Byggðarráð Skagafjarðar
Dagskrá
1.Milliuppgjör Skagafjarðar janúar - júní 2026
Málsnúmer 2610110Vakta málsnúmer
2.Nýtt rekstrarform á skíðasvæði í Tindastól
Málsnúmer 2608043Vakta málsnúmer
Árið 1998 gerðu Skíðadeild Tindastóls og Sveitarfélagið Skagafjörður samning um uppbyggingu skíðasvæðis í vestanverðum Tindastóli, sem tekið var í notkun árið 2000. Skíðadeildin hefur frá þeim tíma annast rekstur svæðisins samkvæmt samningi við sveitarfélagið.
Skíðadeild Tindastóls sagði upp gildandi rekstrarsamningi með bréfi dagsettu 27. febrúar 2026. Fulltrúar skíðadeildar og aðalstjórnar Tindastóls gerðu grein fyrir uppsögninni á 186. fundi byggðarráðs þann 19. mars 2026. Uppsögnin kallar á endurskoðun á fyrirkomulagi rekstrar skíðasvæðisins.
Fyrir fundinum lá minnisblað um mögulegt framtíðarfyrirkomulag rekstrar skíðasvæðisins í Tindastóli.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir byggðarráð að nýju.

3.Samstarf Skagafjarðar og Sýndarveruleika ehf. og fyrirkomulag rekstrar 1238
Málsnúmer 2603224Vakta málsnúmer
Samtal hefur staðið yfir milli Sveitarfélagsins Skagafjarðar og forsvarsmanna Sýndarveruleika ehf. um framtíðarfyrirkomulag og nýtingu húsnæðisins að Aðalgötu 21. Markmiðið er að byggja áfram á þeirri starfsemi sem þar er fyrir, en jafnframt skapa forsendur fyrir fjölbreyttari starfsemi og betri nýtingu húsnæðisins.
Í samtali sveitarstjóra við forsvarsmann Sýndarveruleika ehf. kom fram jákvæð afstaða til breytts fyrirkomulags. Breytt nýting húsnæðisins er talin geta bætt rekstrarlegar forsendur, aukið fjölbreytni starfsemi og styrkt Aðalgötu 21 sem áfangastað fyrir íbúa og gesti.
Í framlögðu minnisblaði er gert ráð fyrir að áfram verði starfsemi 1238 í afmörkuðum hluta hússins og að auglýst verði eftir áhugasömum aðilum til samtals um aðra starfsemi í húsnæðinu, annars vegar um veitingarekstur og hins vegar um aðra starfsemi í hluta þess rýmis sem nú er nýtt undir 1238 sýninguna. Auglýsingin verði opin hvað varðar mögulega starfsemi með það að markmiði að kalla fram hugmyndir sem geta aukið fjölbreytni, starfsemi og mannlíf í húsinu.
Gert er ráð fyrir að allir notendur hússins greiði markaðsleigu í samræmi við hlutdeild sína í húsnæðinu.
Byggðarráð samþykkir með tveimur atkvæðum að fela sveitarstjóra að ganga til samninga við núverandi leigutaka um fyrirhugaðar breytingar á nýtingu húsnæðisins að Aðalgötu 21 og samþykki þeirra fyrir því að unnið verði áfram á þeim grundvelli sem lýst er hér að framan. Málið skal lagt fyrir byggðarráð að nýju þegar frekari upplýsingar liggja fyrir. Fulltrúi Framsóknarflokks greiðir atkvæði á móti tillögunni.
Einar E. Einarsson, fulltrúi Framsóknarflokks óskar bókað:
"Meirihluti Byggðarráðs hefur nú samþykkt tillögu þar sem Sýndarveruleika ehf., er gefinn kostur á að segja upp núverandi samningum en fá í staðinn forgang að leigu í húsnæðinu að Aðalgötu 21.
