Frostastaðir 1-4 L146295 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.
Málsnúmer 2602122
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 80. fundur - 27.02.2026
Ívar Örn Guðmundsson arkitekt sækir f.h. Þórarins Magnússonar og Söru Regínu Valdimarsdóttur um leyfi til að byggja forstofu við fjöleignarhús sem stendur á lóðinni Frostastaðir 1-4, L146295. Fyrirhuguð forstofa byggist við íbúð með fasteignanúmerið F2519343. Einnig sótt um leyfi fyrir breytingum innangerðar sömu íbúðar. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir hjá Studio Nexus slf. af umsækjanda. Uppdrættir númer 212-A-001, 212-A-002 og 212-A-003, dagsettir 13.02.2026, breytt 25.02.2026. Fyrir liggur samþykki allra eigenda séreigna í húsinu. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.