Fara í efni

Ysti Mór L146830 - Umsókn um stofnun landspildu og byggingarreits

Málsnúmer 2603091

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 93. fundur - 12.03.2026

Stefán Logi Haraldsson og Marteinn Jónsson, f.h. Ysta Mós ehf., þinglýsts eiganda jarðarinnar Ysta Mós landnúmer 146830, óska eftir heimild til að stofna 5285 m2 spildu úr landi jarðarinnar, sem Ysta Mó 2, og til að stofna 2642,8 m2 byggingarreit innan lóðarinnar, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 74322001 dags. 3 mars 2026.
Afstöðuuppdrátturinn var unninn á Stoð verkfræðistofu ehf.
Landheiti útskiptrar lóðar vísar í heiti upprunajarðar.
Öll hlunnindi tilheyra áfram Ysta Mó landnr. 146830.
Um er að ræða byggingarreit fyrir frístundahús á 1-2 hæðum. Hámarks byggingarmagn verður 200 m2 og hámarks byggingarhæð verður 8 m frá kjallaragólfi í mæni. Reiturinn er 10 m frá lóðarmörkum sbr. 5.3.2.12. gr. Skipulagsreglugerðar nr. 90/2013.
Landskipti og byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu frístundasvæði nr. F-1 í aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040 og styður við markmið aðalskipulags um uppbyggingu á frístundasvæðum, sbr. ákvæði í kafla 3.9 um frístundabyggð segir meðal annars:
"Almennt nýtingarhlutfall lóða er 0,03 á svæðum fyrir frístundabyggð þó þannig að nýtingarhlutfall geti orðið allt að 0,05 fyrir lóðir minni en 0,4 ha. Almennt skulu frístundalóðir vera um 0,5 ha. Við gerð deiliskipulags fyrir frístundabyggð skal þess gætt að hún raski ekki vistgerðum sem njóta sérstakrar verndar, skv. lögum um náttúruvernd og skerði ekki landbúnaðarland í L-1. eða L-2. flokki"
Lóðarstærðin sem hér er sótt um er því í fullu samræmi við viðmið skipulagsins um stærð frístundalóða. Jafnframt er byggingarmagn, sem sótt er í samræmi við viðmiða um nýtingarhlutfall á slíkum svæðum. Landskipti útskiptrar lóðar skerða ekki landbúnaðarsvæði í I. og II. flokki og raska ekki vistgerðum sem njóta sérstakrar verndar í samræmi við ákvæði aðalskipulagsins.
Hér er um að ræða staka byggingu sem styður við útivist og afþreyingu á svæðinu. Núverandi innviðir nýtast áfram og uppbygging er ekki líkleg til að hafa veruleg áhrif á mengun eða aðgengi.
Lögð verður áhersla á að áformuð uppbygging verði í samræmi við yfirbragð og ásýnd svæðisins og hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif. Áformin skerða ekki aðgengi að öðrum byggingum en kunna að hafa ásýndaráhrif af Siglufjarðarvegi (76), en vegna þess að Siglufjarðarvegur stendur um 25m ofar eru ásýndaráhrif mjög takmörkuð.
Engin fasteign er á umræddri spildu.
Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Ysta Mó, landnr. 146830.
Yfirferðaréttur að útskiptri spildu er frá Siglufjarðarvegi (76), um veg í landi Ysta Mós landnr.146830.
Óskað hefur verið eftir umsögn minjavarðar.
Málsnúmer í landeignaskrá er M003510.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja landskiptin og stofnun byggingarreits að fenginni umsögn minjavarðar.