Lagt fram erindi frá sóknarnefnd Goðdalakirkjugarðs, með beiðni um að sveitarfélagið láti í té efni í kirkjugarðshlið við Goðdalakirkjugarð.
Byggðarráð þakkar fyrir erindið um leið og það minnir á viðmiðunarreglur Kirkjugarðaráðs og Sambands íslenskra sveitarfélaga um kirkjugarðsstæði og fleira, en þar segir í 6. gr: "Kostnaðaráætlun þarf að afhenda sveitarfélagi áður en það lýkur vinnu við gerð fjárhagsáætlunar þess árs sem framkvæmdir eru fyrirhugaðar á. Slík áætlun skal liggja fyrir eigi síðar en í byrjun október árið áður en framkvæmdir eru fyrirhugaðar nema sveitarstjórn hafi veitt rýmri frest.
Þar sem afgreiðsla sveitarstjórnar á fjárhagsáætlun næsta árs felur í sér bindandi ákvörðun um allar fjárhagslegar ráðstafanir sveitarfélagsins á því ári sem hún tekur til koma reikningar, sem ekki er gert ráð fyrir í kostnaðaráætlun skv. 1. mgr., að jafnaði ekki til greiðslu fyrr en næsta fjárhagsár þar á eftir."
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að afla nánari upplýsingar um fyrirhugaða framkvæmd, kostnaðaráætlun og framkvæmdatíma.