Tillagan gengur út á að Sýndarveruleiki ehf. segi upp núverandi samningum um þá starfsemi sem samið var um en fái í staðinn forgang að öðrum rekstri í húsinu, en í minna umfangi en er í dag. Þeir halda því áfram rekstri sýningarinnar 1238 og nýti til þess þá fermetra sem þeir óska eftir. Þá mun félagið greiða einungis hóflega greiðslu fyrir starfsemi sína, en engar upplýsingar liggja fyrir um hvað sé hófleg greiðsla. Ekki liggja heldur fyrir upplýsingar um hvað aðrir aðilar þurfa að greiða fyrir ónýtt svæði í kringum starfsemi Sýndarveruleika ehf., en til stendur að auglýsa það ásamt rekstri veitingaþjónustunnar.
Þær tillögur sem hér eru lagðar fram og gefa Sýndarveruleika ehf., forskot að leigu í húsnæðinu eru mjög óljósar og óskýrar ásamt því að ekkert liggur fyrir um kostnað eða fyrirgreiðslu sveitarfélagsins af þessum hugmyndum, hvorki til Sýndarveruleika ehf., né annarra aðila sem hugsanlega myndu hafa starfsemi í húsinu.
Það væri mun eðlilegra ef Sýndarveruleiki vill segja upp núverandi samningum að auglýsa þá eftir nýjum aðilum sem hefðu áhuga á starfsemi í húsinu, hvort sem hún þá tengdist ferðaþjónustu, veitingasölu eða annarri atvinnustarfsemi. Þannig væri húsnæðið opnað fyrir nýja aðila og þá sætu núverandi notendur og nýir aðilar við sama borð."
Högni Elfar Gylfason, fulltrúi Miðflokks óskar bókað:
"Áheyrnarfulltrúi Miðflokks telur að sveitarfélagið eigi ekki að standa að eða fyrir samkeppnisrekstri við einkaaðila beint eða óbeint."
Fulltrúar meirihluta Byggðalista og Sjálfstæðisflokks óska bókað:
"Meirihluti byggðarráðs áréttar að með þeirri leið sem hér er lögð til er verið að leita leiða til að tryggja áframhaldandi rekstur og starfsemi í húsnæðinu að Aðalgötu 21, um leið og skapaðar eru forsendur fyrir fjölbreyttari starfsemi og betri nýtingu hússins.
Í því samhengi er rétt að árétta að gert er ráð fyrir að allir notendur húsnæðisins, þar með taldir núverandi leigutakar, greiði markaðsleigu í samræmi við hlutdeild sína í húsnæðinu. Því er ekki gert ráð fyrir sérkjörum eða ívilnunum til einstakra rekstraraðila.
Meirihlutinn telur það eðlilegt hlutverk sveitarfélagsins að leita leiða til að skapa góðar forsendur fyrir atvinnustarfsemi og vinna með atvinnulífinu að lausnum sem stuðla að aukinni starfsemi og verðmætasköpun, fremur en að vinna gegn slíkri þróun."

4.Trúnaðarbók byggðarráðs
Málsnúmer 2602003Vakta málsnúmer
Fært í trúnaðarbók.
5.Viðvera Bergsins headspace á Norðurlandi vestra
Málsnúmer 2610044Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi frá Söru Björk Þorsteinsdóttur, verkefnastjóra farsældarráðs hjá SSNV, dagsett 2. október 2026. Í erindinu er lagt til að sveitarfélögin á Norðurlandi vestra sameinist um að Bergið headspace hafi fasta viðveru á Norðurlandi vestra einu sinni í mánuði. Ungmenni á aldrinum 12-25 ára hefðu með því móti aðgang að gjaldfrjálsum einstaklingsviðtölum og stuðningi án tilvísunar.
Gert er ráð fyrir að viðveran verði á Sauðárkróki í samstarfi við FNV, sem leggi til rými í sínu húsnæði, auk þess sem fjarviðtöl verði í boði á milli heimsókna þannig að þjónustan geti nýst ungmennum af öllu svæðinu.
Árlegur kostnaður verkefnisins er áætlaður um 1,9 m.kr. og samkvæmt framlagðri tillögu er gert ráð fyrir að sveitarfélögin standi undir 60% kostnaðar á móti 40% hlut Bergsins. Jafnframt er lagt til að sveitarfélögin sæki sameiginlega um styrk til Stjórnarráðsins í þágu farsældar barna vegna verkefnisins.
