Fara í efni

Gjaldskrá vatnsveitu 2027

Málsnúmer 2608204

Vakta málsnúmer

Landbúnaðar- og innviðanefnd - 53. fundur - 29.09.2026

Lögð fram drög að uppfærðri gjaldskrá vatnsveitu 2027. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir gjaldskrána samhljóða.

Byggðarráð Skagafjarðar - 213. fundur - 15.10.2026

Máli vísað frá 53. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 29. september sl.

Landbúnaðar- og innviðanefndin samþykkti gjaldskránna og vísaði henni til afgreiðslu byggðarráðs.

Gjaldskráin hækkar almennt um 2,5% en mælagjöld tóku hærri hækkunum í þeirri gjaldskrá sem vísað var til afgreiðslu byggðarráðs.

Umræður á fundinum snéru að því að leiðrétta gjaldskránna og miða alfarið við 2,5% viðmiðið og hækka því allir liðir gjaldskrárinnar eingöngu um 2,5% eins og samþykkt var í meðferð rammaáætlunar.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá með áorðnum breytingum og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.