Byggðarráð Skagafjarðar - 207
Málsnúmer 2608022F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 53. fundur - 16.09.2026
Fundargerð 207. fundar byggðarráðs frá 3. september 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 53. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 207 Lagt fram erindi frá Golfklúbbi Skagafjarðar þar sem óskað er eftir að eftirstöðvar samþykkts styrks sveitarfélagsins til uppbyggingar nýs aðstöðuhúss á Nöfum, alls 24 m.kr., verði greiddar út fyrr í stað þess að greiðslurnar dreifist á næstu þrjú ár samkvæmt gildandi samkomulagi. Sveitarstjórn samþykkti á árinu 2025 að veita Golfklúbbi Skagafjarðar 40 m.kr. styrk til verkefnisins sem greiðast skyldi á fimm árum og hafa 16 m.kr. þegar verið greiddar. Fram kemur í erindinu að nýtt 230 fm aðstöðuhús hafi nú risið á Nöfum og að framkvæmdir hafi notið víðtæks stuðnings fyrirtækja, félagasamtaka og íbúa í Skagafirði.
Byggðarráð þakkar Golfklúbbi Skagafjarðar fyrir erindið og óskar félaginu til hamingju með glæsilegt aðstöðuhús sem hefur risið á Nöfum. Ljóst er að uppbyggingin er mikið framfaraskref fyrir golfíþróttina í Skagafirði og mun jafnframt skapa aukin tækifæri til útivistar, afþreyingar og samfélagslegrar starfsemi á svæðinu.
Byggðarráð lýsir ánægju með þann kraft, samstöðu og samfélagslega þátttöku sem einkennt hefur verkefnið og þakkar öllum þeim sem komið hafa að uppbyggingunni, jafnt fyrirtækjum sem einstaklingum.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að vísa erindinu til umfjöllunar við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins fyrir árið 2027 en frestar ákvörðun í málinu að öðru leyti. Bókun fundar Afgreiðsla 207. fundar byggðarráðs var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 207 Fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 207. fundar byggðarráðs var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 207 Lagt fram minnisblað um fasteignina Furulundur 5 í Varmahlíð frá Sunnu Björk Atladóttur, löggiltum fasteignasala. Um er að ræða timburhús, byggt árið 1992, alls 49,5 m² að stærð. Lagt er til að húsið verði selt til flutnings af núverandi lóð og að kostnaður við losun og flutning verði á ábyrgð kaupanda ásamt frágangi lóðar í samráði við sveitarfélagið.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela Sunna Björk Atladóttir að setja eignina í söluferli. Bókun fundar Afgreiðsla 207. fundar byggðarráðs var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 207 Lagt fram erindi frá Helgu Jónínu Guðmundsdóttur, deildarstjóra mannauðs hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, þar sem óskað er eftir aðstöðu við sundlaugina vegna fjölskylduhlaups sem haldið verður 10. september nk. í tilefni af Gulum september. Jafnframt er óskað eftir því að þátttakendum verði boðinn gjaldfrjáls aðgangur að sundlauginni að hlaupi loknu, líkt og gert var í fyrra.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að veita aðstöðu fyrir fjölskylduhlaupið og að þátttakendum verði boðinn gjaldfrjáls aðgangur að sundlauginni að hlaupi loknu. Byggðarráð fagnar jafnframt framtakinu og hvetur íbúa til þátttöku. Bókun fundar Afgreiðsla 207. fundar byggðarráðs var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 207 Lagt fram til kynningar erindi frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands (NTÍ) þar sem vakin er athygli á áhrifum 16. gr. laga nr. 55/1992 um Náttúruhamfaratryggingu Íslands þegar hús eða önnur mannvirki eru reist á svæðum þar sem náttúruvá er fyrir fram þekkt. Í erindinu er áréttað að heimilt sé að lækka bætur eða synja bótakröfu að hluta eða öllu leyti þegar mannvirki eru reist á svæðum sem almennt var vitað að væru hættuleg með tilliti til náttúruhamfara. Jafnframt er lögð áhersla á mikilvægi þess að skipulagsákvarðanir og leyfisveitingar byggist á vönduðu áhættumati, viðeigandi sérfræðiráðgjöf og skýrri upplýsingagjöf til lóðarhafa, byggingarleyfishafa og kaupenda eigna.
Byggðarráð tekur undir mikilvægi þess að náttúruvá sé höfð til hliðsjónar við skipulagsgerð og leyfisveitingar og leggur áherslu á að sveitarfélagið fylgi gildandi lögum og reglum við meðferð slíkra mála. Bókun fundar Afgreiðsla 207. fundar byggðarráðs var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 207 Lagður fram ársreikningur Flokku fyrir árið 2025.
Lagður fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 207. fundar byggðarráðs var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 207 Lagður fram ársreikningur Skógræktarsjóðs Skagafjarðar fyrir árið 2025.
Lagður fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 207. fundar byggðarráðs var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.