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og telur mikilvægt að efla aðgengi ungmenna á Norðurlandi vestra að þjónustu af þessu tagi. Byggðarráð leggur til að kannað verði hvort verkefnið geti verið áhersluverkefni SSNV og verði fjármagnað af samtökunum, enda falli það vel að áherslum sóknaráætlunar um aukin lífsgæði, heilsu og vellíðan íbúa. Jafnframt telur byggðarráð rétt að skoðað verði hvort viðvera Bergsins geti verið á fleiri en einum stað á Norðurlandi vestra þannig að aðgengi ungmenna að þjónustunni verði sem best.

6.Beiðni um rekstrarstyrk fyrir árið 2027
Málsnúmer 2610058Vakta málsnúmer
Lagður fram tölvupóstur frá Lindu Dröfn Gunnarsdóttur, framkvæmdastýru kvennaathvarfsins, dagsettur 6. október 2026. Í tölvupóstinum leggur hún fram beiðni um rekstrarstyrk til Kvennaathvarfsins fyrir árið 2027 að fjárhæð 300.000 kr.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að veita 300.000 kr. styrk til Kvennaathvarfsins á árinu 2027 og tekur fjármagnið af deild 21990 á því fjárhagsári.

7.Gjaldskrá heimaþjónustu 2027
Málsnúmer 2608189Vakta málsnúmer
Máli vísað frá 47. fundi félagsmála- og tómstundanefndar sem haldinn var 1. október sl.
Félagsmála- og tómstundanefnd lagði til við byggðarráð að gjaldskrá heimaþjónustu árið 2027 taki mið af launaflokki 128 í kjarasamningum Öldunnar/Kjalar frá 1. apríl 2026, með 8% persónuálagi og launatengdum gjöldum. Jafnframt lagði nefndin til að tekjuviðmið til lækkunar gjalda taki mið af greiðslum Tryggingastofnunar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

8.Greiðsluviðmið jafnaðarstunda NPA samninga 2027
Málsnúmer 2608208Vakta málsnúmer
Máli vísað frá 47. fundi félagsmála- og tómstundanefndar sem haldinn var 1. október sl.
Félagsmála- og tómstundanefnd lagði til við byggðarráð að miðað verði við jafnaðartaxta NPA-miðstöðvarinnar frá 1. janúar 2027 við útreikning á jafnaðarstundum í NPA-samningum. Stuðst verði við þrjá mismunandi taxta sem taka mið af þörfum notenda. Skipting kostnaðar felur í sér framlag til launakostnaðar (85%), umsýslukostnaðar (10%) og starfsmannakostnaðar (5%).
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Félagsmála- og tómstundanefnd lagði til við byggðarráð að miðað verði við jafnaðartaxta NPA-miðstöðvarinnar frá 1. janúar 2027 við útreikning á jafnaðarstundum í NPA-samningum. Stuðst verði við þrjá mismunandi taxta sem taka mið af þörfum notenda. Skipting kostnaðar felur í sér framlag til launakostnaðar (85%), umsýslukostnaðar (10%) og starfsmannakostnaðar (5%).
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
9.Gjaldskrá íþróttamannvirkja 2027
Málsnúmer 2608185Vakta málsnúmer
Máli vísað frá 47. fundi félagsmála- og tómstundanefndar sem haldinn var 1. október sl.
Félagsmála- og tómstundanefnd afgreiddi gjaldskránna frá sér með því að miðað var við að hún hækkaði að jafnaði um 2,5% en nokkrir liðir hennar hækka umfram 2,5% viðmiðið sem samþykkt var samhliða ramma fjárhagsáætlunar.
Umræður á fundinum snéru að því að leiðrétta gjaldskránna og miða alfarið við 2,5% viðmiðið og hækka því allir liðir gjaldskrár íþróttamannvirkja 2027 eingöngu um 2,5% eins og samþykkt var í meðferð rammaáætlunar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá með áorðnum breytingum og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

10.Gjaldskrá Byggðasafns Skagfirðinga 2027
Málsnúmer 2608012Vakta málsnúmer
Máli vísað frá 47. fundi félagsmála- og tómstundanefndar sem haldinn var 1. október sl.
