Borgarflöt 7 (01-0106) - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.
Málsnúmer 2602170
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 80. fundur - 27.02.2026
Þórir Guðmundsson byggingarfræðingur sækir f.h. Uppsteypu ehf. um leyfi til að setja upp milliloft í fjöleignarhúsi, geymsluhúsnæði með fasteignanúmerið F2533034, eining 01-0106 sem stendur á lóðinni númer 7 við Borgarflöt á Sauðárkróki. Einnig sótt um leyfi til að breyta útliti hússins, setja glugga á vesturstafn og suðurhlið. Framlagður aðaluppdráttur gerður af umsækjanda. Uppdráttur í verki 0012026, númer A-01, dagsettur 16.02.2026. Fyrir liggur samþykki allra eigenda séreigna í húsinu. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.