Fara í efni

Byggðasafn Skagfirðinga Áshús - Umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi

Málsnúmer 2602159

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 183. fundur - 25.02.2026

Lögð fram umsagnarbeiðni úr máli 2026-012398, dagsett 17. febrúar 2026 frá embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Byggðasafns Skagfirðinga, kt. 550652-0139, Glaumbæ, 561 Varmahlíð um leyfi til reksturs Veitingaleyfi í Flokkur II-E Kaffihús, í Áshúsi, fastanúmer F214-0444, Glaumbær lóð, fyrir allt að 60 gesti.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd við umsóknina.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 80. fundur - 27.02.2026

Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 17. febrúar 2026 frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra úr máli nr. 2026-012398. Með vísan til 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 26. og 27. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 þar sem óskað er umsagnar byggingarfulltrúa varðandi umsókn Berglindar Þorsteinsdóttur, f.h. Byggðasafns Skagfirðinga um veitingaleyfi í flokki II - E Kaffihús í Áshúsi, Glaumbæ lóð, L 146033, fasteignanúmer F2140444, mhl. 03. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsóknina.