitt rýmri frest.
Þar sem afgreiðsla sveitarstjórnar á fjárhagsáætlun næsta árs felur í sér bindandi ákvörðun um allar fjárhagslegar ráðstafanir sveitarfélagsins á því ári sem hún tekur til koma reikningar, sem ekki er gert ráð fyrir í kostnaðaráætlun skv. 1. mgr., að jafnaði ekki til greiðslu fyrr en næsta fjárhagsár þar á eftir."

Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að afla nánari upplýsingar um fyrirhugaða framkvæmd, kostnaðaráætlun og framkvæmdatíma.

3.Styrkumsókn - Sterkari út í lífið

Málsnúmer 2602167Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi, dags. 17. febrúar 2026, frá Sálfræðistofunni Höfðabakka, þar sem óskað er eftir styrk vegna verkefnisins sterkariutilifid.is. Á vefsíðunni og smáforriti á vegum verkefnisins fá finna átta öflugar verkfærakistur fyrir hvert skólastig grunnskólans en efnið er nýtt sem forvörn og stuðningur á meðan beðið er eftir annarri þjónustu.

Byggðarráð telur sér ekki fært að verða við erindinu en óskar forsvarsmönnum góðs gengis með verkefnið.

4.Byggðasafn Skagfirðinga Áshús - Umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi

Málsnúmer 2602159Vakta málsnúmer

Lögð fram umsagnarbeiðni úr máli 2026-012398, dagsett 17. febrúar 2026 frá embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Byggðasafns Skagfirðinga, kt. 550652-0139, Glaumbæ, 561 Varmahlíð um leyfi til reksturs Veitingaleyfi í Flokkur II-E Kaffihús, í Áshúsi, fastanúmer F214-0444, Glaumbær lóð, fyrir allt að 60 gesti.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd við umsóknina.

5.Styrkbeiðni - Alþýðulist

Málsnúmer 2511194Vakta málsnúmer

Erindi vísað frá 43. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar með eftirfarandi bókun:
"Á 42. fundi Atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar þann 16. janúar 2026 var tekið fyrir erindi dags. 17. nóvember 2025 frá Ástu Búadóttur, formanni Gallerí Alþýðulista. Nefndin samþykkti samhljóða að fresta afgreiðslu málsins þar til á næsta fundi.

Gallerí Alþýðulist óskar eftir hærri styrk vegna aukinnar aðsóknar í upplýsingamiðstöðina á undanförnum árum, meðal annars vegna lengingar ferðamannatímabilsins á svæðinu. Vegna þess stendur til að lengja opnunartímabil starfseminnar og það krefst aukinna fjárútláta.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að hækka upphæð styrktarsamnings, sem gerður hefur verið ár hvert til styrktar starfsemi upplýsingamiðstöðvarinnar í Varmahlíð. Upphæð samningsins hefur ekki tekið breytingum frá árinu 2021 og er því lagt til að samningurinn fyrir árið 2026 verði uppreiknaður sem nemur vísitölu neyðsluverð, eða hækkun upp á 36,4%.

Nefndin felur starfsmanni nefndarinnar að ganga til samninga við Gallerí Alþýðulist og gera árssamning með ofangreindum forsendum til hliðsjónar, með möguleika á framlengingu.

Nefndin vísar málinu til byggðarráðs."

Álfhildur Leifsdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að undirbúa gerð viðauka vegna hækkunar samningsins.

6.Samráð; Könnun um einföldun regluverks um verkefni sveitarfélaga

Málsnúmer 2602144Vakta málsnúmer

Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 27/2026, "Könnun um einföldun regluverks um verkefni sveitarfélaga". Umsagnarfrestur er til og með 10.03. 2026.

7.Samráð; Drög að frumvarpi um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati

Málsnúmer 2602194Vakta málsnúmer

Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 51/2026, "Drög að frumvarpi til laga um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati". Umsagnarfrestur er til og með 06.03. 2026.

Byggðarráð Skagafjarðar fagnar því að loksins séu lögð fram formleg drög að frumvarpi til laga um rýmiseignir, þar sem jafnframt verður felld úr gildi undanþága rafveitna (vatnsafls-, jarðvarma- og vindaflsvirkjana, svo og annarra orkugjafa) frá fasteignamati. Byggðarráð lýsir jafnframt yfir ánægju með að áformað sé að fasteignaskattur geti dreifst á milli fleiri en eins sveitarfélags og að hluti af fasteignaskattstekjum af orkumannvirkjum skuli eiga að dreifast til sveitarfélaga í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.

8.Sjávarútvegsfundur 4. mars 2026

Málsnúmer 2602196Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar dagskrá Sjávarútvegsfundar 2026 sem haldinn er á vegum Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, miðvikudaginn 4. mars 2026 frá kl. 9:30-11:30, í Drift, Strandgötu 1 á Akureyri. Skráning á fundinn fer fram á vef Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, sjavarutvegssveitarfelog.is, og eru áhugasamir einstaklingar úr hópi kjörinna fulltrúa hvattir til að skrá sig þar.

Fundi slitið - kl. 09:29.