Fara í efni

Félagsmála- og tómstundanefnd

42. fundur 26. febrúar 2026 kl. 14:00 - 14:51 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Sigurður Bjarni Rafnsson formaður
  • Sandra Björk Jónsdóttir varaform.
  • Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir aðalm.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Þorvaldur Gröndal frístundastjóri
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir leiðtogi fatlaðs fólks og eldra fólks
Fundargerð ritaði: Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá

1.Opnunartímar íþróttamannvirkja 2026

Málsnúmer 2508192Vakta málsnúmer

Á 39. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 27. október 2025, var leiðtoga frístunda- og íþróttamála falið að taka saman aðsóknartölur sundlauganna á meðan að skólasund er kennt, þar sem kannað verði hvaða áhrif það hefði á þjónustuna að loka lauginni á meðan á sundkennslu stendur. Minnisblað með upplýsingum um umfang og tímatöflur sundkennslu og leiðir til að tryggja öryggi lagt fyrir nefndina.

Félagsmála- og tómstundanefnd felur starfsfólki nefndarinnar að tryggja mönnun í klefagæslu á meðan á skólasundi stendur út skólaárið 2025-2026. Sviðsstjóra er falið að vinna að skipulagi næsta skólaárs í samráði við skólastjórnendur og leiðtoga frístunda- og íþróttamála með það að markmiði að tryggja öryggi sundlaugargesta. Ef ekki er hægt að tryggja viðbótarmönnun fram að vori samþykkir félagsmála- og tómstundanefnd að útfærðar verði takmarkanir á opnunartíma fyrir almenning á þeim tíma sem ekki er hægt að tryggja laugargæslu vegna klefagæslu. Samþykkt samhljóða.

2.Hvatapeningar 2026

Málsnúmer 2510148Vakta málsnúmer

Á 39. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 27. október 2025 var fjallað um hvatapeninga fyrir árið 2026 og samþykkt hækkun á almennum hvatapeningum. Jafnframt var lagt til að starfsfólk nefndarinnar myndi taka saman upplýsingar og kostnaðarmeta tillögu um tekjutengdar viðbótargreiðslu hvatapeninga.

Lagt er til að notuð verði sömu tekjuviðmið og eru fyrir viðbótarniðurgreiðslum í leikskólum og frístund. Einstaklingar sem falla undir hærra tekjuviðmiðið geta sótt um viðbótargreiðslur hvatapeninga að upphæð 20.000 kr. á ári. Starfsfólki nefndarinnar falið að útbúa reglur um viðbótargreiðslu hvatapeninga og leggja fyrir nefndina á næsta fundi. Um er að ræða tímabundið verkefni sem verður endurskoðað að tveimur árum liðnum. Samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.

3.Tillaga að endurskoðun aldursviðmiðs hvatapeninga

Málsnúmer 2602198Vakta málsnúmer

Fulltrúar Vg og Óháð ásamt Byggðalisti leggja fram eftirfarandi tillögu:
Félagsmála- og tómstundanefndar samþykkir samhljóða að núverandi aldurstakmark úthlutunar hvatapeninga verði endurskoðað í gerð fjárhagsáætlunar ársins 2027 og fært úr 5-18 ára í 0-18 ára.
Greinagerð:
Samkvæmt meirihluta sáttmála sitjandi meirihluta var áætlan að tryggja að ÖLL börn í sveitarfélaginu eigi þess kost að stunda íþróttir og tómstundir. Sveitarfélagið Skagafjörður er aðili að verkefninu Heilsueflandi samfélag og samkvæmt meirihluta sáttmála var ætlunin að verða aðili að verkefninu Barnvænt sveitarfélag. Því ættum við að stuðla að jöfnuði og samveru fjölskyldunnar í íþrótta- og tómstundastarfi, óháð aldri og fjárhag og breyta núverandi aldurstakmarki.

Fulltrúar meirihlutans óska bókað: Samvistir foreldra og barna, þar sem truflandi áreitum úr umhverfinu er haldið í lágmarki, eru börnum mjög mikilvægar. Sérstaklega er það mikilvægt fyrir börn sem eru stóran hluta dagsins í leikskóla þar sem áreiti úr umhverfinu er mikið. Þegar börn eldast breytast samverustundirnar en þær halda áfram að vera mikilvægar. Þá skiptir meira máli að foreldrar taki virkan þátt í tómstundastarfi og íþróttaiðkun barna sinna ásamt því að eiga rólegar samverustundir.

Í núverandi reglum um hvatapeninga eiga foreldrar rétt á því að sækja um hvatapeninga fyrir börn sín frá 1. janúar þess árs sem börn ná 5 ára aldri. Fulltrúar meirihlutans telja það ekki börnum fyrir bestu að hvetja til þess að auka álag og áreiti á börn frá 0 ára aldri.

Tillagan er felld með tveimur atkvæðum meirihlutans.

Fulltrúar Vg og óháð og Byggðalista óska bókað: Við undrum okkur á því að meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokks velji að fylgja ekki eftir orðum sínum og stefnum, hvað þá gangi gegn orðum sínum og stefnum. Okkur þykir því sorglegt að meirihluti telji að 0-5 ára börn teljist ekki til barna í sveitarfélaginu Skagafirði og telji tómstunda iðkun barna yngri en 5 ára valda þeim óþarfa áreiti og streitu eins og til dæmis samvera foreldra og barns á sund- og eða reiðnámskeiði. Mikilvægt er að greiða leiðir foreldra til að leggja grunn að heilsueflandi lífstíl barna sinna frá unga aldri.
Með því að samþykkja tillögu fulltrúa Vg og Óháð ásamt Byggðalista hefði meirihlutinn geta stutt við barnafjölskyldur í sveitarfélaginu og jafnað aðgengi allra barna að tómstundum í Skagafirði.
Gert var hlé á fundi frá kl 14:28 til 14:33.

4.Hlutverk SIS mats við framkvæmd þjónustu

Málsnúmer 2602171Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar álitsgerð send til sveitarfélaga frá félagsmála- og húsnæðisráðuneytinu um álitaefni sem tengjast fjármögnun á og ákvörðunum um þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk.

Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að vísa til byggðarráðs.

5.Trúnaðarbók félagsmála- og tómstundanefndar

Málsnúmer 2601068Vakta málsnúmer

Eitt mál tekið fyrir og fært í trúnaðarbók.

Fundi slitið - kl. 14:51.