Gjaldskrá Byggðasafns Skagfirðinga fyrir árið 2027 var samþykkt á 48. fundi Atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar Skagafjarðar og staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar. Berglind Þorsteinsdóttir forstöðumaður byggðasafns Skagfirðinga hefur óskað eftir að gerð verði breyting á gjaldskránni og að bætt verði við gjaldlið. Um er að ræða verð á sameiginlegum miðum á byggðasafnið og sundlaugarnar fyrir árið 2027.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkti viðbótina við gjaldskránna fyrir sitt leiti á 49. fundi nefndarinnar þann 24. september sl. og vísaði til afgreiðslu félagsmála- og tómstundanefndar vegna aðkomu sundlauganna að gjaldaliðnum. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkti gjaldskránna fyrir sitt leiti og vísaði til afgreiðslu byggðarráðs.
Umræður á fundinum snéru að því að leiðrétta gjaldskránna og miða alfarið við 2,5% viðmiðið og hækka því gjaldaliðirnir eingöngu um 2,5% eins og samþykkt var í meðferð rammaáætlunar.

11.Gjaldskrá vatnsveitu 2027
Málsnúmer 2608204Vakta málsnúmer
Máli vísað frá 53. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 29. september sl.
Landbúnaðar- og innviðanefndin samþykkti gjaldskránna og vísaði henni til afgreiðslu byggðarráðs.
Gjaldskráin hækkar almennt um 2,5% en mælagjöld tóku hærri hækkunum í þeirri gjaldskrá sem vísað var til afgreiðslu byggðarráðs.
Umræður á fundinum snéru að því að leiðrétta gjaldskránna og miða alfarið við 2,5% viðmiðið og hækka því allir liðir gjaldskrárinnar eingöngu um 2,5% eins og samþykkt var í meðferð rammaáætlunar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá með áorðnum breytingum og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Landbúnaðar- og innviðanefndin samþykkti gjaldskránna og vísaði henni til afgreiðslu byggðarráðs.
Gjaldskráin hækkar almennt um 2,5% en mælagjöld tóku hærri hækkunum í þeirri gjaldskrá sem vísað var til afgreiðslu byggðarráðs.
Umræður á fundinum snéru að því að leiðrétta gjaldskránna og miða alfarið við 2,5% viðmiðið og hækka því allir liðir gjaldskrárinnar eingöngu um 2,5% eins og samþykkt var í meðferð rammaáætlunar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá með áorðnum breytingum og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
12.Gjaldskrá skipulagsfulltrúa þjónustu- og framkvæmdagjöld 2027
Málsnúmer 2608197Vakta málsnúmer
Lögð fram gjaldskrá skipulagsfulltrúa fyrir árið 2027.
Gjaldskrá vegna framkvæmdaleyfa og skipulagsmála byggir á skipulagslögum nr. 123/2010 og þeirri meginreglu að umsækjandi standi straum af kostnaði sveitarfélagsins vegna vinnslu máls, þar með talið vinnu við skipulagsáætlanir og framkvæmdaleyfi, kynningu, auglýsingar, umhverfismat og eftir atvikum aðkeypta þjónustu.
Gjaldskráin tekur að hámarki 2,5% hækkun frá núverandi gjaldskrá í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Gjaldskrá vegna framkvæmdaleyfa og skipulagsmála byggir á skipulagslögum nr. 123/2010 og þeirri meginreglu að umsækjandi standi straum af kostnaði sveitarfélagsins vegna vinnslu máls, þar með talið vinnu við skipulagsáætlanir og framkvæmdaleyfi, kynningu, auglýsingar, umhverfismat og eftir atvikum aðkeypta þjónustu.
