Lagt fram erindi frá Karli Tómassyni og Líneyju Ólafsdóttur, dagsett 11. október 2026, varðandi íbúð í eigu sveitarfélagsins að Austurgötu 9 á Hofsósi.
Í erindinu gera þau grein fyrir húsnæðisstöðu sinni og samskiptum við sveitarfélagið vegna áhuga á langtímaleigu á íbúðinni. Jafnframt óska þau eftir því að við ráðstöfun eignarinnar verði tekið mið af þörfum umsækjenda.
Byggðarráð þakkar fyrir erindið og biðst velvirðingar á þeirri meðferð sem málið hefur fengið á fyrri stigum.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að bíða með ráðstöfun fasteignarinnar að Austurgötu 9, enda er eigninni ætlað að þjóna þeim tilgangi að tryggja framboð félagslegs leiguhúsnæðis. Staðan verði endurmetin að sex mánuðum liðnum hafi þá enginn umsækjandi, sem uppfyllir skilyrði samkvæmt reglum sveitarfélagsins um félagslegt leiguhúsnæði, óskað eftir íbúðinni.
Einar E. Einarsson fulltrúi Framsóknarflokks óskar bókað:
"Með hliðsjón af þessu máli og þróun þess má ljóst vera að eitthvað hefur farið verulega úrskeiðis í upplýsingaflæði frá sveitarfélaginu um í hvaða farveg þessi umrædda íbúð ætti að fara, yrði hún laus til umsóknar. Það er miður að svo skuli hafa farið og að fólk sem leitaði til sveitarfélagsins eftir upplýsingum um stöðu sveitarfélagsins hafi fengið misvísandi upplýsingar um í hvaða farveg íbúðin færi í. Það er mjög mikilvægt að sá ferill sem lausar íbúðir fara í sé alveg skýr og ef það á að setja íbúð í leigu á almenna markaðnum sé hún auglýst með opinberum hætti og þá dregið úr umsækjendum séu þeir fleiri en einn."