Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

80. fundur 27. febrúar 2026 kl. 13:00 - 14:15 í Ráðhúsi, Skr.
Nefndarmenn
  • Einar Andri Gíslason byggingarfulltrúi
  • Hildur Hartmannsdóttir starfsmaður byggingarfulltrúa
  • Sigurður Óli Ólafsson starfsmaður byggingarfulltrúa
Fundargerð ritaði: Einar Andri Gíslason byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Ljónsstaðir L230903 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2601120Vakta málsnúmer

Birkir Kúld Pétursson byggingafræðingur sækir f.h. Sonju S. Sigurgeirsdóttur og Höllu Sigurjónsdóttur um leyfi til að byggja frístundahús á lóðinni Ljónsstaðir, L230903 í Sæmundarhlíð. Framlagður aðaluppdráttur gerður á teiknistofunni BK hönnun ehf. af umsækjanda. Uppdráttur í verki 26-02, númer 110, dagsettur 25.02.2026. Einnig sótt um tímabundið stöðuleyfi fyrir ofangreindu húsi vestan við núverandi íbúðarhús. Byggingin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Stöðuleyfi veitt, byggingaráform samþykkt.

2.Mannskaðahóll L146558 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2602113Vakta málsnúmer

Hallgrímur Ingi Jónsson tæknifræðingur sækir f.h. Mannskaðahóls ehf. um leyfi til að byggja fjós á jörðinni Mannskaðahóli, L146558. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af umsækjanda. Uppdrættir í verki 77410001, númer A100, A101, A102, A103 og A105, dagsettir 19.11.2025. Byggingin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.

3.Frostastaðir 1-4 L146295 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2602122Vakta málsnúmer

Ívar Örn Guðmundsson arkitekt sækir f.h. Þórarins Magnússonar og Söru Regínu Valdimarsdóttur um leyfi til að byggja forstofu við fjöleignarhús sem stendur á lóðinni Frostastaðir 1-4, L146295. Fyrirhuguð forstofa byggist við íbúð með fasteignanúmerið F2519343. Einnig sótt um leyfi fyrir breytingum innangerðar sömu íbúðar. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir hjá Studio Nexus slf. af umsækjanda. Uppdrættir númer 212-A-001, 212-A-002 og 212-A-003, dagsettir 13.02.2026, breytt 25.02.2026. Fyrir liggur samþykki allra eigenda séreigna í húsinu. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.

4.Borgarflöt 7 (01-0106) - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2602170Vakta málsnúmer

Þórir Guðmundsson byggingarfræðingur sækir f.h. Uppsteypu ehf. um leyfi til að setja upp milliloft í fjöleignarhúsi, geymsluhúsnæði með fasteignanúmerið F2533034, eining 01-0106 sem stendur á lóðinni númer 7 við Borgarflöt á Sauðárkróki. Einnig sótt um leyfi til að breyta útliti hússins, setja glugga á vesturstafn og suðurhlið. Framlagður aðaluppdráttur gerður af umsækjanda. Uppdráttur í verki 0012026, númer A-01, dagsettur 16.02.2026. Fyrir liggur samþykki allra eigenda séreigna í húsinu. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.

5.Borgarflöt 7 (01-0107) - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2602179Vakta málsnúmer

Þórir Guðmundsson byggingarfræðingur sækir f.h. HRÁ ehf. um leyfi til að setja upp milliloft í fjöleignarhúsi, geymsluhúsnæði með fasteignanúmerið F2533035, eining 01-0107 sem stendur á lóðinni númer 7 við Borgarflöt á Sauðárkróki. Einnig sótt um leyfi til að breyta útliti hússins, setja glugga á suðurhlið og breyta notkun hússins fyrir léttan iðnað. Framlagður aðaluppdráttur gerður af umsækjanda. Uppdráttur í verki 0012026, númer A-01, dagsettur 16.02.2026. Fyrir liggur samþykki allra eigenda séreigna í húsinu. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.

6.Stóru-Akrar 1 L146342 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi

Málsnúmer 2602135Vakta málsnúmer

Sigurður Ingi Ragnarsson raflagnahönnuður leggur fram gögn er varðar tilkynnta framkvæmd f.h. Gunnars Sigurðssonar eiganda Stóru-Akra 1 L146342. Tilkynnt framkvæmd varðar uppsetningu á sólarsellum á fjósi, mhl. 19 og fjárhúsi mhl. 21 sem standa á jörðinni. Framlögð gögn, greinargerð dagsett 16.02.2026 gerð af Sigurði Inga Ragnarssyni. Tilkynning og gögn eru í samræmi við gr. 2.3.5 og 2.3.6. í byggingarreglugerð 112/2012 um tilkynntar framkvæmdir.

7.Skagfirðingabraut 41 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi

Málsnúmer 2602174Vakta málsnúmer

Sigurður Steingrímsson eiganda neðri hæðar fjöleignahúss með fasteignanúmerið F2132147, leggur fram gögn er varðar tilkynnta framkvæmd fyrir Skagfirðingabraut 41. Tilkynnt framkvæmd varðar breytingar á útliti húss, gluggar neðri hæðar. Framlögð gögn gerð af Þóri Guðmundssyni byggingarfræðingi. Uppdráttur í verki HA26159, númer A-101, dagsettur 15.02.2026. Fyrir liggur samþykki eiganda efri hæðar með fasteignanúmerið F2132148. Tilkynning og gögn eru í samræmi við gr. 2.3.5 og 2.3.6. í byggingarreglugerð 112/2012 um tilkynntar framkvæmdir.

8.Byggðasafn Skagfirðinga Áshús - Umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi

Málsnúmer 2602159Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 17. febrúar 2026 frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra úr máli nr. 2026-012398. Með vísan til 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 26. og 27. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 þar sem óskað er umsagnar byggingarfulltrúa varðandi umsókn Berglindar Þorsteinsdóttur, f.h. Byggðasafns Skagfirðinga um veitingaleyfi í flokki II - E Kaffihús í Áshúsi, Glaumbæ lóð, L 146033, fasteignanúmer F2140444, mhl. 03. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsóknina.

Fundi slitið - kl. 14:15.