Gjaldskráin tekur að hámarki 2,5% hækkun frá núverandi gjaldskrá í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
13.Þjónustustefna Skagafjarðar 2027
Málsnúmer 2610108Vakta málsnúmer
Með lögum nr. 96/2021 sem tóku gildi í júní 2021 samþykkti Alþingi nýtt ákvæði við sveitarstjórnarlög sem fjallar um þjónustustefnu í byggðum og byggðarlögum sveitarfélags. Samkvæmt 130. gr. a sveitarstjórnarlaga skal sveitarstjórn móta stefnu fyrir komandi ár og næstu þrjú árin eftir það, um það þjónustustig sem sveitarfélagið hyggst halda uppi í byggðum og byggðarlögum fjarri stærstu byggðakjörnum viðkomandi sveitarfélags.
Lögð voru fram drög að þjónustustefnu 2027-2030 sem byggja á gildandi þjónustustefnu.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að auglýsa eftir athugasemdum og ábendingum um breytingar á gildandi þjónustustefnu og vísar stefnunni jafnframt til fyrri umræðu í sveitarstjórn.

14.Fyrirspurn um nýja norðurgarðinn við Sauðárkrókshöfn
Málsnúmer 2610109Vakta málsnúmer
Lögð fram fyrirspurn frá Einari E. Einarssyni fyrir hönd Framsóknarflokksins, dagsett 11. október 2026.
Í fyrirspurninni óskar Einar eftir að staða framkvæmda, fjármögnun og áætluð verklok á nýja Norðurgarðinum við Sauðárkrókshöfn verði tekin á dagskrá fundar byggðarráðs.
Svör byggðarráðs við fyrirspurninni eru eftirfarandi:
Framkvæmdir við nýja Norðurgarðinn við Sauðárkrókshöfn eru komnar vel á veg. Núverandi verk við brimvörn er um 63% lokið miðað við samningsfjárhæð og er áætlað að brimvörninni ljúki vorið 2027. Samhliða er unnið að fyllingu fyrir nýjan hafnarkant og er gert ráð fyrir að fylling og farg verði komin út í lok árs 2026. Að því loknu þarf fyllingin að standa þar til ásættanlegu sigi hefur verið náð áður en unnt verður að hefja framkvæmdir við stálþil og steypta þekju.
Áætlaður kostnaður við brimvörn er 915 m.kr. og nemur framlag ríkissjóðs 60% að frádregnum virðisaukaskatti. Fyllingin nýtur sama styrkhlutfalls. Fyrirstöðugarður, sem áætlaður er að kosti 80 m.kr., er hins vegar ekki ríkisstyrktur. Dýpkun, áætluð árið 2028, er ekki komin inn á samgönguáætlun og framkvæmdir við stálþil og steypta þekju, sem áætlaðar eru um 1.100 m.kr., eru ekki fullfjármagnaðar. Ekki liggur því fyrir endanleg tímasetning verkloka heildarframkvæmdarinnar, en samkvæmt fyrirliggjandi áætlunum er gert ráð fyrir framkvæmdum fram yfir árið 2031.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra, sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs og hafnarstjóra að funda með fulltrúum Vegagerðarinnar og vinna að raunhæfri tíma- og kostnaðaráætlun fyrir þá verkþætti sem eftir standa, með það að markmiði að tryggja áframhaldandi framgang verkefnisins. Niðurstöður þessa samtals skulu lagðar fyrir byggðarráð eins fljótt og auðið er. Byggðarráð leggur áherslu á mikilvægi uppbyggingar Sauðárkrókshafnar, enda er verkefnið mikið hagsmunamál fyrir Skagafjörð og Norðurland vestra í heild.

15.Austurgata 9
Málsnúmer 2610117Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi frá Karli Tómassyni og Líneyju Ólafsdóttur, dagsett 11. október 2026, varðandi íbúð í eigu sveitarfélagsins að Austurgötu 9 á Hofsósi.
Í erindinu gera þau grein fyrir húsnæðisstöðu sinni og samskiptum við sveitarfélagið vegna áhuga á langtímaleigu á íbúðinni. Jafnframt óska þau eftir því að við ráðstöfun eignarinnar verði tekið mið af þörfum umsækjenda.
Byggðarráð þakkar fyrir erindið og biðst velvirðingar á þeirri meðferð sem málið hefur fengið á fyrri stigum.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að bíða með ráðstöfun fasteignarinnar að Austurgötu 9, enda er eigninni ætlað að þjóna þeim tilgangi að tryggja framboð félagslegs leiguhúsnæðis. Staðan verði endurmetin að sex mánuðum liðnum hafi þá enginn umsækjandi, sem uppfyllir skilyrði samkvæmt reglum sveitarfélagsins um félagslegt leiguhúsnæði, óskað eftir íbúðinni.
Einar E. Einarsson fulltrúi Framsóknarflokks óskar bókað:
"Með hliðsjón af þessu máli og þróun þess má ljóst vera að eitthvað hefur farið verulega úrskeiðis í upplýsingaflæði frá sveitarfélaginu um í hvaða farveg þessi umrædda íbúð ætti að fara, yrði hún laus til umsóknar. Það er miður að svo skuli hafa farið og að fólk sem leitaði til sveitarfélagsins eftir upplýsingum um stöðu sveitarfélagsins hafi fengið misvísandi upplýsingar um í hvaða farveg íbúðin færi í. Það er mjög mikilvægt að sá ferill sem lausar íbúðir fara í sé alveg skýr og ef það á að setja íbúð í leigu á almenna markaðnum sé hún auglýst með opinberum hætti og þá dregið úr umsækjendum séu þeir fleiri en einn."

Fundi slitið - kl. 12:25.
Á 196. fundi byggðarráðs, þann 27. maí 2026 lagði Einar E. Einarsson, fulltrúi framsóknarflokks fram tillögu um framkvæmd milliuppgjörs fyrir fyrri helming ársins. Tillagan var samþykkt samhljóða.
Milliuppgjörið liggur nú fyrir og lagði Helgi fram uppgjörið og kynnti helstu niðurstöður fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2026. Rekstrartekjur A- og B-hluta námu 4.962,6 m.kr. og rekstrargjöld, að meðtöldum afskriftum og breytingu lífeyrisskuldbindingar, 4.457,6 m.kr. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var því jákvæð um 505,0 m.kr. Að teknu tilliti til 336,3 m.kr. nettó fjármagnsgjalda var rekstrarniðurstaða A- og B-hluta jákvæð um 168,7 m.kr. A-hluti var hins vegar rekinn með 22,2 m.kr. halla á tímabilinu.
Heildareignir A- og B-hluta í lok júní námu 17.614,7 m.kr., eigið fé 6.284,2 m.kr. og skuldir og skuldbindingar 11.330,5 m.kr. Handbært fé frá rekstri nam 844,6 m.kr. á fyrri helmingi ársins og handbært fé í lok tímabilsins var 897,0 m.kr. Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum námu 391,7 m.kr. á tímabilinu. Við mat á uppgjörinu er jafnframt rétt að hafa í huga að sala fasteigna Félagsíbúða til Bríetar leigufélags hses. hefur ekki verið færð inn í uppgjörið þar sem þeim viðskiptum var ekki lokið við gerð þess.
Stutt hlé gert á fundi.
Einar E. Einarsson, fulltrúi Framsóknarflokks lagði fram svohljóðandi bókun:
"Framlagt árshlutauppgjör fyrir fyrstu 6 mánuði ársins vekur upp margar spurningar um raunverulega stöðu sveitarfélagsins en niðurstaðan á rekstri bæði A og B hluta eru vonbrigði. Í uppgjörinu er ekki gert ráð fyrir sölu félagslegu íbúðanna til Bríetar þó samningur um það hafi verið samþykktur af bæði sveitarstjórn Skagafjarðar og stjórn Bríetar. Vissulega er hann ekki kominn til framkvæmda en engu að síður er búið að samþykkja hann með formlegum hætti af báðum aðilum og setja hann inn í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2026. Því má spyrja sig hvort sú áætlun sem núna er unnið eftir og hefur verið uppfærð með 7 viðaukum á árinu sé trúverðug."